Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 29 MINNINGAR ✝ Birgir Davíðssonfæddist í Kópa- vogi 26. maí 1946. Hann lést 1. október síðastliðinn. For- eldrar hans eru Júl- íana Kristín Jóns- dóttir, f. 12. sept. 1928 og James David Schiffeneder, f. 12. júlí 1920. Eiginmað- ur Júlíönu er Guðni Albert Guðnason, f. 3. apríl 1928. Birgir ólst upp hjá ömmu sinni Elínu Maríu Jónsdóttur og Jóni Magnússyni á Flateyri frá þriggja mánaða aldri. Systkini Birgis eru: Tvíburasystir Birgis andvana fædd, Guðbergur Guðna- son, f. 22. október 1947, Guðni Al- bert Guðnason, f. 7. sept. 1949, d. 17. apríl 1950, Rósa María Guðna- dóttir, f. 15. feb. 1952 og Alda Sig- ríður Guðnadóttir, f. 2. maí 1960. Birgir kvæntist 26. des. 1971 Ingu Jónsdóttur frá Grindavík, f. 1. mars 1948. Börn Birgis og Ingu eru: 1) Selma, f. 7. ágúst 1969. Eig- inmaður hennar er Gunnar H. Kristjánsson, f. 13. júní 1966. Börn þeirra eru Eydís, f. 14. ágúst 2005 og Anton Smári, f. 8. apríl 1991, sonur Gunnars. 2) Sigurjón, f. 9. maí 1972. Sambýliskona hans er Sigríður María Atladóttir, f. 22. mars 1977. Þeirra börn eru Sæunn Júlía, f. 17. apríl 1998 og drengur Sigurjónsson, f. 26. september 2005. 3) María, f. 31. ágúst 1977. Sambýlismað- ur hennar er Ás- mundur Gíslason, f. 8. jan. 1979. Dóttir þeirra er Sunna Mó- ey, f. 17. ágúst 2002. Eftir fermingu stundaði Birgir nám í tvo vetur við Hér- aðsskólann á Reykjanesi við Ísa- fjarðardjúp og lauk þaðan landsprófi. Birgir flutti til Reykjavíkur sextán ára gamall, gekk í Iðnskólann og lærði skrif- vélavirkjun en starfaði lengst af í Kassagerð Reykjavíkur eða í 38 ár samfellt og sem verkstjóri frá 1972. Birgir gerðist félagi í Verk- stjórafélagi Reykjavíkur 19. mars 1973 og sinnti margvíslegum trún- aðarstörfum fyrir félagið. Birgir var varagjaldkeri félagsins frá 1981–1997 auk þess að vera í bak- nefnd og trúnaðarráði. Þá var Birgir kosinn í stjórn Sjúkrasjóðs Verkstjórasambands Íslands 1981 og starfaði í henni síðan sem ritari. Auk þess var Birgir fulltrúi á þingi Verkstjórasambandsins frá 1981– 2005 og fulltrúi á landsfundi frá 1982–2004. Útför Birgis verður gerð frá Langholtskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. Elsku pabbi minn. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sig.) Þinn sonur, Sigurjón. Elsku Biggi. Kynni okkar hófust þegar við Selma dóttir þín vorum að draga okkur saman, ég dálítið smeyk- ur þar sem ég átti von á þéttri yf- irheyrslu. Ég held við hljótum að hafa smollið saman því ég man ekki eftir öðrum samskiptum okkar á milli en með miklum kærleikum. Þú byggðir ásamt henni Ingu þinni upp sælureitinn í Skipasundi 61, sælureit sem við höfum oft sótt í og notið vel, garðveislur á sumrin, kvöld- verðarboð á veturna. Garðurinn í blóma á sumrin sem þú hugsaðir svo vel um og varst svo stoltur af, allt í toppstandi. Ávallt. Þvílík paradís. Mér fannst við vera komin til himna- ríkis að vera komin í sælureitinn ykk- ar, þar sem okkur öllum leið svo vel. Nú er skarð fyrir skildi. Þú varst svo vel að þér um margt áhugavert og skemmtilegt og frá- sagnargleðin einstök. Þú lýstir upp á góðum stundum. Hláturinn mildur og röddin hlý. Við áttum okkur áhuga- mál, ásamt honum Sigurjóni syni þín- um, sem var