Morgunblaðið - 28.08.2005, Page 46
46 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Antík
Ótrúlegt úrval af öðruvísi
vörum beint frá Austurlöndum.
Frábært verð. Sjón er sögu ríkari.
Vaxtalausar léttgreiðslur.
Opið virka kl. 11-18, laug. 11-15.
Sigurstjarnan,
Bláu húsin Fákafeni,
sími 588 4545,
netfang: postulín.is
Barnagæsla
„Au pair“ í Svíþjóð. Íslensk fjöl-
skylda í Halmstad í Svíþjóð óskar
eftir „au pair“ frá miðjum sept.
Þarf að vera orðin 18 ára og með
bílpróf. Upplýsingar veitir Halla
í síma 698 5394.
„Amma“ í Grafarvogi. Barngóð
kona óskast til aðstoðar á heimili
í Foldunum í Grafarvogi þrisvar
í viku. Gæti orðið meira seinna
ef vel gengur. Upplýsingar í síma
864 6530.
Bækur
Valur Vestan
Loksins loksins!
Týndi hellirinn, Flóttinn frá
París, Rafmagnsmorðið og
Átta sögur. Hringið í síma
568 1000 eða sendið póst á
frum@frum.is – www.frum.is
Faxafeni 10
Sími 568 1000
Dýrahald
Er með Labrador hvolpa til sölu,
fædda 20. júlí. Ættbókarfærðir
foreldrar með mjög góðan veiði-
prófsárangur. Til afh. ca 20. sept-
ember. Verð 175 þús. fyrir hvolp-
inn. Trygging til eins árs.
Áhugasamir hafi samband með
tölvupósti á netf. fiskakv@mbl.is
eða í síma 669 1103.
Heilsa
Fæ›ubótarefni ársins 2002
í Finnlandi
Fosfoser Memory
Umboðs- og söluaðili
sími: 551 9239
Prófaðu Shapeworks og finndu
muninn. Sérsniðin áætlun sem
hentar þér. Einkaráðgjöf eða
vikulegur heilsuklúbbur
www.heilsuvorur.is
Kristjana og Geir, sjálfstæðir
dreifingaraðilar Herbalife,
sími 898 9020.
Nudd
Við hjá Nuddstofunni í Hamra-
borg 20A getum hjálpað þér með
verki í líkamanum. Verð 2.900 kr.
á klst. Sími 564 6969.
Umsögn viðskiptavinar:
Ég var orðinn mjög slæmur í
hægri hendi, en strax eftir 1. tím-
ann í nuddi gat ég farið að nota
hendina aftur og ég get því mælt
með Kínversku nuddstofunni í
Hamraborg 20A, Felix Eyjólfsson.
Glæsilegur ferðanuddbekkur til
sölu. Með höfuðpúða og tösku,
195 cm langur, 70 cm breiður.
Reyki endaplötu. Á nokkra bekki
sem hægt er að breikka upp í 80
cm. Frá 45.000 kr. Nálastungur
Íslands ehf., sími 520 0120 eða
863 0180.
Heimilistæki
2 ÁRA WHIRLPOOL ÞURRKARI
TIL SÖLU
Overdry protection og fl. Kostar
nýr 65000. Staðgreiðsla 30.000.
Uppl. 564 1499
Húsgögn
Rokokkó húsgögn í stofuna,
3+1+1 sófasett ásamt borði,
borðst.setti m. 4 stólum, sjón-
varpsskáp og stórum glerskáp.
Allt í stíl og selst í einu lagi á 150
þús. Uppl. í síma 897 8759.
HÅG skrifstofustólarnir eru við-
urkenndir af sjúkraþjálfurum og
eru með 10 ára ábyrgð.
EG skrifstofuhúsgögn,
Ármúla 22, s. 533 5900
www.skrifstofa.is
Húsnæði í boði
Selfoss. 5 herb. blokkaríb. Laus
1. sept. Góð fyrir stóra fjölskyldu,
116 fm. Rétt við Fjölbraut. Kr.
75.000 á mán. + 6.500 í hússj.
mp@bondi.is, s. 898 3630.
3ja herbergja íbúð við Víðimel
til leigu. Laus strax.
Upplýsingar í síma 694 5595.
Húsnæði óskast
Óska eftir 4ra herb. íbúð til
leigu á svæði 101, 103 eða 105.
Reglusemi og skilvísum greiðsl-
um heitið. Uppl. í síma 697 7399.
