Morgunblaðið - 28.08.2005, Page 41
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 41
AUÐLESIÐ EFNI
GRUNN-SKÓLARNIR eru
byrjaðir aftur eftir sumar-frí.
Mikið hefur verið að gera í
ritfanga-verslunum. Fólk
hefur þurft að bíða lengi í
bið-röðum.
Illa gengur að manna
stöður á frístunda-heimilum
í Reykjavík. Börn sem þess
þurfa fara á
frístunda-heimilin eftir
skóla. Það vantar fólk í 90
stöður á 33
frístunda-heimilum í
borginni. Oft eru langir
bið-listar eftir plássi.
Vantar fólk víða
Ástandið er líka slæmt í
mörgum leik-skólum. Sums
staðar vantar marga
starfs-menn. Ástæðan er
sögð vera þensla í
þjóð-félaginu.
Launin þykja ekki nógu
góð og það er nóga aðra
vinnu að fá.
Á hjúkrunar-heimilum
gengur líka illa að fá fólk til
starfa. Sums staðar hefur
þurft að stöðva allar nýjar
innlagnir.
Börnin sest á skóla-bekk
Morgunblaðið/Jim Smart
Skóla-lóðirnar iða af lífi þessa dagana og Mela-skóli er þar engin undan-tekning.
NÝJAR reglur um útlendinga
sem eiga heima í Bretlandi
hafa tekið gildi. Bresk
stjórn-völd geta núna vísað
útlendingi úr landi eða
bannað fólki að koma til
landsins. Reglurnar eru
settar út af hryðju-verkunum í
London 7. júlí sl. 52 dóu í
árásunum.
Í reglunum segir að reka
megi fólk burtu ef það æsir til
hryðju-verka. Líka ef það
rétt-lætir þau eða talar vel
um þau. Búa á til
gagna-grunn um þá sem hafa
brotið reglurnar.
Charles Clarke er
innan-ríkis-ráðherra Breta.
Hann segir að reglurnar séu
ekki til að minnka mál-frelsi í
Bretlandi. Hann segir að
þeim verði framfylgt í hófi.
Árás á mann-réttindi
Margir hafa gagnrýnt
þessar reglur.
Mannréttinda-samtök hafa
bent á að reglurnar séu árás
á mann-réttindi. Bresk
yfir-völd eigi bara að sækja
menn til saka ef þeir brjóta
lög. Í öðru landi geti þeir átt
von á pyntingum og jafnvel
verið dæmdir til dauða.
Hreyfingar múslima hafa
tekið í sama streng.
Nýjar reglur um út-
lendinga í Bretlandi
Reuters
Charles Clarke, innanríkis-
ráðherra Breta.
FH er orðið Íslands-meistari í
karla-fótbolta. FH-ingar
tryggðu sér titilinn í leik við
Val síðasta sunnudag.
FH vann leikinn 2-0.
Íslands-mótið er samt ekki
búið. FH-ingar eru komnir
með svo mikið af stigum að
það getur enginn náð þeim.
Ólafur Jóhannesson er
þjálfarinn þeirra. Hann var
mjög ánægður með titilinn.
FH hefur unnið alla leikina
sína í sumar. Þeim hefði
nægt að gera jafn-tefli við
Val.
Morgunblaðið/Jim Smart
Stuðnings-menn FH voru auðvitað hæst-ánægðir með Íslands-meistara-titilinn.
FH Íslands-meistarar
Listdans-skólinn hættir
Menntamála-ráðuneytið
hefur ákveðið að leggja
Listdans-skóla Íslands niður-
. Þetta verður því síðasta
starfs-ár skólans. Hann
hefur starfað í 52 ár. Til
stendur að færa ballett-nám
inn í framhalds-skólana.
Kanar verða feitari og feitari
Bandaríkja-menn fitna
með hverju árinu. Áróður um
hollt matar-æði virðist ekki
skila miklu. Um það bil 1 af
hverjum 4 Bandaríkja-
mönnum þjáist af offitu.
Þetta hefur í för með sér
alls konar sjúk-dóma, t.d.
sykur-sýki og hjarta-sjúk-
dóma.
Maradonna með hendi guðs
Maradonna hefur loksins
viður-kennt að hafa skorað
með hendinni á móti Eng-
lendingum í HM í fótbolta ár-
ið 1986. Þetta sagði hann í
sjónvarps-þættinum sínum í
Argentínu. Maradonna
segist ekkert sjá eftir
þessu. Strax eftir leikinn
sagði hann markið hafa
verið gert með hendi guðs.
Uppsagnir á Vellinum
Til stendur að segja upp
allt að 13 manns í her-
stöðinni í Keflavík. Ef það
gerist hefur 200 manns
verið sagt upp frá árinu
2003. Það ár var farið af
stað með sparnað og
hagræðingu.
Stutt
ÍSLAND vann Hvíta-Rússland í
undan-keppni HM í kvenna-
fótbolta síðasta sunnudag.
Leikurinn fór 3-0. Íslenska lið-
ið stóð sig samt ekkert svaka-
lega vel. Þjálfari þess var ekki
mjög ánægður. Hann sagði að
liðið hefði verið óöruggt.
Næsti leikur liðsins er gegn
Svíþjóð. Sá leikur verður
erfiðari. Svíar eru senni-lega
bestir í riðlinum.
Ísland vann Hvíta-Rússland
Morgunblaðið/Jim Smart
Íslendingar stóðu sig ekki alveg nógu vel í leiknum á móti Hvíta-Rússlandi en unnu samt.
ERFITT ástand er hjá
dag-foreldrum í Reykjavík.
Þeir eru núna 140. Þeim
fækkaði um 20 í sumar.
Margir foreldrar eru í
vand-ræðum með að
koma börnunum sínum
fyrir.
Dag-foreldrar héldu
fund í vikunni til að ræða
málin. 100 manns mættu
á fundinn. Þeir eru ekki
ánægðir með að borgin
greiði ekki meira niður
fyrir foreldra sem hafa
börnin sín hjá
dag-foreldrum.
Hvert og eitt
dag-foreldri má bara hafa
5 börn hjá sér í einu.
Erfitt hjá
dag-foreldr-
um