Morgunblaðið - 28.09.2005, Qupperneq 25

Morgunblaðið - 28.09.2005, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 25 Í NÝLEGRI stjórnsýsluúttekt Rík- isendurskoðunar á Háskóla Íslands eru birtar upplýsingar sem sýna ótvírætt að skólinn býr við verulegt fjársvelti. Þetta fjársvelti verður ekki metið með því að líta á rekstrarhalla því skólinn hefur verið rekinn af fullri fjárhags- legri ábyrgð og útgjöld ráðast af tekjum. Sam- anburður við erlenda skóla sýnir hins vegar að Háskóla Íslands eru lagð- ir til miklu minni fjár- munir en sambærilegir erlendir skólar hafa yfir að ráða. Þar munar miklu, ekki bara örfáum prósentum eða tugum prósenta heldur reynast tekjur erlendra sam- anburðarskóla á hvern nemanda vera tvöfalt til þrefalt hærri en Háskóla Íslands. Ef skólinn á að geta staðist samanburð við erlenda alhliða rann- sóknaháskóla verður að bæta fjárveitingar til hans svo um muni. Með einföldum reikn- ingum má fara nærri um hver fjárþörfin er. Hér verður litið á stærstu liði í veltu rannsóknaháskóla en þeir eru eru þrír, kennslufjárveiting, op- inber rannsóknafjárveit- ing og sértekjur vegna rannsókna. Kennslufjárveiting Kennslufjárveiting þarf að standa undir kostnaði við kennsluþátt launa kennara og annan kostnað vegna kennslunnar. Fyrir allmörgum árum var tekið upp reiknilíkan að erlendri fyrirmynd til að meta fjárþörf vegna háskólakennslu. Það felur m.a. í sér að kostnaður vegna kennsluvinnu er reiknaður út frá erlendum staðtölum um tímasókn nemenda, hópastærðir og vinnustundir að baki hverjum kennslu- tíma, en hins vegar er miðað við ís- lenska launataxta. Launataxti vegna kennslu, svokölluð launastika, verður að vera meðaldagvinnulaun þeirra sem sinna kennslunni, háskólakennaranna, ef rétt útkoma á að fást. Launin eru þau sem fjármálaráðuneyti hefur samið um við Félag háskólakennara eða Kjaranefnd úrskurðað prófessorum. Í ársbyrjun 2005 voru meðaldag- vinnulaun háskólakennara 337 þús. kr. á mánuði. Hins vegar var launastikan sem ráðuneytið notar í reiknilíkani sínu einungis 244 þús. kr. á mánuði. Af þeim sökum myndast gjá milli fjárveitinga annars vegar og eðlilegra útgjalda hins vegar. Annað vandamál er að ríkið greiðir einungis fyrir um 5.000 heilsársnem- endur en í raun eru ársverk nemenda í HÍ um 5.500. Ellefta hverjum nemanda fylgir engin fjárveiting. Fjárveiting ársins 2005 vegna kennslu er 3,2 milljarðar. Ef greitt væri með öllum nemendum og gert ráð fyrir að laun séu um 70% útgjalda þyrfti kennslufjárveiting miðað við rétta launastiku að vera um 4,4 millj- arðar. Það vantar sem sagt 1,2 milljarða upp á kennslufjárveitinguna. Rannsóknafjárveiting Við norræna rannsóknaháskóla er rannsóknafjárveiting úr ríkissjóði að jafnaði nokkurn veginn jafnhá kennslu- fjárveitingunni. Rannsóknafjárveiting Háskóla Íslands árið 2005 er hins veg- ar 1,3 milljarðar eða rúm 40% kennslu- fjárveitingar. Stærsti hluti þeirrar upp- hæðar fer í að greiða þann hluta launa fastra kennara sem nemur rann- sóknaskyldu þeirra, að jafnaði um 43% vinnutímans. Rannsóknafjárveitingin ræður því miklu um hve marga fasta kennara skólinn getur haft á launum. Eitt af því sem einkennir Háskóla Ís- lands í samanburði við erlenda háskóla er hve fáir fastir kennarar eru við skól- ann. Hann reiðir sig því mjög á stunda- kennara, en því fylgir óeðlilega mikil