Morgunblaðið - 28.09.2005, Síða 28

Morgunblaðið - 28.09.2005, Síða 28
28 MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ IngibjörgÁgústdóttir fæddist á Akranesi 7. janúar 1934. Hún andaðist á sjúkra- húsi Akraness að- faranótt miðviku- dagsins 21. september síðastlið- inn. Foreldrar hennar voru hjónin Ágúst Sigurðsson verkamaður, f. 5 ágúst 1895, d. 21. janúar 1960, og Þóra Jónsdóttir hús- móðir f. 14. maí 1902, d. 15. nóv- ember 1990. Bróðir Ingibjargar er Albert Ágústsson vélstjóri, f. 10 maí 1935 á Akranesi, var kvæntur Lilju Lárusdóttir, f. 1940. d. 1994, núverandi sambýliskona hans er Ingibjörg Þorkelsdóttir. Ingibjörg giftist 11. janúar 1959 Gunnari H. Guðjónssyni, f. 11. 1960, giftist Erlingi Rafnssyni, f. 12. febrúar 1964 (fráskilin). Börn þeirra eru Gunnar Árni, f. 1981, Ingibjörg Eyja, f. 1984, Ársæll Rafn, f. 1986, og Kristín Anna, f. 1989. 3) Guðjón Gunnarsson, f. 29. apríl 1963, kvæntur Þóru K. Guð- bjartsdóttur, f. 27. júlí 1962. Börn þeirra eru Gunnar Ingi, f. 1998, og Jóhanna Ósk, f. 1998. 4) Jón Hall- dór Gunnarsson, f. 21. janúar 1970, kvæntur Jórunni Svavars- dóttur, f. 18. mars 1971. Börn þeirra eru Laufey Ósk, f. 2000, og Ólafur Magni, f. 2003. 5) Albert Ingi Gunnarsson, f. 3. júní 1971, kvæntur Sigurrósu Ingigerðar- dóttur, f. 8. október 1978. Börn þeirra Ingvi Þór, f. 2000, og Haf- þór Blær, f. 2004. Ingibjörg ólst upp á Akranesi og bjó þar til ársins 1959, flutti þá ásamt manni sínum að Borgarholti í Miklaholtshreppi, þar sem þau stunduðu búskap. Árið 1996 hættu þau búskap og fluttu á Akranes þar sem Ingibjörg bjó til dauða- dags. Útför Ingibjargar verður gerð frá Akraneskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. október 1934. Hann var sonur Guðjóns Péturssonar, f. 6. maí 1894, d. 7. ágúst 1968, og Unu Jóhann- esdóttur, f. 12. sept- ember 1908, d. 21. janúar 1996. Ingi- björg átti einn son fyrir, Ágúst Þ. Guð- steinsson, f. 28. febr- úar 1955. Börn Gunn- ars og Ingibjargar eru: 1) Ólafur Gunn- arsson, f. 21. mars 1959, d. 15. júlí 2003. Hann kvæntist Ingveldi Einars- dóttur, f. 2. nóvember 1956. Börn þeirra eru Inga Birna, f. 1979, sambýlismaður Sæmundur Þór, f. 1979, Linda Björk, f. 1979, Sævar Birgir, f. 1983, unnusta hans Hulda, f. 1985, Hafdís Bára, f. 1987, og Kristín Birta, f. 1998. 2) Þóra Gunnarsdóttir, f. 16. maí Elskuleg tengdamóðir mín hún Inga er látin. Eftir hetjulega baráttu við erfiðan sjúkdóm varð hún að láta undan. Það er svo margt sem kemur upp í hugann á svona stundum. Fyrir rúmum 28 árum kom ég með honum Óla syni hennar að Borgarholti. Vel var tekið á móti mér eins og alltaf síðan. Eins var með alla sem komu til þeirra hjóna Ingu og Gunnars. Þau voru svo einstaklega gestrisin. Elsku Inga, það er erfitt að sjá á eftir þér. Þín verður sárt saknað. Það var allt- af svo gott að koma til þín og Gunn- ars. Allt vilduð þið gera fyrir okkur, allt var sjálfsagt. Það var líka svo gott að leita til þín. Þú varst alltaf svo ráðagóð, vissir svo margt og allt- af varstu til í spjall. Ég er þér svo þakklát fyrir öll símtölin sem við átt- um eftir að Óli okkar dó. Þó erfitt væri hjá þér, vildir þú fylgjast með að allt