Morgunblaðið - 28.09.2005, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 28.09.2005, Qupperneq 39
mánudaga í vetur. Hljóðleiðsögn um húsið, margmiðlunarsýning og gönguleiðir. Nánar á www.gljufrasteinn.is. Þjóðmenningarhúsið | Handritin – saga handrita og hlutverk um aldir, Þjóðminja- safnið – svona var það, Fyrirheitna landið – fyrstu Vestur-Íslendingarnir, Bókminjasafn. Auk þess veitingastofa með hádegis- og kaffimatseðli og safnbúð. Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Eldur í Kaupinhafn – 300 ára minning Jóns Ólafs- sonar úr Grunnavík er samvinnuverkefni Þjóðminjasafnsins og Góðvina Grunnavíkur- Jóns og fjallar um fræðimanninn Jón Ólafs- son (1705–1779), ævi hans og störf. Sýn- ingin stendur til 1. desember og er opin á opnunartíma. Í Þjóðminjasafni Íslands er boðið upp á fjölbreytta fræðslu og þjónustu fyrir safngesti. Þar eru nýstárlegar og vand- aðar sýningar auk safnbúðar og kaffihúss. Hlutverk safnsins er að auka og miðla þekk- ingu á menningararfi Íslendinga frá land- námi til nútíma. Opið alla daga nema mánu- daga kl. 11–17. Fréttir Blóðbankinn | Vegna veðurs fellur niður blóðsöfnun í Grundarfirði og Ólafsvík í dag. Blóðbankinn. Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur | Matar- og fataúthlutun kl. 14–17. Sími 5514349, netfang maedur@simnet.is. Tungumálamiðstöð HÍ | Alþjóðlega þýsku- prófið TestDaF verður haldið í Tungumála- miðstöð H.Í. 15. nóvember. Skráning fer fram í Tungumálamiðstöð, Nýja Garði. Prófgjaldið er 10.000 kr. Skráningarfrestur er til 13. október. Nánari upplýsingar veitir Eyjólfur Már Sigurðsson: ems@hi.is,. Fundir ADHD samtökin | Stuðningshópur fullorð- inna með athyglisbrest með eða án ofvirkni (adhd) heldur fund kl. 20–21, á Háaleit- isbraut 13, 4. hæð. Spjall eftir fund. Geðhjálp | Félagsfælnihópur Geðhjálpar heldur fund kl. 20–22 og eru allir sem orðnir eru 16 ára og eldri og eiga við félagsfælni að stríða velkomnir á fundi. Krabbameinsfélagið | Stuðningshópur kvenna sem fengið hafa krabbamein í eggja- stokka halda rabbfund í húsi Krabbameins- félagsins að Skógarhlíð 8 í dag, kl. 17. Gestur fundarins er Jórunn Erla Eyfjörð erfðafræð- ingur og forstöðumaður sameinda- fræðideildar rannsóknastofu Krabbameins- félagsins. Vídalínskirkja Garðasókn | Félagsfundur Samfylkingarinnar í Garðabæ verður hald- inn í kvöld kl. 20, í safnaðarheimili Vídal- ínskirkju. Gestir fundarins verða þau Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, formaður og Ágúst Ólafur Ágústsson, varaformaður. Fyrirlestrar Kennaraháskóli Íslands | Amalía Björns- dóttir dósent heldur fyrirlestur í salnum Bratta í Kennaraháskóla Íslands kl. 16.15– 17.15. Kynntar verða niðurstöður úr spurn- ingalista sem lagður var fyrir alla nemendur í grunndeild KHÍ nema nýnema og nem- endur á kennsluréttindabraut. Könnuð voru viðhorf þeirra til námsins og félagsleg staða. Stígamót | Þorbjörg Gunnlaugsdóttir heldur ör-fyrirlestur um nauðgun frá sjónarhorni kvenréttar, 29. sept. kl. 