Morgunblaðið - 28.09.2005, Qupperneq 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 31
MINNINGAR
heyrði af ömmu og afa þennan dag
vissi ég áður og það var ómetanlegt
að eiga þennan dag saman. Ég held
ég geti fullyrt að við sem þarna vor-
um séum í dag innilega þakklát fyrir
að af þessu litla fjölskyldumóti yrði.
Það var eitthvað notalegt við það
að sjá Siggu frænku mína eldast
svona fallega, eftir því sem árin liðu
minnti hún mig meira og meira á
Guðrúnu ömmu. Mikið vildi ég að
hún hefði fengið notið lífsins örlítið
lengur, með öllu sínu góða fólki. Eft-
irsjáin er mikil en við sem nutum
þess að eiga samleið með henni bú-
um að því alla tíð.
Hugurinn hefur verið hjá Birni,
frændsystkinum okkar og þeirra
fjölskyldum undanfarnar vikur og ég
veit að minningin um Siggu og allt er
hún var þeim fylgir þeim í gegnum
lífið. Ég kveð frænku mína og trúi
staðfastlega að hún hafi fengið góðar
móttökur og að á áfangastað hafi
verið fagnaðarfundir.
Jófríður Leifsdóttir.
Hún Sigga frænka er dáin.
Þrátt fyrir erfiðan sjúkdóm, er
maður aldrei viðbúinn slíkum frétt-
um. Sérstaklega þar sem hún var í
skemmtiferð í útlöndum nokkrum
dögum áður.
Hún var glæsileg hún frænka mín,
með mikla útgeislun, það var svo
mikil birta yfir henni. Hún klæddi
sig fallega og það var alltaf svo fal-
legt í kring um hana. Hvar sem hún
bjó hafði hún einstakt lag á að fegra
umhverfi sitt, hún var líka einstök
handavinnukona. Mér fannst allt fal-
legt sem hún gerði.
Það er sterk minningin frá jólun-
um þegar ég var stelpa. Ég geymdi
alltaf jólagjöfina frá henni, Önnu
Maríu og Jóhannesi þar til síðast,
vissi að ég ætti von á einhverju mjög
fallegu. Ég man sérstaklega eftir
skrautlegum prjónahönskum, eitt-
hvað sem var alveg nýtt fyrir mig,
stelpuna úti á landi, enda fór ég með
þá eins og gull, þeir voru frá Siggu
frænku.
Það var stundum talað um að við
frænkurnar værum líkar í okkur og
ég er stolt af því. Við höfðum senni-
lega sömu sérviskurnar og ná-
kvæmnina í okkur, við skildum hvor
aðra að ég held.
Ég er þakklát fyrir þær stundir
sem við áttum saman, sérstaklega
núna síðustu árin. Samveran með
fjölskyldu hennar og vinum í afmæl-
inu hennar í fyrra og Jónsnesferðin
sem við fórum seinna um sumarið.
Hún Sigga naut sín einstaklega vel
þegar við afkomendur ömmu og afa
fórum í Jónsnes og að Saurum, það
verður gott að geta minnst hennar
þannig.
Það var svo gaman að fylgjast með
hvað hún átti góða daga með honum
Birni, í Afríku og hér heima, síðustu
árin. En jafnframt sárt að einmitt þá
veiktist hún, þegar framtíðin var svo
björt og hún geislaði af hamingju.
Hún Sigga bar höfuðið hátt þrátt
fyrir erfið veikindi, það var hennar
stíll.
Guð gefi Birni, Jóhannesi, Önnu
Maríu, Guðrúnu og fjölskyldum
þeirra styrk til að takast á við sorg-
ina.
Blessuð sé minning frænku minn-
ar.
Jóhanna Rún Leifsdóttir.
Það er óendanlega dýrmætt að
eignast vini. Sigríður Jóhannesdótt-
ir, vinkona mín, átti alveg fullt af
þeim. Hún var hluti af stórum
vinkvennahópi sem hafði haldið sam-
an frá því í barnaskóla, vinnufélag-
arnir úr bankanum voru allir vinir
hennar, hún átti í þessu sérstaka
sambandi við alla sem henni kynnt-
ust. Kannski vegna þess að hún
sýndi fólki áhuga, alúð og umfram
allt væntumþykju og lét öllum líða
vel í návist sinni. Okkar vinátta var
byggð á sérstökum grunni, við
kynntumst í gegnum samband henn-
ar við pabba minn og ég fann að ég
var ekki að missa neitt
heldur bara að græða, fallega,
skemmtilega og glæsilega vinkonu
sem gerði pabba minn hamingju-
saman.
Lengstan hluta þess tíma sem ég
þekkti Sigríði var hún veik en samt
hugsa ég einhvern veginn aldrei um
hana þannig. Hún var lífsglöð, góð,
kát, fyndin og stundum svolítið
þreytt. Hún lét aldrei neinn bilbug á
sér finna í veikindum sínum en var
samt heldur ekki að afneita því
hversu alvarleg þau væru. Hún
kenndi mér svo margt um það að
vera til í núinu og njóta þess og
stundirnar með henni eru allar
rammaðar inn á sérstakan stað á
minningaveggnum mínum.
Ég vildi að ég hefði fengið að
þekkja hana lengur. En tíminn er af-
stæður og ég fékk allavega að eign-
ast smáhluta í henni og gefa henni
hluta af mér.
Ég kveð Sigríði vinkonu mína með
miklum söknuði en líka þakklæti fyr-
ir að hafa fengið að þekkja hana.
Brynhildur Björnsdóttir.
