Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 6

Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 6
6 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR EFTIRFARANDI yfirlýsing hefur borist Morgunblaðinu frá stjórn Geðlæknafélags Ís- lands, í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdeg- inum í dag, 10. október: „Geðsjúkdómar eru eitt stærsta heilbrigð- isvandamál samtímans. Um 450 milljónir manna þjást af geðsjúkdómum í heiminum í dag samkvæmt upplýsingum frá Alþjóðaheil- brigðisstofnuninni (WHO). Í löndum Efna- hagsbandalags Evrópu er áætlaður kostnaður vegna geðsjúkdóma um 3–4% af heildarlands- framleiðslu. En þó að þessir sjúkdómar séu næstum 20% af heildarsjúkdómsbyrði sam- félagsins, fara að meðaltali aðeins um 5,8% af fjármagni til heilbrigðismála til geðheilbrigð- ismála. Geðsjúkdómar snerta ekki eingöngu ein- staklinginn sjálfan heldur einnig fjölskyldu og aðra aðstandendur. Í fjórðu hverri fjölskyldu má finna einstakling sem á við alvarleg geðræn vandamál að stríða. Ýmsir geðrænir kvillar hrjá oft einstaklinga sem þjást af alvarlegum líkamlegum kvillum svo sem krabbameini, kransæðasjúkdómum og ýmsum taugasjúk- dómum. Vandamálið verður enn viðameira þegar litið er til þess að einstaklingar með langvinna geðsjúkdóma svo sem geðklofa og alvarlegt þunglyndi eru í verulega aukinni hættu að veikjast af ýmsum alvarlegum lík- amlegum sjúkdómum. Alþjóðlegi geðheilbrigðisdagurinn var hald- inn í fyrsta skiptið 10. október árið 1992 fyrir tilstilli fjölþjóðlegrar hreyfingar fólks sem vildi stuðla að framförum í geðheilbrigðismálum (World Federation for Mental Health). Meðal helstu hvatamanna þess að tileinka þennan dag geðheilbrigðismálum var Rosalynn Cart- er, fyrrum forsetafrú Bandaríkjanna. Þessi samtök eru í dag ein stærstu grasrótarsamtök heimsins á sviði geðheilbrigðismála með með- limi í yfir 150 löndum. Hefur þessi dagur verið haldinn hátíðlegur vítt og breitt um heiminn síðan og markmiðið ætíð verið að fræða fólk um geðheilbrigðismál, draga úr fordómum og stuðla að bættum hag þeirra sem þjást af geð- rænum kvillum. Áhersla á tengsl andlegrar og líkamlegrar heilsu Þema þessa dags í ár er „andleg og líkamleg heilsa allt æviskeiðið“ og er með því verið að leggja áherslu á hin gagnkvæmu tengsl á milli góðrar andlegrar og líkamlegrar heilsu á öllum æviskeiðum og að geðheilsa sé óaðskiljanlegur hluti af almennu heilsufari fólks. Góð geðheilsa felst ekki einungis í því að vera laus við geð- sjúkdóma heldur einnig í því að búa við vellíð- an og getu til þess að höndla óhjákvæmilegt álag tengt daglegu lífi og verið virkur í sam- félaginu. Því er mikilvægt að hugað sé að þjónustu við geðsjúka og eflingu geðheilsu á sem flestum sviðum samfélagsins. Aðgengi að geðheilbrigð- is-þjónustu þarf að vera greitt ekki aðeins að bráðaþjónustu heldur einnig að virku eftirliti og langtímameðferð. Segja má að hér á landi sé aðgengið að flestu leyti gott á höfuðborg- arsvæðinu en mikið vantar uppá að aðgengi að sérhæfðri þjónustu sé nægilegt á landsbyggð- inni. Bæta þarf stuðning við fólk með geðræn vandamál úti í samfélaginu og er áríðandi