Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 12

Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 12
12 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ VESTURLAND Akranes | Þúsundasti fundur bæjarstjórnar Akraness verður á morgun, þriðjudaginn 11. október. Af því tilefni ræddi fréttaritari við Gísla Gíslason bæjarstjóra og Guðmund Pál Jónsson verðandi bæjarstjóra frá 1. nóv- ember, þegar sá fyrrnefndi tekur við starfi hafnarstjóra Faxaflóahafnar. Akraneskaup- staður fékk kaupstaðaréttindi árið 1942 og það hefur tekið 63 ár að ná eittþúsund fundum. Gísli segir að ákveðið hafi verið í tilefni dagsins að leggja áherslu á einhver tímamót og verður fundurinn sérstakur hátíðarfundur, þar sem auk hefðbundinna starfa verða vænt- anlega samþykktar þrjár tillögur. Sú fyrsta er um uppbyggingu íþróttamannvirkjanna á Jaðarsbökkum og yfirbyggðar sundlaugar á því svæði, önnur er samþykki á yfirtöku á svæði sem heitir Klapparholt en frá því heið- urshjónin Rafnhildur Árnadóttir og Guð- mundur Guðjónsson á Bergi tóku við því árið 1988 hafa þau unnið þar að gróðursetningu og uppgræðslu. Þriðja tillagan er samþykkt að fjölskyldustefnu fyrir Akraneskaupstað, sem hefur verið í vinnslu. ,,Þannig erum við að höfða til breiðra málaflokka á hátíðarfund- inum segir Gísli. Eftir fundinn verður móttaka þar sem fyrr- verandi bæjarstjórnarfulltrúum og fyrrver- andi bæjarstjórum er boðið. Ennfremur er í bígerð að hinn almenni starfsmaður bæjarins verði var við þessi tímamót, en þeir Gísli og Guðmundur gefa ekkert nánar upp um það. Þeir eru báðir fegnir að tókst að afstýra verk- falli bæjarstarfsmanna, en skrifað var undir samninga á sunnudagskvöldið. ,,Við erum sannfærðir um að þetta séu almennt góðir samningar,“ segja þeir. Hefur tekist að þjóna íbúum vel Á Akranesi búa núna um 5.800 manns og hefur fjölgað um 800 síðustu átta árin, en árið 1997 voru Skagamenn tæplega 5.100. Að- spurður um framtíðarþróun í þessum mála- flokki segir Gísli það undir Guðmundi komið og hlær við. Guðmundur segir að eins og stað- an sé um þessar mundir þá sé útlitið gott. ,,Enn er verið að sækjast eftir fólki til starfa, t.d. hefur Norðurál verið að auglýsa eftir tug- um manna og atvinnuleysi er hér sáralítið. Þetta eru algjör hamskipti, því þegar ég kom inn í bæjarstjórn 1994 höfðum við gengið í gegnum 15 ára samdráttartíma.“ Og Gísli bætir við að allar forsendur séu fyr- ir því að mjög góður vöxtur verði í framtíðinni, markmiðið sé ekki endilega að verða of stór bær heldur að þjóna vel þeim sem byggja bæ- inn og telur hann það hafa tekist. ,,Einn af glæsilegustu dögum í sögu bæj- arins var þegar Grundaskóli fékk íslensku menntaverðlaunin, og sem bæjarbúi og starfs- maður bæjarins var ég afskaplega stoltur af þessari viðurkenningu skólafólki til handa og bæjaryfirvöldum,“ segir Gísli. Hvalfjarðargöngin breyttu hugarfarinu ,,Í grunninn er Akranes útgerðarbær en það má segja að með stofnun Sementsverksmiðj- unnar og sjúkrahússins þá er lagður grund- völlur að öðrum iðnaði og bærinn verður ríkari á þjónustusviðinu. Síðan hefur iðnaðurinn far- ið ört vaxandi hér, og vísa ég þá til líka til upp- byggingarinnar á Grundartanga,“ segir Gísli. Þeir eru báðir sammála um að það sem end- anlega breytti landslaginu var opnun Hval- fjarðarganganna. ,,Númer eitt var að þau breyttu hugarfarinu og Akranes breyttist úr n.k. eyjarsamfélag í það að verða miðstöð ýmissa möguleika, og auðvitað opnuðust ýmsir möguleikar í atvinnu- og búsetumálum og það auðveldar fólki að stunda nám og vinnu annars staðar,“ segir Gísli og vísar til athugana sem gerðar voru fyrir göng og eftir. Fyrir tilkomu ganganna stunduðu um 3% íbúa einhverskonar reglu- bundnar ferðir, en nú eru það um 15%. Gísli telur ennfremur að verslun hafi í heild- ina styrkst og þeir sem hafa tekið þátt í sam- keppninni hafa spjarað sig mög vel. Stórar öfl- ugar verslanir hafa líka komið á staðinn eins og Byko, Kea Nettó og Húsasmiðjan. 