Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Síða 44

Morgunblaðið - 28.08.2005, Síða 44
44 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurður Karls-son brunavörður fæddist við Bjarkar- götuna í Reykjavík 22 september 1930. Hann lést á heimili sínu 25. júlí síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Karl Óskar Bjarnason vara- slökkviliðsstjóri í Reykjavík, f. 16. október 1895, d. 25 mars 1960, og kona hans, Kristín Lovísa Sigurðardóttir al- þingismaður í Reykjavík, f. 23. mars 1898, d. 31 október 1971. Systkini Sigurðar voru tvö, Guð- mundur brunavörður og blaða- maður, f. 31 ágúst 1919, d. 13 mars 1979, kvæntur Önnu Guðnýju Jónsdóttur, þau eignuðust fjögur börn, og Anna Kristín skrifstofu- maður, f. 4 júlí 1929, d. 15 janúar 1987, gift Kristni P. Michelsen, þau eignuðustu fjögur börn. Sigurður kvæntist Líney Huldu Gestsdóttur, f. á Lækjarbakka á Ár- skógsströnd í Eyja- firði 3. nóvember 1935, d. í Reykjavík 19. júlí 1998. For- eldrar hennar voru Gestur Sölvason og Kristjana Steinunn Ingimundardóttir. Sigurður átti heima við Bjarkar- götuna allt til ársins 2000 að hann flutti á Unnarbrautina á Seltjarnarnesi. Hann lauk prófi og öðlaðist meistararétt- indi í rafvirkjun og rafvélavirkjun árið 1952 og starfaði við þær greinar til ársins 1962. Auk þess starfaði hann í varaliði slökkviliðs- ins í Reykjavík frá 1948. Sigurður hóf síðan fullt starf hjá slökkvilið- inu 1962 og starfaði hann þar til hann hætti af heilsufarsástæðum 1992. Útför Sigurðar fór fram í kyrr- þey. Sigurður Karlsson hefði orðið sjö- tíu og fimm ára í haust hefði hann lif- að. Lungann af starfsævinni var hann slökkviliðsmaður hjá Slökkviliði Reykjavíkur, eins og það hét þá. Hann hóf störf í vorbyrjun 1963 og hætti sökum aldurs í ársbyrjun 1993. Í tæp þrjátíu ár gekk hann vaktir og hjálpaði samborgurum sínum þegar á bjátaði. Þótt ótrúlega hljómi réð til- viljun ein, að hann varð slökkviliðs- maður. Hann var lærður rafvélavirki og vann við það, þegar hann hitti kunningja sinn á förnum vegi og sagði honum að hann langaði að breyta til. Sá var slökkviliðsmaður sjálfur og vissi að það vantaði mann, raunar á vaktina strax um kvöldið. Hann fékk Sigga með sér á slökkvistöðina. Siggi var ráðinn á staðnum og tók fyrstu vakt um kvöldið. Siggi var ekki alveg ókunnugur slökkvistöðinni, því faðir hans var slökkviliðsmaður og vara- slökkviliðsstjóri í tæp tuttugu ár, Karl O. Bjarnason. Siggi hafði því verið að sniglast á stöðinni sem strákur meðan föður hans naut við. Siggi stóð sig vel. Hann var góður félagi og fær slökkviliðsmaður. Hann var afar vel lesinn og listhneigður. Ásamt bróður sínum, Guðmundi, sem einnig var slökkviliðsmaður um hríð, útbjó hann flest af því kennsluefni, er notað var í byrjun til að fræða og kenna slökkviliðsmönnum. Auk þess teiknaði Siggi myndir sem fylgdu námsefninu. Þá kom hann að útgáfu Rauða hanans, blaðs slökkviliðs- manna, sem gefið var út um tíma. Siggi kom víða við á stöðinni. Í fyrstu sinnti hann hefðbundnum slökkvi- og sjúkraflutningastörfum og var lengi bílstjóri á fyrsta útkallsbíl, enda góður dælumaður. Seinna fór hann til starfa hjá eldvarnaeftirlitinu. Síðustu árin nýtti hann kraftana á verkstæðinu, þar sem var í mörg horn að líta. Siggi sinnti öllu sínu af alúð. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þakkar Sigurði vel unnin störf í þágu liðsins og sendir aðstandendum sam- úðarkveðjur. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri, Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Sigurður Karlson eða Bóbó eins og hann var best þekktur af fjölskyldu sinni var fæddur og uppalinn á Bjark- argötu við Reykjavíkurtjörn, yngstur þriggja systkina. Eins og faðir hans og bróðir lá leið hans í Slökkviliðið Reykjavíkur árið 1948 þar sem hann var fastráðinn frá 1962 til 1992. Af þeim stundum var hann ávallt mjög stoltur og fjölskyldan sömuleiðis. Það var svo heilla ár þegar hann kynntist stóru ástinni í sínu lífi, henni Huldu. Strax urðu þau óaðskiljanleg og oftar en ekki betur þekkt sem sam- lokurnar. Þetta varð einstakt sam- band sem eftir varð tekið. Hulda varð strax ein af okkur og þótti okkur mjög vænt um hana. Ófáar ferðir voru farn- ar með þeim í hin ýmsu ferðalög inn- an lands, að ónefndum sundferðunum sem voru eitt mesta sport barna minna. Fyrstu árin í lífi elstu dóttur minnar, voru nærri allar helgar tekn- ar í gistingu hjá þeim hjónum. Þeim fannst það ekki leiðinlegt og var lítið til sparað, hvort sem það var ferð í Eden til að fá að sjá apann eða fjár- sjóðsferð niður í fjöru. Þau voru ynd- isleg og mun ég ávallt vera