Morgunblaðið - 10.10.2005, Page 10

Morgunblaðið - 10.10.2005, Page 10
10 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR KOSNINGAR um sameiningu sveit- arfélaga fóru fram á laugardaginn og voru fimmtán af þeim sextán tillögum sem fyrir lágu felldar. Yfir landið allt voru 56,2% þeirra sem kusu andvígir sameiningu en 43,8% fylgjandi. Alls kusu 22.271 af þeim 69.144 sem voru á kjörskrá og var kjörsókn því 32,2%. Kosið var um sameiningu í 61 sveitarfélagi og einungis ein tillaga hlaut samþykki allra þeirra sveitarfé- laga sem um hana kusu, en það var sameiningartillaga í Mjóafjarðar- hreppi, Fjarðabyggð, Austurbyggð og Fáskrúðsfjarðarhreppi og munu þessi fjögur sveitarfélög sameinast að loknum sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Á öðrum stöðum var sameiningin felld og var almennt meiri andstaða við sameiningu í smærri sveitarfélög- unum. Á vef félagsmálaráðuneytisins kemur fram að eftir að sameining sveitarfélaganna á Austurlandi hafi gengið í gegn, verði sveitarfélögin í landinu orðin 89, en þegar átak um eflingu sveitarstjórnarstigsins hófst árið 2003 voru þau 103. Ef allar sam- einingartillögurnar hefðu verið sam- þykktar hefðu sveitarfélögin orðið alls 47. Tvennar endurkosningar Kosið verður aftur um tvær tillög- ur að sex viknum liðnum, annars veg- ar í Þingeyjarsýslunum þar sem Að- aldælahreppur, Kelduneshreppur, Skútustaðarhreppur og Tjörnes- hreppur munu kjósa aftur um sam- einingu við Húsavíkurbæ, Öxarfjarð- arhrepp og Raufarhafnarhrepp og hins vegar í Reykhólahrepp þar sem íbúar greiða aftur atkvæði um sam- einingu við Dalabyggð og Saurbæj- arhrepp. Kveðið er á um slíka end- urkosningu í bráðabirgðaákvæði í sveitarstjórnarlögunum en þar kem- ur fram að þótt tillaga hljóti ekki samþykki íbúa allra sveitarfélaganna sem þátt taka, megi endurtaka at- kvæðagreiðsluna innan sex vikna í þeim sveitarfélögum sem felldu til- löguna ef meirihluti þeirra sem af- stöðu tóku í atkvæðagreiðslunni er fylgjandi sameiningunni. Þá er einnig skilyrði að hún hafi verið samþykkt í að minnsta kosti tveimur sveitar- félögum. Stórar kosningar um sameiningu sveitarfélaga fóru síðast fram hér á landi árið 1993 en þá voru 32 samein- ingartillögur lagðar í dóm kjósenda. Niðurstaðan þá var ekki ósvipuð og í kosningunum á laugardaginn en þá var aðeins ein sameiningartillaga samþykkt í kosningunum. Fimmtán af sextán tillögum felldar Morgunblaðið/Ágúst Blöndal ATKVÆÐI skilað í Neskaupstað en á miðsvæði Austfjarða var sameiningin samþykkt um helgina, eina svæðinu á landinu. Tvísýnust var niðurstaðan þó í Fjarðabyggð, 53% með og 47% á móti sameiningunni. Kosið var um sameiningu í 61 sveitarfélagi á laugardaginn Eftir Árna Helgason arnihelgason@mbl.is                                                 !   !    "    !! #  $ %%!! #  $ & '(!                         Umræðan  Daglegt málþing þjóðarinnar á morgun ÁRNI Magnússon félagsmálaráð- herra segist ekki líta svo á að nið- urstaða kosninganna á laugardag- inn sé áfall fyrir sig. „Þetta kemur að sumu leyti svo- lítið á óvart miðað við þær vísbend- ingar sem skoðanakannanir höfðu gefið en þetta er niðurstaða úr lýð- ræðislegri kosningu og hún getur alltaf farið á hvorn veginn sem er, þannig að ég lít ekki á þetta sem neitt áfall,“ segir Árni og bætir við að niðurstaða kosninganna hafi ver- ið skýr. „Það er niðurstaða sem menn munu að sjálfsögðu og eiga að una,“ segir Árni. Mikið tilfinningamál Hann telur trúlegt að í kjölfarið komi ferli, ekki ólíkt því sem gerðist 1993. „Þá sáum við eina sameiningu verða út úr því en svo fækkaði sveitarfélögunum um nærri því helming á tíu ára tímabili þar á eft- ir, þannig að mér finnst ekki ósennilegt að sveitarstjórnarmenn tækju upp þráðinn frá því sem frá var horfið í kjölfarið.“ Aðspurður hvaða skýringar séu á því hversu víða sameiningartillög- urnar voru felldar, segist Árni ekki hafa þær. „Þetta er mikið tilfinningamál og hefur alltaf verið það og kannski eru skilaboðin einfaldlega þau að fólk vill fá að ráða málum sínum al- gerlega sjálft og gera þetta á þeim hraða sem því hentar,“ segir félags- málaráðherra. Árni Magnússon félagsmálaráðherra um úrslit sameiningarkosninganna „Kemur að sumu leyti svolítið á óvart“ Árni Magnússon kaus í Hveragerði. Morgunblaðið/Sverrir Sameining samþykkt á Austfjörðum

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.