500 íbúðir í hringiðunni Fasteignaverð hefur hækkað hlutfallslega jafnmikið og á höfuðborgarsvæðinu, segir Guðmundur, og bætir við að ekki hafi verið farin þessi uppboðsleið eins og í stærri sveit- arfélögum og lóðaverð sé lágt. ,,En eins og uppbyggingin hefur verið undanfarin ár þá má kannski segja að framboð lóða sé aldrei nóg. Við vorum að ganga frá rammaskipulagi í s.k. Skógarhverfi, þar sem getur verið 3.500 manna byggð og er það á við að Reykjavík væri að koma á 70-80 þúsund manna byggð. Núna eru um 500 íbúðir í hringiðunni, á ýmsum byggingarstigum. Með því að líta á svæðið sem eitt atvinnusvæði á samstarfið á eftir að aukast enn við Borg- arbyggð þó það sé kannski ekki alveg kominn tími á sameiningu. Hrepparnir hér fyrir sunn- an okkur eru að sameinast en enn hefur eng- inn viljað sameinast okkur,“ segir Gísli. Tekur við 1. nóvember Guðmundur Páll tekur við starfi bæj- arstjóra 1. nóvember og gegnir því til loka kjörtímabils. Á meðan er hann í tímabundnu leyfi úr starfi sínu hjá HB Granda þar sem hann hefur lengst af starfað sem starfs- mannastjóri. ,,Við erum að leggja til okkar hæfasta mann sem hafnarstjóra, teljum það mjög mikilvægt fyrir hagsmuni Reykjavíkur og standa vonir okkar til þess að framtíð- arhöfn Reykvíkinga verði á Grundartanga. Þess vegna fer Gísli úr starfi bæjarstjóra og var samþykkt einhuga að ég tæki við. Og ég er býsna spenntur að taka við góðu búi,“ segir Guðmundur Páll. Gísli segir að eftir að hafa unnið hjá Akra- neskaupstað í 20 ár, tvö ár sem bæjarritari og liðlega 18 sem bæjarstjóri, þá sé sér efst í huga þakklæti fyrir að hafa fengið tækifæri til að taka þátt í öllum þeim verkefnum sem störfunum fylgdu. „Það hafa einnig verið forréttindi að fá tækifæri til að starfa með öllu því heiðursfólki sem valist hefur til setu í bæjarstjórn og einn- ig því frábæra samstarfsfólki sem ég hef unnið með hjá bæjarfélaginu. Það er því vissulega með söknuði sem ég kveð það góða samstarfs- fólk. Án nokkurs vafa er framtíðin á Akranesi björt og þó svo að nú verði þáttaskil hjá mér þá vonast ég til að fá tækifæri áfram til að vinna bæjarfélaginu gagn. Eftirmanni mínum, Guðmundi Páli, óska ég velfarnaðar og gæfu, en af löngum kynnum okkar Guðmundar þá veit ég að hann mun leysa öll sín verkefni af farsæld og réttsýni,“ sagði Gísli að endingu. Þúsundasti fundur bæjarstjórnar Akraness haldinn á morgun Akranes alltaf í sókn Morgunblaðið/Guðrún Vala Guðmundur Páll Jónsson, verðandi bæjarstjóri Akraness, og Gísli Gíslason, fráfarandi bæjar- stjóri, sem er að hætta eftir 18 ár í því starfi. Ljósmyndasafn Akraness Þessi mynd er tekin á fundi bæjarstjórnar Akraness í þáverandi bæjarhúsi (á efstu hæð) við Kirkjubraut. Þarna má þekkja m.a. Sverri Valtýsson lyfjafræðing, Jón Árnason, fyrrv. alþingismann, Daníel Ágústínusson og fleiri. Eftir Guðrúnu Völu Elísdóttur Borgarnes | Sauðir allra landa sameinuðust á Sauðamessu 2005 í Borgarnesi sl. laugardag. Sauðamessan er samkvæmt skil- greiningu „Sauðmeinlaus og ær- leg fjölskylduhátíð helguð haust- inu, ánum og okkur hinum“. Dagskráin hófst með fjárrekstri frá Hyrnutorgi í gegnum bæinn og inn í rétt á Rauða torginu. Allir sem lopavettlingi gátu valdið tóku þátt í rekstrinum og var áberandi hve klæðnaður þátttakenda var þjóðlegur; margir í lopapeysum, ull- arsokkum og með lopahúfur, enda var kindarlegur klæðnaður áskilinn. Mikið var um dýrðir í gamla Mjólkursamlagshúsinu, þar var íslensk kjötsúpa í boði Borg- arness kjötvara, réttarkaffi og bændamarkaður. Ýmis skemmti- atriði voru á planinu fyrir utan, t.d. krufði Jóhannes Krist- jánsson landbúnaðinn til mergj- ar, Silfurrefirnir sungu Sauða- lagið með Sviðahausunum og keppt var í vambasaumi, svo eitthvað sé nefnt. Ungir piltar æfðu glímutökin og ungviðið brá sér á hestbak. Að sögn aðstand- enda Sauðamessunnar voru hátt í 5.000 manns á svæðinu og kannski ástæða til að hátíðin verði héðan í frá árviss við- burður. Morgunblaðið/Guðrún Vala Sauðamessan í Borgarnesi var fjölsótt og gestir klæddu sig að þjóðlegum sið í lopapeysu og loðhúfur. 5.000 manns komu á Sauðamessuna Borgarnes | Það er létt yfir Krist- jáni Rafni Sigurðssyni fram- kvæmdastjóra og dætrum hans, en tilefnið er vígsla á nýju húsi fyrir starfsemi Eðalfisks ehf. Fyrsta skóflustungan var tekin fyrir rúmu ári og er húsið nú fullbúið og tilbúið til notkunar. Byggingin er um 540 m² að grunnfleti og er byggð af Límtré-Vírnet, Borgarnesi. Eð- alfiskur sérhæfir sig í vinnslu á laxi og veitir um 12 manns atvinnu í byggðarlaginu. Þrátt fyrir að stað- setning fyrirtækisins sé óhagstæð vegna dreifingarkostnaðar, sem er hátt hlutfall af rekstarkostnaði, þá er hér komið tækifæri til að auka framleiðsluna og er Kristján bjart- sýnn á framtíðina í nýju húsnæði. Þær máttu ekki af pabba sínum sjá, dæturnar Elísabet og Eydís, enda hafa þær ekki séð hann mikið und- anfarið á meðan frágangur við hús- bygginguna stóð yfir. Aukin framleiðsla í nýju húsi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.