Morgunblaðið - 28.09.2005, Side 12

Morgunblaðið - 28.09.2005, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ● HLUTABRÉF lækkuðu lítillega í verði í Kauphöll Íslands í gær. Úrvals- vísistalan lækkaði þannig um 0,07% og er 4599 stig. Viðskipti í Kauphöll- inni námu rúmum 8,7 milljörðum króna, og munaði þar mest um ríf- lega fjögurra milljarða króna viðskipti með hlutabréf. Bréf Jarðborana hækkuðu um 4,48% eftir að fréttir bárust af því að fyrirtækið hefði átt lægsta tilboðið í stórt verk fyrir Orkuveitu Reykjavíkur. Bréf Símans hækkuðu um 1,04% og bréf Össurar hækkuðu um 0,59%. Bréf Atorku lækkuðu um 0,83% og bréf Marels um 0,75%. Jarðboranir hækka ● DREGIÐ hefur úr tiltrú almennings á efnahagslífinu og atvinnuástandinu hér á landi og væntingum til ástandsins eftir hálft ár. Þetta kem- ur fram í væntinga- vísitölu Gallup fyrir septembermánuð, sem birt var í gær. Vísitalan lækkar um 11 stig frá fyrra mánuði og er nú 123,4 stig. Dregið hefur úr væntingum almenn- ings nær óháð aldri, menntun eða tekjum. Þar sem væntingavísitalan er yfir 100 stigum eru þeir þó fleiri sem eru bjartsýnir en svartsýnir. Í Morgunkorni Greiningar Íslands- banka segir að tiltrú neytenda hafi minnkað þrátt fyrir lítið atvinnuleysi og mikinn hagvöxt. Skýringin sé að öllum líkindum verðbólguskotið sem átti sér stað í september og sú nei- kvæða efnahagsumræða sem fylgdi í kjölfarið í fjölmiðlum. Dregur úr væntingum almennings               10($-0 ))* 5!,#6'('#(-! 3; #  - !< =,:  66 #0 - !< =,: !  =,: 5  - !< =,: 5 - !< =,: + -  =,: 2 > 6 =,: ? >    =,: % !<@   6 =,: %0! =,:  > 6 2  =,: 1  =,: '25 =,: ' !.! 5&,  > 6 =,: A! =,: 785"(- 3 6 - !< =,: 5 6. 6 ! 2  =,: + .< &  =,: B;  ; - !< =,: ),96 &*!  =,: 1  ; 5 =  =,: C=& =,: D ,& 6 < =,: E$5 3  ; E !. F   . 0  =,: 4 !0  =,: 8+(%9 00 5 6 & ,&   =,:  ). 2  =,: '!,G  '!!  #,: F96 ,9 =,: $:(  BH I ')  # 6:#       J           J J J J  J J J J J  J J J    , ,  # 6:# J J J J J J   J J J J J J J J J J J J J J J J J J J J K LM K JLM J J K J LM J J K LM K JLM K LM J K J LM J J K LM J J J J J J J K JLM J J J J K LM J J J +  # 6 <    F >  )  6  N % !< '  :  : : : : J : :  :  : :  : : : : : : : J J J J  J :  J J J J : J J J                                                       4 6 < ) @8: 6: 3F+: O 3=!!   5&0 # 6 <   J       J J J J  J  J J J J J J J 3F+:J 4 ,  =!   ,6  : 3F+:J 5  =! !  .! : 3F+:J 4 , 06! > : Í GÆR veitti Fjármálaeftirlitið samþykki sitt fyrir samruna Burðaráss við annars vegar Straum Fjárfestingarbanka og hins vegar Landsbanka Ís- lands. Til þess að samruninn öðlist endanlega gildi þarf auk þess samþykki Samkeppniseft- irlitsins. Í samtali við Morgunblaðið sagði Gylfi Magnússon, for- maður stjórnar Samkeppnis- eftirlitsins, að málið væri á lokastigi hjá eftirlitinu og nið- urstöðu væri ekki lengi að bíða. Skiptingin Skipting Burðaráss og sam- eining félagsins við Lands- banka Íslands, annars vegar, og Straum Fjárfestingarbanka, hins vegar, var samþykkt