að áfram verði unnið að því að byggja upp þver- fagleg hreyfanleg teymi geðheilbrigðisstarfs- manna sem fylgt geta fólki í samfélaginu eftir að greiningu og bráðameðferð er lokið. Í slík- um teymum er mögulegt að vinna markvisst að því að styðja fólk með geðræna kvilla til stig- vaxandi þátttöku í samfélaginu. En þótt þverfagleg meðferð sé afar mikil- væg þá er einnig brýnt að huga að forvörnum. Mikilvægt er að auka fræðslu um geðsjúkdóma og þá þætti sem stuðlað geta að bættu geðheil- brigði. Forvarnir og fræðsla um hluti sem beinlínis eru skaðlegir geðheilsu svo sem fíkni- efni þarf að vera markviss og ná athygli barna og unglinga. Forvarnarstarf þarf að ná til allra æviskeiða einstaklingsins og hefst því með góðri mæðraskoðun og ungbarnaeftirliti. Vinna þarf markvisst að því að kveða niður ein- elti í skólum og á vinnustöðum en allir geðheil- brigðisstarfsmenn þekkja hversu slæmar af- leiðingar einelti getur haft á andlega líðan fólks. Markvisst vinnueftirlit þar sem hugað er að þáttum sem snerta bæði líkamlega og and- lega heilsu er mikilvægt. Fjölbreytt dægradvöl og virk þjóðfélagsþátttaka getur stuðlað að bættri geðheilsu meðal aldraðra. Geðlæknafélag Íslands telur áríðandi að stjórnvöld marki heildstæða stefnu í geðheil- brigðismálum, og að allir sem að þessum mál- um koma, hvort sem það eru sjúklingar, fag- aðilar, aðstandendur eða áhugamenn þurfi að vinna saman til þess að ofangreind markmið náist.“ Stjórn Geðlæknafélags Íslands ályktar í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdeginum Góð geðheilsa – allra hagur Í TILEFNI af alþjóða heilbrigðisdeginum var skákhá- tíð í Ráðhúsinu í gærdag þar sem Friðrik Ólafsson, fyrsti stórmeistari Íslands, tefldi fjöltefli við gesti og gangandi. Nýttu fjölmargir sér það tækifæri að tefla við þennan ágæta skákmeistara en í kjölfarið var hald- ið hraðskákmót á vegum Hróksins og Eddu útgáfu. Morgunblaðið/Sverrir Öttu kappi við Friðrik í fjöltefli NÝTT félag verður stofnað inn- an Háskóla Íslands í dag í tilefni af Alþjóða geðheilbrigðisdegin- um. Félagið nefnist Manía og er fyrir fólk með geðraskanir innan skólans og aðra áhugasama um málefnið. Stofnfundurinn verður haldinn kl. 16 í stofu 101 í Odda. Kristín Ingólfsdóttir rektor flytur stutt ávarp sem og Krist- ín Tómasdóttir jafnréttisfulltrúi SHÍ. Egill Helgason verður fundarstjóri. Geðheilbrigðismál innan há- skólans hafa mikið verið í um- ræðunni undanfarið. Í tilkynn- ingu frá skólanum segir að af þeim sökum sé mikilvægt að skerpa á umræðunni og koma með innlegg stúdenta um and- lega heilsu nemenda sem kenn- ara. Opið hús í tilefni dagsins Í tilefni dagsins verður opið hús milli kl. 13 og 16 í athvörf- um Rauða krossins; Vin í Reykjavík, Dvöl í Kópavogi, Læk í Hafnarfirði og Laut á Ak- ureyri, og einnig hjá Hugarafli, Klúbbnum Geysi og Geðhjálp. Í kvöld verður svo kynning- arfundur hjá samtökum fyrir ungt fólk með þunglyndi, að Mjósundi 10 í Hafnarfiði, gamla bókasafninu. Verndari Alþjóða geðheil- brigðisdagsins hér á landi er frú Vigdís Finnbogadóttir. Félag um geð- raskanir stofn- að í HÍ í dag Sauðárkrókur | Fjölmenni sótti fund á veitingastaðnum