Morgunblaðið - 10.10.2005, Page 26

Morgunblaðið - 10.10.2005, Page 26
26 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN STÖÐNUN hefur einkennt sam- göngumál höfuðborgarinnar á valdaskeiði vinstri stjórnarinnar í Reykjavík. Engan þarf að undra á því. Yfirlýst stefna hennar er reist á þeirri forsjárhyggju að vilja breyta ferðavenjum borgaranna. Ætlunin er að þvinga fram þétt- ingu byggðar í blóra við vilja íbú- anna til að gera strætisvagna hag- kvæmari. Þetta minnir á skipulags- stefnu Jósefs, gamla, Kremlarbónda. Ís- lendingar kjósa hins vegar að sjá margt annað en vegg ná- grannans, þegar horft er út um gluggann. Þeir vilja nýta sér landrýmið hérlendis, sem er einn af mörgum kost- um þess að búa á Ís- landi. Á tyllidögum hreyktu forkólfar R-listans sér gjarna af því að vilja gera Reykjavík samkeppn- ishæfari við erlendar borgir. Efndir þess hafa þó engar orðið. R-listinn hefur valdið hagsmunum Reykja- víkur og landsins alls stórtjóni með því að efna til ófriðar um flugvöllinn í Vatns- mýrinni. Nú ætla umræðu- stjórnmálamenn að bruðla með fé borg- arbúa í alþjóðlega samkeppni um skipulag Vatnsmýr- arinnar áður en ríki og borg hafa lokið hagkvæmni- könnun á valkostum um nýtingu svæðisins. Reykjavíkurflugvöllur er nauðsynlegur Það er deginum ljósara, að eng- inn annar staður á höfuðborg- arsvæðinu kemur til greina fyrir þá flugstarfsemi, sem nú fer fram í Vatnsmýrinni. Þetta stafar af byggðarþróun og veðurfari. Verði Vatnsmýrarvöllurinn lagður af, munu leifar starfseminnar verða fluttar til Keflavíkurflugvallar. Sú starfsemi verður hins vegar ekki nema svipur hjá sjón, því að rútu- ferðir munu lengja ferðatímann yfir þolmörk flestra, og þeir breyta ferðaháttum sínum. Grózkumikil starfsemi flugrek- enda í kennslu, útsýnisflugi og viðskiptaferðum er háð nálægðinni við borgina. Hið sama á við um fjölmargar borgir erlendis, þar sem flugvöllur er í innan við 20 km fjarlægð frá miðborg og í all- mörgum tilvikum innan við 10 km fjarlægð. Afnám flugvallarins í Vatnsmýri mundi klárlega veikja samkeppnisstöðu Reykjavík- urborgar. Ekki má gleyma aðstöð- unni, sem Landhelgisgæzlan hefur í Vatnsmýri. Viðbragðstími bak- vakta hlyti að lengjast með útgerð frá Keflavík. Um 200 lendingar sjúkraflugs eru á Reykjavík- urflugvelli á hverju ári og má telja líklegt, að þeim fjölgi. Nágrennið við Landspítala – háskólasjúkra- hús er ómetanlegt og með ein- dæmum, að nokkrum detti í hug að fórna því. Hver er sá stjórn- málamaður, sem að vel athuguðu máli styður ákvörðun um að draga úr batahorfum sjúkra og slasaðra, sem koma langan veg með flugi? Að leggja niður Reykjavík- urflugvöll sem varavöll Keflavík- urvallar dregur úr nytjalest- unargetu flugvéla til landsins, því að þær þurfa þá meiri birgðir eldsneytis. Þetta mun gera flugið dýrara og er nóg samt. Vatnsmýrin og miðborgin Því er haldið fram, að nýtt líf hlypi í miðborgina með íbúða- byggð í Vatnsmýri. Hér skal dreg- ið í efa, að íbúar þar mundu sækja þjónustu miðborgar í meira mæli en aðrir, því að verzlunarmiðstöð hlyti að rísa í hinu nýja hverfi, sem er skorið frá mið- borg af nýrri Hring- braut. Þétt byggð út- heimtir þurrkun lands. Ekki þarf þá að sök- um að spyrja um af- drif fuglalífsins, sem eftir er, og Tjörnin, djásn Reykjavíkur, yrði í uppnámi. Rökin um, að eigendur landsins, borgin og ríkið, gætu grætt stórfé með lóðabraski í Vatnsmýri, eru óboð- leg. Hið