Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 10.10.2005, Blaðsíða 28
28 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN ÉG HEF lengi verið svo heppin að hafa heimilislækni sem er lítið fyrir skyndilausnir en leitar fremur orsaka ýmissa kvilla í umhverfi manns og lífsháttum. Oft reynist af- farasælla að leita að rót vandans en að plástra hann og ljóst að margt sem hrjáir nútímafólk á sér skýr- ingar í svokölluðum „lífstíl“ þar sem fólk vinnur of mikið, borð- ar óhollt fæði og er al- mennt stressað og vit- laust. Á ráðstefnu um daginn hlustaði ég á umhverfisráðherra segja frá því að læknar í Noregi væru nú sums staðar farnir að skrifa svokallaða „græna lyfseðla“ sem hljóða upp á dvöl úti í náttúrunni fyrir sjúklinga. Slíkir lyfseðlar virðast gefast vel og minna á gildi náttúrunnar fyrir mannskepnuna – gildi sem er ekki vanþörf á að minna á í þéttbýlis- samfélagi nútímans. Gildi náttúrunnar er ekki inn- byggt í fólk. Fólk þarf að venja sig á að njóta náttúrunnar, skilja hana og umgangast hana með þeirri virð- ingu sem henni ber. Það er af þeim sökum sem nú hefur verið stofn- aður Náttúruskóli Reykjavíkur. Náttúruskólinn er ekki hús eða stofnun eins og margir halda þegar þeir heyra orðið heldur hug- myndafræði sem gengur út á að færa reykvísk börn og unglinga nær nátt- úrunni og kenna þeim að meta náttúruna frá unga aldri. Ætlunin með skól- anum er að aðstoða kennara í leik- og grunnskólum Reykja- víkur eftir fremsta megni að bjóða nem- endum upp á metn- aðarfulla útikennslu þar sem áhersla er lögð á náttúruskoðun sem samþætt verður ólíkum náms- greinum og almenna umhverf- ismennt. Skólinn var opnaður nú á dög- unum í Heiðmörk og reykvískir grunnskólanemendur gerðust þar leiðsögumenn fullorðinna og kenndu þeim jafnólíka hluti og að hlusta á náttúruna, sjá ólíka liti í náttúrunni og að telja árhringi í trjábolum. Skólinn er samstarfs- verkefni umhverfissviðs og mennta- sviðs Reykjavíkurborgar og svo Landverndar og Skógræktarfélags Reykjavíkur en þessir aðilar kynntu hugmyndina um nátt- úruskóla fyrst fyrir borgaryf- irvöldum fyrir næstum tveimur ár- um. Náttúruskóli Reykjavíkur er þriggja ára þróunarverkefni sem ég vona að eigi eftir að blómstra. Í þéttbýlu borgarsamfélagi er brýnt að börn alist upp við að þekkja náttúruna sem þrátt fyrir allt er hér allt í kringum okkur. Hlutverk skólans er því að kenna börnum að þekkja náttúruna, virða hana og tengja við umhverfið almennt, tengja náttúruna við allt annað í lífi okkar og læra um leið að njóta náttúrunnar. Slík „náttúrunautn“ getur svo vonandi átt eftir að verða mikilvæg forvörn gegn mörgum þeirra lífstílskvilla sem hrjá nútíma- menn í hrönnum. Þannig getur Náttúruskóli Reykjavíkur orðið mennta- og heilsustofnun í senn og alið upp nýja kynslóð nútímalegra náttúruunnenda. Náttúruskóli Reykjavíkur Katrín Jakobsdóttir skrifar um náttúrunautn Katrín Jakobsdóttir ’Fólk þarf að venjasig á að njóta náttúr- unnar, skilja hana og umgangast hana með þeirri virðingu sem henni ber.