Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 4

Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 4
4 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Heimsferðir bjóða frábært tilboð á síðustu sætunum til Búdapest þann 17. eða 24. október. Þú bókar 2 flugsæti en greiðir aðeins fyrir eitt og kynnist þessari glæsilegu borg á einstökum kjörum. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is 2 fyrir 1 til Búdapest 17. eða 24. okt. frá kr. 19.990 Síðustu sætin Verð kr. 19.990 Flugsæti með sköttum. 2 fyrir 1 tilboð. Út 17. eða 24. okt. og heim 20. eða 27. okt. Netverð á mann. Gisting frá kr. 2.800 Gisting pr. nótt á mann í tvíbýli á Hotel Tulip Inn með morgunverði. Netverð. Munið Mastercard ferðaávísunina STJÓRN Stéttarfélags íslenskra fé- lagsráðgjafa sendi borgarstjóranum í Reykjavík erindi í lok júní og var sent svar í fyrradag eftir að hafa ítrekað erindið í liðinni viku. Guðrún Ebba Ólafsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæð- isflokks, vakti athygli á þessum vinnubrögðum á síðasta fundi borg- arstjórnar. Tildrög málsins eru þau að 29. júní sl. sendi stjórn Stéttarfélags ís- lenskra félagsráðgjafa borgarstjóra bréf þar sem lýst var yfir áhyggjum vegna ráðningar í stjórnunarstöður og tilfærslur á félagsráðgjöfum á milli þjónustumiðstöðva í hverfum borgar- innar. Sviðsstjóri þjónustu- og rekstrar- sviðs borgarinnar sendi borgarstjóra umsögn vegna erindisins 12. júlí og þar við sat. Stjórn SÍF ítrekaði erind- ið með bréfi 29. september, óskaði eft- ir svari sem allra fyrst og vísaði til ákvæða stjórnsýslulaga um máls- hraða. Í bréfi borgarstjóra til SÍF dag- settu 3. október er beðist velvirðingar á síðbúnu svari, „en svo virðist vera sem erindið hafi ekki skilað sér í rétt- ar hendur sökum sumarleyfa á skrif- stofu borgarstjóra.“ Augljós mistök Helga Jónsdóttir, staðgengill borg- arstjóra á borgarstjórnarfundinum, sagði að augljóslega hefðu verið gerð mistök með því að senda ekki svar um leið og umsögn barst í júlí og ekki væri annað hægt að gera en að biðjast velvirðingar á mistökunum. Hins veg- ar væri erindinu vel svarað í hjálögðu minnisblaði sviðsstjóra þjónustu- og rekstrarsviðs. Guðrún Ebba Ólafsdóttir sagði að í erindinu kæmu fram alvarlegar ásak- anir og helstu gagnrýninni væri ekki svarað. Því væri eðlilegt að boðað yrði til fundar um málið með stjórn SÍF. Erindi svarað eftir þrjá mánuði Eftir Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Í TILEFNI af opnun nýrrar þjón- ustumiðstöðvar í Reykjavík, fyrir Laugardal og Háaleiti, var boðið til haustfagnaðar í Grasagarðinum í Laugardal um helgina. Þar fór fram fjölbreytt dagskrá fyrir alla fjölskylduna en á meðan þeirra sem komu fram voru Felix Bergsson og Engilráð andarungi sem brugðu á leik með börnunum. Þá söng kór leikskólabarna úr hverfinu nokkur lög ásamt Graduale kór Langholts- kirkju. Þjónustumiðstöð Laugar- dals og Háaleitis er ein af sex þjón- ustumiðstöðum í Reykjavík sem opnaðar verða formlega í tengslum við endurskipulagningu á þjónustu við borgarbúa. Ný þjónustumiðstöð opnuð í Reykjavík Morgunblaðið/Sverrir eftir nokkurt hlé á morgun, þriðju- dag, með stuðningshópsvinnu með ráðgjafa fyrir aðstandendur spila- fíkla og á fimmtudögum fyrir spila- fíkla, kl. 18 báða dagana. Fer ekki í manngreinarálit Haldið er úti vefsíðunni spila- vandi.is og lítur endurbættur vefur dagsins ljós innan þriggja vikna. Þar verða sett inn sjálfspróf þar sem fólk getur fengið vanda sinn og sinna metinn. „Spilafíknin fer ekki í mann- greinarálit og nú er svo komið að fólk úr öllum stigum þjóðfélagsins hefur þennan vanda. Það væri því mikil einföldun að halda því fram að vandinn sé einvörðungu bund- inn við öryrkja og láglaunafólk eins og gjarnan hefur verið talið.