Morgunblaðið - 28.08.2005, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 55
Svo alhæft sé á heimskuleganhátt er óhætt að fullyrða aðBretar séu ekki svo vitlaus-
ir, þegar kemur að popptónlist.
Þeir hafa jú gefið okkur stórkost-
lega tónlistarmenn í gegnum tíð-
ina, þótt maður hafi stundum á til-
finningunni að þeir bresku
listamenn sem notið hafa mestri
hylli í heimalandi sínu sýni fram á
að hinn breski almenningur hafi
ekki mjög góðan smekk (þá er átt
við hinn algilda og eina rétta
smekk, smekk höfundar þessa
pistils).
Dæmin eru auðvitað mýmörg,
eins og illskiljanlegt dálæti bresku
þjóðarinnar á bræðrunum í Oasis
og Kryddpíunum margfrægu.
Stundum er eins og hálfgerð æði
grípi breska alþýðu, eins og þegar
Babylon Zoo gerði allt vitlaust
með laginu „Spaceman“ árið 1996
og seldi 250.000 eintök af smáskíf-
unni á einni viku.
Þrátt fyrir þennan dómgreind-
arbrest (enn skal tekið fram að
hér er auðvitað um smekksatriði
að ræða) hafa stórkostlegir lista-
menn og hljómsveitir notið dálætis
bresku þjóðarinnar. Þar má nefna
The Beatles, Badly Drawn Boy,
David Bowie, Electric Light
Orchestra og Queen, svo örfá
dæmi séu nefnd.
Og nú er komin fram ný stjór-stjarna. Stjarnan er karl-
maður og heitir James Blunt. Lag
hans, „You’re Beautiful“, var í
fyrsta sæti breska smáskífulistans
í fimm vikur, allt þar til á sunnu-
daginn fyrir viku, þegar lag með
drengjasveitinni McFly tók við á
toppnum. „You’re Beautiful“ hefur
einnig verið afar vinsælt hér á
landi.
Ef hinn algildi mælikvarði,
smekkur undirritaðs, er lagður á
tónlist Blunts verður niðurstaðan
nokkuð hagstæð listamanninum.
List hans er léttmeti, en tilfinn-
ingarík á köflum og hljómar ágæt-
lega, að minnsta kosti við fyrstu
hlustun. Blunt virðist vera liðtæk-
ur lagasmiður.
Fyrsta plata hans, Back to
Bedlam, hefur selst í yfir einni
milljón eintaka í Bretlandi einu,
síðan hún kom út í fyrra. Hún hef-
ur nú verið sjö vikur á toppi vin-
sældalistans í Bretlandi og kemur
út í Bandaríkjunum 4. október.
Vonast er til að Blunt nái viðlíka
vinsældum vestanhafs, en útvarps-
stöðvar í New York og Los Angel-
es eru þegar farnar að spila
„You’re Beautiful“ af miklum
þrótti.
Ævisaga þessa 28 ára gamlaEnglendings er ekki dæmi-
gerð fyrir poppstjörnu. Faðir hans
var ofursti í breska hernum og
var að sögn andsnúinn því að hafa
tónlist á heimilinu. „Við áttum
eina kassettu með Bítlunum og
eina með Beach Boys,“ segir Blunt
í viðtali við news.com.au.
„Kannski hafði það jákvæð áhrif á
mig að hafa enga tónlist á heim-
ilinu,“ bætir hann við. „Ég hef
ekki orðið fyrir áhrifum frá mörg-
um listamönnum.“
Blunt fetaði í fótspor föður síns
og gekk í herinn. Hann var í frið-
argæsluliði Breta í Kosovo og var
að lokum orðinn höfuðsmaður,
með 30.000 undirmenn. Hann var
einnig í lífvarðasveit drottningar,
en hætti í hernum fyrir þremur
árum til að einbeita sér að tónlist-
inni.
Blunt hitti Lindu Perry, sem
samið hefur lög fyrir listamenn á
borð við Pink, Christinu Aguilera
og Gwen Stefani, og hún bauð
honum útgáfusamning við fyr-
irtæki sitt, Custard Records. Hann
fór til Kaliforníu í september 2003
til að taka upp Back to Bedlam.
Perry stjórnaði upptökum á síð-
asta lagi plötunnar, „No Bravery“,
sem er innblásið af reynslu Blunts
sem foringi í breska hernum í
Kosovo.
Ný stórstjarna er fædd
’List Blunts er léttmeti,en tilfinningarík á köfl-
um og venst vel. Ekki
innihaldslaus blöðru-
popplög.‘
AF LISTUM
Ívar Páll Jónsson
Uppgangur James Blunts hefur verið með ólíkindum.
ivarpall@mbl.is