Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 14
14 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Sveitir þjálfaðra björg-unarmanna, hjúkrunarfólk,leitarhundar og hvers kynsbirgðir neyðargagna voru send af stað í gær frá mörgum lönd- um til hamfarasvæðanna í Suður- Asíu þar sem tugþúsundir manna létu lífið í jarðhræringunum miklu á laugardag. Staðfest var í gær að samanlögð tala látinna í Pakistan, Indlandi og Afganistan væri komin yfir 20.000 og ljóst að hún myndi hækka. Langflestir hinna látnu voru frá pakistanska hluta Kasmír. Skjálftinn var 7,6 stig á Richter, sá mesti á svæðinu í eina öld og voru upptökin í Kasmír sem er við rætur Himalajafjalla. Í kjölfarið fylgdu margir eftirskjálftar, sumir harðir. Björgunarmenn og sjálfboðaliðar notuðu stórvirkar vinnuvélar eða berar hendurnar við að leita í húsa- rústum í von um að finna fólk á lífi. Shaukat Sultan, talsmaður Pervez Musharrafs Pakistansforseta, sagði að um væri að ræða „verstu nátt- úruhamfarir í sögu Pakistans“. Svo gæti farið að tala látinna færi yfir 30.000. Mörg þorp í Pakistanshluta Kasmírhéraðs hefðu þurrkast út og ekki hefði verið hægt að komast til margra svæða vegna þess að skriður hefðu fallið á vegi. Kona og barn fundust í gær á lífi undir braki tíu hæða húss sem hrundi í höfuðborg Pakistans, Islamabad. Konan, sem heitir Adil Inayat, segist hafa heyrt raddir og hróp alla nóttina. En aðstandendur annarra biðu milli vonar og ótta. „Móðir mín, faðir minn og yngri systir eru grafin einhvers staðar undir brakinu,“ sagði kaupsýslu- maðurinn Moonis Ahmed. Vitað er með vissu að 24 manns létu lífið í húsinu en óttast um tugi að auki. Sváfu undir berum himni Þriggja daga þjóðarsorg var lýst yfir í Pakistan í gær til að minnast fórnarlambanna. Talsmenn stjórn- valda óttast að allt 30.000 manns hafi farist, langflestir í pakistanska hluta Kasmír. Einnig dóu yfir 600 manns í Indlandi, aðallega í indverska hluta Kasmír og fjögur börn í Jalalabad í Afganistan. Vitað er að minnst 42.000 manns slösuðust í hamför- unum á svæðinu, margir illa. Sváfu undir berum himni Skjálftinn reið yfir klukkan 8:50 á laugardagsmorgun að staðartíma, um kl. 3:50 að íslenskum tíma. Yfir 20 eftirskjálftar, á bilinu 4,5 og 6,3 stig hafa riðið yfir síðan. Þúsundir manna í norðurhluta Pakistans höfð- ust við undir berum himni aðfara- nótt sunnudags, annaðhvort vegna þess að heimili þeirra voru hrunin eða af ótta við meiri hamfarir. Næt- urhiti fer niður undir frostmark víða á svæðinu um þetta leyti. Japan, Bandaríkin og Evrópu- sambandið voru meðal þeirra fyrstu sem buðust til að senda mannskap og fjárhagsaðstoð til Pakistana, Ind- verja og Afgana. Pakistan varð verst úti og hefur Musharraf forseti beðið alþjóðasamfélagið um aðstoð. Musharraf sagði mikla þörf á lyfjum, tjöldum og stórum flutningaþyrlum til að koma hjálpargögnum til af- skekktra byggða í norðurhluta landsins. „Við stöndum nú frammi fyrir mesta harmleik í sögu landsins,“ sagði Musharraf á laugardag. „Ég er þess fullviss að þjóðin mun ekki leggja árar í bát.