Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 53
MENNING
Sunnudagur
28. ágúst
11.00
HÁTÍÐARMESSA
MEÐ FJALLRÆÐUNNI
Biskup Íslands, Herra Karl Sigur-
björnsson, prédikar.
Með honum þjóna sr. Sigurður
Pálsson, sr. KristjánValur Ingólfs-
son, sr. Jón Dalbú Hróbjartsson og
sr. Bára Friðriksdóttir.
„DROTTINN ER
STYRKUR MINN“
eftir John A. Speight
fyrir sópran, kór, 12 málmblásara,
pákur og orgel (frumflutningur)
Flytjendur:
Elín Ósk Óskarsdóttir sópran
Hátíðarkór Kirkjulistahátíðar
Málmblásarasveit úr Sinfóníu-
hljómsveit Íslands
Björn Steinar Sólbergsson orgel
Eggert Pálsson pákur
Stjórnandi: Hörður Áskelsson
Dómkórinn í Osló syngur.
Stjórnandi:Terje Kvam.
15.30
TROND KVERNO RÆÐIR
UM VERK SITT,
MATTEUSARPASSÍU,
sem flutt er síðdegis þennan dag.
17.00
MATTEUSAR-
PASSÍA
eftir Trond Kverno
fyrir kór, 5 einsöngvara og söng-
flokk án undirleiks. Rómað verk
frá 1986 sem hlotið hefur lof víða
um heim, m.a. í söngför kórsins
til Bandaríkjanna fyrr á þessu ári.
Flytjendur:
Vox evangelistae:
Marianne Hirsti, cantus, Marianne
E.Andersen, altus, Ian Partridge,
tenor I, Joseph Cornwell, tenor II,
Njål Sparbo, bassus.
Vox Christi:
David Martin, altus, Jon English,
tenor I,Colin Campbell, tenor II,
Thomas Guthrie, bassus I,Graham
Titus, bassus II.
Dómkórinn í Osló
Stjórnandi:Terje Kvam.
KIRKJULISTAHÁTÍÐ
200520.–28. ÁGÚSTHallgrímskirkju í Reykjavík
Nánari upplýsingar á www. kirkjan.is/kirkjulistahatid og í síma 510 1000
LOKADAGUR
KIRKJULISTAHÁTÍÐAR
Missið ekki af mögnuðum listviðburðum!
NORSKA MENNINGAR- OG KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTIÐ • DÓMS- OG KIRKJUMÁLARÁÐUNEYTIÐ
KRISTNISJÓÐUR • ÍSLANDSBANKI • ICELANDAIR • REYKJAVÍKURPRÓFASTSDÆMIN • NORSKA
SENDIRÁÐIÐ • ALCAN • ANTIKMUNIR • BLÓMAVAL • GISTIHEIMILIÐ SNORRI HARPA SJÖFN • HJÁ
GUÐJÓNÓ • HÓTEL HOLT • HÓTEL LEIFUR EIRÍKSSON • HÓTEL FRÓN • HÓPFERÐAMIÐSTÖÐIN
HREYFILL • INGÓLFUR GUÐBRANDSSON • NÝHERJI • SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS
MENNTAMÁLARÁÐUNEYTIÐ
JOHNA. SPEIGHT ELÍN ÓSK ÓSKARSD.
TROND KVERNO
DÓMKÓRINN Í OSLÓ
MARIANNE HIRSTI MARIANNE E.ANDERSEN IAN PARTRIDGE
JOSEPH CORNWELL NJÅL SPARBO DAVID MARTIN
JON ENGLISH COLIN CAMPBELLTHOMAS GUTHRIE
Opið golfmót Golfklúbbs Þorlákshafnar
Mótið verður haldið sunnudaginn 28. ágúst
á hinum glæsilega 18 holu Þorláksvelli.
Texas Scramble Þátttökugjald er 3.000 kr.
Glæsileg verðlaun !