“ Á heimasíðunni verða sett inn ýmis stöðluð próf sem eiga að m.a. að leiða í ljós hvort viðkomandi sé spilafíkill eða aðstandandi spilafík- ils. Og vandinn er ekki mjög sýni- legur og getur vakið grunsemdir um eitthvað allt annað að sögn Júl- íusar. „Það er t.d. fullt af fólki sem átt- ar sig ekki því hvað veldur því að börn þess læðast að heiman á óvenjulegum tímum sólarhringsins og heldur jafnvel að fíkniefni séu ástæðan, þegar vandinn liggur í spilafíkn eftir allt saman.“ Júlíus hefur hugmyndir um að koma upp göngudeild fyrir spila- fíkla á gömlu Miðbæjarlög- reglustöðinni sem myndi að auki hýsa allan rekstur samtakanna, námskeiðahald og fleira. „Við myndum vilja fá húsnæðið leigt á viðráðanlegum kjörum fyrir sam- tökin. Ég hef gert ráðherrunum grein fyrir því að við eigum enga peninga til að greiða venjulega húsaleigu en hins vegar förum við ekki fram á að fá neitt gefins held- ur.“ Samtökin hafa unnið að forvarn- arverkefni handa grunnskólanem- um og er sérstakur DVD-fræðslu- diskur með forvarnarefni fyrir 8.–10. bekk að verða tilbúinn. „Við ætlum að dreifa diskinum til 14 þúsund foreldra og forráða- manna grunnskólabarna á öllu landinu og væntum þess að um- ræðan um vandann muni opnast enn frekar í kjölfarið. Mest er um vert að hafa umræðuna opna og vinna gegn fordómunum,“ segir Júlíus Þór. Júlíus. „Fólk er að tapa aleigunni sinni á yfir- gengilegum hraða, ekki bara í spilakössum, heldur í vaxandi mæli heima hjá sér á netinu þar sem það getur notað kredit- kortin til að spila með. Þetta er fólk sem haldið er spilafíkn á háu stigi en hefur verið fælt frá spilakössunum af ótta við að vera stimplað sem fíklar. Þessi kortamisnotkun á netinu er hins vegar mun geigvænlegri en spila- kassafíknin þar sem fjárhæðirnar sem hægt er að leggja undir eru mun hærri,“ segir hann. Spilavandinn að aukast Núverandi húsnæði samtakanna er í Dugguvogi og þar er starfsem- in aðþrengd þar sem vandinn hefur verið að aukast á undanförnum misserum. „Bara á þessu ári hafa 10–12% fleiri spilafíklar haft sam- band við okkur en gerðu á síðasta ári,“ bendir Júlíus á. Starfsemi samtakanna hefst á ný ÞAÐ yrði algjör bylting fyrir starf- semi Samtaka áhugafólks um spilafíkn að komast inn í húsnæði þar sem miðbæjarstöð lögregl- unnar í Reykjavík var áður til húsa við Tryggvagötu. Júlíus Þór Júlíusson, formaður samtakanna, hefur sóst eftir því að fá inni í húsinu og ræddi í síðustu viku við Björn Bjarnason dóms- málaráðherra og Árna Mathiesen fjármálaráðherra um málið. Segir hann þá hafa tekið vel í hugmyndir sínar. „Að vera miðsvæðis í borginni með starfsemina myndi gera okkur sýnilegri en áður, enda er mjög mikilvægt að umræðan um þennan vanda komist upp á yfirborðið svo hægt sé að vinna í því að eyða for- dómum í garð spilafíkla,“ segir Samtök áhugafólks