“ Bandaríkjamenn munu að öllum líkindum senda á vettvang stórar Chinook-þyrlur sem nú eru staðsettar í Afganistan. Einn- ig verða sendar tvær flutningaflug- vélar með teppi, hlý tjöld og önnur hjálpargögn, sagði í yfirlýsingu frá bandaríska sendiráðinu í Islamabad í gær. Jafnvel Afganar leggja fram skerf Japanir hafa sent 50 manna björg- unarsveit til Pakistan, Bretar hafa einnig sent björgunarsveitir sem og fjárhagsaðstoð. Sveitir frá Banda- ríkjunum, Frakklandi, Tyrklandi, Grikklandi og Sviss voru einnig á leiðinni þangað í gær. Einnig hefur borist aðstoð frá Ástralíu, Abu Dhabi og Kína. Afganar, sem vart eru aflögufærir, sögðust samt ætla að aðstoða vini sína í Pakistan sem hefðu á sínum tíma hjálpað þeim gegn innrásarher sovétmanna. Ísr- aelar buðu Pakistönum einnig að- stoð enda þótt ekki sé stjórnmála- samband milli ríkjanna tveggja. Muzaffarabad „borg dauðans“ Helsta borgin í pakistanska hluta Kasmír, Muzaffarabad, hrundi að miklu leyti í jarðskjálftanum en hún er skammt frá markalínunni sem skiptir héraðinu. „Eyðileggingin er alger. Þetta er eins og borg dauð- ans,“ sagði Zulfiqar Ali, fréttamaður Reuters-fréttastofunnar, sem var í höfuðborginni Islamabad þegar skjálftinn reið yfir en tókst að kom- ast til heimaborgar sinnar, Muzaff- arabad, í Kasmír í gærmorgun. Hann sagði að flest hús í borginni hefðu hrunið en hún er höfuðstaður pakistanska hluta Kasmír. Innanríkisráðherra Pakistans, Aftab Sherpao, sagði að einvörð- ungu í Muzaffarabad hefðu um 11.000 manns dáið. Sjónvarpsstöðin Geo sagði að hersjúkrahús í bænum hefði eyðilagst og slasað fólk lægi í garði eins sjúkrahússins og biði að- stoðar lækna og hjúkrunarfólks. Víða á hamfarasvæðinu hrundu skól- ar og er óttast að fjöldi nemenda sé grafinn undir rústunum en kennsla var nýhafin. Skjálftinn olli einnig miklu mann- tjóni og skemmdum í indverska hluta Kasmír og er ljóst að minnst 600 manns dóu þar. Var talið líklegt að talan ætti eftir að hækka. Ind- verski herinn hefur skipulagt björg- unarstarfið þar en bæði í indverska og pakistanska hlutanum kvartaði fólk á hamfarasvæðunum yfir skorti á brýnustu nauðsynjum. Víða hafa vegir og brýr eyðilagst en einnig hefur slæmt veður tafið fyrir björg- unaraðgerðum. Manmohan Singh, forsætisráð- herra Indlands, hét Pakistönum að- stoð í gær og er talið að sambúð þjóðanna muni batna í kjölfarið. Fyrir nokkrum árum var óttast að til styrjaldar kæmi milli þessara tveggja kjarnorkuvelda, ekki síst vegna áratuga deilna um yfirráð í Kasmír. Samskiptin hafa hins vegar batnað mjög síðustu mánuði. Pakistanar segja að allt að 30.000 manns hafi dáið Mestu jarðskjálftar á svæðinu í heila öld – Fjöldi þjóða lofar aðstoð vegna hamfaranna á laugardagsmorgun – Þriggja daga þjóðarsorg lýst yfir í Pakistan Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is Reuters Björgunarmenn leita að líkum skólabarna í smáborginni Balakot í pakistanska hluta Kasmír í gær. Kennsla var nýhafin þegar jarðskjálftinn reið yfir á laugardag og hrundu grunnskólahúsin þrjú í Balakot yfir alla sem þar voru. Mörg hundruð börn fórust á svæðinu og heil þorp jöfnuðust við jörðu. Flestir hinna látnu á laugardag voru Pakistanar en einnig dóu hundruð manna í indverska hluta Kasmír og fjórir í Afganistan.               !    "   # $  %&'' '$ %&  &  ( ) &'*+      ,-*---  ''!  .'  % ) &/0&'  1& & *2' #' "   $% ! &'& # !03 . )$ # &%&'& * 4  !     & & $ '&*         &     '        " #$ %&&%# $"% ' %(% )*#$ & # %*  "%  +",  *$*(#$-."$ / # %* +  0  .  !%  1 .%*# "2( .) 2" %# %  " !)  " - "$" %3   ' ' 0 )#!)"          3  4%% %"%"/# ** /)." %"*!#  # $  "*!#3   " ."-."$/" ./*# %* +*! *! / */ ! + + " / Reuters Slasaður Pakistani fluttur á sjúkrahús í héraðinu Mansehra í gær en það er um 150 km norðan við Islamabad. Mikið manntjón varð í Mansehra. ’Musharraf sagði miklaþörf á lyfjum, tjöldum og stórum flutninga- þyrlum til að koma hjálpargögnum til af- skekktra byggða í norð- urhluta landsins.‘

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.