Morgunblaðið - 28.09.2005, Side 11

Morgunblaðið - 28.09.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 11 FRÉTTIR LÁTINN er Áskell Einarsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Fjórðungssambands Norðlendinga. Hann lést 25. september síð- astliðinn á heimili sínu á Húsavík. Áskell fæddist 3. júlí árið 1923 í Reykjavík. Foreldrar hans voru Einar Þorkelsson, skrif- stofustjóri Alþingis og Ólafía Guðmundsdóttir. Áskell lauk gagn- fræðaprófi frá Flens- borg 1939 og prófi frá Samvinnuskólanum 1948. Hann varð auglýsingastjóri á Tímanum 1948 til 1956 og fulltrúi á skrifstofu orkumálastjóra 1956 til 1958. Ás- kell gegndi starfi bæjarstjóra á Húsavík árin 1958 til 1966 og var svo framkvæmdastjóri sjúkrahúss- ins á Húsavík frá 1967 til 1971. Það ár tók hann við starfi framkvæmda- stjóra Fjórðungssambands Norð- lendinga og gegndi því allt til árs- loka 1992 eða í tæp 22 ár er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir, en sambandið var þá jafnframt lagt niður. Áskell beitti sér fyrir margvíslegum mál- um í þágu lands- byggðar í störfum sínum á vegum Fjórðungssambands- ins, m.a. því að jafna símakostnað allra landsmanna. Hann skrifaði m.a. ritið Land í mótun, byggðaþróun og byggðaskipulag. Hann tók einnig þátt í félagsmálum, sat m.a. í stjórn Félags ungra fram- sóknarmanna og Sambandi ungra framsóknarmanna og var lengi gjaldkeri sambandsins. Áskell var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Þórey Þorkelsdóttir, sem lést árið 1961. Þau eignuðust tvær dætur. Síðari kona hans var Áslaug Valdimarsdóttir, en hún lést árið 1996. Þau eignuðust tvö börn. Áskell eignaðist eina dóttur áður en hann kvæntist. Andlát ÁSKELL EINARSSON UNDIR kjörorðinu „Holl mjólk og heilbrigðir krakkar“ verður al- þjóðlegi mjólkurdagurinn haldinn hátíðlegur hér á landi í dag. Það er Matvæla- og landbúnaðar- stofnun Sameinuðu þjóðanna (FAO) sem hvetur til hátíðarhald- anna um allan heim. Í fréttatilkynningu frá markaðs- nefnd mjólkuriðnaðarins kemur fram að í tilefni dagsins verði nemendum í 4. bekk grunnskóla landsins boðið að taka þátt í teiknimyndasamkeppni sem teng- ist þema dagsins og eru veitt verð- laun fyrir tíu bestu teikningarnar að samtals kr. 250 þúsund krónum sem renna til bekkjarferða og sameiginlegra verkefna bekkj- ardeilda. Samkeppni við aðra drykki Í tilkynningunni segir að dag- urinn sé haldinn hátíðlegur til að minna á hollustu mjólkur og nauð- syn þess að auka mjólkurneyslu barna í skólum. Á Íslandi hafi mjólkurneysla barna dregist tölu- vert saman frá því sem áður var og nær meðalneysla í skólum ekki nema um 0,8 dl á barn. „Í flestum löndum á mjólkin í harðri samkeppni við aðra drykkjarvöru. Má þar nefna safa, djús og gosdrykki. Sumar þjóðir hafa til mótvægis þessari þróun gripið til þess ráðs að banna sölu og neyslu slíkra drykkja í skólum og enn aðrar þjóðir gefa skóla- börnum mjólk.“ Markaðsnefnd mjólkuriðnaðar- ins hefur fest kaup á mjólkurkæli- vélum sem standa nú öllum grunn- skólum landsins til boða þeim að kostnaðarlausu, segir í tilkynning- unni. Morgunblaðið/Kristinn Mjólk er góður kalkgjafi að sögn markaðsnefndar mjólkuriðnaðarins. Haldið upp á Alþjóðlega mjólkurdaginn í dag ÞEGAR ráðherraskipti fóru fram í ríkisstjórninni í gær voru Davíð Oddsson, sem hvarf úr stóli ut- anríkisráðherra, og Halldór Ásgrímsson forsætis- ráðherra spurðir um fregnir fjölmiðla af Baugs- málum undanfarna daga. Davíð sagði m.a. að sakarefnið skipti máli í þessu sambandi en ekki hverjir hefðu kært. Halldór sagðist vera undr- andi og hneykslaður á umræðunni. Davíð sagði að loknum sínum síðasta ríkis- stjórnarfundi að þegar farið væri að brjótast inn í tölvupóst manna væru mál komin á nýtt og óvenjulegt stig sem allir hlytu að hafa áhyggjur