12–13. Eftir fyrirlest- urinn verða opnar umræður og boðið verður upp á hádegisverð á kostnaðarverði. Allir velkomnir. Sögufélag | Kristján Jóhann Jónsson heldur fyrirlestur hjá Félagi íslenskra fræða kl. 20, um Grím Thomsen. Hann mun fjalla um bók sína Kall tímans og kynna viðhorf Gríms til H. C. Andersen. Verkfræðideild HÍ | Yayoi Shimomura held- ur fyrirlestur um verkefni sitt til meist- araprófs í tölvunarfræði. Verkefnið ber heit- ið: Hönnun marghátta notendaviðmóta – Aukið aðgengi blindra nemenda að stærð- fræðiefni. Fyrirlesturinn verður 29. sept. kl. 17–18, í stofu 157 í VR II við Hjarðarhaga og fer fram á ensku. Verkfræðideild HÍ | Agnar Guðmundsson heldur fyrirlestur um verkefni sitt til meist- araprófs í tölvunarfræði. Verkefnið ber heit- ið: Beiting formlegrar aðferðar (ATAM) við mat á gæði hugbúnaðar. Verkefnið fjallar um beitingu formlegrar matsaðferðar. Fyrirlest- urinn fer fram 30. sept. kl. 16, í stofu 157 í VR II við Hjarðarhaga. Málstofur Viðskipta- og hagfræðideild HÍ | Örn Daníel Jónsson, prófessor í viðskipta- og hag- fræðideild, heldur fyrirlestur kl. 12.15–13. Í erindi sínu fjallar hann um aukið vægi smá- sölukeðjanna í viðskiptalífinu og hvernig áherslubreytingar á milli atvinnugreina hafa áhrif á daglegt líf og alþjóðlega verkaskipt- ingu í framleiðslu og neyslu. Námskeið Blues.is | Halldór Bragason leiðbeinir á gít- arnámskeiðum. Upplýsingar í síma 6975410. MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 28. SEPTEMBER 2005 39 DAGBÓK Staðurogstund http://www.mbl.is/sos Félagsstarf Aflagrandi 40 | Postulínsmálning kl. 9 og 13. Leikfimi kl. 9, sögustund kl. 13. Ath. farið í Hagkaup, Skeifunni, 1. mið- vikudag í mánuði. Bókaormar, leshóp- urinn kemur saman alla miðvikudaga í vetur. Allir velkomnir. Árskógar 4 | Bað kl. 8–14. Handavinna kl. 9–16.30. Heilsugæsla kl. 10–11.30. Smíði/útskurður kl. 9–16.30. Spil kl. 13.30. Keila kl. 13.30. Bólstaðarhlíð 43 | Almenn handa- vinna, hárgreiðsla, böðun, glerlist, spiladagur, fótaaðgerð. Dalbraut 18–20 | Félagsstarfið er op- ið kl. 9–16. Fastir liðir eins og venju- lega. Aðstaða til frjálsrar hópamynd- unar. Postulínsnámskeið hefst 7. okt. kl. 9. Framsögn mánudaga kl. 13.30. Skráning í Biblíuhóp stendur yfir. FEBÁ, Álftanesi | Haukshús, kl. 13–16. Grétudagur. Postulínsmálun I. Spilað, teflt, spjallað. Gróukaffi. FEBÁ– stafgangan. Gengið frá íþróttahúsinu mánudaga, miðvikudaga og föstu- daga, mæting kl. 10 f.h. Athugið breyttan tíma. Guðrún, sími 565 1831. Haukshús kl. 13–16. Grétudagur. Postu- línsmálun I. Spilað, teflt, spjallað. Gróukaffi. Auður og Lindi annast akst- ur, sími 565 0952. Félag eldri borgara í Kópavogi | Skrif- stofan er opin í dag kl. 10 til 11.30 og viðtalstími í Gjábakka kl. 15 til 16. fé- lagsvist er spiluð í Gjábakka kl. 13. Félag eldri borgara, Reykjavík | Söngvaka kl. 14.30, undirleik annast Sigurður Jónsson. Söngfélag FEB, kóræfing kl. 17. Fyrirhugað er nám- skeið í stafgöngu, leiðbeinandi er Hall- dór Hreinsson, uppl. í síma 588 2111. Skemmtikvöld verður föst. 30. sept. kl. 20, söngur, gamanmál, getraun, dans o.fl. Skráning í síma 588 2111. Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvennaleikfimi kl. 9.15, 10.05 og 11. Bútasaumshópur í Kirkjuhvoli kl. 13. Spilað brids í Garðabergi kl. 13. Opið hús í Holtsbúð kl. 13. FEBG selur miða í ferðina á morgun kl. 12.30–14.30 í Garðabergi. Félagsstarf Gerðubergs | Kl. 9–16 vinnustofur opnar. Kl. 10.30 gamlir leikir og dansar, umsjón Helga Þór- arinsdóttir. Frá hádegi spilasalur op- inn. Kl. 14.30 kóræfing. Veitingar í há- degi og kaffitíma í Kaffi Bergi. Hraunbær 105 | Kl. 9 útskurður, postulínsmálun, kaffi, spjall, dagblöðin, fótaaðgerð og hárgreiðsla. Kl. 11 banki. Kl. 12 hádegismatur. Kl. 13 brids. Kl. 15 kaffi. Hraunsel | Moggi, rabb og kaffi kl. 9. Línudans kl. 11. Saumar kl. 13. Gler- skurður kl. 13. Pílukast kl. 13.30. Gafl- arakórinn kl. 16.30. Hvassaleiti 56–58 | Opin vinnustofa kl. 9–16 hjá Sigrúnu, mósaik, ullarþæf- ing og íkonagerð. Jóga kl. 9–12. Sam- verustund kl. 10.30 hjá Helgu. Böðun virka daga fyrir hádegi. Hádeg- isverður. Fótaaðgerðir 588 2320. Hársnyrting 517 3005. Hæðargarður 31 | Félagsstarfið er op- ið öllum. Betri stofa og Listasmiðja kl. 9–16. Fastir liðir eins og venjulega. Tölvunámskeið hefst 22. okt. Skráning stendur yfir á framsagnarnámskeið. Gönguferð „Út í bláinn“ alla laug- ardaga kl. 10. Korpúlfar, Grafarvogi | Keila í Mjódd á morgun kl. 10. Langahlíð 3, félagsmiðstöð | Hjúkr- unarfræðingur frá heilsugæslunni kl. 9.30. Leikfimi kl. 11. Postulínsmálun og almenn handmennt kl. 13. Söng- og harmonikkustund í borðsal kl. 15. Norðurbrún 1, | Kl. 9–16.30 opin vinnustofa, kl. 14 félagsvist, kaffi, verð- laun, kl. 9 opin fótaaðgerðastofa. Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og fótaaðgerðir. Kl. 9.15–16 myndmennt. Kl. 10–12 sund (Hrafnistulaug). Kl. 11.45–12.45 hádegisverður. Kl. 12.15–14 verslunarferð í Bónus, Holtagörðum. Kl. 13–14 Spurt og spjallað. Kl. 13–16 tréskurður. Kl. 14.30–15.45 kaffiveit- ingar. Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl. 9–12.30, handmennt alm. kl. 9.30– 16.30, morgunstund kl. 10–11, bókband kl. 10–13, verslunarferð kl. 12.30. Hár- greiðslu- og fótaaðgerðastofa opnar. Kirkjustarf Akureyrarkirkja | Mömmumorgunn kl. 10–12. Allir foreldrar velkomnir með börn sín. Kirkjuprakkarar (1.–4. bekkur) kl. 15.30. TTT-starf (5.–7. bekkur) kl. 17. Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Súpa og brauð gegn vægu gjaldi. Opið hús frá 13–16. Föndur, spjall og fræðsla. TTT – 10–12 ára starf. Hittumst í Sel- ásskóla kl. 16. Söngur, sögur, leikir og ferðalög fyrir hressa krakka. STN – 7–9 ára starf. Hittumst í Selásskóla kl. 15. Söngur, sögur, leikir og ferðalög fyrir hressa krakka. Áskirkja | Hreyfing og bæn í safn- aðarheimili II milli 11–12. Foreldrum er boðið til samveru með börn sín í safn- aðarheimili kirkjunnar alla fimmtu- dagsmorgna milli kl. 10–12. Anna Krist- ín