gengi vel hjá okkur fjölskyld- unni. Þetta sýnir bara hversu hjartahlý þú varst. Þegar þú og Gunnar bjugguð í sveitinni, komum við oft um helgar og gistum. Það var alltaf glatt á hjalla þegar öll fjöl- skyldan kom saman um helgar og hátíðar, stundum 18 manns eða fleiri. Alltaf var nóg pláss fyrir alla. Börnin okkar sóttust eftir að vera hjá ykkur í sveitinni og voru oft á sumrin. Fyrir rúmum níu árum fluttuð þið Gunnar á Akranes. Þá fórum við að ferðast saman á sumrin. Stundum var farið upp á hálendið. Eina slíka ferð fórum við saman inn í Öskju og Herðubreiðarlindir, fórum við þar yfir heljarmikla á, Lindaá. Ég gleymi ekki hve hrædd ég var um að bíllinn ykkar flyti út í jökulsána, enda fór allt á flot í fellihýsinu ykkar. En allt blessaðist þetta og allir sluppu heilir. Það var svo gaman að ferðast með ykkur Gunnari. Góða skapið og létta lundin voru alltaf með í för. En nú er komið að kveðjustund. Ég vil þakka þér, Inga mín, fyrir allt það sem þú gerðir fyrir okkur fjöl- skylduna. Megir þú hvíla í friði. Elsku Gunnar, þinn missir er mestur, ég vil biðja guð að styrkja þig, börnin þín og alla fjölskylduna. Ingveldur. Nú er komið að kveðjustund, hún elsku amma okkar er dáin. Það er erfitt að trúa því enda var hún mjög heilsuhraust kona nær alla sína ævi. Við systkinabörnin kölluðum hana alltaf ömmu í Borgarholti lengst af enda bjó hún þar ásamt afa nær öll okkar bernskuár. Það var alltaf jafn gaman að koma að Borgarholti. Við fórum þangað mjög oft systkinin með mömmu og pabba um helgar, og dvöldum jafnvel viku eða vikur þar á sumrin og reyndum að hjálpa eitt- hvað til við bústörfin. Afi og amma fluttu svo á Akranes 1996 þaðan sem amma er ættuð. Það var alltaf gott að vita af þeim ömmu og afa þar, svona stutt í burtu og alltaf tóku þau fagnandi á móti okkur þegar við komum í heimsókn. Amma var alveg sérstaklega ljúf og yndisleg kona og vildi alltaf allt fyrir okkur fjölskylduna gera. Það kom sér mjög vel, t.d. við fráfall pabba fyrir tveimur árum. Maður gat alltaf leitað sér huggunar hjá þeim ömmu og afa. Amma hafði mjög gaman af að ferðast um landið ásamt afa og fjöl- skyldunni. Þau ferðuðust um með forláta fellihýsi og síðar húsbíl. Okk- ur er sérstaklega minnisstæð ferðin á Strandirnar í fyrrasumar. Það var feikilega gaman og það var mikið sungið og trallað, enda hafði amma alltaf sérlega gaman af að syngja og gerði það við hvert tækifæri, enda erum við söngglöð ætt með eindæm- um. Amma og afi ferðuðust nokkuð er- lendis síðustu ár. Fóru í svona bændaferðir, m.a. til Þýskalands og Ítalíu, og amma hafði mjög gaman af að sýna okkur myndir úr ferðunum. Amma fór líka á námskeið í Mennta- smiðjunni fyrir nokkrum árum og lærði þar ýmislegt gagnlegt og bjó til marga fallega muni sem hún gaf ætt- ingjum. Okkur systrunum þykir al- veg afskaplega vænt um þessa muni og það er mjög gaman að eiga þá. Það er með sárum trega sem við kveðjum ömmu nú hinsta sinni. En við vitum að Guð geymir hana vel og amma mun alltaf vera með okkur öll- um í hjörtum okkar, Þínar sonardætur, Inga Birna og Linda Björk. Ég á svo erfitt með að trúa því að þú sért dáin, elsku amma mín, þú varst alltaf svo