skoskt gæðaviskí, nokk- uð sem þú kynntir fyrir okkur fyrir mörgum árum. Varla voru til nota- legri stundir en þegar við smökkuð- um eitthvert eðalviskíið í sælureitn- um í Skipasundi og ræddum heimsins gagn og nauðsynjar eftir að hafa gantast dálítið við matarborðið. Þú varst einstakt ljúfmenni og mikill séntilmaður, prúður og snyrti- legur með afbrigðum. Svo varstu mikill fjölskyldumaður. Þú skipaður svo stóran sess í hjörtum okkar allra. Við áttum saman einstaka stund á Islay í Skotlandi í fyrra. Þá vorum við öll glöð í hjarta. Þá áttum við gott ferðalag vestur í Aðalvík í sumar og keyrðum til baka í gegnum æskuslóð- irnar þínar með bráðskemmtilegum staðarlýsingum ykkar Ingu. Þegar við Selma eignuðumst dótt- ur okkar, hana Eydísi, kom einstakt hjartalag þitt vel í ljós. Hvílík barna- gæla. Aðdáun dóttur okkar á þér var einstök, uppáhaldinu sínu. Mér hlýn- aði svo um hjartaræturnar þegar þú knúsaðir hana eins og um frumburð þinn væri að ræða. Guð blessi minningu þína, elsku Biggi minn. Þinn tengdasonur, Gunnar Heimir. Það er stutt milli gleði og sorgar. Aðeins fimm dögum eftir fæðingu sonar okkar knýr sorgin á dyr. Birgir hefur kvatt þennan heim. Við sitjum eftir með ólýsanlega sorg í hjörtum okkar. Minningarnar hrannast upp en veita okkur jafnframt styrk til að halda áfram. Minningin um góðan mann lifir áfram í hjörtum okkar. Einstök hjartahlýja og prúðmennska ein- kenndi Bigga. Hann sá alltaf það góða í öllum og kveðjurnar hans voru ávallt hlýjar og innilegar. Allt var unnið af alúð og nákvæmni og engu verki skilað hálfkláruðu. Alltaf gátum við leitað til Bigga ef okkur vantaði aðstoð og það var ósjaldan. Ef mála þurfti vegg, flytja húsgögn eða viðlíka verk stóð aldrei á honum. Ég geymi í minningunni stundir eins og þegar við skruppum austur á Maríustekk til að planta trjánum fyr- ir haustið. Við keyrðum Þingvallaleið til að njóta haustlitanna og fórum hol- ótta vegi til að reyna að koma drengn- um í heiminn. Ég minnist þess þegar við fórum saman til Islay og áttum ótrúlega viku þrátt fyrir að hafa ekk- ert litist á blikuna fyrsta kvöldið. Ég minnist sólskinsdaga í garðinum í Skipasundi og hversdagslegu stund- anna sem við áttum svo margar en eru okkur núna svo dýrmætar. Ég minnist yndislegs afa, föður og tengdaföður. Hvíl í friði, elsku Biggi. Þín tengdadóttir, Sigríður María. Það er sárt að þurfa að kveðja þig núna, Biggi minn. En svona er lífið, við vitum aldrei hvaða stefnu það get- ur tekið og það er erfitt að sætta sig við það að sumum hlutum fær maður ekki breytt. Þegar ég hugsa til þín er svo ótal- margt sem kemur upp í huga minn. Það voru ófá skiptin sem þið Inga komuð norður til okkar í heimsókn og það var alltaf þægilegt að fá ykkur. Ég minnist þess sérstaklega þegar þið komuð norður til okkar sumarið sem Sunna Móey fæddist til að hjálpa okkur að flytja. Inga þín pakkaði nið- ur í kassa undir leiðsögn Maríu og svo fluttum ég og þú hvern einasta hlut í bílnum ykkar á nýja staðinn. Kassar, borð, stólar, sófar og rúm, öllu var þessu með einhverju móti komið fyrir í bílnum. Rúmum mánuði seinna komuð þið svo aftur til okkar, þetta var á föstudegi og um kvöldið keyrðir þú Maríu og mig upp á sjúkrahús. Daginn eftir fæddist Sunna Móey. Það