Fleiri minningargreinar um Sig-
ríði Jóhannesdóttur bíða birtingar
og munu birtast í blaðinu næstu
daga. Höfundar eru: Erla og Þór-
ólfur, Saumaklúbburinn.
LEGSTEINAR
Steinsmiðjan MOSAIK
Hamarshöfða 4 • 110 Reykjavík
sími 587 1960 • www.mosaik.is
Elskuleg eiginkona, dóttir, móðir, tengdamóðir,
systir, mágkona, amma og langamma,
KRISTÍN HALLSDÓTTIR,
Kedjevägen 5,
Örebro,
Svíþjóð,
sem lést miðvikudaginn 14. september, verður
jarðsungin í Mäster Olofs kapell, Örebro, Svíþjóð,
föstudaginn 30. september.
Kjell Söderberg,
Guðný Ólafía Stefánsdóttir,
Hallur Viggósson, Linda Sigurðardóttir,
Kristrún Birna Viggósdóttir, Jón Rafn Einarsson,
Dagný Viggósdóttir, Óskar Rúnar Samúelsson,
Guðni þór Viggósson, Ylva Viggósson,
Vernharður Sveinn Vígsteinsson, Maria Jannesson,
Þórunn Kristín Vígsteinsdóttir, Martin Widö,
Björn Hallsson, Jarþrúður Rafnsdóttir,
Edda Hallsdóttir, Finnbogi Gústafsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför
móður okkar, tengdamóður og ömmu,
MARGRÉTAR EINARSDÓTTUR,
Urðarholti 3,
Mosfellsbæ.
Sérstakar þakkir til Heimahlynningar Krabbameinsfélagsins.
Börn, tengdabörn og barnabörn.
Bróðir okkar, mágur og frændi,
VIGFÚS SIGURÐSSON
frá Brúnum,
Hólavangi 3,
Hellu,
verður jarðsunginn frá Oddakirkju laugardaginn
1. október kl. 13.00.
Guðrún Sigurðardóttir, Hjalti Bjarnason,
Halldóra Sigmundsdóttir, Kristþór H. Breiðfjörð,
Siguður Sigmundsson, Elín Jónsdóttir,
Helga Helgadóttir
og fjölskyldur.
Konan mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR JÓHANNESDÓTTIR,
Suðurmýri 8,
Seltjarnarnesi,
andaðist á Landspítalanum sunnudaginn
18. september.
Útförin fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík í dag,
miðvikudaginn 28. september, kl. 11:00.
Jarðsett verður að Helgafelli í Helgafellssveit kl. 17:00 sama dag.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast
hennar, er bent á Landssamtökin Þroskahjálp.
Björn Dagbjartsson, Jóhannes Karlsson,
Anna María Karlsdóttir, Friðrik Þór Friðriksson,
Guðrún Bragadóttir, Sigurður Böðvarsson
og barnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og
amma,
VIGDÍS GUÐBRANDSDÓTTIR
frá Reyðará,
sem andaðist á hjúkrunarheimilinu á Höfn mið-
vikudaginn 21. september, verður jarðsungin frá
Hafnarkirkju laugardaginn 1. október kl. 14.00.
Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á hjúkr-
unarheimili Skjólgarðs.
Þorsteinn Geirsson,
Guðbrandur Jóhannsson,
Geir Þorsteinsson, Björk Pálsdóttir,
Gunnar Þorsteinsson
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
ÞORSTEINN HJARTARSON
vélstjóri,
Stekkjarholti 18,
Akranesi,
verður jarðsunginn frá Akraneskirkju föstudaginn
30. september kl. 14.00.
Sigfríður B. Geirdal,
Ragnheiður Hrönn Þorsteinsdóttir, Jónas Stefánsson,
Ásberg Þorsteinsson,
Fjölnir Þorsteinsson, Erla Ólafsdóttir,
Guðrún Agnes Þorsteinsdóttir, Magnús Ingvason,
Elfa Þorsteinsdóttir,
Arndís Þorsteinsdóttir, Guðmundur E. Ragnarsson
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
GUÐRÚN EINARSDÓTTIR
fyrrverandi kaupmaður,
Hofteigi 30,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju föstudaginn
30. september kl. 15.00.
Elísabet Erlingsdóttir, Atli Ásbergsson,
Hörður Erlingsson, Erna J. Sigmundsdóttir,
Oddi Erlingsson, Sigurborg E. Billich,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma,
SIGURBJÖRG GUÐLEIF GUÐJÓNSDÓTTIR
(Leifa),
Hrafnistu,
Reykjavík,
lést mánudaginn 26. september.
Útförin fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn
30. september kl. 15.00.
Blóm vinsamlega afþökkuð, en þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á
Félag krabbameinssjúkra barna.
Ingibjörg S. Finnbogadóttir, Ingólfur Kristjánsson,
Guðjón H. Finnbogason, Jóhanna J. Hafsteinsdóttir,
Finnbogi R. Gunnarsson, Halla H. Stefánsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
SIGRÍÐUR RAKEL ÞÓRARINSDÓTTIR
frá Þernuvík,
áður búsett
í Akurgerði 34,
lést á heimili sínu, Norðurbrún 1, sunnudaginn
25. september.
Hún verður jarðsungin frá Bústaðakirkju þriðjudaginn 4. október kl. 13.00.
Þórhallur Jónasson, Sigríður Fanný Másdóttir,
Gunnar Jónasson, Inga D. Karlsdóttir,
Bergþór Jónasson, Sigurbjörg H. Bjarnadóttir,
Kristján Jónasson,
Guðlaug Dröfn, Lárus Freyr, Jónas Þór,
Sesselja Dagbjört, Eva Ösp, Tinna Sif
og barnabarnabörn.