Due to maintenance work, there may be disruptions to the Tímarit.is service from 18:00 onwards.

Morgunblaðið - 28.08.2005, Page 64

Morgunblaðið - 28.08.2005, Page 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 SUNNUDAGUR 28. ÁGÚST 2005 VERÐ Í LAUSASÖLU 350 KR. MEÐ VSK. STRÆTÓBÍLSTJÓRAR hafa staðið í ströngu undanfarið, enda hefur breytt leiðakerfi Strætó bs. farið öfugt ofan í ýmsa. Margir telja nýtt kerfi síðra hinu eldra og benda á ýmsa annmarka þess. Bíl- stjórarnir standa vaktina hvað sem á dyn- ur og þurfa að sætta sig við breytt vinnu- fyrirkomulag, bráðabirgðakaffiaðstöðu og auk þess hættir sumum farþegum til að láta óánægju sína bitna á þeim. Ef farið er öfugum megin framúr, Mogginn er ekki kominn þegar haldið skal til vinnu eða strætóinn kemur of seint er best að bíta á jaxlinn, bjóða góðan dag og brosa til bíl- stjóranna. Það léttir lund og lífgar upp á daginn. Morgunblaðið/Kristinn Samferða í gegnum breytingar ELDUR kom upp í kjallara í húsi við Stigahlíð í gærmorgun og lagði mikinn reyk um bæði kjallarann og efri hæð húss- ins. Tilkynning um eldsvoðann barst slökkviliðinu í Reykjavík klukkan 6.57 og voru tveir dælubílar og sjúkrabílar komnir á staðinn skömmu síðar. Þegar slökkviliðsmenn fóru inn í kjall- ara hússins fundu þeir konu sem lá með- vitundarlaus á gólfinu. Konunni var bjarg- að út úr húsinu en í ljós kom að hún hafði brennst illa. Samkvæmt upplýsingum lækna á Landspítala – háskólasjúkrahúsi er hún alvarlega slösuð og liggur hún nú á gjörgæsludeild með reykeitrun og bruna- sár. Sjö íbúar hússins komust út af sjálfsdáðum Mikill reykur og gríðarlegur hiti var í kjallaranum, þar sem upptök eldsins urðu, en reykinn lagði upp á efri hæð hússins. Sjö aðrir íbúar hússins komust af sjálfs- dáðum út úr húsinu og varð ekki meint af. Aðgerðum slökkviliðs á staðnum lauk um hálfáttaleytið. Málið er til rannsóknar hjá lögreglunni í Reykjavík og þegar Morgunblaðið fór í prentun voru eldsupptök enn ókunn. Kona er alvarlega slösuð Eldur í húsi við Stigahlíð „BRENNISTEINSSÝRA er mjög hættuleg í flutningi,“ segir Jakob Kristinsson, dósent í eitur- efnafræði við læknadeild Háskóla Íslands, um mál Litháa sem tek- inn var á Keflavíkurflugvelli í vikunni með tvær flöskur af brennisteinssýru. Hann segir efnið vera ætandi og éti sig t.d. í gegnum málma og ál sérstaklega, en við það ferli myndist eiturgufur. Efnið sé einnig hættulegt viðkomu og skilji eftir sig sár á húð manna. Litháinn var með flöskurnar í handfarangri og segir Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, ljóst að stór- hættulegt hafi verið að flytja efn- ið til landsins með þeim hætti sem maðurinn gerði. Sérstakt leyfi þarf til þess að flytja brennisteinssýru til lands- ins en efnið er mikið notað í iðn- aði hér á landi og er t.d. í öllum bílarafgeymum. Þá er það meg- inuppistaðan í svonefndum stíflu- eyði, sem hægt er að kaupa í flestum byggingarvöruverslunum hér á landi, að sögn Jakobs. Hann segist þó ekki vita hvort hægt sé að nota stíflueyðinn í stað brennisteinssýru við amfeta- mínframleiðslu. Ýmsar leiðir eru færar til þess að framleiða amfetamín og er brennisteinssýran nauðsynleg í því ferli, þótt hún sé óvirkt auka- efni. Jakob segir ekki hægt að fullyrða um hve mikið amfetamín hefði mátt framleiða með tveimur flöskum af brennisteinssýru, það fari eftir öðrum efnum sem notuð séu við framleiðsluna. Aðalefnin séu kemísk efni, t.d. fenylasiton og fenylediksýra, sem mun erf- iðara og dýrara sé að útvega. Margar uppskriftir til „Það fer eftir því hvað menn vilja hafa mikið fyrir þessu. Það eru margar uppskriftir til og hægt að finna þær á Netinu,“ segir Jakob en bendir á að ákveðnar leiðir séu algengastar við framleiðsluna. Sambærileg mál hafa skotið upp kollinum við og við, að sögn Jakobs. Í kringum 1980 gerði lögregla í fyrsta sinn upptæka amfetamínverksmiðju hér á landi. Árið 2001 fundust við hús- leit öll grunnefni til framleiðslu amfetamíns og í nóvember 2003 gerði lögregla upptæka stórfellda amfetamínframleiðslu í Kópavogi. Ásgeir Karlsson, aðstoðaryfir- lögregluþjónn, segir að tilraun til innflutnings á efninu sé áhyggju- efni. Hann tekur undir ummæli Jóhanns R. Benediktssonar í Morgunblaðinu í gær, um að efn- ið sé að öllum líkindum ætlað til amfetamínframleiðslu. Þó slík mál komi ekki oft upp segir Ás- geir lögreglu sífellt vera á varð- bergi. Lithái var tekinn með brennisteinssýru á Keflavíkurflugvelli á mánudag „Mjög hættuleg í flutningi“ Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is ÞAÐ var handagangur í öskjunni á Hótel Loftleiðum í gærmorgun þegar leitin að næstu Idol-stjörnu hófst. Alls hafa 1.400 manns skráð sig til þátttöku og þeim kann að fjölga því prufur verða á nokkrum stöð- um á landsbyggðinni á næstunni. Um eitt hundrað þátttakendur fá að halda áfram og munu þeir spreyta sig í Salnum í Kópavogi. Lokakeppnin verður að venju í Smáralind og mun keppendum fækka smám saman uns sigurvegarinn verður krýndur á Stöð 2 í vetur. Morgunblaðið/Kristinn Leitin að næstu Idol-stjörnu er hafin LÖGREGLAN á Ísafirði handtók þrjá menn aðfaranótt laugardags, grunaða um ölvunarakstur. Raunar var þó einungis um tvö tilvik að ræða, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, en í öðru þeirra stöðvaði öku- maður bifreið sína og hljóp burt ásamt farþega er lögregla reyndi að stöðva bílinn. Þeir náðust skömmu síðar en bentu báðir á hinn þegar þeir voru inntir eft- ir því hver hefði ekið bílnum. Vísuðu hvor á annan

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.