Morgunblaðið - 28.09.2005, Page 6

Morgunblaðið - 28.09.2005, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EFTIR að Árni M. Mathiesen hafði skilað lyklunum í sjávarútvegsráðu- neytinu fór hann í fjármálaráðuneytið til Geirs H. Haarde. „Ég hélt að hann væri þyngri,“ sagði Árni er hann tók við lyklunum af Geir. Árni sagði að sitt fyrsta verkefni yrði að koma fjár- lagafrumvarpinu áfram á Alþingi. Ráðherraskipti í sjávarútvegsráðuneyti og fjármálaráðuneyti Morgunblaðið/Sverrir Ýtir fjárlagafrum- varpinu úr vörEINAR K. Guðfinnsson tók viðlyklavöldum í sjávarútvegsráðu- neytinu af Árna M. Mathiesen í gær. Hann sagðist vera að taka við spennandi viðfangsefni. Sitt fyrsta verk yrði að ræða við sína nýju samtarfsmenn. „Ég hyggst heim- sækja helstu stofnanir ráðuneyt- isins og hafa samband við fólk í sjávarútveginum. Ég legg mikla áherslu á að reyna að eiga gott og milliliðalaust samstarf við fólkið í sjávarútveginum eins og ég hef alltaf gert,“ sagði Einar. Morgunblaðið/Sverrir Spennandi viðfangsefni DAVÍÐ Oddsson skipaði sem utan- ríkisráðherra í gærmorgun Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, prófessor við Háskóla Ís- lands og fv. þing- mann, sendi- herra frá og með 1. júní 2006 að telja. Mun hún þá flytjast til Pret- oriu og taka við embætti sendi- herra í S-Afríku. Þá skipaði ut- anríkisráðherra Kristján Andra Stefánsson sendi- herra frá 1. október 2005 nk. Kristján Andri tekur við sem stjórnarmaður í Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, frá 1. nóvember 2005. Sigríður Dúna sendiherra í Suður-Afríku Sigríður Dúna Kristmundsdóttir STARFSMANNAFÉLAG Akraness og Launanefnd sveitarfélaga gengu frá nýjum kjarasamningi í fyrra- kvöld og hefur verkfalli félagsins verið frestað til 9. október og verð- ur aflýst, verði samningurinn sam- þykktur. Samningurinn felur í sér 22% launahækkun á þriggja og hálfs árs samningstíma, en hann gildir frá 1. júní síðastliðnum og til 30. nóv- ember 2008 að því er fram kemur á heimasíðu Bandalags starfsmanna ríkis og bæja. STAK semur og frestar verkfalli HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness dæmdi í gær fjóra pilta á aldrinum 17 og 18 ára í 3 mánaða skilorðs- bundið fangelsi fyrir líkamsárás, sem framin var í Hafnarfirði í októ- ber síðastliðinn. Piltarnir réðust á 19 ára gamlan pilt, felldu hann í götuna og spörk- uðu í hann liggjandi. Ákærðu voru einnig dæmdir til að greiða fórn- arlambi sínu tæpar 40 þúsund krón- ur í bætur auk málskostnaðar. Ákærðu játuðu á sig árásina og samþykktu bótakröfuna. Gunnar Aðalsteinsson héraðs- dómari dæmdi málið. Anna Svava Þórðardóttir, fulltrúi sýslumanns- ins í Hafnarfirði, var sækjandi. 3 mánaða fangelsi fyrir líkamsárás GUÐMUNDUR B. Ólafsson, lög- maður mannanna þriggja sem Hæstiréttur dæmdi nýverið til að greiða konu miskabætur eftir að hafa brotið gegn persónu og frelsi hennar, telur að eðlilega hafi verið staðið að lögreglurannsókn málsins. Hann segir það ekki hafa verið mönnunum í hag að vera ekki yfir- heyrðir strax en gagnrýnt hefur ver- ið að mennirnir þrír voru ekki hand- teknir samtímis. „Það er ekki sakborningum til góðs að rannsókn dragist á langinn því venjan er sú að ef menn muna ekki eftir atvikum er það yfirleitt túlkað þeim í óhag,“ seg- ir hann. Þá segir Guðmundur að rannsókn sem fram fór á vettvangi og skoðun á líkama konunnar hafi ekki