opinbera á ekki að standa í slíku. Sveitarfélög eiga að hafa manndóm í sér til að anna lóðaeftirspurn og selja lóðir á verði, sem stendur undir kostnaði. Framtíðarsýn fyrir Vatnsmýri Tvær 1.200 m flug- brautir, hugsanlega með lengingu S-braut- ar og V-brautar í sjó fram. Samgöngu- miðstöð með flugstöð, rútumiðstöð og stræt- isvagnamiðstöð. Hringtenging Hlíð- arfótar til að tryggja greiða umferð að sam- göngumiðstöð. Vegaumbætur miði að því að auðvelda umferð við samgöngumiðstöð. Mislæg gatna- mót Miklubrautar og Kringlumýr- arbrautar greiði fyrir umferð af fyrirhugaðri Sundabraut og inn á eystri arm Hlíðarfótar. Í Vatns- mýrinni verða þekkingarmið- stöðvar landsins með tvo háskóla í broddi fylkingar og aðalsjúkrahús landsins auk rannsóknarstofnana. Hlúð yrði loks sómasamlega að flugrekstri, flugkennslu og flug- virkjun, eins og við hæfi er miðað við mikilvægi flugs í lestarlausu landi. Hér skal fullyrða, að gangi þessar hugleiðingar eftir, verður þessi starfsemi, með öllum þeim ferðamannastraumi, sem hún laðar að, miðborginni til mun meiri framdráttar en íbúðabyggð í Vatnsmýrinni er líkleg til. Reykjavíkurflugvöllur er meðal stærstu vinnustaða í Reykjavík, og honum mun enn vaxa fiskur um hrygg með bættri aðstöðu fyrir ferðamenn og bættum aðbúnaði starfsfólks. Það má ætla, að árleg fjármunavelta af flugvall- arstarfseminni, bein og óbein, nemi um 10 milljörðum króna. Í staðinn fyrir flugvöllinn kæmu engar tekjur, sem ekki gætu kom- ið hvort eð er frá lóðaúthlutunum og íbúðabyggð annars staðar í borgarlandinu. Niðurlag Gagnrýni á flugvöllinn var upp- haflega öryggislegs eðlis. Þegar sýnt var fram á, að meiri slysa- líkur væru á vegunum, færðist gagnrýnin í skipulagslegan farveg. Í þessari grein hafa hins vegar verið leidd rök að því, að Vatns- mýrarlandið verður ekki betur nýtt en undir flugvöll. Samgöngur við höfuðborgar- svæðið Bjarni Jónsson fjallar um Reykjavíkurflugvöll Bjarni Jónsson ’Gagnrýni áflugvöllinn var upphaflega öryggislegs eðl- is. Þegar sýnt var fram á, að meiri slysalíkur væru á veg- unum, færðist gagnrýnin í skipulagslegan farveg.‘ Höfundur er verkfræðingur. F-LISTINN í borgarstjórn hefur algjöra sérstöðu í flugvallarmálinu, því hann er eina stjórnmálaaflið í borgarstjórn sem telur að ekki komi til greina að flytja Reykjavíkurflugvöll til Keflavíkur. Allir á móti einum Á borgarstjórn- arfundi 20. september sl. greiddu allir flokkar atkvæði gegn tillögu Ólafs F. Magnússonar, borgarfulltrúa F-list- ans, um að borg- arstjórn tryggði áfram- hald innanlands-, sjúkra- og öryggisflugs á höfuðborgarsvæðinu og að ekki kæmi til greina að flytja Reykjavíkurflugvöll til Keflavíkur. Þar höfum við það. Allir flokkar í borgarstjórn kolfelldu þetta með öll- um greiddum atkvæðum gegn at- kvæði Ólafs F. Magnússonar. Sjálf- stæðismenn hafa til þessa látið sem þeir væru fylgjandi flugvelli á höf- uðborgarsvæðinu, en þarna greiddu þeir allir atkvæði gegn því að tryggt væri að flugvöllurinn yrði áfram á höfuðborgarsvæðinu. Ótímabær hugmyndasamkeppni Ofan í kaupið samþykkti R-listinn að hrinda af stað hugmynda- samkeppni um uppbyggingu Vatns- mýrarinnar þrátt fyrir að ekki hafi verið samið við ríkið um brotthvarf flugvallarins. Sú hug- myndasamkeppni kost- ar borgarbúa heilar 100 milljónir og snýst um að fá tillögur um uppbygg- ingu svæðis sem menn vita ekki hvernig líta muni út. Í þeirri samkeppni á að miða