Óska e. 3ja-7 herb. eða ein-,
tví- eða þríbýli. 4 manna fjöl-
skylda óskar e. einbýlishúsi eða
3ja-7 herbergja íbúð í Rvík, Mosó,
Kópav. m. sérinngangi+afnot af
garði. Greiðslug. kr. 60-140 þús.
Guðjón s. 661 9660.
Erum að flytja heim frá Dan-
mörku! Viðskiptafræðinemi og
smiður með eitt barn óska eftir
3ja herb. íbúð til leigu í haust á
svæði 101-108. Mjög snyrtileg og
ábyggileg. Upplýsingar í síma
895-6119 eða á jm@hradbraut.is
2 herb. eða stúdíóíbúð óskast
til leigu. Ungur piltur úr Skaga-
firði óskar eftir íbúð, helst nálægt
HÍ. Er reglusamur og reyklaus.
Greiðslugeta 55.000. Uppl. í síma
453 7454 & 868 8145.
Sumarhús
Sumarhús til sölu 73 m²+40 m²
svefnloft. Mjög vandað sumar-
hús/heilsárshús til sölu. Mikil ein-
angrun, 150 mm í veggjum og 200
mm í golf og lofti. Litað K gler og
franskir gluggar. Stallað ál á þaki.
S: 8975802-8919373-6638093 egs-
verk@isl.is
Sumarhús — orlofshús.
Erum að framleiða stórglæsileg
og vönduð sumarhús í ýmsum
stærðum. Áratuga reynsla.
Höfum til sýnis á staðnum fullbú-
in hús og einnig á hinum ýmsu
byggingarstigum.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
símar 892 3742 og 483 3693,
netfang: www.tresmidjan.is
✝ Steinunn Sig-urðardóttir
fæddist í Reykjavík
15. nóvember 1922.
Hún lést á heimili
sínu 16. ágúst síð-
astliðinn. Foreldrar
hennar voru Sig-
urður Jónsson sjó-
maður, f. 28.9.
1892, d. 3.7. 1927
og Hallfríður Mar-
grét Einarsdóttir, f.
4.5. 1895, d. 21.12.
1973. Systkini
Steinunnar eru Sig-
fríður, f. 1925, Guðrún, f. 1926,
Sigríður Ben, f. 1928, d. 2002 og
Lúðvík Lúðvíksson, f. 1938 sam-
mæðra.
Steinunn giftist 19. desember
1947 Sigurjóni Guðmundssyni
rafvirkjameistara frá Hafnar-
firði, f. 17.7. 1922, d. 19.4. 2000.
Foreldrar hans voru Guðmundur
Sigurjónsson skipstjóri, f. 26.5.
1891, d. 18.2. 1965 og Ólafia Þor-
láksdóttir, f. 2.3. 1888, d. 28.2.
1959. Börn Steinunnar og Sig-
urjóns eru: 1) Guðmundur, f.
25.9. 1947, maki
Stella Gróa Óskars-
dóttir, f. 1949, börn
a) Sigurbjörg Ósk
Áskelsdóttir og b)
Sigurjón. 2) Sigurð-
ur, f. 24.9. 1950,
maki Elísa Stein-
grímsdóttir, f. 1955,
börn a) Sigurjón,
sambýliskona Ebba
Særún Brynjars-
dóttir, b) Stein-
grímur, sambýlis-
kona Berglind
Arnarsdóttir og c)
Styrmir. Langömmubörn eru
Sveinn Ísak Sigurjónsson og
Andrea Marý Sigurjónsdóttir. 3)
Sigurjón, f. 21.3. 1963, maki Eva
Yngvadóttir, f. 1964, börn Yngvi,
Steinunn og Elíana.
Steinunn vann við skrifstofu-
störf áður en hún giftist Sig-
urjóni en helgaði sig heimilis-
störfum eftir það og kom sonum
sínum til nokkurs þroska.
Útför Steinunnar hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar
látnu.
„Þakka þér fyrir allt, Bíbí mín.“
Hún stóð fyrir framan mig, ég tók
utanum hana og hlustaði á sjálfa
mig segja þessi orð. „Þakka þér fyr-
ir allt, Bíbí mín.“ Hún var einstök
kona. Yfir henni hvíldi ákveðin feg-
urð en um leið einhvers konar fjar-
lægur ósnertanleiki. Hún var vand-
virk og allt sem hún kom nálægt bar
þess vitni. Hún var afar viðkvæm en
það var eins og hún vildi ekki að við
vissum allt of mikið af því og varði
sig með sérstökum hætti. Þess
vegna tók það mig langa tíma að
læra að þekkja hana og vita hver
hún var.