Guðmundsdóttir og Jóhanna Ósk Valsdóttir sjá um stundina. Bókakynn- ing frá Sólheimasafni. Samverustund í safnaðarheimili II milli kl. 11 og 12 í dag. Hreyfing og bæn. Allir velkomnir. Bessastaðasókn | Dagur kirkjunnar í Haukshúsum. Foreldramorgnar eru frá kl. 10–12. Opið hús eldri borgara er frá kl. 13–16. Bústaðakirkja | Starf aldraðra. Sam- verur á miðvikudögum frá kl. 13. Við spilum, föndrum og erum með handa- vinnu. Kl. 15 er kaffi og þá kemur alltaf einhver gestur með fróðleik eða skemmtiefni. Öllum er velkomið að taka þátt í þessu starfi. Nánari uppl. á www.kirkja.is. Dómkirkjan | Bænastund alla mið- vikudaga kl. 12.10–12.30. Léttur hádeg- isverður á kirkjuloftinu á eftir. Bæn- arefnum veitt móttaka í síma 520 9709. Allir velkomnir. Fella- og Hólakirkja | Opið hús fyrir fullorðna alla þriðjudaga kl. 13–16. Garðasókn | Foreldramorgnar hvern miðvikudag kl. 10 til 12.30. Fyrirlestur mánaðarlega. Gott tækifæri fyrir mömmur og börn að hittast og kynn- ast. Allir velkomnir. Alltaf heitt á könn- unni. Grafarvogskirkja | Kyrrðarstund í há- degi kl. 12. Altarisganga og fyrirbænir. Boðið er upp á léttan hádegisverð á vægu verði að lokinni stundinni. Prest- ar safnaðarins þjóna fyrir altari, org- elleikari Hörður Bragason. Allir vel- komnir. TTT fyrir börn 10–12 ára á miðvikudögum í Rima- og Hamraskóla kl. 17.30–18.30. Grensáskirkja | Samverur eldri borg- ara eru á miðvikudögum kl. 14. Boðið er upp á Biblíulestur og léttar veit- ingar. Það er kvenfélagið í kirkjunni sem heldur utan um samverurnar og þangað eru allir velkomnir. Hallgrímskirkja | Morgunmessa kl. 8 árdegis alla miðvikudagsmorgna. Íhugun, altarisganga. Einfaldur morg- unverður í safnaðarsal eftir messuna. Hjallakirkja | Fjölskyldumorgnar kl. 10–12. 10–12 ára krakkar hittast í Hjallakirkju kl. 16.30–17.30. Tólf-spora námskeið eru í Hjallakirkju á mið- vikudögum kl. 20–22. Kynning- arfundur í kvöld kl. 20. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn á Akureyri | Bæn kl. 12. Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Fjöl- skyldusamvera „súpa og brauð“ kl. 18–20. Kl. 19 er biblíulestur með Jóni Þór Eyjólfssyni. Skátastarf Royal Rangers fyrir 5–17 ára. Allir eru hjart- anlega velkomnir. Kristniboðssalurinn | Samkoma í kl. 20. „Hver er kostnaðurinn?“ Ræðu- maður er Friðrik Zimsen Hilmarsson. Í lok samkomunnar verða umræður um miðvikudagssamkomurnar. Kaffi. Allir eru velkomnir. Langholtskirkja | Hádegisbænagjörð með orgelleik og sálmasöng kl. 12.10. Súpa og brauð kl. 12.30 (300 kr.). Starf eldri borgara kl. 13–16. Söngur, tekið í spil, föndur, spjall, kaffisopi. Allir vel- komnir. Laugarneskirkja | Kl. 10 Mömmu- morgunn. Gönguhópurinn Sólarmegin leggur af stað frá kirkjudyrum kl. 10.30. Kl. 14.10–15.30 Kirkjuprakkarar. (1.–4. bekkur). Kl. 16.15 TTT (5.