verið lík- leg til að leiða til sakfellingar. Konan kærði mennina fyrir nauðgun en ekki var ákært í málinu. „Það er ekkert við þessa lögreglu- rannsókn að athuga, miðað við lýs- ingar konunnar sjálfrar og manna á því sem þarna gerðist,“ segir Guð- mundur og segist taka undir það mat lögreglunnar og ríkissaksóknara að litlar líkur hefðu verið á sakfellingu hefði málið verið ákært. „Eins og lýsingarnar sem komu fram hjá henni bæði fyrir dómi og hjá lögreglu þá hafnaði hún í raun og veru aldrei því sem þarna gerist. Það kemur aldrei fram hjá henni að hún vilji þetta ekki. Hún sagði fyrir dómi að hún hefði leynt því að hún hefði verið hrædd og verið ósamþykk því sem fram fór. Hún bar því fyrir sig að hún hefði séð það í þætti hjá Opruh Winfrey að þetta væru við- brögð sem hún ætti að sýna.“ Mennirnir hafi því ekki getað átt- að sig á því að það sem fram fór hafi verið án hennar samþykkis. „Þeir mátu það þannig að hún hefði tekið fullan þátt í því sem þarna fór fram, m.a. hafi hún tekið fullan þátt í munnmökum með tveimur mönnun- um. Hún sagðist hafa leynt því að hún væri hrædd. Þannig að þeir gátu aldrei áttað sig á því að hún væri mótfallin því sem þarna fór fram. Það er nú ekki alltaf leitað eftir sam- þykki fyrir kynmökum heldur eru þau eitthvað sem þróast í samskipt- um fólks.“ Guðmundur telur að ekki eigi að tala um nauðgun þar sem skjólstæð- ingar hans hafi aldrei verið ákærðir eða dæmdir fyrir nauðgun. Hafnaði aldrei því sem gerðist Egilsstaðir | Fyrirhugaðri vettvangs- ferð óbyggðanefndar um Norðaust- urlandi vegna þjóðlendukrafna rík- isins þar, sem hefjast átti í dag, hefur verið frestað fram á næsta vor. Lík- legt þykir að áformuðum málflutn- ingi sem fara átti fram eftir áramót í tengslum við málið verði jafnframt frestað. „Það voru fyrirtökur í þessum málum á svæði 5 á Norðausturlandi 17. ágúst sl. og þar voru lagðar fram kröfulýsingar í öllum málum frá lög- mönnum ríkisins, jarðeigendum og öðrum aðilum,“ sagði Guðjón Ár- mannson, lögfræðingur hjá óbyggðanefnd í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Áætlað var að fara á vettvang á morgun og fram til 2. október til að fara yfir svæðið. Vetur gekk hins vegar fyrr í garð en menn hugðu og ekki útlit fyrir að það lag- ist. Ferðin hefði því ekki nýst óbyggðanefnd sem skyldi.“ Guðjón segir að ekki sé búið að dagsetja nýja ferð, en hún verði væntanlega farin næsta vor eða sum- ar. Frestunin raski ekki málinu að öðru leyti en því að ólíklegt verði að teljast að málflutningur fari fram fyrr en eftir slíka vettvangsferð, en stefnt var að málflutningi eftir næstu áramót. Óbyggðanefnd hefur þó ekki tekið ákvörðun um þetta, en kemur saman fljótlega til þess. „Við erum nú að vinna í úrskurð- um á svæði 4, Suðvesturlandi og höldum einnig áfram að vinna í svæði 5 áður en við komum á vettvang,“ segir Guðjón og segir aðspurður að frestunin gefi landeigendum og sveitarfélögum eitthvað rýmri tíma til að fara yfir sín mál. Málaskipting óbyggðanefndar á svæði 5, Norðausturlandi, er í fimm hlutum: Fljótsdalur, Fell og Jökul- dalur austan Jökulsár á Brú er fyrsta mál, annað fjallar um Jökuldal norðan og vestan Jökulsár ásamt Jökulsárhlíð og Hróarstungum, hið þriðja um Vopnafjarðarhrepp, fjórða um Skeggjastaðarhrepp, Svalbarðs- hrepp og Þórshafnarhrepp og fimmta málið varðar Öxarfjarðar- hrepp og Raufarhöfn. Kröfur íslenska ríkisins