var gott að hafa ykkur hjá okkur þá. Sumarið 2003, þegar við bjuggum hjá þér og Ingu, var einnig góður tími. Verslunarmannahelgin þá um sumarið sem við eyddum með ykkur og allri fjölskyldunni í Þórsmörk var frábær. Þetta sumar sá ég líka svo vel hvaða mann þú hafðir að geyma. Þú varst svo einstaklega góðhjartaður og ljúfur maður. Hversu yfirvegaður þú varst og nákvæmur í því sem þú tókst þér fyrir hendur þótti mér alltaf aðdáunarvert. Þú hafðir líka gott lag á að láta fólki líða vel í návist þinni og frá þeim degi er ég hitti þig fyrst þótti mér alltaf notalegt og gott að koma til þín og Ingu. Allar ljúfu minningarnar um þig, Biggi minn, geymi ég á vísum stað, það er gott að eiga þær. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir.) Ég kveð þig að sinni og bið Guð að vaka yfir Ingu þinni og öllu þínu fólki. Ég veit að þú dvelur á góðum og fal- legum stað núna. Guð blessi minn- ingu þína. Þín er sárt saknað. Ásmundur Gíslason. Í dag kveðjum við Birgi Davíðsson eða Bigga eins og hann var oftast kallaður af ættingjum og vinum. Ég kynntist Bigga fyrst fyrir um níu ár- um er dóttir mín og sonur þeirra Ingu tóku að rugla saman reitum. Fljót- lega varð hennar annað heimili hjá Ingu og Bigga í Skipasundi. Það fór ekki framhjá neinum er til þekktu að Birgir var mikill fjöl- skyldumaður, ástríkur eiginmaður og faðir og frábær afi, en því miður fá barnabörnin ekki notið umhyggju hans lengur. Verður það því okkar hlutverk að halda minningu hans á lofti. Birgir var þeim eiginleika gæddur að hugsa fyrst og fremst um aðra en minna um sjálfan sig. Dótt- ursonur minn sagði er hann frétti lát Birgis „Hann var alltaf svo góður“. Börn eru miklir mannþekkjarar. Birgir var fæddur á Flateyri við Önundarfjörð og ólst þar upp. Hann flutti ungur til Reykjavíkur. Birgir vann mestan hluta starfsævi sinnar hjá Kassagerð Reykjavíkur, eða nær 40 ár, verkstjóri frá 1972. Hann var virtur og vel liðinn jafnt af yfirmönn- um sem undirmönnum. Það var Birgi mikið áfall að vera sagt upp störfum er eigendaskipti urðu hjá fyrirtæk- inu. Birgir var virkur í sínu stéttar- félagi, Verkstjórafélagi Reykjavíkur, og ef mig misminnir ekki sat hann oftar en ekki í samninganefndum á vegum síns félags. Ég kveð þig nú, kæri vinur, hafðu þökk fyrir allt í Guðs friði. Blessuð sé minning þín. Elsku Inga, Selma, Gunni, Sigga, Sjonni, María, Ási, öldruð móðir og stjúpfaðir, barnabörnin öll og aðrir ástvinir, megi góður Guð styrkja ykk- ur í sorginni. Megi minning um góðan dreng vera ykkur ljós í myrkrinu. Sólveig Júlía. Biggi frændi er fallinn frá. Þegar ég heyrði um fráfall hans komu upp í hugann allar góðu minningarnar varðandi samvistir okkar. Upp koma minningar úr Rauða- gerðinu þar sem stórfjölskyldan átti alltaf athvarf hjá ömmu og afa. Amma Bigga, hún Maja, var ömmu- systir mín og bjó þar. Þegar Birgir kom í bæinn upp úr 1960 var sjálfsagt að hann kæmi einnig í Rauðagerðið. Þar var alltaf nóg pláss fyrir alla sem á þurftu að halda og samheldni var mikil. Ekki var mikið um munað á heimilinu á þessum árum, bíll var til að mynda eitthvað sem ekki þekktist. Það breyttist þegar Biggi kom, hann keypti sér fljótlega Taunusinn og bauð heimilisfólkinu í bíltúr sem öll- um þótti gaman. Oft