ábyrgð og álag á föstu kennarana. Rannsóknafjárveitingin þarf líka að standa undir grunnkostnaði og öllum búnaði vegna frjálsra rannsókna há- skólakennara og síðast en ekki síst rannsóknatengdu framhaldsnámi til meistara- og doktorsprófs. Háskóli Íslands er nú þegar öfl- ugur rannsóknaháskóli og nemum í rannsóknatengdu námi til meistara- og doktorsprófs fjölgar ört. Halda þarf áfram að efla skólann svo hann nái því marki að standa jafnfætis nor- rænum rann- sóknaháskólum. Á nú- verandi þróunarstigi Háskólans sem rann- sóknaháskóla væri sanngjarnt að rann- sóknafjárveiting væri um tveir þriðju hlutar kennslufjárveitingar eða um þrír milljarðar króna. Niðurstaðan er því sú að við núverandi að- stæður vanti rúma fjóra milljarða króna, um 1,2 milljarða vegna kennslu og um 3 millj- arða vegna rannsókna, eigi fjárveiting Háskól- ans að vera sambæri- leg við fjárveitingar sambærilegs norræns rannsóknaháskóla. Sértekjur vegna rannsókna Auk opinberra fram- laga til rannsókna og kennslu eins og hér hefur verið rakið hafa norrænir háskólar tekjur af styrkjum úr rannsóknasjóðum og rannsókna- samningum við einkaaðila. Dæmi- gerður norrænn rannsóknaháskóli hefur um þriðjung heildartekna sinna af slíkum verkefnum. Mögu- leikar Háskóla Íslands á þessu sviði eru hins vegar takmarkaðir vegna þess að íslenskir rannsóknasjóðir eru enn mjög óburðugir og íslensk fyr- irtæki leggja minna til háskólarann- sókna en reyndin er erlendis, þó á hinn bóginn fari erlendir styrkir til verkefna við HÍ vaxandi. En hafa verður í huga að slík rannsóknaums- vif eru viðbót við kjarnastarfsemi hvers skóla, kennslu og frjálsar rannsóknir, sem ekki verður kostuð svo neinu nemi af öðru en fjárveit- ingum. Til hvers vantar fé? Eðlilegt er að spurt sé til hvaða verkefna þeir fjórir milljarðar sem áður er getið ættu að renna. Því er auðsvarað:  Veruleg fjölgun fastra kennara.  Bætt aðstaða til verkkennslu, bæði húsnæði og tækjabúnað.  Stuðningur við rannsóknatengt framhaldsnám.  Styrking innviða rannsókna- starfs með bættum tækjabún- aði.  Aukin mótframlög á móti styrkjum frá rannsóknasjóðum og fyrirtækjum. Allt eru þetta brýn verkefni sem ekki þola bið. Vilja Íslendingar alvöru rannsóknaháskóla? Erlendis er oft við það miðað að um milljón manna samfélag þurfi að baki einum alhliða rannsóknahá- skóla. Á Íslandi búa einungis tæp- lega 300 þúsund manns. Það er kraftaverki líkast að Háskóli Íslands skuli hafa orðið til. Það hefur gerst fyrir metnað nemenda, metnað há- skólastarfsmanna og metnað þjóð- arinnar. Ávöxtur árangursríks starfs Háskóla Íslands blasir við hvarvetna í þjóðfélaginu. Nú þarf þjóðin að gera það upp við sig hvort hún vill í alvöru eiga slíkan skóla áfram eða ekki. Nú þurfa aðgerðir stjórnvalda að endurspegla metnað þjóðarinnar. Fjárhagur Háskóla Íslands Eftir Hörð Filippusson Hörður Filippusson ’Ávöxtur árang-ursríks starfs Háskóla Íslands blasir við hvar- vetna í þjóðfélag- inu. Nú þarf þjóðin að gera það upp við sig hvort hún vill í alvöru eiga slík- an skóla áfram eða ekki. ‘ Höfundur er prófessor í lífefnafræði og forseti raunvísindadeildar Háskóla Íslands. glegur. stjórn- góðar höfum alldór. einhver si ráð- „Nei, ng. Við stjórn- ð sjálf- ágæta ðfélag- tt, það eins og að eru nokkur augum rð“ íð setið fund í m voru Guðna var er- fram á málefni gar er- g Fær- eyja