Morgunblaðið - 28.09.2005, Qupperneq 19
Morgunblaðið/Sigurður Gunnarsson
Skeiðarársandur | Gróðurinn breið-
ir meira úr sér ár hvert á Skeiðarár-
sandi, og nú eru farnir að sjást fal-
legir haustlitir á birkitrjám sem þar
eru farin að skjóta rótum. Reyndar
eru um 30 ár síðan menn fóru að sjá
birki skjóta rótum í skjóli Skeiðarár-
jökuls, og segir Egill Jónsson, bóndi
og fyrrverandi alþingismaður, að
birkifræin berist úr Bæjarstaðar-
skógi, handan Skeiðarár, og þar hafi
mannanna hönd hvergi komið nærri.
Áhugavert hefur verið að fylgjast
með þróuninni undanfarna áratugi,
og segir Egill að mosinn hafi farið að
breiðast út fyrstur plantna, svo hafi
lyng fylgt í kjölfarið, og þá birki og
loðvíðir. Lífsgæðin fara greinilega
batnandi á sandinum, og útbreiðsla
birkisins er hraðari nú en nokkru
sinni. Þakkar Egill það góðu árferði
og fjölbreyttari lággróðri. Mikil
berjaspretta er á svæðinu, sérstak-
lega á krækiberjalynginu, og hefur
verið lengi.
Haustlitir
á Skeiðar-
ársandi
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 19
MINNSTAÐUR
Fjöldi aukahluta
Lágvær og þrælsterk,
endist kynslóðir
LYNGBREKKA - KÓP.
Mjög góð 104 fm, 4ra herb. sér-
hæð á fjölskylduvænum stað.
Eignin skiptist í 3 rúmgóð svefn-
herb., stofu sem og borðstofu, eld-
hús og baðherbergi. Parket og flís-
ar gólfi. Stórar svalir. Geymsla á
jarðhæð. Góð eign í fallegu og
grónu hverfi. V. 20,9 m.
BLÖNDUBAKKI
Mjög góð 4ra herb. íbúð á 3. hæð
með aukaherb. í kjallara. Falleg
beykieldhúsinnr. sem og nýleg
tæki. Parket og korkur á gólfi, flí-
salagt baðherb með þvotthúsi/-
geymslu innaf. 3 rúmgóð herb.,
fataherb. innaf hjónaherb. Suður-
svalir. Mjög barnvænt hverfi, stutt
í leikskóla, skóla og ýmsa þjón-
ustu. V. 19,9 m.
HÓLAGATA - VOGAR
Mjög gott 196 fm einbýli á 3 pöll-
um á stórri hornlóð (eignarlóð). 5-
6 herbergi. 2 baðherbergi. stofa,
borðstofa og eldhús. Parket og flís-
ar á gólfi. Nýleg innrétting í eld-
húsi. Möguleiki á bílskúrsrétti.
Mjög áhugaverð eign. V. 25,5 m.
LAUS FLJÓTLEGA.
Ármúli 38 • Sími 520 6600 •
www.eignakaup.is • eignakaup@eignakaup.is
Helgi H. Jónsson, lögg. skipa- og fasteignasali
SUÐURNES
LANDIÐ
Skorradalur | Föstudaginn 23. sept-
ember sl. var þeim merka áfanga
náð, að allir landshlutar eru komnir
inn í verkefnið „Grænni skógar“ og
voru Vesturlandsskógar síðasti
hlekkurinn sem lokaði hringnum.
Grænni skógar eru þá starfandi í
öllum landsfjórðungum. Í dag eru
um 130 skógarbændur í verkefninu,
en þetta er þriggja ára nám á veg-
um Landbúnaðarháskóla Íslands,
sem kennt er í endurmennt-
unarformi.
Nú þegar er búið að útskrifa tvo
hópa, einn af Norðurlandi og annan
af Suðurlandi.
Fulltrúar Landbúnaðarháskóla
Íslands, Vesturlandsskóga, Skóg-
ræktar ríkisins, Landgræðslu rík-
isins og Félags skógarbænda á
Vesturlandi skrifuðu undir samn-
inginn, sem hefur það markmið að
gera þátttakendur betur í stakk
búna til að taka virkan þátt í mót-
um og framkvæmd skógræktar og
landgræðslu á bújörðum.
Handaband Aðstandendur verkefnisins takast í hendur.