fékk ég sem lítill gutti að fara á rúntinn með Bigga og var þá keyrt með opinn gluggann og Bítlalögin spiluð hátt. Einnig kom Biggi með sjónvarp inn á heimilið sem á þessum tíma vakti ómælda at- hygli og ánægju, en ekkert slíkt höfð- um við séð áður. Leiðir okkar áttu eftir að liggja mikið saman næstu árin. Eftir að við fluttum í Gnoðarvoginn héldu sam- skiptin áfram en Biggi leigði í Álf- heimum og var í fæði hjá okkur og eyddi miklum tíma á heimilinu og þótti mér mikið til stóra frænda koma. Einnig unnum við saman í Kassagerðinni í nærri tvö ár. Biggi var einstaklega ljúfur maður, þægi- legur í umgengni og afar hjálplegur og auðgaði líf allra sem kynntust hon- um. Ég vil þakka fyrir þær stundir sem ég átti með honum, þær voru dýr- mætar. Við fjölskyldan í Borgargerði send- um Ingu og fjölskyldunni allri inni- legar samúðarkveðjur á sorgar- stundu. Megi Guð blessa ykkur og styrkja. Þorvaldur Sigurðsson. Mig langar með örfáum orðum að kveðja elskulegan frænda minn, en sem barn fékk ég að vita frá henni Björgu, móður minni heitinni, hve mikill augasteinn systursonur hennar og fyrsta barnabarn Maríu ömmu og Jóns afa, var. Myndirnar frá Flateyri voru svo margar sem mamma geymdi. Árin liðu og sem ungur sveinn kom hann svo til mömmu og pabba sem snúningur í sveitinni en alla tíð síðan var tryggð hans og kærleikur í garð foreldra minna svo ríkur að sjaldan leið ár án þess að hann kæmi austur í sveit. Síðar með Ingu eiginkonu sinni og börnunum. Kærleikurinn og tryggðin voru svo einkennandi fyrir minn elskulega frænda sem horfinn er á braut. Ég bið algóðan Guð að styrkja og styðja Ingu og börnin, Stellu og Guðna, systkini og ástvini alla í þeirra miklu sorg. Skín, Guðdóms sól, á hugarhimni mínum, sem hjúpar allt í kærleiksgeislum þínum. Þú, Drottinn Jesús, lífsins ljósið bjarta, ó, lýs nú mínu trúarveika hjarta. Ef einhver þig ei ennþá fundið hefur, sem öllum ljós í dauðans myrkrum gefur, ó, veit þá áheyrn veikum bænum mínum, og vísa þeim að náðarfaðmi þínum. (Ólína Andrésdóttir.) Guðrún María Óskarsdóttir. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt. Þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér. Og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer. Þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð. Þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir.) Með þessum línum viljum við kveðja Bigga. Hvíl í friði. Elsku Inga, Sjonni, Sigga, Sæunn, Selma, Gunni, Eydís, María, Ási og Sunna, innilegar samúðarkveðjur til ykkar. Guðbjörg Íris, Halldór, Marteinn Örn og Bergþór Atli. Elsku Biggi, þú varst minn besti vinur og félagi. Það var alltaf gaman að vera í návist þinni. Það var svo gaman að koma í Skipasund og dvelja í garðinum sem þú hafðir gaman af að byggja upp. Í Skipasundi átti ég mín- ar bestu stundir með þér og þinni fjöl- skyldu. Þú og Inga voruð höfðingjar heim að sækja og það var gaman að geta verið með þér í fríi á Spáni í ágúst síðastliðnum. Ég er þakklátur fyrir þær stundir. Þú féllst frá langt fyrir aldur fram. Ég kem til með að sakna þín mikið. Þú varst alltaf svo góður við Óskar, son minn, sem einnig kemur til með að sakna þín. Það væri hægt að minn- ast á svo margt fleira, en ég kveð að sinni, elsku