–7. bekkur). Kl. 17 Adrenalín gegn ras- isma. Laugalækjarskóla. (Miðborg- arstarf KFUM&K o.fl.) Kl. 19.30 Ferm- ingartími. Kl. 20.30 Unglingakvöld. Neskirkja | Foreldramorgnar kl. 10. Kaffi og spjall. Umsjón Elínborg Lár- usdóttir. Fyrirbænamessa kl. 12.15. Prestur sr. Örn Bárður Jónsson. Opið hús kl. 15. Hvernig verða vextir til? Jón Sigurðsson, seðlabankastjóri, veitir innsýn í starf bankans, hlutverk og vinnu. Kaffi á Kaffitorginu. Allir vel- komnir. Seltjarnarneskirkja | Kyrrðarstund kl. 12. Ritningarlestur, bæn og alt- arisganga. Léttur hádegisverður i safnaðarheimili á eftir. Allir velkomnir. Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is Meira á mbl.is UNG söngkona, Kristín Þuríður Halliday, sem er íslensk í móðurætt og er búsett í Bandaríkjunum, kvaddi sér hljóðs á tónleikum í Hafnarborg á sunnudagskvöldið. Efnisskráin var nokkuð fjölbreytt; Kristín söng allt frá barokktónlist yfir í lög eftir Cole Porter og dagskráin var auk þess krydduð með klarinettu- og óbóleik þeirra Einars Jóhannessonar og Pet- ers Tompkins. Þrátt fyrir fjölbreytni í verkefna- vali var túlkun Kristínar þó fremur einsleit. Vissulega er rödd hennar ágætlega skóluð, en hún er eilítið sár og ekki mjög kröftug og því voru há- punktarnir í túlkuninni aldrei sérlega áhrifamiklir. Söngkonan virtist vera fremur meðvituð um sjálfa sig, a.m.k. var eins og henni tækist ekki að gefa sig tónlistinni fyllilega á vald. Túlk- unina skorti dýpt, hún var nem- endaleg; Kristín á greinilega enn eftir að ná fullum þroska sem listamaður. Samt sem áður var margt á tón- leikunum prýðilega gert og þó Krist- ín hafi ekki náð að hrífa mig var auð- heyrt að hún kann til verka. Fyrsta lagið var að vísu ekki alveg hreint en Kristín náði fljótt valdi á tóninum og aríurnar Je veux vivre eftir Gounod og Senza mamma eftir Puccini voru nákvæmar og fluttar af greinilegri til- finningu. Hefðu þær örugglega getað verið magnaðar ef raddstyrkur söng- konunnar hefði boðið upp á það. Der hirt auf dem felsen eftir Schu- bert þar sem Einar Jóhannesson spil- aði með á klarinettu kom vel út; leik- ur hans var tilfinningaþrunginn og söngurinn var líflegur. Hástemmdur óbóleikur Peters Tompkins var líka áheyrilegur í Domine Deus eft- ir Vivaldi en bar- okktúlkun Krist- ínar var ósannfærandi, ví- bratóið var of mikið og var út- koman í væmnara lagi. Tvö lög eftir Obradors, La mi sola og Del cabello mas sutil, hefðu hinsvegar mátt vera tilfinningaþrungnari; þau voru svo sviplaus að þau voru í raun búin áður en þau byrjuðu. Svipaða sögu er að segja um So In Love eftir Porter, A Nightingale Sang in Berkeley Square eftir Sherwin og Somewhere Over the Rainbow; þrátt fyrir vandaðan söng urðu lögin aldrei eins skemmti- leg og þau hefðu getað orðið. Antónía Hevesi spilaði með á pí- anóið og gerði það með ágætum; leik- ur hennar var agaður og þægilega mjúkur, en samt gæddur nauðsyn- legum tærleika. Verst að vandaður píanóleikurinn dugði ekki til að gera tónleikana áhugaverða. Túlkunina skorti dýpt TÓNLIST Hafnarborg Kristín Þuríður Halliday (sópran) og Ant- ónía Hevesi (píanó) fluttu tónlist eftir Handel, Vivaldi, Puccini, Schubert, Goun- od, Obradors, Porter, Sherwin