Þeim mun meira sem ég lærði að
þekkja hana, þeim mun vænna þótti
mér um hana. Fyrir mér var hún af-
ar vel gerð og velviljuð kona. Ég er
þakklát Guði fyrir allt það sem hún
kenndi mér með lífi sínu.
Á 6 árum fæddust 4 systur. Bíbí
var elst, en á sumarkvöldi í júlímán-
uði 1927 þegar hún var aðeins 5 ára
gömul og sú yngsta ekki fædd dundi
áfallið yfir. Pabbi þeirra ætlaði í
smáökuferð með vini sínum, á mót-
orhjóli. Líf hans varð ekki lengra.
Enginn verður samur eftir slíka
atburði en fjölskyldan stóð saman.
Það skipti sköpum. Til dæmis urðu
móðurbræður þeirra kostgangarar
hjá systur sinni til að auðvelda henni
uppeldi dætra sinna. Þær fengu all-
ar að alast upp saman ásamt litla
bróður sínum sem fæddist síðar.
Fyrir um það bil ári var Guð-
mundur minn að lesa grein eftir
Þráin Guðmundsson í Tímaritinu
Skák. Greinin fjallaði um eitt elsta
skákfélag landsins „Hrókinn“. Guð-
mundur hélt áfram að lesa. „Hrók-
urinn var fjölskyldufélag og enginn
gat orðið félagi nema að tilheyra
ættbálknum. Hann var meðal ann-
ars stofnaður til að styrkja bág-
staddan ættingja. Þessi ættingi var
móðir Bíbíar.
Guð gaf henni góða fjölskyldu,
eiginmann og þrjá syni. Hún vissi
það og var þakklát fyrir gjafirnar.
Þau Sigurjón voru óvenju samrýnd
hjón og minningin um samband
þeirra er okkur sem eftir lifum dýr-
mæt. Við erum líka þakklát fyrir þá
gjöf sem Guð gaf okkur með henni.
Hún lifði mann sinn og var hlíft við
því fyrir örfáum árum að missa
yngsta son sinn. Það fáum við aldrei
þakkað Guði nógsamlega. Hún varð
82 ára gömul og heilsuhraust til síð-
ustu stundar. Hún var afburða vel
gefin kona og mikill lestrarhestur.
Það breyttist ekkert þótt árin færð-
ust yfir. Hún fylgdist betur með en
við sem yngri erum og hélt veislur
fyrir okkur fjölskylduna hjálpar-
laust, mörgum sinnum á ári. Hún
klippti „hekkinn“ sinn, sló grasið,
ræktaði rósir og sumarblóm í gróð-
urhúsinu sínu til síðasta dags. Þar
sem hún átti heima, þar bjó ekki
gömul kona. Þar bjó tengdamamma
mín, hún Bíbí. Hún stóð fyrir fram-
an mig, hjarta mitt opnaðist og mér
þótti undurvænt um hana. Ég tók
utanum hana og heyrði sjálfa mig
segja þessi orð „Þakka þér fyrir allt,
Bíbí mín“. Ég varð skyndilega
hrædd, hrædd við eitthvað sem ég
þekkti ekki nógu vel. Hvor okkar
var að fara í lengra ferðalag en Ítal-
íuferðin mín gaf tilefni til? Hvað var
það í hjarta mínu sem lét mig segja
þetta? Ég sá hana ekki aftur en Guð
hafði gefið okkur yndislegan dag
sem við áttum saman nokkrum dög-
um fyrr. Hann lét mig líka kveðja
hana á ógleymanlegan hátt. „Þakka
þér fyrir allt, Bíbí mín“ … og þakka
þér Guð fyrir undursamlega nálægð
þína á síðustu stundunum sem við
áttum saman og fyrir það að hún
fékk að kveðja lífið á svo fallegan
hátt.
Stella Gróa Óskarsdóttir.
