Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 24

Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 24
24 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. Mikið hefur verið fjallaðum lyfjamál á Íslandi ífréttum undanfarið. Íþessari grein er ætlunin að varpa ljósi á þá stöðu sem uppi er á íslenskum lyfjamarkaði og hvaða hættur eru henni samfara. Skráningar og verð Lyfjainnflutningur er sá innflutn- ingur sem er hvað mestum skil- yrðum háður. Áður en nýtt lyf, „frumlyf“, kemur á markað er jafn- vel áratuga rannsóknarferli að baki og margra ára skráningarferli, en í skráningarferli ganga upplýsingar milli frumlyfjaframleiðandans, evr- ópskra lyfjayfirvalda og íslenskra lyfjayfirvalda. Íslenskir umboðs- menn frumlyfjafyrirtækjanna koma að þessu ferli með þýðingum gagna og samskiptum við erlendu fyr- irtækin og íslensk lyfjayfirvöld. Við lok skráningarferilsins eru lögð fram endanleg umbúðasýnishorn, með ís- lensku markaðsleyfisnúmeri og við- vörunum á íslensku auk fylgiseðils á íslensku. Þá sækir umboðsmaður um verð og greiðsluþátttöku. Verðið hér á landi miðast við meðalverð í Dan- mörku Svíþjóð og Noregi og er ein- ungis 15% frávik frá meðalverði heimilt fyrir lyf sem seljast fyrir inn- an við 3,5 milljónir króna á árs- grundvelli, fyrir önnur lyf er leyfi- legt frávik 1-6% eftir því fyrir hvaða upphæð lyfið selst á ársgrundvelli. Í september á næsta ári er ætlunin að þetta heimilaða frávik verði afnumið þannig að verð á Íslandi miðist eftir það við meðalverð í viðmiðunarlönd- unum. Af þessu leiðir að í dag er verð lyfja á íslenskum markaði oft lægra en í Danmörku og Svíþjóð, þar sem Noregur er oftar en ekki með lægsta skráða verðið. Þess ber að geta að það er lyfjagreiðslunefnd, sem ákvarðar verð lyfja á Íslandi. Eftir að lyf hefur verið skráð er samskiptum við lyfjayfirvöld ekki lokið, þá þarf að þýða og sækja um allar „tegundabreytingar“ fyrir skráðu lyfin, slíkar breytingar eiga sér stöðugt stað og varða fram- leiðsluferil lyfs, tæki, efni og aðferðir sem notaðar eru við framleiðslu, ým- ist hjá framleiðanda sjálfum eða framleiðanda hjálparefna sem notuð eru í framleiðslunni. Einnig hefur þurft að endurskrá lyfin á fimm ára fresti. Fyrir skráningar, teg- undabreytingar og endurskráningar innheimtir Lyfjastofnun ákveðin gjöld auk þess sem innheimt er ár- gjald af öllum skráðum lyfjum. Sá kostnaður nemur að jafnaði hundr- uðum þúsunda króna fyrir hvert skráð lyf og er þá ótalinn kostnaður vegna vinnu starfsfólks í skráning- ardeildum umboðsmanna og erlendu fyrirtækjanna. Það er því ljóst að mjög kostnaðarsamt er að halda frumlyfi á skrá og hafa ber í huga að nokkuð stór hluti þeirra lyfja sem skráður er hér á landi er sjaldan og jafn- vel aldrei notaður. Í þessu sambandi er rétt að hafa í huga að um 2600 lyf eru skráð á Íslandi frá um 130 framleiðendum. Samhliða innflutningur Það er ljóst að miklar skyldur eru á herðum frumlyfjafyrirtækja og umboðsmanna þeirra. Þessum skyldum fylgir rétturinn til að selja lyf á markaðinum, en eins og markaðurinn er byggður upp virðist sá réttur ekki aðeins ná til frumlyfja- fyrirtækjanna og um- boðsmanna þeirra heldur til allra annarra sem hugsanlega geta komist yfir lyf og hafa leyfi yf- irvalda til innflutnings þeirra. Ef lyf er á annað borð skráð mega þeir sem hafa leyfi til lyfjainn- flutnings flytja lyf inn t.d. frá Noregi í sam- norrænum pakkningum án nokkurra frekari skráninga. Þetta á til dæmis við um okkar fyrrverandi þriðja söluhæsta lyf hjá Austurbakka hf. Viðkomandi innflutningsaðili bauð 3% afslátt frá okkar skráða verði í útboði LSH og fékk samning um lyf- ið við spítalann sem er eini kaupandi lyfsins. Austurbakki hf. heldur enn um skráningar á lyfinu, tegunda- breytingar, aukaverkanatilkynn- ingar, svarar fyrirspurnum og í raun situr uppi með allan kostna skyldur af lyfinu, meðan ósk aðili selur það og hefur gert an í júlí sl. Samkvæmt þeim upplýsi sem við höfum á þó að taka þessa