Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 11

Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 11 FRÉTTIR KOSIÐ var um sextán tillögur í sameiningarkosningunum á laug- ardaginn og var kjörsókn misjöfn og almennt mun meiri í fámennari sveitarfélögunum en fjölmennari. Mest var andstaðan við samein- ingu í Grýtubakkahreppi, þar sem 99,1% kjósenda felldu sameining- artillögu en mestur stuðningur var í Hafnarfjarðarbæ, þar sem 86,6% kjósenda samþykktu sameiningu við Vatnleysustrandarhrepp. Þá sögðu 86,4% íbúa Blönduósbæjar já við sameiningu við sveitarfélög í Aust- ur-Húnavatnssýslu. Í Blönduósbæ var einnig minnst kosningaþátttaka, eða 14,1% en besta kosningaþátt- takan var hins vegar í Áshreppi, eða 91,5%. Hér að neðan verður farið yfir nið- urstöður kosninganna á hverju svæði og hver kjörsókn var, en ít- arlegri upplýsingar má sjá í töflu hér til hliðar. Snæfellsnes Tillaga um sameiningu sveitarfé- laganna á Snæfellsnesi; Helgafells- sveitar, Eyja- og Miklaholtshrepps, Stykkishólmsbæjar, Grundarfjarð- arbæjar og Snæfellsbæjar var felld í öllum fimm sveitarfélögunum. Kjör- sókn var minnst í Stykkishólmi, eða 55%, en mest í Eyja- og Miklaholts- hreppi, 84,7%. Niðurstaðan var mest afgerandi í Grundarfjarðarbæ þar sem 85,5% kjósenda sögðu nei. Dalasýsla og Austur- Barðastrandarsýsla Kosið var um sameiningu Dala- byggðar, Saurbæjarhrepps og Reykhólahrepps. Íbúar Dalabyggð- ar og Saurbæjarhrepps samþykktu sameiningu en íbúar Reykhóla- hrepps felldu hana hins vegar. Kosn- ingin verður því endurtekin innan sex vikna í Reykhólahreppi, þar sem meirihluti þeirra sem þátt tók í at- kvæðagreiðslunni samþykkti sam- einingu og fleiri en tvö sveitarfélög samþykktu. Kjörsókn var minnst í Dalabyggð, eða 55,5%. Í Reykhóla- hreppi var kosningaþátttaka 62,6% og í Saurbæjarhreppi 68,9%. And- staðan var nokkuð afgerandi í Reyk- hólahreppi, en þar felldu 68,9% íbúa sameiningu. Vestur-Barðastrandarsýsla Tillaga um sameiningu Vestur- byggðar og Tálknafjarðarhrepps var felld á báðum stöðum. Kjörsókn var 35% í Vesturbyggð en 57,8% í Tálknafjarðarhreppi. Í Vesturbyggð samþykktu 41,1% kjósenda samein- ingu en 58,9% felldu hana. Í Tálkna- fjarðarhreppi sögðu 28% íbúa já en 72% nei. Strandasýsla Íbúar Árneshrepps, Kaldrananes- hrepps og Hólmavíkurhrepps höfn- uðu sameiningu en íbúar Brodda- neshrepps samþykktu. Kosninga- þátttaka var minnst í Hólmavíkur- hreppi, eða 44,7% en mest í Árnes- hreppi, 73,9%. Hrútafjörður Kosið var um sameiningu sveitar- félaga við Hrútafjörð en þar eru Húnaþing vestra og Bæjarhreppur. Íbúar Húnaþings vestra samþykktu sameininguna en íbúar Bæjarhrepps höfnuðu tillögunni. Kosningaþátt- taka var 82,4% í Bæjarhreppi en 25,1% í Húnaþingi. Í Bæjarhreppi sögðu 39,3% kjósenda já en 60,7% nei við sameiningu. Í Húnaþingi samþykktu hins vegar 57,8% sam- einingu en 42,2% felldu hana. Austur-Húnavatnssýsla Tillaga um sameiningu Höfða- hrepps, Skagabyggðar, Áshrepps og Blönduósbæjar var felld í þremur fyrstnefndu sveitarfélögunum en samþykkt af íbúum Blönduósbæjar. Kjörsókn var minnst á Blönduósi, 40,4% en mest í Áshreppi eða 91,5%. Afgerandi stuðningur var við sam- einingu á Blönduósi, þar sem 86,4% kjósenda sögðu já en í Höfðahreppi greiddu 91,6% kjósenda atkvæði gegn sameiningu. Skagafjörður Tillaga um