‘ Höfundur er varaformaður umhverfisráðs Reykjavíkur og varaformaður VG. UNDANFARIÐ hafa mjög varasamar fullyrðingar um offitu, ofvirkni og athyglisbrest barna og unglinga birst í fjölmiðlum. Síðast í Fréttablaðinu 1. októ- ber, þar sem Þorbjörg Hafsteins- dóttir kynnir fræði sín til að vinna gegn ýmsum sjúkdóm- um og kvillum. Nefnir hún sig þar „næring- arþerapista“, sem er ekki til í íslenskum orðabókum. Þorbjörg segist halda námskeið ásamt unnusta sínum um kenningar sínar. Í upphafi viðtalsins í Fréttablaðinu er greint frá því hve Þor- björg er orðin afkasta- mikil í heilsuvakningu Íslendinga og fær hún „Hrós“ Fréttablaðsins næsta dag, „…fyrir að kynna skynsamlegt mataræði fyrir Ís- lendingum“. Kjarninn í þessum kenningum eru 10 grunnreglur um mataræði sem eru sagðar byggðar á traustum niðurstöðum vísindalegra rannsókna! Vilja þau hjúin hvorki bábiljur né getgátur, að sögn. Þó er svo mikið af vit- leysum og bábiljum að undrum sætir og vakna ýmsar spurningar um þá sem gefa sig út fyrir að vinna að næringarráðgjöf barna án þess að hafa nokkur réttindi til þess. Fáein dæmi um vanþekk- inguna.  Sú alhæfing að krabbamein, Alzheimer, gigt, offitu o.fl. sjúk- dóma megi „…rekja til lélegs mataræðis sem byrjar í æsku…“ er röng.  Að segja að hegðunar- og náms- örðugleikar barna séu afleiðing af slæmu mataræði er mjög ein- hæf fullyrðing og villandi.  Að segja „…í sjötíu prósentum fæðunnar eru efni sem eru lík- amanum framandi og hann ófær að vinna úr“, er villandi og ábyrgðarlaust.  Að segja „Auk þess eru í unn- um matvælum 3.000 skaðleg lit- ar-, rotvarnar- og sætuefni…“ er rangt. Hvaðan koma svona fræði?  Að segja að heilinn sé ekkert annað en „stór fituhlunkur“ sem við nærum „…með óhollum fitum, að engin furða er að börnin verði ofvirk og heimsk- ari með hverju ári“ er hreint skemmtiefni, og vitleysa ein.  Að segja að mjólk valdi eyrna- bólgum er rangt. Slíkt hefur ekki verið staðfest með rann- sóknum.  Að segja að börn fæðist án melting- arensíma til að brjóta niður afurð- ir úr kúamjólk er villandi, hvað þá að hálfmelt mjólk- urprótein virki sem morfín á taugakerfi barna og að það sama gerist með glútein. Óþol gegn mjólk- ursykri er mjög sjaldgæft hér- lendis. Algengi glútenóþols er 1/34.000 hjá börnum skv. heimild frá Gesti Pálssyni, lækni á barnadeild Landspítalans. Sjúkdómar eru jafnan greindir og staðfestir af sérfræðingum, síðan meðhöndl- aðir af þess til bæru fólki. Oft hafa þessir sérfræðingar ára- tuga nám og þjálfun til þessa. Ýmsa heilsteypta ráðgjöf um næringu og heilsu má finna hjá Umhverfisstofnun www.ust.is. og www.lydheilsustod.is. Maður hlýtur því að velta fyrir sér ástæðum þess að blása upp til- vik sem eru sárasjaldgæf til að banna mjólk og brauð, slíkt er að- eins til að hræða fólk að óþörfu. Það hlýtur að vera af nógu öðru að taka. Ef börn eiga að fá fjölbreytta fæðu og nægt kalk, er illmögulegt að sleppa mjólkurafurðum. Ýmis dæmi eru um hræðsluáróður, t.d.: „…rannsóknir sýna að krabba- meinsvaldandi efni finnast í mjólk“. Dæmi um mjög meinlega villu er þegar þetta fólk talar um aukaefni en ekki aukefni, sem er viljandi aukið í matvælin og hafa gæðastimpil Evrópuráðsins, svo- nefnd E-númer. Það er ekkert aukalegt við það. Þetta hlýtur að stafa af vanþekkingu. Er ekki nóg komið? Það getur verið mjög hættulegt að ráðleggja fæðubótarefni fyrir börn án þekk- ingar en skv. Grunnreglu 10 skal taka inn fæðubótarefni, „…a.m.k. eina sterka fjölvítamín, en helst meira“. Svo vill til að Umhverf- isstofnun hefur nýlega varað við ofneyslu barna á B-6 vítamíni og fólasíni, sem gæti varanlega skað- að taugakerfið. Orðrétt segir á www.ust.is; Á þetta sérstaklega