hress og lífsglöð, jafnvel meðan þú þjáðist af alvarleg- um veikindum. Ég hélt því alltaf í vonina um að þú næðir þínum fulla styrk aftur. En jafnvel þeir sterk- ustu og elskuðustu geta ekki staðið gegn fyrirætlun hins heilaga alföður. En eftir sitja dásamlegar minn- ingar í hjarta okkar um frábæra konu sem var hvers manns hugljúfi og vildi allt fyrir alla gera. Ég man þegar ég ungur að árum dvaldi hjá ykkur afa á sumrin í sveit- inni í Borgarholti og eru það meðal eftirminnilegustu stunda lífs míns. Alltaf var svo gaman að ærslast um í frelsinu sem sveitin bauð uppá og svo þegar við krakkarnir komum þreyttir inn til ykkar á kvöldin skelltir þú fram á borð ljómandi góð- um mat eins og hver gat í sig látið og tryggðir þú ávallt að enginn færi svangur í rúmið. Þú varst alltaf svo ráðagóð og skemmtileg að það var ávallt hægt að spjalla við þig um hvað sem var. Af þessum sökum vild- um við krakkarnir helst hvergi ann- ars staðar vera en í sveitinni hjá ykk- ur. Það var því með söknuði sem við kvöddum sveitina er þið afi fluttuð á Akranes, en þá tóku við aðrar góðar stundir; öll ferðalögin sem við fórum í saman. Ég minnist sérstaklega verslunarmannahelgarinnar í fyrra þegar við fórum öll saman á Strand- irnar.Við sungum og skemmtum okkur langt fram á nótt og þið afi voruð jafn fjörug og ykkur miklu yngra fólk. Það er því með miklum söknuði sem ég kveð þig, elsku amma mín, en ég hugga mig við það að þú færð góð- ar viðtökur hjá pabba og þið munið hugsa vel um hvort annað þar til við hittumst öll á efsta degi. Sævar Birgir. Okkar ástkæra amma er látin eftir baráttu við illvígan sjúkdóm. Það eru svo margar minningar sem við eig- um um hana elsku ömmu, hún var INGIBJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR ✝ Jón J. Waagfjörðfæddist í Vest- mannaeyjum hinn 24. febrúar 1920. Hann lést í Garðabæ 17. september síð- astliðinn. Foreldrar hans voru Jón V. Waagfjörð málara- meistari, f. 15.10. 1883, d. 2.3. 1969, og kona hans Kristín Jónsdóttir húsmóð- ir, f. 7.8. 1890, d. 21.11. 1968, og eign- uðust þau tólf börn. Jón var elstur af þeim átta sem upp komust. Systkini hans eru Karólína Kristín, f. 19.4. 1923, Símon, f. 1.5. 1924, Jónína Lilja, f. 18.10. 1926, Óskar og Auður, f. 19.2. 1929, Vig- fús, f. 17.2. 1930, og Anna, f. 2.9. 1934, d. 24.4. 2002. Jón stundaði nám við Iðnskólann Jónsdóttir húsmóðir. Bertha og Jón stofnuðu og ráku skermagerð frá árinu 1973 og starfar hún enn. Sonur Jóns frá því fyrir hjónaband er Már Viktor, f. 5.12. 1940, var kvæntur Þyrí Hólm sem er látin. Fyrrum sambýliskona hans er Sonja Ólafsdóttir. Már á eina dótt- ur og þrjú barnabörn. Börn Jóns og Berthu Maríu eru: 1) Halldór, f. 2.5. 1947, kvæntur Ástu Þorvaldsdótt- ur og eiga þau tvo syni og þrjú barnabörn. 2) Kristinn f. 27.11. 1949, kvæntur Hjördísi Sigmunds- dóttur og eiga þau fimm börn og fimm barnabörn. 3) Þorvaldur, f. 3.6. 1952, d. 16.10. 1979. Börn hans eru þrjú og fjögur barnabörn. 4) Grímur Rúnar, f. 9.4. 1956, kvænt- ur Helgu Gunnarsdóttur og eiga þau fjögur börn. 5) Þorsteinn, f. 27.4. 1962, kvæntur Sigrúnu S. Logadóttur og eiga þau tvö börn. Fyrir átti Þorsteinn eina dóttur. 