Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 13
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
Morgunverðarfundur
Þarfagreining fyrir menntun í ferðaþjónustu
Kynning á niðurstöðum
Vinnu við þarfagreiningu fyrir menntun og fræðslu í ferðaþjónustu á
Íslandi er nú lokið, en verkefnið er ein umfangsmesta rannsókn sem
hefur verið framkvæmd á sviði ferðaþjónustu á Íslandi.
Samtök ferðaþjónustunnar boða til morgunverðarfundar
11. október nk. á Radissons SAS Hótel Sögu (Skála) til að kynna
niðurstöðurnar.
Dagskrá:
Kl: 08:15 Morgunverður
Setning fundar: Jón Karl Ólafsson, formaður SAF.
Ávarp: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra.
Kynning á niðurstöðum: Sigríður Þrúður Stefánsdóttir
og Arney Einarsdóttir.
Samantekt: Jón Torfi Jónasson, prófessor, Háskóla Íslands.
Kl. 10:00 Fundarlok
Rannsóknin var unnin að frumkvæði Samtaka ferðaþjónustunnar og í
samstarfi við Starfsgreinaráð um náttúrunýtingu, Starfsafl,
Landsmennt og Starfsmenntasjóð verslunar- og skrifstofufólks með
styrk frá Starfsmenntasjóði. Sigríður Þrúður Stefánsdóttir og Arney
Einarsdóttir hjá HRM, rannsóknir & ráðgjöf, sáu um
framkvæmd þarfagreiningarinnar í samstarfi við
Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.
Þátttökugjald með morgunverði kr. 1.500.
Vinsamlegast skráið þátttöku hjá Samtökum
ferðaþjónustunnar info@saf.is eða í síma 511-8000.
BERNT Magnusson, stjórnarfor-
maður sænska tryggingafélagsins
Skandia, hefur sagt af sér í kjölfar
þess að meirihluti stjórnarinnar
neitaði að mæla með tilboði suður-
afríska tryggingafélagsins Old
Mutual í Skandia. Ekki er hægt að
segja að þessi ákvörðun Magnus-
sons komi á óvart en hann hefur
legið undir ámæli fyrir að hafa ver-
ið hlynntur tilboðinu og sagt að
honum væri ekki stætt á því að
gegna formannsstöðu í stjórn sem
er andstæð honum í svo veigamiklu
máli. „Það er ekki hægt að vera for-
maður í klofinni stjórn,“ sagði
Magnusson í samtali við Dagens
Nyheter eftir að hann tilkynnti
ákvörðun sína.
Lennart Jeansson tekur við sem
stjórnarformaður en hann hefur
verið andvígur yfirtökutilboðinu og
er það talið vatn
á myllu þeirra
sem hafa lýst
andstöðu sinni
við það en meðal
þeirra eru
nokkrir stærstu
lífeyrissjóðir Sví-
þjóðar. Hans-
Erik Andersson,
forstjóri
Skandia, er einn-
ig andvígur tilboðinu og þykir nú
margt benda til þess að með því að
sameina krafta sína muni þeim tak-
ast að koma í veg fyrir að tilboðinu
verði tekið.
Eitt af skilyrðum þeim sem Old
Mutual setti fyrir tilboðinu var að
90% hluthafa samþykktu það en nú
hefur fyrirtækið fallið frá því skil-
yrði þar sem ljóst er að meira en
10% hlutahafa muni hafna tilboð-
inu. Þar með getur fyrirtækið ekki
innkallað bréf þeirra sem hafna til-
boðinu og er það mat Magnussons
að sú staðreynd að stjórn fyrirtæk-
isins sé ekki á sömu línu og verð-
andi stærstu eigendur muni verða
til skaða fyrir Skandia.
Gengi bréfa Skandia féll við tíð-
indin og var lokagengi þeirra á
föstudag 39,8 sænskar krónur/hlut.
Er það lækkun um 1,24%.
Stjórnarformaður Skandia hættir
Lennart
Jeansson
Hans-Erik
Andersson
Bernt
Magnusson
● ÚTLIT er fyrir að septembermán-
uður verði mesti innflutningsmán-
uður ársins það sem af er ári. Áætlað
er að fluttar hafi verið inn vörur til
landsins fyrir tæpa 27 milljarða
króna í mánuðinum. Þá eru skip og
flugvélar ekki talin með.
Þetta byggist á bráðabirgðatölum
um innheimtu virðisaukaskatts að því
er fram kemur í Vefriti fjármálaráðu-
neytisins. Á fyrstu átta mánuðum árs-
ins var innflutningur mestur í júní,
26,2 milljarðar króna (án skipa og
flugvéla).
Í Vefritinu segir að meginskýringin á
auknum innflutningi í september frá
ágústmánuði sé meiri innflutningur á
eldsneyti og olíu sem hafi aukist um
3 milljarða milli mánaðanna.