1. sæti 2 x 40.000 kr gjafabréf frá HEKLU
2. sæti 2 x árgjald í GOLFKLÚBBI ÞORLÁKSHAFNAR
3. sæti 2 x 20.000 kr gjafabréf frá HEKLU
Hola í höggi á 16.braut heitur pottur frá ÍSLEIFI JÓNSSYNI
Nándarverðlaun á öllum par 3 holum ofl.
Upplýsingar og skráning á www.golf.is og í síma 483-3009.
FRUMFLUTT er á Kirkjulistahátíð
í dag verkið „Drottinn er styrkur
minn“ eftir John A. Speight undir
stjórn Harðar Áskelssonar.
Speight segir verkið hafa verið
tilbúið um nokkurt skeið en nú fyrst
hafi fengist tækifæri til að flytja það:
„Verkið varð til árið 2003. Þá hafði
ég nýlega unnið með Herði Áskels-
syni að verðlaunaflutningi Jóla-
oratoríunnar minnar. Við vinnum
svo vel saman – leyfi ég mér að segja
– og kom þá þessi hugmynd upp: að
skrifa aftur fyrir þennan stórkost-
lega kór sem Hörður er með í Hall-
grímskirkju. Ég var svo ánægður
með hvernig Elín Ósk Óskarsdóttir
stóð sig í flutningnum á óratoríunni
að ég ákvað að skrifa verk fyrir hana
sérstaklega og Mótettukórinn.“
Til hafði staðið að flytja verkið um
páska, en það reyndist of stórt í snið-
um: „Þar sem þetta eru svona stórar
kanónur í íslensku tónlistarlífi ákvað
ég að hafa verkið svolítið stórt í snið-
um og úr varð verk fyrir einsöngs-
sópran, stórkór, tólf blásara, orgel
og pákur,“ segir John frá. „Svo kom
í ljós að of dýrt var að flytja svona
verk á páskadag og því varð að
fresta flutningnum. Hörður fann
þetta tækifæri núna og verkið pass-
ar vel inn í Kirkjulistahátíð.“
Flytjendur eru sem fyrr segir El-
ín Ósk Óskarsdóttir og Hátíðarkór
Kirkjulistahátíðar en málmblás-
arasveit úr Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands spilar einnig auk Björns Stein-
ars Sólbergssonar orgelleikara og
Eggerts Pálssonar pákuleikara.
John segist hafa reynt að smíða
glaðlegan texta og verk, enda samið
í fyrir gleðidaginn páskadag: „Ég
samdi stykki sem mér þykir vera
mjög glaðlegt. Þetta er ósköp að-
gengileg tónlist. Fólk virðist stund-
um vera svo hrætt við nýja tónlist.
Ég skil það ekki sjálfur en ég reyndi
að gera eitthvað sem mun ekki
hræða fólk,“ bætir John við hlæj-
andi.
Fór aldrei til baka
Jon A. Speight hefur búið á Ís-
landi frá árinu 1972. Hann stundaði
nám við Guildhall School of Music
and Drama þar sem hann kynntist
íslenskri konu sinni. Hingað fluttu
þau og hefur John síðan verið mjög
virkur í íslensku tónlistarlífi. „Við
ætluðum upphaflega að vera hérna í
2 ár og kaupa svo hús í Lundúnum,
en við fórum aldrei til baka,“ segir
John og bætir við glettinn: „Mér
finnst svo ægilega gaman hérna.
Fyrsta árið var svolítið erfitt hjá
konunni minni en hún er búin að
jafna sig.“
„Drottinn er styrkur minn“ verð-
ur flutt við Hátíðarmessu með fjall-
ræðunni í dag, sunnudag, kl. 11.
Biskup Íslands, Karl Sigurbjörns-
son, prédikar. Einnig syngur Dóm-
kórinn í Ósló undir stjórn Terje
Kvam.
Tónlist | Nýtt verk Johns A. Speight
frumflutt á Kirkjulistahátíð
Morgunblaðið/Golli
Tónverk samið
fyrir páskadag
Hörður Áskelsson John A. Speight
Eftir Ásgeir Ingvarsson
asgeiri@mbl.is