þeim þakklát fyrir stuðninginn sem þau veittu mér og minni fjölskyldu alla tíð. Það var Bóbó mikið áfall þegar Hulda, lífsförunautur hans og besti vinur, lést árið 1998. Það var eins og neistinn hefði dofnað, því að fljótlega á eftir fór heilsu hans að hraka. Þrátt fyrir tíðar spítalaferðir og veikindi hélt Bóbó ákaflega fast í sína trú. Hann var mjög trúaður maður og kunni Biblíuna spjaldanna á milli, ef- laust betur en margur fræðimaður- inn. Hann trúði á Karma og lifði eftir því, það væri betur að allir gerðu það. Á okkar heimili var Bóbó tíður gestur, hvort sem það var í mat, kaffi eða bara til að ræða málin. Hann var einstakur persónuleiki og það vita all- ir sem að til hans þekktu. Bóbó var ávallt hreinskilinn maður og skoðana- stór og það voru ekki allir sem því gátu tekið. En Bóbó var bara Bóbó, Bóbó frændi. En eins og hann oft sagði sjálfur „Ég ræð“. Jól og áramót verða ekki þau sömu hér eftir, hann átti sinn stól og sinn bolla. En við sem unnum honum mest munum halda minningu hans á lofti um aldur og ævi. Takk fyrir allt og allt elsku Bóbó. „Guð mun þakka þér.“ Sólveig, Björn, Anna Lovísa, Guðrún Hulda og Karl Ingi. SIGURÐUR KARLSSON Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEINUNN SIGURÐARDÓTTIR, Ránargrund 3, Garðabæ, lést á heimili sínu aðfaranótt þriðjudagsins 16. ágúst síðastliðinn. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Guðmundur Sigurjónsson, Stella Gróa Óskarsdóttir, Sigurður Sigurjónsson, Elísa Steingrímsdóttir, Sigurjón Sigurjónsson, Eva Yngvadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir mín, tengdamóðir, amma og lang- amma, BJÖRG SIGURJÓNSDÓTTIR, andaðist á elliheimilinu Grund fimmtudaginn 18. ágúst. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Sigurjón Sverrisson, Hrafnhildur Júlíusdóttir, Ingunn Björg Sigurjónsdóttir, Sigurjón Hjaltason, Markús Finnbogi Sigurjónsson, Helga Rakel Þorgilsdóttir, Sigríður Þorbjörg Sigurjónsdóttir, Víðir Arnar Kristjánsson og barnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, dóttir, tengdadóttir og amma, RUT LÁRUSDÓTTIR, Heiðarenda 8, áður Faxabraut 67, Keflavík, verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju þriðjudaginn 30. ágúst kl. 14.00. Brynjar Hansson, Guðrún Lára Brynjarsdóttir, Skúli Rósantsson, Sólveig Hanna Brynjarsdóttir, Eiður Gils Brynjarsson, Guðrún Árnadóttir, Sólveig Björndís Guðmundsdóttir, Rut, Rósant Friðrik og Soffía Rún. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GÍSLI GUÐLAUGUR GÍSLASON, andaðist á Hrafnistu Reykjavík laugardaginn 20. ágúst. Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabarn. Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MAREN NÍELSDÓTTIR KIERNAN, lést á dvalarheimilinu Hrafnistu Reykjavík föstu- daginn 26. ágúst. Útförin verður auglýst síðar. Edward, Erla, Elsa, Stella, Jóhann, Victor Pétur, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, DAGBJÖRT SIGURÐARDÓTTIR frá Stígshúsi, Stokkseyri, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfaranótt föstudagsins 26. ágúst. Ágúst Guðbrandsson, Hólmfríður Hlíf Steinþórsdóttir, Einar Páll Bjarnason, Ragnheiður Drífa Steinþórsdóttir, Logi Hjartarson, Kristín Steinþórsdóttir, Jason Steinþórsson, Hrönn Sturlaugsdóttir, Guðbrandur Stígur Ágústsson, Brynhildur Arthúrsdóttir, Guðríður Bjarney Ágústsdóttir, Sigríður Inga Ágústsdóttir, Dagrún Mjöll Ágústsdóttir, Aron Hauksson, barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og bróðir, SIGGEIR ÓLAFSSON bifreiðastjóri og sölumaður, Flétturima 36, verður jarðsunginn frá Grafarvogskirkju þriðju- daginn 13. september kl. 15.00. Ester Haraldsdóttir, Vignir Þór Siggeirsson, Katrín Jónsdóttir, Haraldur B. Siggeirsson, Margrét Á. Jóhannsdóttir, Ólafur Karl Siggeirsson, Guðlaug Edda Siggeirsdóttir, Helgi Hafþórsson, barnabörn og systkini hins látna. Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, UNNUR EINARSDÓTTIR, lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 25. ágúst. Jarðarförin verður auglýst síðar. Sigurður K. Brynjólfsson, Einar Sigurðsson, Jarþrúður Guðnadóttir, Auður Guðfinna Sigurðardóttir, Tryggvi Svansson. Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, MATTHILDUR KRISTJÁNSDÓTTIR, Sandholti 40, Ólafsvík, andaðist á St. Franciskuspítalanum í Stykkishólmi fimmtudaginn 25. ágúst. Útför fer fram frá Ólafsvíkurkirkju laugardaginn 3. september kl. 14.00. Guðmundur Alfonsson, Bryndís Guðmundsdóttir, Samúel Valsson, Finnur Guðmundsson, Albert Guðmundsson, Samran Sela, Hjörleifur Guðmundsson, Fríða Sveinsdóttir og barnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.