og Arlen. Fram komu Einar Jóhannesson (klarin- ett) og Peter Tompkins (óbó). Sunnudag- ur 25. september. Söngtónleikar Kristín Þuríður Halliday Jónas Sen MENNING BÓKASTEFNAN í Gautaborg hefst á morgun og stendur til sunnudags. Að venju stendur Anna Einarsdóttir vaktina í básnum þar sem íslenskar bókmenntir eru kynntar og náði Morgunblaðið sam- tali við hana þar ytra, þar sem hún var önnum kafin við að taka uppúr bókakössum. „Að þessu sinni verða þrjár mál- stofur tileinkaðar Íslandi,“ segir hún, en alls verða 466 málstofur á Bókastefnunni að þessu sinni. Sjón, sem hlaut Bókmenntaverð- laun Norðurlandaráðs fyrr á þessu ári, mun ræða ritstörf sín við menn- ingarritstjórann og þýðandann John Swedenmark. Þá munu Halldór Guðmundsson og Auður Jónsdóttir, sem nýlega skrifaði ævisögu Hall- dórs Laxness fyrir börn, taka þátt í málstofu undir stjórn Heimis Páls- sonar. Halldór og Auður hlutu bæði Íslensku bókmenntaverðlaunin árið 2004, Halldór fyrir ævisögu sína um Halldór Laxness en Auður fyrir skáldsöguna Fólkið í kjallaranum. Dario Fo meðal gesta Auk þessa verður fjallað um Ís- lendingasögur fyrir börn og ung- linga í málstofu og eru þátttak- endur Brynhildur Þórarinsdóttir, Heimir Pálsson og Lars Lönnroth. Þau fjalla um hvernig best sé að kynna börnum Íslendingasögurnar í máli og myndum. Anna telur að þær umræður geti orðið athygl- isverðar. „Lars Lönnroth er pró- fessor og að mörgu leyti gamaldags – vill helst hafa Íslendingasögurnar bara á skinnhandritum. Brynhildur hefur hins vegar séð um nýjar út- gáfur á Njálssögu og Egilssögu fyr- ir börn og unglinga. Þetta geta því orðið ansi líflegar umræður,“ segir hún. Ýmsir gestir sækja Bókastefnuna í Gautaborg heim og í ár er einn þeirra leikritaskáldið Dario Fo. Kynntar verða bókmenntir frá 25 löndum og sérstök áhersla lögð á bókmenntir frá Litháen að þessu sinni, undir yfirskriftinni Lítið land með mikinn metnað. „Mér hefur verið sagt, að hingað til hafi þrettán bækur litháskra höfunda verið þýddar yfir á sænsku, en í aðdrag- anda kynningar Litháens á stefn- unni hérna hafi sjö til viðbótar verið þýddar, allar á þessu ári. Sænskir útgefendur hafa greinilega heldur betur tekið við sér,“ segir Anna. Hún segir stöðuna að mörgu leyti sambærilega við Ísland, sem var í sviðsljósinu á bókastefnunni í Gautaborg árið 1990. „Þá höfðu auðvitað margar íslenskar bækur verið þýddar á sænsku, en eftir sýn- inguna hafa margfalt fleiri bækur eftir íslenska höfunda komið út hér. Þannig að þetta hefur haft ýmis áhrif,“ segir hún og segir það jafn- framt meginmarkmið með hátíðinni að kynna forleggjurum bækur ým- issa landa, þar á meðal Íslands. „Og lesendum, ekki síður,“ bætir hún við að síðustu. Bækur | Bókastefnan í Gautaborg Getur hvatt til þýðinga Morgunblaðið/Þorkell Anna Einarsdóttir sér um íslenska básinn á Bókastefnunni í Gauta- borg, sem hefst á morgun. Eftir Ingu Maríu Leifsdóttur ingamaria@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.