Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 15
ERLENT
Háskólabíói sunnudaginn 16. október
Hljómleikar hefjast kl. 20.00
Miðaverð kr. 6.900 - 5.900 - 4.900
Ath. Aðeins selt í sæti (númerað)
Miðasala á Esso:
Ártúnshöfða og Geirsgötu
www.midi.is
Einnig: anderson@visindi.is
&
kynnir
Söngvara YES
2005
ÍS
LA
N
D
S
P
R
E
N
T
Þetta var kvöld hinna hreinu tóna og tónlistar sem er
auðveld í hlustun. Stórkostleg rödd, stórkostleg sýning,
guðdómlegur Jon, guðdómleg kvöldstund. Takk, Jon.
Cengiz Varlik, Istanbul, Tyrklandi, 2. september.
Þessi sýning afhjúpar afraksturinn af andlegri þróun
Jons. Einfaldleiki, hreinn mannkærleikur, leit, tilfinning,
draumar og loks skilningur og kennsla, byggð á kærleika.
Þeir sem áttu von á háværri skrautsýningu hafa vafalaust
orðið fyrir vonbrigðum. Auk hinna stóru og eftirminn-
ilegu hápunkta á ferli Jons, svo sem „State Of Indepen-
dence“, „Change We Must“ or „The Revealing Science Of
God”, „And You And I“, „Yours Is No Disgrace“, hafði
ég sérstaka ánægju hinum svonefnda Búddasöng “This
Is“. Haltu áfram að láta þig dreyma, Jon. Við fylgjum þér.
Komdu sem fyrst aftur og segðu okkur og syngdu fyrir
okkur allar þessar dásamlegu sögur.
Peter, Búdapest, Ungverjalandi, 7. september
Hátt hlutfall Yes-söngvanna kom mér ánægjulega á
óvart. Jon er uppáhalds Yes-söngvarinn minn og ég geri
ráð fyrir að hann geri sér grein fyrir því að áhorfendur
hafi meiri áhuga á þeim hluta af söngvasafni hans. Hann
flutti minnisverðar útgáfur af „Your’s is no disgrace“,
„Wonderous Stories“, „And You and I“, „Soon“, „Your
Move“ og einnig „Owner of Lonely Heart“.
Simon Crown, Tel Aviv, Ísrael, 1. september.
6 dagar í tónleika
SPENNA fer nú vaxandi í Íhalds-
flokknum breska vegna væntanlegs
leiðtogakjörs en búist er við úrslitum
í því í byrjun desember, að sögn
fréttavefjar breska ríkisútvarpsins,
BBC. Síðustu vikurnar hefur einkum
verið rætt um þá David Davis og
Kenneth Clarke sem líklega leið-
toga. En eftir landsfund flokksins í
liðinni viku er þingmaðurinn David
Cameron talinn vænlegastur og hef-
ur aukið hratt fylgi sitt.
Skoðanakannanir sem birtar voru
um helgina sýndu vaxandi fylgi við
Cameron meðal almennings og fær
hann 13% stuðning í nýrri könnun
fyrir Politics Show, sama fylgi og
Davis. Clarke er enn efstur en fylgi
hans hefur hrapað úr 40% í 27%.
Könnun fyrir YouGov/Sunday Times
meðal 746 flokksbundinna íhalds-
manna gaf síðan Cameron fyrsta
sætið með 39%, Clarke fékk 26% og
Davis 14%. Davis er talinn öflugast-
ur í þingflokknum sem vinsar úr með
því að kjósa fyrst. Er síðan kosið í al-
mennum kosningum milli tveggja
efstu frambjóðenda í kosningu þing-
flokksins.
Cameron er mun yngri en helstu
keppinautarnir, aðeins 39 ára og er
fjölskyldumaður mikill. Hann er að-
altalsmaður flokksins í menntamál-
um á þingi og leggur áherslu á að
flokkurinn þurfi að endurnýja sig frá
grunni til að vinna aftur traust kjós-
enda. Ekki dugi að horfa stöðugt til
fortíðar heldur verði að takast á við
veruleika nútímans.