Innflutningur í
hámarki í september
● JAPÖNSKU fjármálafyrirtækin
Mitsubishi Tokyo Financial Group
Inc. og UFJ Holdings Inc. samein-
uðust nýverið og með samrunanum
varð til stærsta fjármálafyrirtæki
heims í eignum talið. Eignir samein-
aða fyrirtækisins eru metnar á 190
billjónir jena (rúmlega 103 billjónir
ísl.kr.) og viðskiptavinir þess eru um
40 milljónir talsins. Frá þessu er
greint á vefmiðli Dagens Industri.
Samruna kjarnabankastarfsemi
félaganna, Tokyobanka-Mitsubishi
og UFJ bankans, hefur verið frestað.
Stærsta fjármála-
fyrirtæki í heimi
● SJÁLFKJÖRIÐ verður í stjórn SÍF
hf. á aðalfundi félagsins í dag mánu-
daginn 10. október. Fimm ein-
staklingar hafa gefið kost á sér til
setu í stjórn SÍF, en þeir eru: Að-
alsteinn Ingólfsson, Höfn í Horna-
firði, Guðmundur Hjaltason, Reykja-
vík, Hartmut M. Krämer, Düsseldorf í
Þýskalandi, Nadine Deswasiere,
Villepinte í Frakklandi, og Ólafur
Ólafsson, Kópavogi. Einn hefur gefið
kost á sér í varastjórn: Guðmundur
Ásgeirsson, Seltjarnarnesi.
Sjálfkjörið í stjórn SÍF
TILBOÐ færeyska fyrirtækisins
Smyril Line, sem rekur ferjuna Nor-
rænu, í 66% hlut í norska skipafélag-
inu Fjord Line, er háð því að hlut-
hafar í Smyril Line leggi fram nýtt
hlutafé. Þetta kemur fram í blaðinu
Scotsman.
Gert er ráð fyrir að Smyril Line
greiði jafnvirði 470 milljóna ís-
lenskra króna fyrir hlutinn í Fjord
Line. Scotsman segir að Þróunar-
sjóður Hjaltlands, sem nú eigi 20%
hlut í Smyril Line og 0,2% hlut í
Fjord Line, íhugi að leggja í jafnvirði
325 milljóna króna til þessara við-
skipta en blaðið segir að þau séu háð
því að hluthafar í Smyril Line leggi
fram jafnvirði 760 milljóna króna í
nýju hlutafé. Þar af verði helming-
urinn notaður til að tryggja að nýtt
sameiginlegt fyrirtæki, sem á að
heita North Atlantic Lines, hafi
nægilegt rekstrarfé í upphafi.
Slakur árangur
Fyrr á þessu ári fóru viðræður
milli Smyril Line og Fjord Line um
samruna eða samvinnu út um þúfur
og var ástæðan sögð sú, að aðilar í
Færeyjum hefðu óttast að Norð-
menn yrðu ráðandi innan félagsins.
Þess í stað lögðu hluthafar í Fær-
eyjum og á Íslandi fram nýtt hlutafé
í Smyril Line. Rekstur félagsins
gekk illa á síðasta ári og þessu.
Stærstu hluthafarnir í Smyril
Line eru Framtaksgrunnur Føroya,
Tryggingarfelagid í Færeyjum og
Austfar á Íslandi, sem eiga samtals
62% hlut, Shetland Development
Trust á 20% og aðrir hluthafar sam-
tals 18%.
Smyril Line þarf nýtt hlutafé
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
EIGNARHALDSFÉLAGIÐ Lond-
on & Regional, sem er í eigu bresku
bræðranna Ian og Richard Liv-
ingstone, lýsti því formlega yfir fyr-
ir helgi að það hefði hætt viðræðum
við stjórn verslunarkeðjunnar Som-
erfield um hugsanlegt yfirtökutil-
boð. Er þá aðeins einn fyrirtækja-
hópur eftir í viðræðum við
Somerfield.
Búist var við að Livingstone-
bræður myndu draga sig í hlé eftir
að félagið United Co-operatives
sleit viðræðum við þá um að kaupa
500 af verslunum Somerfield ef
bræðurnir myndu hreppa verslun-
arkeðjuna. London & Regional
sendi frá sér yfirlýsingu í morgun
þar sem þetta var staðfest, en einn-
ig var tekið fram, að félagið áskildi
sér rétt til að leggja fram tilboð í
Somerfield ef annað tilboð kæmi
fram.
Ekki hættir við
Yfirtökuráð Bretlands hefur sett
tímafrest til 14. október fyrir hugs-
anlegt tilboð í Somerfield. Eini hóp-
urinn sem enn er í viðræðum um
kauptilboð er Apax Partners,
Barclays Capital og kaupsýslumað-
urinn Robert Tchenguiz. Baugur
Group var upphaflega í þessum hópi
en dró sig til baka eftir að ákærur á
hendur forsvarsmönnum Baugs
voru birtar á Íslandi í júlí. Vanga-
veltur voru um það í síðustu viku að
hópurinn myndi ekki leggja fram
tilboð en heimildarmenn Reuters-
fréttastofunnar sögðu í byrjun þess-
arar viku, að það væri ekki rétt.
Livingstone-bræðurnir
bjóða ekki í Somerfield
ÞETTA HELST ...
VIÐSKIPTI