6) Rósa María, f. 29.11. 1966, maki Hreiðar H. Hreiðarsson og eiga þau þrjú börn. Útför Jóns verður gerð frá Vídalínskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 11. í Vestmannaeyjum og lærði málaraiðn af föður sínum og lauk sveinsprófi í húsamálun. Hann flutti til Reykjavíkur 1941 og var þar málara- meistari til 1951. Þá flutti hann til Vest- mannaeyja og tók við rekstri Fé- lagsbakarísins af föður sínum og nam bakaraiðn. Hann starfrækti bakaríið fram að gosi 1973. Þá flutti hann í Garðabæ þar sem hann stundaði málaraiðn. Hinn 15.5. 1948 kvæntist Jón Berthu Maríu Grímsdóttur, f. 13.2. 1926. Foreldrar hennar voru Grímur Kr. Jósepsson, járn- smiður í Reykjavík, og Halldóra Það kvöldar við bergið og blær fer um strönd. Það brimar í hjarta og hlý er þín hönd. Hljóðlát er nóttin um hlíðar og grund og helgar okkar fund. Á djúpbláum himninum dilla sér ský uns dagar enn á ný. (Á. J.) Með tilvitnunum í þennan fallega texta kveð ég hann Stáka tengdaföð- ur minn og þakka árin góðu sem ég hef fengið að njóta návistar hans. Hann bar nafnið Stáki með sanni, því þótt árin færðust yfir og tækju sinn toll þá var stutt í stríðna en hjarta- hlýja Eyjastrákinn sem aldrei þreyttist á að rifja upp sögur liðinna ára og alltaf eins og verið væri að segja þær í fyrsta skipti. Takk fyrir góðvildina, hjálpsem- ina, glettnina og að vera til staðar. Megi minningin um bjarta, fallega brosið hennar Berthu vera honum ljósgjafi heim, þar sem hann að ferðalokum getur litið stoltur um öxl. Nú birtir og friður er yfir, því ljós- ið á kertinu lifir. Þín tengdadóttir, Helga. Við minnumst hans afa með þakk- læti fyrir að hafa fengið að hafa hann þetta lengi hjá okkur. Við vitum að nú líður honum vel. Megi hann afi hvíla í friði, við söknum hans sárt og minnumst hans með gleði. Þín barnabörn, Hjörleifur Arnar, Jón Kristinn, Stefán Helgi og Berglind Hlín. Elsku afi minn, nú ert þú farinn frá okkur til pabba. Ég er nokkuð viss um að þér sé létt og líði vel því ekki varst þú ánægður með þitt hlut- skipti þar sem veikindin drógu smám saman úr þreki þínu hin síðustu ár. Aldrei minnist ég þess að hafa séð þig skipta skapi eða vera öðruvísi en með þitt hlýja bros og að sjálfsögðu að stríða einhverjum. Diddý fékk að- eins að finna fyrir því. Alltaf fannst mér gott að koma til ykkar í Garða- bæinn því þar er svo hlýlegt og elskulegt hjá ykkur. Ég var svo heppin að fá að vinna með þér eitt sumar hjá Ragnari afa að mála, það var yndislegt því að þá sá ég aðra og ekki síðri hlið á þér, en þó var alltaf sama gamansemin og að sjálfsögðu stríðnin. En mest af öllu er ég þakk- lát fyrir að hafa haft þig sem afa minn, svona mikinn og góðan mann. Elsku amma mín, nú átt þú um sárt að binda, að horfa á eftir þínum elskulega eiginmanni. Bið ég Guð að gefa þér styrk og ljós í hjartað á þessari erfiðu stund. Sölt tárin brenna varir mínar og vanga. Söknuður nístir hjarta mitt, fyllir mig trega. Þjáningin er alger. Svartnættið blasir við því þú ert farinn. Farinn frá mér. Kær kveðja. Alda Ragna. Þegar við erum komin á fullorð- insár og förum að líta yfir farin veg verða hugsanir um manns eigin mót- unarvalda áleitnari. Hvað