Í könnunum kemur fram að kjós-
endur finna það einkum að Cameron
að hann sé menntaður í yfirstéttar-
skólanum Eton, síðar lauk hann
prófum í heimspeki og hagfræði í
Oxford. Hann þykir koma vel fyrir,
er myndarlegur á velli og sýndi þá
hreinskilni að neita ekki þegar hann
var spurður hvort hann hefði ein-
hvern tíma reykt hass á háskólaár-
um sínum. „Ég gerði margt sem ég
hefði ekki átt að gera áður en ég hóf
þátttöku í stjórnmálum,“ svaraði
hann. Sumir fréttaskýrendur segja
að Cameron sé væntanlegur Tony
Blair íhaldsmanna sem muni koma
þeim aftur til valda með nýrri ímynd
og áherslum.
Cameron talinn líklegur sigurvegari
Reuters
David Cameron, 39 ára þingmaður,
flytur ræðu sína á landsfundi
Íhaldsflokksins í Blackpool.
FJÓRIR Bretar særðust þegar
sjálfsmorðsárás var gerð á þá ná-
lægt borginni Kandahar í suður-
hluta Afganistans í gær. Bretarnir
voru á ferð í brynvörðum bíl þegar
árásarmaðurinn kom í öðrum bíl,
hlöðnum sprengiefni, og sprengdi
hann. Talsmaður breska utanríkis-
ráðuneytisins sagði að tveir Bret-
anna hefðu særst alvarlega en hinir
tveir minna. Þeir unnu allir fyrir ör-
yggisþjónustuna ArmorGroup.
Fuglaflensa í
Rúmeníu og
Tyrklandi
STJÓRNVÖLD í Búlgaríu hertu í
gær eftirlit með veiðum á farfuglum
eftir að skýrt var frá fuglaflensu-
tilfellum í grannlöndunum Rúmeníu
og Tyrklandi. Gripið var til ýmissa
annarra ráðstafana og íhugað var
að banna innflutning á alifuglum frá
Rúmeníu. Ekki er enn vitað hvort
um er að ræða sama afbrigði og bor-
ist hefur í menn í Asíu.
Innflytjendum
bjargað
STJÓRNVÖLD í Marokkó hafa látið
flytja á brott hundruð Afríkumanna
frá Kamerún, Kongó, Senegal, Malí,
Burkina Faso og fleiri ríkjum sem
hírðust á afskekktu eyðimerkur-
svæði án matar og vatns eftir að
þeim hafði verið vísað frá spænsk-
um borgum á strönd Norður-Afríku.
Hafa Marokkómenn verið sakaðir
um að brjóta reglur mannúðarinnar
og veita fólkinu enga aðstoð. Ráða-
menn Sameinuðu þjóðanna lýstu
áhyggjum sínum af málinu á laug-
ardag. Sendiherra Senegals í Mar-
okkó, Ibou Ddiaye, sagðist í gær
hafa hitt fólkið og vonaðist hann til
að landar hans í hópnum yrðu
komnir heim þegar í gær.
Skýrsla um
gereyðingarvopn
BRESKA dagblaðið The Guardian
segir að leyniþjónustan, MI-5, hafi
gert skýrslu um yfir 350 aðila í Asíu,
Miðausturlöndum og Evrópu sem
átt hafi viðskipti með búnað og
tækni til að nota í gereyðingarvopn.
Um er að ræða einkafyrirtæki, há-
skóla og ýmsar ríkisstofnanir í átta
ríkjum, þ. á m. sendiráð Pakistans í
London. Guardian segir að skýrslan
hafi verið gerð til að hindra að bresk
fyrirtæki seldu óvart viðkvæma
þekkingu eða varning til aðila sem
kæmu að gerð gereyðingarvopna.
Óvenjulegt
einvígi
LJÓST þykir að óvenjulegt einvígi
hafi farið fram í Everglades-
fenjunum Flórída fyrir skömmu, að
sögn Jyllandsposten. Hræ tveggja
dýra, annars vegar kyrkislöngu frá
Búrma og hins vegar krókódíls,
fundust og er ljóst að slangan hafði
reynt að gleypa krókódílinn. Hann
mældist 1,8 metrar að lengd en
slangan 3,9 metrar. Talið er að
krókódíllinn hafi bitið hraustlega
þegar hausinn var kominn í maga
slöngunnar og hún því drepist þegar
hún var næstum búin að innbyrða
fenginn. Kyrkislöngur lifa almennt
ekki í Flórída og er talið að slangan
hafi upprunalega verið gæludýr sem
eigandanum hafi fundist orðið of
stórt og því losað sig við það í fenj-
unum.
Sjálfsmorðsárás
í Afganistan
Reuters
Aligæsir á búgarði í Rúmeníu.