um spilafíkn óska eftir gömlu miðbæjarstöð lögreglunnar Sífellt fleiri einstaklingar leita aðstoðar við spilafíkn sinni Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson orsi@mbl.is Júlíus Þór Júlíusson SÆNSKA ferðaskrifstofan Apollo mun hefja leiguflug milli Reykjavíkur og Kanaríeyja frá og með janúar á næsta ári, samkvæmt frétt á sænska vefn- um Flygtorget. Í fréttinni, þar sem ákvörðun Apollo er lýst sem innrás á ís- lenska flugmarkaðinn, er ákvörðun stofunnar sögð eins konar svar við auknum umsvif- um íslenskra flugfélaga, og flugfélaga í íslenskri eigu, á Norðurlöndum, og eru Sterling og Iceland Express nefnd þar á nafn. Í fréttinni er Apollo einnig sagt stefna á að hefja flug frá Reykjavík til þriggja áfanga- staða við Miðjarðarhafið þegar nær dregur sumri. Sænsk ferðaskrif- stofa sækir til Íslands KANNA á hvort hagkvæmt gæti verið að sameina rekstur Tækni- þjónustunnar á Keflavíkurflugvelli, sem er eitt dótturfyrirtækja Flug- leiðasamsteypunnar og rekur við- haldsstöðina á Keflavíkurflugvelli, og Icelandair sem er annað fyr- irtæki innan FL Group. Frá þessu er greint í nýjasta tölublaði Frétta- bréfs Félags íslenskra atvinnuflug- manna. Jón Karl Ólafsson, forstjóri Ice- landair, tjáði Morgunblaðinu að Jens Bjarnasyni, sem nýlega tók við stöðu forstöðumanns Tækni- þjónustunnar, hefði verið falið að kanna með samstarfsmönnum sín- um kosti hugsanlegrar sameining- ar. Jón Karl segir að rekstur Tækniþjónustunnar á Keflavíkur- flugvelli tengist rekstri Icelandair mjög náið og þarna væri leitað leiða til að minnka flækjustigið í stjórnun fyrirtækjanna eins og hann orðaði það, einfalda stjórn- kerfið og ná meiri hagkvæmni í rekstri þeirra. Nefndi hann sem dæmi að í dag væri einn tækni- stjóri hjá Icelandair og annar hjá Tækniþjónustunni. Sameining við áramót Lagði Jón Karl áherslu á að hér væri aðeins um könnun að ræða og ekki vitað á þessari stundu hvort af sameiningu yrði. Hann taldi unnt að ná niðurstöðu um málið á næstu vikum og miða sameininguna við áramót ef sú yrði niðurstaðan. Kanna samein- ingu Tækni- þjónustunnar og Icelandair JÓN Kristjánsson heilbrigðisráð- herra hefur skipað nefnd til að fjalla um nýtingu stofnfrumna til rannsókna og lækninga og semja frumvarp til laga um stofnfrumu- rannsóknir. Í tilkynningu frá heilbrigðis- ráðuneytinu kemur m.a. fram að stofnfrumurannsóknir hafi hafist fyrst á níunda áratugnum. Tölu- verður árangur hafi náðst nú þeg- ar og vonir séu bundnar við að stofnfrumur geti orðið til þess að lækna ýmsa illvíga sjúkdóma. Stofnfrumurannsóknir vekji hins vegar margvíslegar siðfræðilegar spurningar, einkum þegar notast er við fósturvísa til rannsóknanna, og hafi umræður um þau efni verið ofarlega á baugi meðal margra þjóða á liðnum árum. Hér á landi séu slíkar rannsóknir ekki heim- ilar samkvæmt lögum, nema þær séu liður í glasafrjóvgunarmeðferð eða greiningu arfgengra sjúkdóma í fósturvísunum sjálfum. Að öðru leyti sé ekki fjallað um stofn- frumurannsóknir í íslenskum lög- um. Formaður nefndar um nýtingu stofnfrumna til rannsókna og lækninga er Sveinn Magnússon, skrifstofustjóri í heilbrigðisráðu- neytinu. Nefndinni er ætlað að ljúka störfum í lok mars 2006. Nefnd um stofnfrumu- rannsóknir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.