Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 39
MENNING
Staðurogstund
http://www.mbl.is/sos
Myndlist
101 gallery | Sigurður Árni Sigurðsson til
22. okt.
Aurum | Þorsteinn Davíðsson sýnir til 14.
okt.
Byggðasafn Árnesinga | Á Washington-
eyju – Grasjurtir í Norður-Dakóta. Sýning
og ætigarðsfróðleikur í Húsinu á Eyr-
arbakka. Opið um helgar frá 14 til 17. Til
nóvemberloka.
Café Karólína | Margrét M. Norðdahl „The
tuktuk (a journey)“ til 4. nóv.
Gallerí 100° | Guðbjörg Lind, Guðrún
Kristjánsdóttir, Kristín Jónsdóttir. Til 25.
okt.
Gallerí Húnoghún | Anne K. Kalsgaard og
Leif M. Nielsen til 21. okt.
Gallerí I8 | Ólöf Nordal til 15. okt.
Gallerí Sævars Karls | Völuspá, útgáfu-
sýning á myndum Kristínar Rögnu við ljóð
Þórarins Eldjárns. Til 11. okt.
Gallery Turpentine | Hildur Ásgeirsdóttir
Jónsson til 23. okt.
Garðaberg | Árni Björn Guðjónsson til 31.
október.
Gerðuberg | Þórdís Zoëga til 13. nóv. Einar
Árnason til 6. nóv.
Grafíksafn Íslands | Latexpappír, samsýn-
ing Elísabetar Jónsdóttur, Dayner Agudelo
Osorio og Jóhannesar Dagssonar.
Hafnarborg | Myndhöggvarafélagið í
Reykjavík. Til 31. okt.
Háskólabíó | Sýning á ljósmyndum Bjarka
Reyrs, í samvinnu við Alþjóðlega kvik-
myndahátíð. Til 23. okt.
Háskólinn á Akureyri | Hlynur Hallsson –
„Litir – Farben – Colors“ á Bókasafni Há-
skólans á Akureyri til 2. nóv. Sjá:
www.hallsson.de.
Hönnunarsafn Íslands | Norskir gler-
listamenn. Til 30. október.
Ís-café | Bjarney Sighvatsdóttir með
myndlistarsýningu.
Jónas Viðar Gallerí | Stefán Boulter til
22. okt. Opið um helgar. stefanboulter-
.com.
Kaffi Sólon | Kristín Tryggvadóttir til 22.
okt.
Karólína Restaurant | Óli G. með sýn-
inguna „Týnda fiðrildið“ til loka apríl
2006. sjá: www.oligjohannsson.com.
Kling og Bang gallerí | Steinunn Helga
Siguðardóttir og Morten Tillitz. Til 30. okt.
Listasafn Einars Jónssonar | Fastasýn-
ing.
Listasafnið á Akureyri | Sýning á verkum
Jóns Laxdal til 23. okt.
Listasafn Íslands | Íslensk myndlist 1945–
1960 Frá abstrakt til raunsæis.
Listasafn Reykjanesbæjar | Eiríkur Smith
og konurnar í baðstofunni til 16. okt.
Listasafn Reykjavíkur, Ásmundarsafn |
Maðurinn og efnið, yfirlitssýning. Til 2006.
Listasafn Reykjavíkur, Hafnarhús | Guð-
rún Vera Hjartardóttir til 30. des. Erró til
23. apríl.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar | Hraun-
blóm: Else Alfelt og Carl-Henning Ped-
ersen. Einnig Svavar Guðnason og Sig-
urjón Ólafsson. Til 27. nóv.
Listhús Ófeigs | Gunnar S. Magnússon til
26. okt.
Ljósmyndasafn Reykjavíkur | Lars Tun-
björk til 20. nóv.
Næsti Bar | Áslaug Sigvaldadóttir sýnir
olíu á striga. Til 14. okt.
Orkuveita Reykjavíkur | Ljósmyndasýn-
ingin The Roads of Kiarostami. Til 28. okt.
Safn | Ólafur Elíasson „Limbo lamp for
Pétur“ til nóv. Stefán Jónsson „Við Gullna
hliðið“ til miðs október.