af, líka starfsmenn Fréttablaðsins. Aðspurður hvort eitthvað annarlegt hafi búið að baki hjá Morgunblaðinu undanfarið, sagðist Davíð halda að óumdeilt væri að eigendur blaðs- ins hafi ekki skipt sér mikið af blaðinu. Baugsmálið aðallega dómsmál Hann sagði Baugsmálið aðallega dómsmál og sagðist viðurkenna að hafa ekki lesið ákærurnar enda hefði hann engan áhuga á þeim. Ruglað hefði verið saman áhuga og áhyggjum hans af Baugi á sínum tíma sem hefðu fólgist í að það stefndi í að heilbrigð samkeppni yrði eyðilögð í landinu með því að ákveðnir aðilar sölsuðu allt undir sig og allt of mikið færðist yfir á of fáar hendur. „Auðvitað hafa menn séð hvernig Baugs- miðlarnir eru misnotaðir með þeim hætti sem menn hafa ekki séð annars staðar. Þá hljóta menn að velta því fyrir sér hvort önnur fyrirtæki sem sömu aðilar eiga séu misnotuð með sama hætti.“ Spurður hvernig fjölmiðlarnir hefðu verið misnotaðir sagðist Davíð ekki þurfa að útlista það enda sæi öll þjóðin það. Davíð sagði fundi Styrmis Gunnarssonar og Kjartans Gunnarssonar ekki tengjast Sjálfstæð- isflokknum því umfjöllunarefnið hefði verið hvort tilteknir aðilar gætu verið lögfræðingar tiltekins manns. En það skipti engu máli. „Tökum sem dæmi að ég væri ákærður fyrir einhverja hluti og þegar það væri rannsakað kæmi upp úr kafinu að einhverjir menn, Jón Ólafsson eða Jón Ásgeir hefðu kært mig. Hvaða máli skiptir það? Það skiptir máli það sem ég hefði gert og að það yrði rannsakað, ekki hverjir hefðu komið því til lög- reglunnar. Af einhverjum ástæðum vilja menn rugla umræðuna, nota fjölmiðlaveldi sitt til að rugla umræðuna. Við skulum bara sjá hvað gerist hjá dómstólunum, hvort þessum málum verði vís- að frá, hvort þessir menn verði sýknaðir og þá er það gott fyrir þá, eða hvort þeir verða sakfelldir.“ Að loknum ríkisráðsfundi á Bessastöðum var Davíð spurður hvernig honum fyndist að hætta afskiptum af stjórnmálum mitt í þeirri fjölmiðla- umfjöllun sem nú ætti sér stað. „Mér finnst afar skemmtilegt að fá, án þess að ég sé nefndur á nafn, þá kveðju í Blaðinu í dag, sem er bersýni- lega leiðari skrifaður af Sigurði G. Guðjónssyni, að nú sé allra brýnast að Alþingi taki upp á ný nýtt fjölmiðlafrumvarp. Það er dálítið merkilegt því Sigurður hafði heilmikil áhrif á að þessum lögum var synjað á sínum tíma, en hann virðist vera þeirrrar skoðunar, og það er birt í leiðara Blaðsins í dag, að það sé allra brýnasta verkefni núna að setja nýtt fjölmiðlafrumvarp. Það finnst mér dálítið merkilegt í þessari umræðu, að það skuli gerast á degi sem ég er að hverfa úr mínu starfi,“ sagði Davíð enn fremur. Eftir ríkisráðsfundinn ræddu fréttamenn við Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra. Hann var fyrst spurður álits á Baugsmálunum. „Ég er bæði undrandi og hneykslaður á mörgu því sem hefur komið fram síðustu daga. Ég tel að það sé hlut- verk fjölmiðla að upplýsa um mál eftir bestu getu en mér finnst að þeir séu að nokkru leyti ger- endur í þessu máli. Ég er þeirrar skoðunar að það sé mjög mikilvægt núna að dómstólar lands- ins fái frið til að vinna í málinu. Það er mjög al- varlegt þegar menn liggja undir grun og ásök- unum árum saman um alvarleg brot. Þess vegna held ég að það sé best fyrir okkur öll ef dómstól- arnir geta ráðið þessu máli til lykta.“ Þegar Halldór var spurður hvað hann ætti við með því að fjölmiðlar væru gerendur sagði hann: „Ég held að ég þurfi ekkert að útskýra það. Ef menn hafa lesið blöðin síðustu daga þá held ég að það sé alveg ljóst að það eiga sér stað hatrömm átök um málið og ég held ég þurfi ekkert að út- skýra það fyrir ykkur.