við að flugvöll- urinn verði ekki í Vatns- mýri – þó svo meirihlut- inn hafi búið svo um hnútana að hann verði þar til ársins 2024! Flugvöllur allrar þjóðarinnar Við höfum bent á það að þetta er flugvöllur allrar þjóðarinnar og fólk hvaðanæva af landinu á rétt á greið- um aðgangi að höfuðborg sinni sem miðstöð stjórnsýslu, verslunar og mikilvægra sjúkrastofnana. Ef nátt- úruhamfarir yrðu eða önnur vá steðj- ar að, þá er einnig brýnt að hægt sé að bregðast skjótt við. Reykjavík- urflugvöllur er ein mikilvægasta sam- gönguæðin milli höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar og afar mikilvægt að ferðatími og vegalengdir aukist ekki frá því sem nú er með hugs- anlegri færslu flugvallarins til Kefla- víkur. Hins vegar telur F-listinn nauð- synlegt að kannað verði til hlítar hvort mögulegt sé að færa flugvöllinn til innan höfuðborgarsvæðisins, ef það mætti vera til að rýma fyrir blómlegri byggð á einu dýrmætasta byggingarsvæði borgarinnar. En á meðan sú lausn er ekki fundin þarf að gera ráð fyrir flugvellinum í Vatns- mýrinni í breyttri mynd. F-listinn vill flugvöll á höfuðborgarsvæðinu Margrét Sverrisdóttir fjallar um staðsetningu Reykjavík- urflugvallar ’Reykjavíkurflugvöllurer ein mikilvægasta samgönguæðin milli höfuðborgarinnar og landsbyggðarinnar …‘ Margrét Sverrisdóttir Höfundur er varaborgarfulltrúi F-listans. ENN Á ný er gerð atlaga að sam- göngu- og öryggismannvirkinu Reykjavíkurflugvelli, múgsefjun og vinsældakosningar eru að ná há- marki. Ýmislegt er látið flakka í hita leiksins, talað er um flugvöllinn sem hern- aðarmannvirki, flugið sé stórhættulegt, inn- rás herþotna á mið- borg Reykjavíkur, hljóðkútslausar einka- og kennsluvélar eru að æra óstöðugan, bygg- ingarlandið í Vatns- mýrinni er næstum það dýrasta í heimi o.s.frv. Í Vatnsmýrinni og á Reykjavíkurflugvelli hefur vagga flugs á Ís- landi verið. Í Vatnsmýrinni 3. sept- ember árið 1919 hóf fyrsta flugvél sem flaug á Íslandi sig til lofts og þar hefur flugstarfsemi verið nær óslitið síðan. Í heimsstyrjöldinni síðari byggðu Bretar fullkominn flugvöll í Vatns- mýrinni, ígildi alþjóðaflugvallar á þeirra tíma mælikvarða og færðu Ís- lendingum að gjöf að styrjöld lok- inni. Í framhaldinu hófst mikið æv- intýri sem enn sér ekki fyrir endann á. Millilandaflug Íslendinga hófst á þessum árum frá Reykjavík- urflugvelli, innanlands- og sjúkra- flug hófst til nýrra hæða og svona mætti lengi telja. En flugvöllurinn drabbaðist niður í höndum Íslend- inga, viðhaldi var lítið sem ekkert sinnt og byggingar urðu úr sér gengnar. Og það var ekki fyrr en í tíð núverandi samgönguráðherra að flugvöllurinn var endurnýjaður og varð að því glæsilega og örugga mannvirki sem hann er orðinn, og enn á að gera betur því samgöngu- miðstöð verður reist við flugvöllinn, þannig að bylting verður á aðbúnaði og umgjörð innanlandsflugsins. Byggt hefur verið að flugvellinum á síðari árum og er það nánast nátt- úrulögmál þegar um flugvelli er að ræða, þó að flugvellir hafi verið sett- ir niður langt utan byggðar líður ekki á löngu þar til byggt hefur verið upp að þeim og allt í kring og krafan um flutning þeirra byrjar. En þó eru til undantekningar á þessu þar sem nýir flugvellir hafa verið byggðir inn í miðri byggð og við miðborgir og má þar m.a. nefna London City Airport o.fl. Hraði nútímans krefst þess að samgöngur skuli vera greiðar og taka sem stystan tíma. En