sameiningu Sveitar- félagsins Skagafjarðar og Akra- hrepps var felld í báðum sveit- arfélögunum. Kosningaþátttaka var 16,4% í Skagafirði en 82,4% í Akra- hreppi. Ekki munaði miklu í Skaga- firði en þar sögðu 49,4% já við sam- einingu og 50,6% nei. Í Akrahreppi var munurinn hins vegar meiri, en þar samþykktu 16,5% kjósenda sam- einingu en 83,5% felldu hana. Eyjafjörður Tillaga um sameiningu Akur- eyrarkaupstaðar, Hörgárbyggðar, Arnarneshrepps, Dalvíkurbyggðar, Ólafsfjarðarbæjar, Siglufjarðar- kaupstaðar, Grýtubakkahrepps, Svalbarðsstrandarhrepps og Eyjafjarðarsveitar var felld af íbúum allra sveitarfélaganna, að Siglufirði og Ólafsfirði und- anskildum. Sameiningin var felld á Akureyri, en þar sögðu 44,4% kjósenda já við sameiningu en 55,6% nei. Þrátt fyrir að sameining hafi verið samþykkt í tveimur sveitarfélögum verða kosningarnar þó ekki end- urteknar, þar sem meirihluti allra sem kusu var andvígur sameiningu og stendur því niðurstaðan. Kjör- sókn var minnst á Akureyri, 22,9%, en mest í Grýtubakkahreppi, eða 82%. Hefði sameining gengið í gegn hefði orðið til sveitarfélag með 23.086 íbúa. Suður- og Norður- Þingeyjarsýslur Tillaga um sameiningu Aðal- dælahrepps, Skútustaðahrepps, Húsavíkurbæjar, Tjörneshrepps, Kelduneshrepps, Öxarfjarðarhrepps og Raufarhafnarhrepps var felld í fjórum sveitarfélögum en samþykkt í þremur. Íbúar Aðaldælahrepps, Tjörnes- hrepps, Kelduneshrepps og Skútu- staðahrepps felldu sameiningu en íbúar Raufarhafnar, Húsavík- urbæjar og Öxarfjarðarhrepps sam- þykktu hana. Meirihluti þeirra sem afstöðu tóku í atkvæðagreiðslunni var hins vegar fylgjandi sameining- artillögunni, en alls sögðu 640 íbúar já en 538 nei. Kosningarnar verða því end- urteknar í þeim sveitarfélögum sem felldu hana innan sex vikna, þ.e. eigi síðar en 15. nóvember. Kjörsókn var minnst á Húsavík, 27,5% en mest í Aðaldælahrepp, eða 78,8%. Mestur stuðningur var við sameiningu á Húsavík, en þar sam- þykktu 74,8% kjósenda sameiningu. Mest andstaðan var hins vegar í Að- aldælahreppi, þar sem 75,8% sögðu nei. Norður-Þingeyjarsýsla Sameining Svalbarðshrepps og Þórshafnarhrepps var felld í Sval- barðshreppi en samþykkt í Þórs- hafnarhreppi. Kosningaþátttaka var 64,2% í Svalbarðshreppi og 40,3% í Þórshafnarhreppi. Í Svalbarðs- hreppi sögðu 16% íbúa já en 84% nei. Úrslitin í Þórshafnarhreppi voru hins vegar á þá leið að 65,8% sam- þykktu sameiningu og 34,2% felldu hana. Norður-Múlasýsla Tillaga um sameiningu Skeggja- staðahrepps og Vopnafjarðarhrepps var felld af Vopnfirðingum en 64% þeirra greiddu atkvæði gegn sam- einingu. Sameiningin var samþykkt í Skeggjastaðahreppi með 65,4% at- kvæða en sameiningin felld. Kosn- ingaþátttaka var 61,2% í Skeggja- staðahreppi og 48,2% í Vopna- fjarðarhreppi. Miðsvæði Austfjarða Íbúar Fáskrúðsfjarðar, Mjóa- fjarðar, Austurbyggðar og Fjarða- byggðar samþykktu sameiningu og mun hún ganga í gegn að loknum sveitarstjórnarkosningum á næsta ári. Kjörsókn var minnst í Fjarða- byggð, eða 46,4% en mest í Mjóa- fjarðarhreppi, 78,1%. Þess má geta að fæstir voru á kjörskrá í Mjóa- fjarðarhreppi af öllum sveitarfélög- unum, eða 32. Stuðningur við sam- eininguna var misjafnlega afgerandi en 53% sögðu já í Fjarðabyggð og 76% í Mjóafjarðarhreppi. Árnessýsla Tillaga um sameiningu