“ Inntur eftir því hvort þetta mál hafi skaðað ríkisstjórnina sagði hann: „Ég tel að þetta mál hafi skaðað okkur öll sem þjóðfélag. Þjóðfélagið hefur verið gagntekið af þessu máli og ég tel að umfjöllunin núna upp á síðkastið hafi verið þannig að fólk hefur ruglast í ríminu. Það er ekki gott og þess vegna tel ég að það sé mjög mikilvægt að þessu máli ljúki þannig að við getum farið að vinna að því sem skiptir okkur máli í framtíðinni. Ég tel að þetta mál taki alltof mikinn tíma og orku í umfjölluninni núna.“ Spurður hvort rétt væri að setja á laggirnar rannsóknarnefnd vegna þessa máls sagði Hall- dór: „Það er spurning hvað á að rannsaka. Á þessu stigi finnst mér ekki tímabært að taka ákvörðun um eitthvað slíkt meðan málið er í gangi hjá dómstólum og hjá lögreglu. Það er al- gjört forgangsatriði að mínu mati að því ljúki.“ Fjölmiðlafrumvarp í haust Þegar hann var áfram spurður hvort hann teldi að ákveðnir fjölmiðlar hefðu beitt sér sérstaklega og ráðið atburðarás, sagði hann: „Ég ætla ekki að segja neitt um það og útskýra það. Ég held að all- ir sjái það sem lesa blöðin þessa dagana hvað er um að vera.“ Aðspurður sagði hann að ætlunin væri að leggja fram nýtt fjölmiðlafrumvarp í haust. „Það er ætlunin. Það er búið að ljúka starfi um þessi mál og það náðist um það ágætt sam- komulag. Mér finnst sjálfsagt að byggja á því og ég heyri ekki betur en að í þjóðfélaginu almennt sé samstaða um það að það þurfi að vera til rammalöggjöf um fjölmiðlana.“ Davíð Oddsson og Halldór Ásgrímsson tjáðu sig um Baugsmálin í gær Sakarefnið skiptir máli en ekki hverjir kæra Morgunblaðið/ÞÖK Davíð Oddsson á sínum síðasta ríkisstjórnarfundi í gær, ásamt Birni Bjarnasyni, Halldóri Ásgríms- syni og Geir H. Haarde. Í tilefni dagsins var rjómaterta á boðstólum þegar fundurinn hófst. Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson og Örnu Schram Í HVERT sinn sem tölvupóstur er sendur verða til a.m.k. fjögur eintök af honum og fólk ætti að hugsa sig tvisvar um áður en það sendir við- kvæm gögn með tölvupósti. Þetta segir Hjálmar Gíslason, fram- kvæmdastjóri tölvufyrirtækisins Spurls ehf. Afritin verða til á tölvu sendand- ans, tölvu viðtakandans og í tölvum netþjónustuaðila þeirra beggja. Sé pósturinn skoðaður af annarri tölvu og með netvafra geta einnig orðið til afrit á þeim tölvum sem notaðar eru til að skoða póstinn. Þá séu sumir vafrar þannig gerðir að þeir vista not- endanöfn og lykilorð í tölvunum sem notaðar eru til að skoða tölvupóst á Netinu, jafnvel án þess að notendur séu spurðir um það sérstaklega, að sögn Hjálmars. Í slíkum tilfellum geti utanaðkomandi ekki aðeins skoðað póst sem þegar hefur verið sendur, heldur geti þeir haldið áfram að fylgj- ast með tölvupóstssamskiptum við- komandi svo lengi sem hann breytir ekki aðgangsorðum sínum. Leiti fyrst næst sér Öryggi tölvupósts hefur verið tals- vert til umfjöllunar undanfarið vegna fréttaflutnings Fréttablaðsins um tölvupóstssamskipti Jónínu Bene- diktsdóttur, Styrmis Gunnarssonar, ritstjóra Morgunblaðsins, o.fl. „Ef menn ætla að leita að söku- dólgi í svona máli, þá myndi ég byrja næst mér. Ég myndi byrja á því að athuga hvort ég hefði sent gögnin eitthvað og hvort ég gæti treyst þeim öllum. Á heimilum og vinnustöðum er líka talsvert af fólki sem hefur að- gang að tölvu viðkomandi, annað- hvort með réttu eða röngu. Einnig er hægt að koma fyrir njósnabúnaði á tölvunni ef brotaviljinn er þannig,“ segir Hjálmar. Aðspurður segir hann afar ólíklegt að slík brot séu framin hjá netþjón- ustuaðila. Þar séu vinnubrögðin afar fagmannleg og auk þess nánast öruggt að slíkt kæmist upp. Það sé sömuleiðis afar ólíklegt að einhverj- um takist að brjótast inn á netþjóna í þessum tilgangi. „Ég myndi byrja að leita einhvers staðar annars staðar,“ segir hann. Fjögur ein- tök verða til af hverjum tölvupósti Eftir Rúnar Pálmason runarp@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.