á hluthafafundum í félögunum þremur um miðjan þennan mánuð. Var það í samræmi við skiptingar- og samrunaáætlun sem stjórnir félaganna sam- þykktu hinn 1. ágúst síðastlið- inn. Skiptingin er þannig að eign- ir Burðaráss, þar með talið hlutafé í sænska fjárfestingar- bankanum Carnegie, Marel, Straumi og Carrera, ásamt lausafé, samtals að verðmæti 37 milljarðar króna, ganga til Landsbankans. Starfsemi Burðaráss ásamt öðrum eignum félagsins sam- einast hins vegar Straumi sem heitir nú Straumur-Burðarás Fjárfestingarbanki. Samruni Burðaráss við LÍ og Straum Fjármála- eftirlitið veitir samþykki „ÍSLENDINGAR eru að taka völdin í norrænu lággjaldaflugi.“ Þannig hljóðar fyrirsögn í grein um fjár- festingar Íslendinga í flugrekstri í finnska blaðinu Hufvudstadsbladet. Er í greininni meðal annars sagt frá kaupum þeirra Pálma Haralds- sonar og Jóhannesar Kristinssonar á Sterling. Þó fer mestur hluti greinarinnar í umfjöllun um eign- arhald Burðaráss í finnska flug- félaginu Finnair þar sem Burðarás er næststærsti hluthafinn á eftir finnska ríkinu. Útgangspunkturinn í umfjöll- uninni er sala þeirra Björgólfs Thors Björgólfssonar, Björgólfs Guðmundssonar og Magnúsar Þor- steinssonar á bjórverksmiðjunni Bravo í Sankti Pétursborg. Meðal annars er sagt frá því að Magnús hafi fjárfest sínum hluta í flug- rekstri og byggt upp Avion Group, stærsta flutningafyrirtæki á Ís- landi. Þeir feðgar Björgólfur og Björgólfur Thor hafa hins vegar, í gegnum eignarhaldsfélag sitt Sam- son (sem Magnús átti 14,5% hlut í þar til í sumar), fjárfest í Lands- bankanum sem er stærsti hluthaf- inn í Burðarási. Beðið eftir finnska ríkinu Eins og áður sagði er Burðarás næststærsti hluthafinn í Finnair og hefur gengi finnska flugfélagsins snarhækkað eftir að Burðarás tók að fjárfesta í því. Blaðamaður Hbl gerir því skóna að félagið bíði þess að finnska ríkið selji sinn hlut í Finnair með það að markmiði að auka hlut sinn verulega. Einnig er fjallað um eign Burðar- áss í sænska lágfargjaldafélaginu Fly Me sem er í samkeppni við Fly Nordic, dótturfélag Finnair, sem á í samstarfi við Sterling. Eigendur Sterling eiga einnig hlut í Fly Me. Íslendingar taka völdin í norrænu lággjaldaflugi HAGNAÐUR af rekstri SÍF hf. á fyrri helmingi þessa árs nam 2,8 milljónum evra, jafnvirði um 210 milljónum króna. Á sama tímabili á síðasta ári var hins vegar tap af rekstri félagsins 1,7 milljónir evra. Hafa ber í huga að aflögð starfsemi gaf félaginu tekjur upp á 2,6 milljónir evra á þessu ári sam- anborið við 1,2 milljónir á fyrri hluta síðasta árs. Heildarsölutekjur SÍF á fyrstu sex mánuðum þessa árs námu 228 milljónum evra en þær voru 121 milljón á sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagn- aður í ár var 973 þúsund evrur samanborið við 255 þúsund í fyrra. Mikill munur var á fjármagns- gjöldum félagsins milli ára. Þau námu 2,6 millj- ónum evra í fyrra en 156 þúsund evrum á fyrstu sex mánuðum þessa árs. Hagnaður fyrir skatta