Morgunblaðið - 28.09.2005, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Gættu að þér, maður, farðu ekki svona nálægt. Njólinn gæti smitast af kvefinu í mér.
Fyrstu greiðslum úrumræddu 2,4 millj-arða framlagi
verður m.a. varið til að
standa straum af kostnaði
við undirbúning samein-
ingarkosninganna 8. októ-
ber. Áætlað er að allt að
300 milljónir renni úr
Jöfnunarsjóði í ár vegna
fyrri sameininga og und-
irbúnings fyrir sameining-
arkosningarnar.
Elín Pálsdóttir, for-
stöðumaður Jöfnunar-
sjóðs sveitarfélaga, segir
að 2,4 milljarðarnir sem
verja á til sameiningar sveitarfé-
laga á árunum 2005–2009, komi að
hluta sem sérstakt framlag úr rík-
issjóði. Allt að 1,1 milljarður mun
þannig renna úr ríkissjóði í Jöfn-
unarsjóð til sameiningarmála á
árunum 2005–2009. Á þessu ári er
áætlað að framlag ríkissjóðs verði
allt að140 milljónir. Um síðustu
áramót gengu í gildi ný lög um
Lánasjóð sveitarfélaga. Með þeim
féll niður árlegt framlag Jöfnun-
arsjóðs til Lánasjóðsins. Allt að
800 milljónum af auknu ráðstöf-
unarfé Jöfnunarsjóðs verður var-
ið til sameiningarmála 2005–2009.
Eigið framlag Jöfnunarsjóðs til
sameiningarmála á sama árabili
nemur allt að 500 milljónum
króna, eða um 100 milljónum á ári,
sem er svipað og undanfarin ár.
Settar hafa verið sérstakar
reglur (295/2003) um greiðslur úr
Jöfnunarsjóði vegna sameiningar
sveitarfélaga. Nú þegar er farið
að úthluta framlögum vegna und-
irbúnings og vinnu við sameining-
arkosningarnar 8. október, að
sögn Elínar. Þær renna til sam-
starfsnefnda sveitarfélaga um
sameiningu og eru óháðar því
hvort af sameiningu verður eða
ekki. Greiðslunum er ætlað að
mæta eðlilegum kostnaði við
könnun á hagkvæmni sameining-
ar, kynningu á sameiningartillögu
og framkvæmd atkvæðagreiðslu.
Samkvæmt vinnureglum,
byggðum á a-lið, 1. greinar fyrr-
nefndra reglna, nema greiðslur
vegna könnunar á hagkvæmni
sameiningar 800 þúsund krónum,
nái sameiningartillagan til
tveggja sveitarfélaga. Séu þau
fleiri koma 400 þúsund fyrir hvert
sveitarfélag til viðbótar. Fast
framlag vegna kynningar á hverri
sameiningartillögu er ein milljón
króna og að auki 100 krónur á
hvern íbúa sem tillagan nær til.
Vegna framkvæmdar atkvæða-
greiðslu eru greiddar 350 kr. á
hvern íbúa sem sameiningartillag-
an nær til. Um er að ræða há-
marksgreiðslur úr Jöfnunarsjóði
á grundvelli fyrrnefndrar reglu.
Heildarframlag Jöfnunarsjóðs
getur aldrei orðið hærra en sem
nemur raunverulegum kostnaði
sveitarfélagsins við þá þætti sem
falla undir þetta ákvæði.
Framlög háð sameiningu
Aðrir liðir í fyrrnefndum
reglum verða virkir þar sem sam-
eining er samþykkt. Þá munu
framlög berast til sveitarfélaga
sem kjósa að sameinast og verða
greidd frá sameiningarárinu 2006
og til 2009. Í reglunum eru t.d.
gefnar heimildir til að veita fram-
lög til að bera kostnað af samein-
ingu á bókhaldi sveitarfélaga sem
sameinast. Skuldajöfnunarfram-
lög verða veitt og er markmið
þeirra að sveitarfélagi verði
rekstrarhæft í kjölfar sameining-
ar. Tekjujöfnunar- og útgjalda-
jöfnunarframlög úr sjóðnum
verða ekki skert á því ári sem
sveitarfélög sameinast. Verði
skerðing á tekjujöfnunar- og út-
gjaldajöfnunarframlagi í kjölfar
sameiningar er sjóðnum heimilt
að veita sérstakt framlag í fjögur
ár frá sameiningarári að telja. Þá
er Jöfnunarsjóði heimilt að taka
þátt í launakostnaði fram-
kvæmdastjóra í sameinuðu sveit-
arfélagi í fjögur ár frá samein-
ungu, ef ekki hefur verið starfandi
framkvæmdastjóri í sveitarfélög-
unum. Þetta á einkum við þegar
fámenn sveitarfélög sameinast.