hefur gert okkur að svona manneskju, en ekki einhvern veginn öðruvísi? Mér finnst ég greina sterklega áhrif einstak- linga sem ég hef átt samleið með, misjafnlega mikil og misjafnlega góð, eins og gengur og gerist. Uppi stendur í hópi góðs fólks Jón J. Waagfjörð, sem í daglegu tali var kallaður Stáki, bakari og málari. Minningin um hann mun fylgja mér alla tíð, minning um góðan fjöl- skylduvin og frænda, minning um sterkan, glaðværan og heiðarlegan mann. Það er ekki óeðlilegt að uppvaxt- arár í miðbæ Vestmannaeyja upp úr miðri síðustu öld skili manni sterkum myndum minninga. Svo ekki sé talað um að alast upp í karakterríku sam- félagi við fjölskylduna í Garðhúsum. Tengsl fjölskyldu minnar í Hlíðar- húsi við fjölskylduna í Garðhúsum voru náin og góð, vinátta, frændsemi og nágrenni. Mér finnst eins og sam- félagið á Garðhústorfunni á þessum árum hafi einna helst líkst litríku samfélagi innflytjenda í New York. Stáki var gríðarlega sterkur per- sónuleiki og fagmaður. Hann tók við rekstri Félagsbakarísins í Garðhús- um af föður sínum og rak það þar til fjölskyldan flutti brott frá Eyjum í kjölfar eldgossins árið 1973. Minning mín um bakaríið geymir bragð og ilm af besta brauði sem bakað hefur ver- ið í veröldinni. Í hvert sinn sem ég bragða á brauði, hvar sem er á jarð- arkúlunni, hef ég þessa viðmiðun, sem er fyrir mér hið eina sanna brauð. Í þeim samanburði standa aðrir brauðgerðarmenn höllum fæti. En ég veit að slík brauð verða aldrei bökuð aftur, vegna þess að bakaríið er löngu hætt starfsemi sinni og nú hefur bakarinn kvatt. Í bakaríinu var einnig á tímabili búinn til vanilluís, sem í mínum huga er forveri allra vanilluísa sem síðar hafa verið gerð- ir. Allt vekur ljúfar minningar. Að fara í bakaríið og fá gefins enda, sem voru afskurðir af vínarbrauðslengj- um, snúða sem voru e.t.v. með ein- hverjum ágöllum eða jafnvel ís úr af- gangi ísvélarinnar að kvöldi dags. Alltaf var tekið á móti krökkum með brosi og glaðværð. Það var ekki allt- af gaman í gamla daga, en þarna var bara glaðvært og skemmtilegt fólk, sem gerði lífið skemmtilegra. Ég minnist eins hlutverks bakarís- ins sem var e.t.v. umfram önnur sér- stakt. Á aðfangadag um miðjan fimmta áratug síðustu aldar var oft erfitt með rafmagn í Eyjum vegna takmörkunar dreifikerfis rafveit- unnar og því erfitt að elda jólasteik- ina í máttlitlum eldavélum heimil- anna. Stáki brást við þessum vanda með því að steikja í ofninum í bak- aríinu jólasteikurnar fyrir vini og vandamenn. Þá ilmaði bakaríið og næsta nágrenni af dásamlegum jóla- steikarilm. Svo bætti hann um betur með því að gera jólabúðing. Mínar fyrstu jólaminningar eru því ná- tengdar Stáka og bakaríinu. Það sem var sérstakt við bakaríið umfram önnur slík voru bílarnir. Við útkeyrslu brauða voru notuð gljá- fægð amerísk tryllitæki. Þetta voru glæsikerrur sem ég tel að ekki hafi átt sér hliðstæðu í öðrum bakaríum hérlendis. Stáki hafði mikinn áhuga á slíkum bílum. Þessi áhugi virðist hafa erfst áfram til afkomenda hans, hvort það er erfðafræðilegt eða upp- eldislegt veit ég ekki. Það er ótrúlegt JÓN J. WAAGFJÖRÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.