vegna svæðis 5 bárust haustið 2004. Þær voru kynntar með tilkynningu óbyggðanefndar skömmu fyrir jól sama ár og þá óskað eftir kröfum annarra um eignarréttindi á svæð- inu. Kröfur annarra en íslenska rík- isins um eignarréttindi bárust svo fram í maí 2005 og heildarkröfur voru kynntar yfir tímabilið 25. maí til 30. júní 2005. Fyrstu fyrirtökur fóru fram 17. ágúst sl. og höfðu þá borist rúmlega 100 kröfulýsingar frá ein- stökum jarðeigendum og sveitar- félögum sem telja til eignarréttar á svæðinu. Níu lögmenn vinna nú fyrir hönd landeigenda og sveitarfélaga. Vettvangsferð óbyggðanefnd- ar um Norðausturland frestað $%  &! '% (!  )'%                              !"#                            !    #   $   NÆST þegar sjónvarpsáhorfendur sjá Loga Bergmann Eiðsson á skjánum verður það í fréttatíma Stöðvar 2 en hann hefur nú verið ráðinn til starfa á 365 miðl- um og hættir þar með á Ríkis- útvarpinu eftir rúmlega fjórtán ára starf. Mun hann verða einn af aðallesurum kvöldfrétta Stöðvar 2 ásamt Sigmundi Erni Rúnarssyni og Eddu Andrésdóttur. Einnig mun hann byggja upp og stjórna nýjum þáttum á Stöð 2. Logi Bergmann sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að ákvörðunin ætti sér mjög stuttan aðdraganda en nýverið var hann ráðinn sem ritstjóri að nýjum dæg- urmálaþætti á RÚV, sem kemur í stað Kastljóssins og á að hefja göngu sína 10. október. „Það er margt sem spilar inn í,“ segir Logi spurður um hvað liggi að baki ákvörðuninni. „Það eru per- sónulegar ástæður sem búa að baki og líka viljinn til að prófa annað. Þetta var rétti tíminn. Ég vildi fara núna áður en nýi þátturinn færi í loftið og leyfa þeim þá að móta hann sjálfir frekar en að bíða leng- ur.“ Logi Bergmann til Stöðvar 2 Logi Bergmann Eiðsson SAMKEPPNISEFTIRLITIÐ hef- ur í tveimur sambærilegum málum komist að þeirri niðurstöðu að ekki sé ástæða til að aðhafast frekar, vegna kröfu Fornleifastofunnar um fjárhagslegan aðskilnað hjá Nátt- úrustofu Vestfjarða annars vegar og Byggðasafni Skagfirðinga hins veg- ar. Samkeppniseftirlitið segir að í gögnum máls varðandi Náttúrustofu Vestfjarða komi fram að fjárhags- legur aðskilnaður í skilningi sam- keppnislaga hafi þegar átt sér stað milli fornleifaþjónustu og annarar starfsemi Náttúrustofunnar. Sá að- skilnaður er að mati Samkeppniseft- irlitsins fullnægjandi, sem bendir á að velta fornleifadeildar Náttúru- stofunnar hafi aðeins numið þremur milljónum króna árið 2003. Í máli Byggðasafns Skagfirðinga kemur fram að til standi að skilja að fjárhagslegan rekstur safnsins og sveitarfélagsins Skagafjarðar. Vegna þeirra yfirlýsinga telur Sam- keppniseftirlitið ekki ástæðu til að aðhafast í málinu, en áskilur sér rétt til að taka málið upp aftur hafi að- skilnaðurinn ekki verið framkvæmd- ur fyrir lok þessa árs. Fjárhagslegur aðskilnaður í fornleifaþjónustu „ÉG hef ekki frétt af því ennþá að það hafi orðið fjárskaðar, en menn óttuðust það mjög um helgina að það myndi hugsan- lega eitthvert fé lenda í fönn vegna veðurs,“ segir Ólafur Vagnsson, hjá Búnaðarsam- bandi Eyjafjarðar, þegar hann er spurður um ástandið hjá fjárbændum vegna þeirrar snjóatíðar sem hefur verið á Norðurlandi. Ólafur segir bændur ekki hafa fundið kind- ur sem þeir hafi verið að leita að og óttast að þær hafi skriðið í skurði. Ekki vitað um fjárskaða

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.