vinur. Elsku Inga, Selma, Sigurjón og María, ég votta ykkur mína dýpstu samúð í ykkar miklu sorg. Sturlaugur Pálsson. Það er mikið lán í lífinu að eiga góða félaga og samstarfsfólk. Birgir Davíðsson var slíkur maður. Við und- irrituð höfum notið þess að eiga hann að samstarfsmanni. Birgir vann sem verkstjóri stærstan hluta starfsævi sinnar og jafnframt sinnti hann fé- lagsmálum fyrir Verkstjórafélag Reykjavíkur og Verkstjórasamband Íslands. Hann var kjörinn í stjórn sjúkrasjóðs verkstjóra á Verkstjór- aþingi 1981 og var honum þá strax falið embætti ritara stjórnar. Er hann var enn á ný valinn í sjúkra- sjóðsstjórnina á Verkstjóraþingi nú í maí sl. hafði hann því sinnt þessu verkefni samfellt í 24 ár. Þrátt fyrir að hafa átt við mjög erfið veikindi að stríða síðustu mánuði sinnti hann þessu starfi af mikilli trúmennsku og dró ekki af sér. Það fyrsta sem fólk tók eftir er það kynntist Birgi var að þar fór sérstak- lega prúður maður, hægur og kurteis. Hann var alltaf sérstaklega snyrtileg- ur til fara og lagði sig eftir því að vera smekklega klæddur. Birgir lagði jafnan gott eitt til er fjallað var um umsóknir í sjóðinn. Hann vildi gjarn- an túlka alla óvissu umsækjandanum í hag og taka jákvætt og rausnarlega á málum þegar það átti við. Það var reyndar sú stefna sem varð ofan á og mótaði öll viðhorf stjórnarinnar. Birgir átti sannarlega sinn þátt í þeirri stefnumótun. Það er með söknuði og þakklæti sem við kveðjum Birgi Davíðsson. Við undirrituð, makar okkar og starfsfólk á skrifstofu VSSÍ, vottum Ingu og fjölskyldunni okkar dýpstu samúð. Reynir Kristjánsson, stjórnar- formaður sjúkrasjóðs verkstjóra, Kristín Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Verkstjóra- sambands Íslands. Síðastliðinn laugardag bárust mér þau válegu tíðindi að einn af okkur dyggustu félögum í Verkstjórafélagi Reykjavíkur, Birgir Davíðsson, væri látinn. Mann setur hljóðan og maður spyr, getur það verið að hann sé fall- inn frá á besta aldri? Maðurinn með ljáinn spyr ekki svona spurninga heldur slær óhikað og enginn veit hver verður næstur. Ég kynntist Birgi árið 1996 þegar ég var að byrja í Verkstjórafélagi Reykjavíkur. Eftir að ég var kosinn í stjórn og síðar formaður hefur Birgir verið mér mikill stuðningur og hafði hann jafnan áhrif á ákvarðanatöku mikilvægra mála. Birgir hafði bein- skeyttar skoðanir og á fundum kom hann oft með uppástungur og tillögur sem féllu í góðan jarðveg. Birgir sat í stjórn Verkstjórafélags Reykjavíkur, um árabil sem vara- gjaldkeri, einnig gegndi hann ýmsum öðrum nefndarstörfum, sat í vinnu- deilusjóðsnefnd, fulltrúi á þingi VSSÍ, áheyrnarfulltrúi á þingi VSSÍ, í bak- nefnd og í trúnaðarráði VFR. Birgir var kosinn fulltrúi VFR á Þing Verkstjórasambands Íslands á annan áratug. Hann sat í stjórn Sjúkrasjóðs VSSÍ fyrir hönd VFR frá árinu 1981 og var fulltrúi Sjúkrasjóðs á Sambandsþingum frá þeim tíma. Birgir hefur unnið margþætt og heilladrjúg störf fyrir verkstjórasam- tökin í gegnum tíðina og þökkum við það. Fyrir hönd Verkstjórafélags Reykjavíkur sendi ég fjölskyldu Birgis Davíðssonar okkar dýpstu samúð. Skúli Sigurðsson, formaður Verkstjórafélags Reykjavíkur. BIRGIR DAVÍÐSSON

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.