Kaffi Krók síð- astliðið fimmtudagskvöld, en til hans var boðað af hagsmunaaðilum vegna tilkynningar trygginga- félagsins Sjóvár-Almennra, þar sem félagið hefur boðað lokun úti- bús félagsins á Sauðárkróki um næstu áramót. Virðist Skagfirðingum sem enn skuli hert tökin varðandi skerðingu almennrar þjónustu á landsbyggð- inni og vilja ekki átölulaust láta slíkt yfir sig ganga. Sjóvá-Almennar hafa verið eitt umsvifamesta tryggingafélagið í Skagafirði um áraraðir, en hefur nú ákveðið í hagræðingarskyni að loka útibúi sínu á Sauðárkróki. Var þungt hljóðið í fundarmönnum, sem margir hverjir höfðu átt við- skipti við félagið um árabil, jafnvel alla sína tíð, og þótti þeim illa aftan að sér komið. Tryggingatökum í Skagafirði, allt frá einstaklingum til stórra verktakafyrirtækja, hefur verið bent á, að frá áramótum ættu þeir að snúa sér til þjónustufulltrúa fé- lagsins á staðnum, sem frá áramót- um verður undir svæðisskrifstof- unni á Akureyri. Ljóst var af viðbrögðum fundarmanna að bæði einstaklingar og fyrirtæki hafa fullan hug á að snúa sér til annarra tryggingafélaga, ef forsvarsmenn Sjóvár-Almennra endurskoða ekki þessi áform sín. Fram komu þær hugmyndir að viðskiptamenn Sjóvár-Almennra byndust samtökum og gæfu þeim tryggingafélögum sem sinna fullri þjónustu við skagfirska viðskipta- vini tækifæri á að bjóða í þennan pakka, sem hlýtur að vera nokkuð eftirsóknarverður. Tillaga send fyrirtækinu Eftir snarpar umræður var lögð fram tillaga, sem samþykkt var samhljóða og mun hún send trygg- ingafélaginu. Töldu fundarmenn eðlilegt að gefa forsvarsmönnum félagsins tækifæri til að endur- skoða afstöðu sína. Fram kom á fundinum að for- svarsmenn Sjóvár-Almennra fyrir- huga almennan fund á Sauðárkróki þann 19. þessa mánaðar. Tillagan var svohljóðandi: ,,Fjöl- sóttur fundur viðskiptamanna Sjó- vár-Almennra í Skagafirði haldinn á Kaffi Króki á Sauðárkróki, 6. október 2005, harmar þá ákvörðun Sjóvár-Almennra að leggja niður útibúið á Sauðárkróki og skorar á forráðamenn félagsins að taka þá ákvörðun til endurskoðunar.“ Skagfirðingar mótmæla lok- un útibús Sjóvár-Almennra Morgunblaðið/Björn Björnsson Ingimar Jóhannsson, umboðsmaður Sjóvár á Sauðárkróki, í pontu og við hlið hans bræðurnir Árni og Páll Ragnarssynir, forvígismenn fundarins. LANDSVIRKJUN hefur efnt til samkeppni um útilistaverk í Fljótsdal og við Kárahnjúka. Um er að ræða tvær sam- keppnir. Frá þessu er greint á vef fyrirtækisins en jafnframt bent á að í samkeppninni í Fljótsdal er óskað eftir tillög- um undir dulnefni en í hina er óskað eftir umsóknum um þátt- töku. Í seinna tilvikinu annast sérstök valnefnd val þátttak- enda í sjálfa samkeppnina. Samkeppnin fer fram sam- kvæmt reglum SÍM, Sambands ísl. myndlistarmanna. Dóm- nefnd skipa frá Landsvirkjun þeir Jóhannes Geir Sigurgeirs- son stjórnarformaður og Frið- rik Sophusson forstjóri, Ormar Þór Guðmundsson, arkitekt Kárahnjúkavirkjunar og frá SÍM þau Ágústa Kristófers- dóttir listfræðingur og Ingimar Ólafsson Waage myndlistar- maður. Samkeppni um útilista- verk í Fljóts- dal og við Kárahnjúka

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.