Grænni skógar
á Vesturlandi
VEGAGERÐIN hefur auglýst út-
boð á tvöföldun Reykjanesbrautar í
framhaldi af þeim kafla sem nú þeg-
ar hefur verið tekinn í notkun og
áfram til Njarðvíkur. Alls er um að
ræða 12,2 kílómetra af vegi og ligg-
ur hann frá Strandarheiði til Njarð-
víkur. Enn mun þá vanta kafla frá
Kúagerði og inn í Hafnarfjörð auk
tvöföldunar gegnum Garðabæ.
Á kaflanum verða gerð þrenn
mislæg gatnamót; við Vogaveg,
Grindavíkurveg og Njarðvíkurveg
og auk þess verða byggðar tvær
stuttar brýr yfir Skógfellaveg. Mis-
lægu gatnamótin eru öll svipuð að
forminu til, þ.e. tígullausn með
tveimur brúm og hringtorg sitt
hvorum megin við Reykjanesbraut
sem tengja saman rampa og þver-
veg.
Hinn tvöfaldi kafli endar um 400
m. vestan við tengingu til Keflavík-
ur við söluskála við Fitjar. Þar
verða tvær akreinar að einni með
eyju milli umferðar úr gagnstæðum
áttum.
Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Reykjanesbæjar, segir íbúa Suður-
nesja hæstánægða með það að verk-
ið skuli nú boðið út. „Ég tel að
landsmenn allir geti samfagnað okk-
ur í þessu, því flestir eiga þeir ein-
hvern tíma leið um alþjóðaflugvöll-
inn,“ segir Árni, sem tekur undir
það að stórt skref sé tekið í því að
bæta umferðaröryggið á svæðinu,
ekki síst með hinum mislægu gatna-
mótum við alla afleggjara að þétt-
býliskjörnum. „Tvímælalaust, ég
held að þessi framkvæmd sé í hópi
stærstu umferðaröryggisverkefna á
landinu. Tvöföld Reykjanesbraut og
mislæg gatnamót á öllum gatnamót-
um og væntanlega vegrið eiga að
tryggja örugga umferð eins og raun
sýnir þar sem þessi aðstaða er gerð.
Við teljum að það sé það vel að
þessu staðið að þetta verði á við það
besta sem gerist erlendis, þegar
vegriðin eru komin á brautina, þá er
ekki hægt að hafa þetta betra.“
Árni segir einnig áhugavert að fá
úr því skorið hversu fljótt verktakar
treysta sér til að vinna verkið. „Þeir
hafa fullyrt að þeir treysti sér til að
vinna verkefnið á ári og það verður
forvitnilegt að sjá hver viðbrögð
þeirra eru þegar þetta er nú boðið
út,“ segir Árni.
Útboðum skal skilað fyrir kl. 14 þ.
8. nóv. nk. og verða þau opnuð þar
kl. 14.15 sama dag. Verkinu skal
verða að fullu lokið 1. júní 2008.
Framhald tvöföldunar Reykjanesbrautar til Njarðvíkur boðið út
Umferðaröryggi
betur tryggt
Öryggi Mislæg gatnamót við afleggjara auka umferðaröryggi til muna.
Sandgerði | Samhæfni og Opin kerfi
hafa gert samning við Sandgerðisbæ
um alrekstur á upplýsingakerfum
bæjarins. Með samningi þessum
opna Opin kerfi fyrir þann mögu-
leika að Sandgerðisbær leigi tölvu-
búnað. Slíkt fyrirkomulag kemur í
veg fyrir sveiflur í útgjöldum og í
stað fjárfestinga kemur mánaðarleg-
ur rekstrarkostnaður.
Við upphaf samnings leggja Opin
kerfi fram 29 ferðavélar og 25 borð-
vélar, auk nokkurra skjávarpa,
myndavéla og prentara. Sérfræðing-
ar Opinna kerfa á Suðurnesjum,
Hannes H. Gilbert munu ábyrgjast
rekstur umhverfisins og hafa þar
fasta viðveru vikulega.
Pétur Brynjarsson, skólastjóri
Grunnskóla Sandgerðisbæjar, segir
að kennarar skólans séu afar ánægð-
ir með þennan búnað sem nú er tek-
inn í notkun.
Tölvukerfi
Grunnskóla
Sandgerðis
endurnýjað