Hraun- gerðishrepps, Villingaholtshrepps, Gaulverjabæjarhrepps, Sveitarfé- lagsins Árborgar, Hveragerð- isbæjar og Sveitarfélagsins Ölfuss var felld í öllum sex sveitarfélög- unum. Mest andstaðan var í Ölfusi en þar sögðu 92,9% íbúa nei við sam- einingu. Kjörsókn var frá 28,3% í Árborg upp í 78,6% í Hraungerð- ishreppi. Uppsveitir Árnessýslu Kosið var um sameiningu Gríms- ness- og Grafningshrepps, Blá- skógabyggðar, Hrunamannahrepps og Skeiða- og Gnúpverjahrepps. Íbúar í Bláskógabyggð og Skeiða- og Gnúpverjahreppi samþykktu sameiningu en hún var felld í Hruna- mannahreppi og Grímsnes- og Grafningshreppi. Kosningaþátttaka var frá 49,4% í Grímsnes- og Grafn- ingshreppi upp í 69,1% í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Mest var and- staðan við sameiningu í Grímsnes- og Grafningshreppi, eða 83,7% en mestur stuðningur í Bláskóg- arbyggð, eða 58,5%. Suðurnes Sameining sveitarfélaganna á Suðurnesjum var samþykkt í Reykjanesbæ en felld af íbúum í Sandgerði og Garði. Sameining- artillagan var því felld í heild sinni. Kjörsókn var 63,5% í Sandgerði, 69,3% í Garði en 12,9% í Reykja- nesbæ. Í Sandgerði sögðu aðeins 8,7% kjósenda já við sameiningu en 91,3% nei. Í Garði felldu 73,8% kjós- enda sameiningu en 26,2% sam- þykktu hana. Íbúar Reykjanesbæjar samþykktu hins vegar sameiningu og sögðu 72% kjósenda já en 28% nei. Reykjanes Íbúar Hafnarfjarðarbæjar sam- þykktu sameiningartillöguna með 86,6% greiddra atkvæða á móti 13,4% sem felldu hana. Sameiningin var hins vegar felld í Vatnsleysu- strandarhreppi, þar sem 68,4% kjósenda sögðu nei en 31,6% já. Kjörsókn var misjöfn í sveitar- félögunum tveimur, 14,1% í Hafn- arfirði en 75,2% í Vatnleysustrand- arhreppi. Kjörsókn almennt meiri í fámennari sveitarfélögunum              !    "# $  %     & '()"( "#      $      "         !  *  " ++  " " ++ "    !  !  ,- " ++  !  . " ++  " ++ $ /" ++ 0( " ++ #$  0 " ++ $1  #$ %   . " ++ 0%  $% " ++      # % 2" ++ ( ' - 3- 4  5 67 869 768 :96 5 65 ; 6: 9;6 768 : 6; 996 9969 ;67  6 896 9:6; :867 :6 6: 9565 ; 6 965 7569 6 ;68 ;6: 56 ; 6 )*$+ ,-$. ,+$- /.$* )0$) 10$/ .1$0 ,+$- /2$1 ..$2 ..$. ,1$+ ,*$, -.$2 ./$1 /-$+ ,/$2 00$/ .)$) 1*$0 *.$) +)$. 02$0 ,1$- ,1$/ ),$0 1*$0 /*$2 1$/ *,$* -)$, 1,$, 0-$- *2$, )0$. *0$* -.$2 ,*$/ ..$- -)$) 0)$) *1$2 -*$0 )-$, -*$, /.$2 -+$- ./$1 02$. 1,$0 1$0 *2$2 0+$0 ),$. 4                    &   % < % */ 2 " ++ $%- 2  &      "# =" ++   '    1 " ++ 2" ++ $1 / , % " ++   " ++ >? " ++  " " ++ '     " ++ @  " " ++ ($     " ++ !(+ " ++  )  " ++  - 1 "# 2  )  * ++%  '( 1+#"# $" ++ 0-   /  '(  #"# )  * ,  -     "#  #.( $  " ++ !"( " ++ $    #>  ( ' - 3- 4   6 ;6  67 ::6; 969 67 569 :56 ; 6 768 :;6; :69 76; :56 ;65 976  6 68 56 ;6 :;65 6 :86 9;6 765 9765 9 6 76 :56 ;68 :;6 ;67 765 : 6 ,.$2 .,$) -,$2 -0$/ ))$. 00$0 )-$/ *.$1 )$2 -0$/ *0$* /0$1 0.$+ 0+$) .)$+ .,$) ),$2 ,.$1 ,.$0 -,$2 /,$2 .-$2 /*$0 ,,$/ .*$- -2$0 .1$. ),$- )/$. 02$- *+$1 )*$) ))$+ /$) -.$2 0-$+ ,0$2 ,.$- 11$. ..$, 1,$- /0$* ++$2 ,.$- /.$1 *.$* .0$) .2$+ 01$) 0-$+ 10$2 -0$* -0$, ,0$2 *0$2 0/$2 */$, --$- 0/$/ ,+$, 0)$. 1-$/ 1*$. .+$/ /2$* 1/$+ 11$) +*$+ 4                                Morgunblaðið/Sverrir Íbúi í Hveragerði skilar atkvæði sínu á kjörstað. Þar í bæ var kjörsókn tæp 50% og sameiningartillagan var felld.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.