varðandi samstarf þjóðleikhúsa landanna tveggja. Davíð sagði aðspurður við frétta- menn að fundi loknum að „dálítið til- stand“ hefði verið vegna tímamót- anna með því að terta hefði verið á borðum fundarins og „falleg orð for- sætisráðherra í minn garð sem ég þakkaði fyrir“, sagði Davíð. Hann sagði aðspurður hvort rétt væri að hann hefði ekki séð sér fært að mæta í hádegisverð á Bessastöð- um í gær, að ríkisstjórnarfundurinn hefði verið boðaður klukkan 10 í gærmorgun og síðan ríkisráðsfund- ur kl. 11.30. „Síðan var því breytt og ríkis- ráðsfundur boðaður klukkan tvö. Þá höfðu menn gert öll sín plön út frá því atriði. Landbúnaðarráðherra kemur ekki til landsins fyrr en um hádegi og þá var því [hádegisverð- inum] skyndilega breytt aftur en þá hafði ég gert mínar ráðstafanir þannig að ég gat ekki breytt því í þriðja sinn. Menn héldu sig við það sem áður hafði verið ákveðið og menn vilja gjarnan að allir séu á staðnum á ríkisráðsfundi, sérstak- lega þegar kemur nýr ráðherra,“ sagði Davíð. Spurður um helstu atriði á stjórn- málaferli sínum sagðist Davíð ekki geta neitað því að allir sem horfðu á fjölmiðlamálið nú, hlytu að sakna þess að fjölmiðlafrumvarpið hefði ekki verið afgreitt í þinginu. Skaði að fjölmiðlafrumvarpið skyldi ekki ná fram að ganga „Ég tel að atburðir dagsins sýni að það var mikill skaði að fjölmiðla- frumvarpið skyldi ekki ná fram að ganga og að hér giltu svipaðar regl- ur og annars staðar í heiminum.“ Spurður um áhyggjur sínar af fjölmiðlun nútímans á Íslandi lýsti Davíð því að nú þegar það hefði gerst að auðhringar sem hefðu gríð- arleg ítök í öllu þjóðlífinu hefðu söls- að undir sig alla helstu fjölmiðlana, væri komin samlegð sem engin þjóð byggi við. „Hvert einasta manns- barn sér misnotkun fjölmiðlanna og það er afskaplega óhollt. Hollir, góð- ir og sterkir fjölmiðlar eru mjög mikilvægir og að þeir séu fjölbreytt- ir og það sé ekkert efast um að neitt annarlegt búi á bak við. Auðvitað er það svo að allir eigendur hafa ein- hver áhrif á það sem þeir eiga en það er mjög þýðingarmikið gagn- vart fjölmiðlum að þá komi það ekki fram.“ ráðuneyti Halldórs Ásgrímssonar tók við á Bessastöðum ök stefnubreyt- herraskiptin Morgunblaðið/Kristinn viðskiptaráðherra, Sigríður Anna Þórðardóttir umhverfisráðherra, Guðni Ágústsson landbúnaðarráðherra, Björn orsætisráðherra, Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, Geir H. Haarde utanríkisráðherra, Árni M. Mathiesen fjár- amálaráðherra, Sturla Böðvarsson samgönguráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra. Morgunblaðið/RAX utanríkisráðuneytinu í gær eftir að hafa afhent Geir H. Haarde lyklavöldin. Á leiðinni út gekk hann framhjá mynd sem ýjum utanríkisráðherra. Fyrir aftan Davíð er Gunnar Snorri Gunnarsson ráðuneytisstjóri. RAGNHEIÐUR Elín Árnadóttir, aðstoðarmaður Geirs H. Haarde, fylgir honum í utanríkisráðuneytið og Ármann Kr. Ólafsson, aðstoð- armaður Árna M. Mathiesen, fylgir honum í fjármálaráðuneytið. Illugi Gunnarsson, sem verið hefur aðstoðarmaður Davíðs Odds- sonar, segir enn óráðið hvað hann muni taka sér fyrir hendur. Hann muni þó ekki fara með Davíð í Seðlabankann. Einar K. Guðfinnsson segist ekki vera búinn að ráða sér aðstoð- armann en hann muni gera það von bráðar. Fylgja ráðherrunum

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.