við um einstaklinga sem neyta mikils af vítamín- og stein- efnabættum matvælum samhliða inntöku fæðubótarefna. Viðkvæm- asti hópurinn gagnvart ofneyslu vítamína og steinefna eru börn. Foreldrum og yfirvöldum ber að vernda þennan hóp sérstaklega. – Viðvaranir sérfræðinga hjá Um- hverfisstofnun eru því í algerri andstöðu við það sem Fréttablaðið og fleiri fjölmiðlar hafa verið að birta eftir þessa konu. Grunnregla 3. segir ekki forðast fitu og Grunnregla 4. að borða meira gæðaprótein, en manneldismark- mið Lýðheilsustöðvar segja að við þurfum að minnka fitu og prótein í fæðunni og auka flókin kolvetni (t.d. brauð o.fl.). Nú byrjar bráð- um sjónvarpsþáttur með Þor- björgu og unnusta hennar á Skjá einum „Íslendingum til bættrar heilsu“ eins og greint er frá í Fréttablaðinu. Þessi þáttur hefur þó meira með trúmál að gera en næringarfræði og verður að teljast ábyrgðarhluti að birta svo vafasamar og hættu- legar fullyrðingar ef fer fram sem horfir. Skottutækni fyrir börn Ólafur Sigurðsson fjallar um hollustu mataræðis fyrir börn ’Þessi þáttur hefurþó meira með trúmál að gera en næringar- fræði og verður að teljast ábyrgðarhluti að birta svo vafasam- ar og hættulegar full- yrðingar ef fer fram sem horfir.‘ Ólafur Sigurðsson Höfundur er matvælafræðingur og situr í stjórn Neytendasamtakanna. BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið, Kringlunni 1, 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is Í MORGUNBLAÐINU 3. október sl. sá ég frétt er lítið fór fyrir, en heillaði mig mjög. Frétt þessi fjallaði um hvernig ung íslensk skólabörn höfðu safnað peningum til að hjálpa fátækum börnum í fjarlægri heimsálfu. Fyrir atbeina ABC-barnahjálp- arinnar hafði þessari söfnun verið komið af stað og markmiðið var að reyna að safna fyrir byggingu heimilis fyrir átta hundruð drengi er bjuggu við mjög slæmar að- stæður í alls slags hreysum hingað og þangað. Hér er eingöngu rætt um drengi, en það má geta þess að fyrir nokkrum árum stóð ABC fyrir söfnun meðal Íslendinga þar sem íslensk skólabörn, þá eins og nú, tóku á sig þunga söfnunar- innar, og söfnuðu fyrir byggingu fyrir hundruð stúlkna á sama stað. Það er stórkostlegt að fá að heyra og sjá að til er fólk sem lætur sig varða líf og heill ann- arra, þótt í fjarlægum heimsálfum sé. Eiga öll þau börn og aðrir er í þessu tóku þátt heiður og blessun skilið, markmiðið náðist, yfir tíu milljónir söfnuðust og nú bráðlega verður húsið tilbúið, geta þá átta hundruð glaðir drengir eignast heimili. Mér hlotnaðist sú mikla ánægja að kynnast ABC-hjálparstarfinu síðastliðinn vetur. Ég hafði heyrt af þessu starfi en aldrei látið mér detta í hug hvílíkt feiknastarf þessi félagsskapur og þeir sjálf- boðaliðar er þar vinna hafa innt af hendi undir forystu Guðrúnar Margrétar Pálsdóttur, eins stofn- anda ABC. Það er gaman að geta sagt að allar líkur eru á að Heimili litlu ljósanna á Indlandi sé stærsta heimili sinnar tegundar í heimi og allur kostnaður þess frá byrjun og síðar uppihald verið greiddur af börnum og góðu fólki frá Íslandi. Tala stuðningsaðila á Íslandi nálgast nú fjórða þúsundið, þessu fólki og fyrirtækjum sé mikil þökk, því án þess væri ekkert starf. Það má til gamans geta þess að t.d. kvenfélög, starfsmannafélög og önnur félagasamtök hafa tekið að sér börn til styrktar, en enn sem komið er hef ég ekki séð nein pólitísk samtök þar á meðal, kannski lagast það fyrir kosn- ingar. ABC rekið á kristilegum gildum ABC-barnahjálpin hefur starfað síðan 1988 og sér nú fyrir yfir 5.300 börnum í sex löndum. ABC er alíslensk hjálp- arstarfsemi og hefur á að skipa u.