þá kem ég að því sem er stærsta og alvarlegasta málið við að flytja flug- starfsemina til Kefla- víkur og það er sjúkra- og björgunarflugið og öryggishlutverk Reykjavíkurflugvallar. Það er algjörlega óvið- unandi að flogið yrði með sjúklinga til Kefla- víkurflugvallar og þeim síðan ekið eftir Reykja- nesbrautinni til Reykjavíkur. Lífs- hættulega slasað eða veikt fólk þarf að kom- ast inn á bráðamóttöku- og gjör- gæslusjúkrahús á sem allra skemmstum tíma, oft er rætt um hina gullnu klukkustund í flutningi slasaðra og veikra „The Golden Hour“ þar sem lífslíkur fólks minnka verulega þegar komið er fram yfir þann tíma í flutningi. Mið- að við þá lengingu í tíma sem flutn- ingur slasaðra og sjúkra mun taka má búast við að einhver mannslíf muni tapast. Við það má svo bæta fjölgun slysa sem búast má við með aukinni umferð fólks á þjóðvegum landsins við það að flytja innan- landsflugið til Keflavíkur, þar má einnig búast við að mannslíf fari for- görðum. Nefnt hefur verið til að réttlæta flutninginn að þyrlur muni sjá um sjúkraflugið. Sjúkraflug með þyrlum er aðeins lítill hluti af því sjúkraflugi sem flogið er á Íslandi. Flugvélar fljúga að jafnaði helmingi hraðar en þyrlur og geta flogið mun hærra og geta þar af leiðandi farið stystu leið á milli staða. Fyrir utan að fljúga helmingi hægar þurfa þyrlurnar iðu- lega að fara með ströndum og þar af leiðandi lengri leið til að komast á slysstað og til baka. Þá má benda á að við lokun Reykjavíkurflugvallar legðist blind- aðflug til Reykjavíkur af þannig að suma daga væri jafnvel þyrlum ófært að komast til Reykjavíkur vegna þoku eða illviðra og slæms skyggnis. Til að réttlæta flutning á sjúkraflugi til Keflavíkurflugvallar yrði í mínum huga að byggja bráða- og gjörgæslusjúkrahús í námunda við flugvöllinn sem þjóna myndi landsmönnum utan Reykjavíkur, hann mætti þá nefna Landspítali og spítalinn í Reykjavík tæki þá aftur upp nafnið Borgarspítali. Hinn möguleikinn í stöðunni, til að höggva á þann hnút sem upp er kominn í Reykjavík, er sá að ríkið taki þann hluta lands undir Reykja- víkurflugvelli sem er í eigu Reykja- víkurborgar eignarnámi og greiði fyrir sanngjarnt verð. Líta má á að meiri hagsmunir, almanna- og ör- yggishagsmunir allra landsmanna krefjist þess. Reykjavíkurflugvöllur er samgöngu- og öryggismannvirki nokkurs konar þjóðvegur að og frá höfuðborginni, ekki eingöngu fyrir landsbyggðarfólk heldur líka fyrir Reykvíkinga á faraldsfæti, sumir þessara Reykvíkinga lenda í slysum og hafa verið fluttir til Reykjavíkur í sjúkraflugi hvort sem er með flug- vélum eða þyrlum. Sennilega myndu fáir verða ánægðari en ég fæddur og uppalinn á Suðurnesjunum að geta flutt þang- að aftur, en eigingirni og eiginhags- munir mega ekki ráða för, þetta á við mig sem og höfuðborgarbúa alla, almanna- og öryggishagsmuni verð- ur að hafa að leiðarljósi til að fá lausn og ná lendingu í þessu máli, það er ekkert það byggingarland svo verðmætt að kosta megi mannslífum fyrir það. Mannfórnir fyrir Reykjavíkurflugvöll Jakob Ólafsson fjallar um Reykjavíkurflugvöll ’Þá má benda á að viðlokun Reykjavíkurflug- vallar legðist blind- aðflug til Reykjavíkur af þannig að suma daga væri jafnvel þyrlum ófært að komast til Reykjavíkur vegna þoku eða illviðra og slæms skyggnis.‘ Jakob Ólafsson Höfundur er þyrluflugstjóri hjá Landhelgisgæslu Íslands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.