Þá er hún amma mín farin. Aldrei
bjóst ég við því að hún færi svona
snögglega. Hún leit út eins og rúm-
lega sextug en var á 83. aldursári
þegar hún lést. Aldrei var hún veik
og ég var búinn að ákveða að hún
myndi nálgast tírætt. Síðast sá ég
hana þegar hún kom í heimsókn til
mömmu og sat á sólpallinum og dáð-
ist að garðinum okkar. Veðrið gat
ekki verið betra og amma brosti all-
an tímann. Því miður gat ég aðeins
stoppað stutt og ég vildi óska þess
að ég gæti spólað til baka og kvatt
ömmu mína betur. Ég lít til baka og
rifja upp minningar sem ég á um
hana og ég get ekki verið þakklátari.
Stundirnar með henni voru ómet-
anlegar. Amma átti stóran þátt í
uppeldi mínu og á meðan pabbi var
erlendis og mamma útivinnandi. Þá
passaði amma mig. Það var ekkert
skemmtilegra en að vera hjá ömmu.
Hún tók upp fyrir mig Tomma og
Jenna á hverjum degi og ég glápti
úr mér augun. Í kringum tíu ára ald-
urinn fór ég að biðja ömmu að taka
upp fyrir mig efni á Stöð 2 og sú
gamla klikkaði aldrei! Við vorum
bæði forfallnir sjónvarpsfíklar og oft
spurði ég: ,,Jæja, hefurðu verið að
góna á eitthvað?“ og upp úr þessari
einu spurningu kviknuðu oft langar
samræður. Það sem ég man einna
best var hversu hress hún var alltaf.
Hún var með góðan húmor og við
gátum alltaf hlegið saman. Í ömmu-
hlutverkinu stóð hún sig frábærlega
og sá til þess að mann vantaði ekk-
ert. Hún var mjög fær í elda-
mennskunni og hún gerði bestu
fiskibollur sem ég hef smakkað.
Einnig var kjúklingurinn ógleyman-
legur.
Ég hlakka til að hitta þig aftur,
amma mín. Núna ertu komin til
hans afa míns og ég veit að þú vildir
það helst af öllu. Það er alltof erfitt
að kveðja þig og ég mun sannarlega
sakna þín sárt. Einn daginn mun ég
taka í spaðann á honum afa mínum
og þakka honum fyrir að hafa nælt í
þig. Guð gat ekki gefið mér betri
ömmu og ég veit að frændur mínir
eru á sama máli. Farðu í friði, elsku
amma mín. Guð geymi þig að eilífu.
Sigurjón Guðmundsson.
STEINUNN
SIGURÐARDÓTTIR
Morgunblaðið birtir minningar-
greinar alla útgáfudagana.
Skil Minningargreinar skal senda í
gegnum vefsíðu Morgunblaðsins:
mbl.is (smellt á reitinn Morgun-
blaðið í fliparöndinni – þá birtist
valkosturinn „Senda inn minning-
ar/afmæli“ ásamt frekari upplýs-
ingum).
Skilafrestur Ef birta á minning-
argrein á útfarardegi verður hún
að berast fyrir hádegi tveimur
virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðju-
degi). Ef útför hefur farið fram
eða grein berst ekki innan hins til-
tekna skilafrests er ekki unnt að
lofa ákveðnum birtingardegi. Þar
sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein
berist áður en skilafrestur rennur
út.
Lengd Minningargreinar séu ekki
lengri en 2.000 slög (stafir með
bilum - mælt í Tools/Word Count).
Ekki er unnt að senda lengri grein.
Hægt er að senda örstutta kveðju,
HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur, og
votta þeim sem kvaddur er virð-
ingu sína án þess að það sé gert
með langri grein. Ekki er unnt að
tengja viðhengi við síðuna.
Formáli Minningargreinum fylgir
formáli, sem nánustu aðstand-
endur senda inn. Þar koma fram
upplýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, fæddist,
hvar og hvenær hann lést, um for-
eldra hans, systkini, maka og börn
og loks hvaðan útförin fer fram og
klukkan hvað athöfnin hefst. Ætl-
ast er til að þetta komi aðeins
fram í formálanum, sem er feit-
letraður, en ekki í minningargrein-
unum.
Undirskrift Minningargreinahöf-
undar eru beðnir að hafa skírnar-
nöfn sín en ekki stuttnefni undir
greinunum.
Myndir Ef mynd hefur birst í til-
kynningu er hún sjálfkrafa notuð
með minningargrein nema beðið
sé um annað. Ef nota á nýja mynd
er ráðlegt að senda hana á
myndamóttöku: pix@mbl.is og
láta umsjónarmenn minningar-
greina vita.
Minningar-
greinar