Jöfnunarsjóður getur einnig
komið að framkvæmdum við
grunnskóla- og leikskólamann-
virki sem taldar eru nauðsynlegar
til að hægt sé að endurskipuleggja
skólahald eftir sameiningu. Sjóð-
urinn má einnig leggja fé til þró-
unar stjórnsýslu í nýju sveitarfé-
lagi í allt að fimm ár. Þá segir á
heimasíðunni: „Samstarfsnefndir
og nýsameinuð sveitarfélög geta
með öðrum orðum sótt um að fá
ýmiss konar stuðning úr Jöfnun-
arsjóði sveitarfélaga og því er
mikilvægt að menn geri sér grein
fyrir reglunum.“
Tekjur Jöfnunarsjóðs sveitar-
félaga eru tryggðar þannig að
sjóðurinn fær úr ríkissjóði sem
nemur 2,12% af innheimtum
skatttekjum ríkissjóðs. Á grund-
velli fjárlaga 2005 eru það tæp-
lega 5,8 milljarðar. Þá fær sjóð-
urinn árlega úr ríkissjóði sem
nemur 0,264% af álagningarstofni
útsvars næstliðins tekjuárs. Á
grundvelli fjárlaga 2005 eru það
1,36 milljarðar. Einnig fær sjóð-
urinn hluta af útsvarstekjum
sveitarfélaga sem nemur 0,77% af
álagningarstofni útsvars hvers ár.
Er þetta vegna jöfnunar í
tengslum við flutning grunnskól-
ans til sveitarfélaga 1996. Þessi
liður er áætlaður í ár um 4,2 millj-
arðar. Einnig hefur Jöfnunarsjóð-
ur vaxtatekjur.
Fréttaskýring | Sameining sveitarfélaganna
2,4 milljarðar
í sameiningu
Jöfnunarsjóður sveitarfélaga gegnir
stóru hlutverki við sameiningar
Gömul hreppamörk eru víða að hverfa.
Átak til eflingar sveit-
arstjórnarstigsins
Allt að 2,4 milljörðum verður
varið úr Jöfnunarsjóði næstu ár-
in til eflingar sveitarstjórn-
arstigsins. Er þetta í samræmi
við yfirlýsingu félagsmálaráð-
herra, fjármálaráðherra og Sam-
bands íslenskra sveitarfélaga 17.
september 2004. Einnig í sam-
ræmi við tillögur tekjustofna-
nefndar sem lagðar voru fram í
mars síðastliðnum. Sameining-
arkosningar verða haldnar 8.
október næstkomandi.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
... í Þjóðleikhúsklúbbnum?
Þjóðleikhúsið býður klúbbum af öllum stærðum og gerðum upp á sérsniðna þjónustu.
Ef þinn klúbbur ákveður að gerast kortagestur í Þjóðleikhúsinu, mun starfsfólk hússins
sjá til þess að kvöldið verði eftirminnilegt. Fordrykkur, matur á undan eða í lok sýninga,
spjall við aðstandendur sýninga eða listamenn hússins, skoðunarferð baksviðs...
gerðu óskalista yfir draumaleikhúsferðina þína og við látum hana rætast.
Hafðu samband strax!
Við elskum að fá gesti!
Vissir þú að árskort í Þjóðleikhúsið kostar aðeins 10.500 kr.?
Vissir þú að dagsetningar liggja þegar fyrir, svo þú getur gengið að þinni sýningu vísri?
Vissir þú Leikhúskjallarinn hefur gengið í endurnýjun lífdaga og þar getur þú gengið
að gómsætum réttum og lifandi skemmtun í allan vetur?
Þjóðleikhúsið – leikhúsið þitt!
Ert þú...
AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is, sími 569 1111