tegund innflutnings n ember, en þá verða samhlið flytjendur að sækja um sam skráningar fyrir þau lyf sem hyggjast flytja inn fram hjá mönnum. Samhliða skránin einu og öllu í skráningar fru framleiðan birtast orðr Sérlyfjaskr sem mun m vinna er fyr yfirvöld að svona samh skráningu e lægra gjald heimt fyrir (30% af skr frumlyfs), þ því allt mun ferli fyrir in anda samhl fluttra lyfja boðsmann frumlyfjafr anda. Það sem menn frum framleiðen jafnframt b að einungis hæstu lyfin um talið) er inn með þe hætti, enda upp úr öðru að hafa. Þv umboðsme lyfjafyrirtæ með eldri ly standa eng undir sér au að bera kos af viðhaldi skráninga af þeim sem samhliða innflytjendur inn. Auk þessa eru það oft e söluhæstu pakkningastærð fluttar eru inn samhliða og flytjendur samhliða innflutt því ekki sömu ábyrgð hvað hald varðar, enda alltaf hæg benda á umboðsmann frum irtækisins ef skortur er á ly samhliða innflytjandanum. Í þessu sambandi er rétt Staða lyfjamála á Ísla Eftir Margréti Guðmundsdóttur ’Aðilar á þess-um markaði verða jafnframt að tileinka sér annað samtals- form en ásak- anir og upp- hlaup í fjölmiðl- um sem oft er ómögulegt að svara.‘ Margrét Guðmundsdóttir ER EVRAN TÖFRALAUSNIN? Fyrir fjórum til fimm árum, þegarmiklar sveiflur voru í gengi krónunnar, verðbólga var há og vextir sömuleiðis, urðu ýmsir til að leggja til að Ísland tæki upp evruna til að leysa þann vanda. Þá töluðu ýmsir menn í atvinnulífinu og sumir stjórnmálamenn eins og það væri skyndilausn í efnahagsmálum. Sá málflutningur var að verulegu leyti byggður á vanþekkingu og lognaðist út af á sínum tíma. Nú hefur hann hins vegar skotið upp kollinum aftur í máli Ingibjargar Sólrúnar Gísla- dóttur, formanns Samfylkingarinn- ar. Í utandagskrárumræðum um stefnuræðu forsætisráðherra talaði formaður Samfylkingarinnar um að Íslendingar ættu aðeins tvo kosti í efnahagsmálum; að halda sig við verðbólgumarkmið Seðlabankans eða taka upp nýjan gjaldmiðil. Í ræðu á fundi Samfylkingarinnar sl. laugardag talaði Ingibjörg Sólrún um að sjálfstæður gjaldmiðill ylli sveiflum hér á landi og væri bæði viðskiptahindrun og fæli í sér vel- ferðartap. Í þessum ræðum sínum nefndi Ingibjörg Sólrún ekki það augljósa; að til þess að geta tekið upp evruna verður Ísland að ganga í Evrópu- sambandið. Hún viðurkenndi það hins vegar í samtali við fréttamann Ríkisútvarpsins um helgina að ESB- aðild væri forsendan fyrir upptöku evrunnar. Þar með er auðvitað ljóst að evran verður ekki gjaldmiðill á Ís- landi næstu árin. Jafnvel þótt ákveð- ið yrði á morgun að sækja um aðild að Evrópusambandinu, þyrfti að breyta stjórnarskránni, fara í gegn- um aðildarviðræður og taka tillit til þeirra erfiðu álitamála, sem þar kæmu upp, áður en hægt væri að byrja að vinna að því að taka upp evruna. Það ferli tekur nokkur ár. Annað, sem formaður Samfylking- arinnar virðist horfa framhjá, þegar hún talar um upptöku evrunnar sem einhverja lausn í efnahagsmálum Ís- lendinga, er að til þess að fá aðild að Efnahags- og myntbandalagi Evr- ópu þurfa ESB-ríki að uppfylla til- tekin skilyrði um skuldir hins opin- bera, jafnvægi í ríkisfjármálum, vexti og verðbólgu. Fyrrnefndu tvö skilyrðin uppfyllir Ísland reyndar með ágætum, en við núverandi að- stæður eru bæði vextir og verðbólga hér hærri en svo, að til EMU-aðildar geti komið. Ísland þyrfti þannig að ná tökum bæði á vöxtunum og verð- bólgunni áður en upptaka evrunnar kæmi til greina. Sama á við um gengi krónunnar. Því þyrfti að halda stöð- ugu gagnvart evrunni í tvö ár eftir að Ísland hefði fengið aðild að Evrópu- sambandinu, áður en það kæmi til álita að evran yrði lögeyrir á Íslandi. Í stuttu máli: Evran er engin lausn á þeim vandamálum, sem eru í ís- lenzku efnahagslífi. Fyrst þarf að tryggja stöðugleikann í efnahags- málum, m.a. með því að ná niður verðbólgu og vöxtum og halda geng- inu í jafnvægi. Og það er auðvitað ár- angur, sem þarf að nást, alveg burt- séð frá því hvort Ísland hefur áhuga á aðild