þ.b. 3.800 styrktaraðilum. ABC lætur allt söfnunarfé ganga ósnert til hjálparstarfsins, svo og stuðn- ingsframlög og tel ég það einstakt meðal félaga sem að hjálparstarfi vinna. Kostnaður ABC vegna skrif- stofuhalds og annars er greiddur úr sjóði sem fyrirtæki og ein- staklingar styrkja. Ein höfuðhugsjón ABC er að geta veitt fátækum börnum mat og húsaskjól ásamt kennslu er gert geti börnin hæfari til að byggja upp eigin framtíð. Sú hugsun kemur oft í huga minn að ef allir í okkar litlu veröld hugsuðu og störfuðu á sama hátt og hefðu sömu hugsjón og ABC þá væri kannski minna um ofbeldi og hryðjuverk. Menntun og mettur magi En kannski hefur þessi hugsjón verið til lengi, en verið kaffærð í neikvæðum fréttum sem allir fjöl- miðar eru fullir af, því miður. Ég vil gjarnan koma þeirri beiðni til fréttamanna að gera meira úr fréttum sem þessari, þar sem ég tel fólk almennt orðið þreytt á öllum þeim neikvæðu fréttum sem hellast yfir mann daglega, og gera bæði börn og fullorðna þunglynda. Þessi frétt gleður og hressir, og gefur jákvætt viðhorf til tilver- unnar. Það er fólk um allan heim að reyna að gera gott. ÓLAFUR S. ÖGMUNDSSON, yfirvélstjóri, Öldugranda 9, Reykjavík. Margt smátt gerir eitt stórt Frá Ólafi Sævari Ögmundssyni HINN 6. september sl. sendi ég tölvupóst til allra borgarfulltrúa Reykjavíkur, á þau netföng sem skráð eru á heimasíðu Reykjavík- urborgar. Auk þess sendi ég sama póst til Gísla Marteins varaborg- arfulltrúa og frambjóðanda í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins. Í tölvupósti mínum spurði ég borgarfulltrúana hvort mögulegt væri að heimila byggingu fjöleign- arhúsnæðis í Reykjavík þar sem dýrahald væri leyft, án þess að hver einasti gæludýraeigandi þyrfti að afla sérstaks leyfis hjá öllum öðrum íbúum hússins. Með því að heimila slíka bygg- ingu væri komið til móts við marga sem vilja eignast gæludýr, en hafa ekki tök á því fjárhagslega á að búa í sérbýli. Slíkt húsnæði er að finna víða erlendis. Í dag búa gæludýraeigendur í fjölbýli við mikið óöryggi, þar sem alltaf er til staðar sá möguleiki að einhver íbúi hússins skipti um skoðun varðandi leyfi til dýrahalds eða að fólk sem er á móti dýrahaldi flytji í húsið. Auk þessa spurði ég viðtakendur tölvupóstsins einnig hver skoðun þeirra væri á gæludýrahaldi í Reykjavík. Þann 24. september höfðu einungs tveir borgar- fulltrúar látið svo lítið að svara mér, en það voru þeir Kjartan Magnússon og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson. Aðrir borgarfulltrúar og frambjóðendur höfðu ekki sinnt fyrirspurn minni. Ágætu borgarfulltrúar Reykja- víkur og Gísli Marteinn! Nú eru borgarstjórnarkosningar á næsta ári og margir að berjast fyrir end- urkjöri. Gæludýraeigendur eru stór hluti borgarbúa og þessi hóp- ur er í stöðugum vexti. Er ekki kominn tími til að sinna öllum Reykvíkingum? ARNHEIÐUR RUNÓLFSDÓTTIR, Flyðrugranda 6, 107 Reykjavík. Eru hundaeigendur annars flokks borgarar? Frá Arnheiði Runólfsdóttur, skrifstofumanni og áhugamanneskju um gæludýrahald

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.