var 817 þúsund evrur í ár samanborið við tap upp á 2,5 milljónir í fyrra. Hráefnisverð veldur erfiðleikum Hagnaður SÍF eftir skatta var 204 þúsund evr- ur í ár en hins vegar var tapið eftir skatta 2,9 millj- ónir evra í fyrra. Að teknu tilliti til tekna af af- lagðri starfsemi upp á 2,6 milljónir evra var hagnaður félagsins því 2,8 milljónir evra á fyrri helmingi þessa árs. Í tilkynningu frá SÍF segir að hækkun hráefn- isverðs samanborið við sama tíma í fyrra hafi haft umtalsverða erfiðleika í för með sér fyrir félagið á öðrum ársfjórðungi í ár. Þá segir að þegar horft sé til næsta ársfjórðungs sé ljóst að hráefnisverð muni einnig hafa umtalsverð áhrif á afkomu fé- lagsins. Hins vegar gefi söluaukning umfram væntingar á öllum lykilmörkuðum félagsins tilefni til bjartsýni. SÍF gerir ráð fyrir að söluaukning, ásamt af- námi verndartolla á norskar laxaafurðir og lækk- andi hráefnisverð, muni leiða til bættrar afkomu á síðasta fjórðungi þessa almanaksárs. SÍF hagnast um 210 milljónir CARLSBERG, sem er fimmti stærsti bjórframleiðandi heimsins, ætlar að loka nær öðru hverju brugghúsi sínu í Evrópu. Raunar er um að ræða fjórtán af minni brugg- húsum fyrirtækisins. Stjórnendur Carlsberg segja að lokun þessara brugghúsa sé nauð- synleg til þess að auka arðsemi fyr- irtækisins en stöðnun eða minnk- andi spurn hefur verið eftir bjór í löndum Evrópu auk þess sem hörð verðsamkeppni hefur þrýst verðinu niður. Danska blaðið Børsen hefur eftir forstjóra Carlsberg, Nils Smedega- ard Andersen, að ekki liggi fyrir ná- kvæmar tímasetn- ingar um lokan- irnar auk þess sem þær muni ráðast af markaðsaðstæðum á hverju svæði. Carlsberg hefur skipt brugghúsum sínum í Evrópu upp í tvo flokka, aðal- brugghús eða -verksmiðjur og stuðningsverk- smiðjur. Þessi 29 brugghús eru staðsett víðs vegar um Evrópu, meirihlutinn þó í Skandinavíu og Þýskalandi. Nú er orðið ljóst að í framtíðinni ætl- ar Carlsberg sér aðeins að reka að- albrugghúsin. Hins vegar liggur fyrir að vegna lokananna þarf að stækka þau brugghús sem eftir verða með starf- semi eða jafnvel reisa ný og því á að framkvæma lokanirnar í áföngum. Carlsberg var stofnað árið 1847 og þar starfa um 31.000 manns en fyrirtækið framleiðir um 74 millj- ónir bjórflaskna á degi hverjum. Eitt af þeim brugghúsum sem loka á er hið sögufræga brugghús Carls- berg á Vesturbrú í Kaupmanna- höfn. Félagið rekur einnig stórt brugghús í Fredericia á Jótlandi og segir forstjóri Carlsberg við Børs- en að lagt verði í auknar fjárfest- ingar þar. Carlsberg er fráleitt eini bjór- framleiðandinn sem hyggst grípa til hagræðingaraðgerða, nær öll stærri brugghús í Evrópu hafa lok- að brugghúsum í hagræðingarskyni Carlsberg lokar fjórtán brugghúsum í Evrópu   P 'QE  ' ++- + '+- /)0' )0) L L 5F' /3R & ..* . (-- /)0+ /)0* L L H3H D1R . &-* ,,% /)0. )0) L L %5R  66 %-( +% %+) /)0' /)0- L L BH R / S ?  . &(( +) .&- /)0+ 1)0+ L L

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.