að Evrópusambandinu og upptöku evrunnar eða ekki. Aðild að stærri gjaldmiðli gætu vissulega fylgt ýmsir kostir fyrir Ís- land. En evrunni myndu líka fylgja verulegir ókostir, ekki sízt vegna ólíkrar hagsveiflu á Íslandi og í kjarnaríkjum Evrópusambandsins. Írar, sem hafa tekið upp evruna, en búa við uppsveiflu í efnahagsmálum, kvarta nú sáran undan vaxtastefnu Seðlabanka Evrópu, sem miðast ekki sízt við að reyna að hvetja slappt atvinnulíf í Þýzkalandi og Frakklandi en gerir ekkert til að slá á þensluna á Írlandi. Myndi lág- vaxtastefna Seðlabanka Evrópu til dæmis henta íslenzku efnahagslífi við núverandi skilyrði? Allt ber þetta að sama brunni. Rétt eins og fyrir hálfum áratug eru þeir, sem tala um að upptaka evr- unnar sé einn af „kostunum“ við nú- verandi aðstæður í íslenzku efna- hagslífi, fyrst og fremst að slá um sig með innantómum frösum. NEYÐARKALL FRÁ PAKISTAN Ástandið á jarðskjálftasvæðun-um í Pakistan, Afganistan ogIndlandi er hrikalegt. Lang- mest er manntjónið og eyðileggingin í Pakistan. Þar er nú talið að 19 þús- und manns hafi látið lífið og óttast að mun fleiri gætu hafa farist. Mikið tjón hefur orðið á afskekktum svæð- um. Vegir hafa víða eyðilagst og hef- ur pakistanski herinn ekki bolmagn til að færa nauðstöddum íbúum hjálp flugleiðis. Talið er að þetta sé mesti jarðskjálfti, sem þarna hefur orðið í heila öld. Pervez Musharraf, forseti Pakist- ans, hefur sagt að stjórnvöld ráði ekki við ástandið og beðið alþjóða- samfélagið um hjálp. Nú ríður mikið á að sú hjálp berist. Annars vegar þarf að leggja áherslu á bráðahjálp. Tugir þúsunda manna þurfa á lækn- ishjálp að halda. Heimilislausir þurfa tjöld, teppi, mat og lyf. Ef ekki verður brugðist fljótt við gæti það kostað enn fleiri mannslíf. Ekki má hins vegar gleyma að líta til lengri tíma. Oft vill gleymast að það er ekki nóg að veita hjálp í viðlögum, það þarf einnig að byggja upp á ný inn- viði í samfélagi, sem verður fyrir slíkum hamförum og eyðileggingu. Eins og sakir standa hyggjast Pakistanar ekki þiggja beina aðstoð frá ríkjum, sem ekki eru í beinu stjórnmálasambandi við þá. Íslend- ingar geta hins vegar lagt sitt af mörkum með því að senda aðstoð og kemur þar bæði til kasta stjórnvalda og almennings að svara neyðarkall- inu frá Pakistan. SIGRÚN Björk Jakobsdóttir, bæjarfulltrúi á Akueyri og starfsnefndar um sameiningu sveitarfélaga í Eyjafirði, g Oddeyrarskóla ásamt eiginmanni sínum Jóni Björnssyn Sameining á Eyjafjarðarsvæðinu var kolfelld, t.d. me kvæða í Grýtubakkahreppi, að því undanskildu að meiri Ólafsfirðinga var hlynntur sameiningu við nágranna sín Ég hefði auðvitað viljað sjá meiri ár-angur af þessu ágæta starfi, það erljóst að það voru skiptar skoðanir um þessar tillögur en hins vegar höfum við ákveðið hér á Íslandi að fara þessa lýðræð- islegu leið,“ segir Vil- hjálmur Þ. Vilhjálms- son, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga um nið- urstöðu kosninganna. Hann bendir á að í Danmörku og Svíþjóð sé sameining ákveðin með lagaboði. Þrátt fyrir niður- stöður kosninganna býst Vilhjálmur við því að sameining sveitarfélaga muni halda áfram, líkt og gerðist í kjölfar kosninganna 1993. „Síðan í framhaldinu hófust viðræður milli ákveðinna sveitarfélaga um samein- ingu, á þeirra forsendum að sjálfsögðu. Frá 1990 til dagsins í dag og með þessari nið- urstöðu sem fékkst í gær [fyrradag] hefur sveitarfélögum fækkað úr 204 í 89, sem verður að teljast allgóður árangur,“ segir Villhjámur sem gerir ráð fyrir því að við- ræður milli sveitarfélaga haldi áfram á næstu árum. Sá árangur sem náðst hafi frá 1990 sýni vel að sameining sveitarfélaga hafi gefist vel. „Ég tel að þessi niðurstaða útiloki ekki að sveitarfélög taki við fleiri verkefnum í framtíðinni.“ Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson „Hefði viljað sjá meiri árangur“ Viðbrögð við úrslitum sameiningarkosninga s Sameiningin kolfelld í E

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.