VG Akureyri | Sex ungir listamenn sýna
verk sín til 14. okt.
Þjóðarbókhlaðan | Brynjólfur Sveinsson
og 17. öldin í sögu Íslendinga. Sýningin
stendur til áramóta.
Þjóðminjasafn Íslands | Mynd á Þili til 23.
okt.
Þjóðminjasafn Íslands | Tvær ljós-
myndasýningar. Konungsheimsóknin 1907
og Mannlíf á Eskifirði 1941–1961. Til 27.
nóvember.
Þrastalundur, Grímsnesi | Reynir Þor-
grímsson.
Listasýning
Glerárkirkja | Sýningin Kristur um víða
veröld. Tækifæri til að kynnast því hvernig
listamenn annarra þjóða sýna Krist og
hvernig þeir myndgera frásagnir guðspjall-
anna af atburðum í lífi hans. Til 23. okt.
Húfur sem hlæja | Bergljóst Gunn-
arsdóttir sýnir mósaíkspegla til 22. okt.
Laugarneskirkja | Handverkssýning í
safnaðarsal í tilefni 50 ára brúðkaups-
afmælis Guðlaugar S. Haraldsdóttur og
Garðars Guðjónssonar. Sýndar útsaumað-
ar myndir og þrívíddarklippimyndir út
október.
Söfn
Þjóðmenningarhúsið | JAM-hópurinn –
haustsýning. Sýnt íslenskt bókband gert
með gamla laginu eins og það var unnið á
17. og 18. öld. Til 12. okt.
Vinningstillaga Portus um tónlistarhús,
ráðstefnumiðstöð og hótel við Reykjavík-
urhöfn verður áfram til sýnis í Þjóðmenn-
ingarhúsinu. Aðgangur ókeypis.
Þjóðminjasafn Íslands | Sýningin Eldur í
Kaupinhafn – 300 ára minning Jóns Ólafs-
sonar úr Grunnavík er samvinnuverkefni
Þjóðminjasafnsins og Góðvina Grunnavík-
ur-Jóns og fjallar um fræðimanninn Jón
Ólafsson (1705–1779), ævi hans og störf.
Sýningin stendur til 1. des. Opið alla daga
nema mánudaga kl. 11–17.
Mannfagnaður
Borgfirðingafélagið í Reykjavík | Félagið
efnir til afmælishófs á Hótel Sögu 19. nóv.
Allir Borgfirðingar velkomnir. Dagskráin
hefst kl.19. Miðasala í síma 822 5609 fyrir
1. nóv.
Fréttir
Aðalþjónustuskrifstofa Al-Anon | Erum
flutt að Grandagarði 14, 3 hæð. Opn-
unartími er á heimasíðunni okkar: www.al-
anon.is.
Tungumálamiðstöð HÍ | Alþjóðlega þýsku-
prófið TestDaF verður haldið í Tungumála-
miðstöð HÍ 15. nóvember. Skráning fer
fram í Tungumálamiðstöð, Nýja Garði.
Prófgjaldið er 10.000 kr. Skráningarfrestur
er til 13. október. Nánari upplýsingar veitir
Eyjólfur Már Sigurðsson: ems@hi.is.
Fundir
Krabbameinsfélagið | Krabbameinsfélag
Hafnarfjarðar og Samhjálp kvenna boða til
fræðslufundar í Hásölum, Hafnarfirði, á
morgun, kl. 20. Sigurður Björnsson læknir
fjallar um krabbamein í brjóstum og Jó-
hanna Á. H. Jóhannsdóttir blaðamaður
fjallar um Evrópusamstarf gegn brjósta-
krabbam. Fundarstjóri er Rósa Guðbjarts-
dóttir.
Safnaðarheimili Grensáskirkju | Kven-
félag Grensássóknar heldur fund kl. 20, í
Safnaðarheimilinu.
Þjóðminjasafn Íslands | Hádegisfyr-
irlestraröð Sagnfræðingafélagsins, sem
ber yfirskriftina Hvað eru framfarir?, verð-
ur á morgun, kl. 12.10, í sal Þjóðminja-
safnsins við Suðurgötu. Þar mun Haraldur
Bernharðsson málfræðingur flytja erindi
sem hann nefnir Er íslenska framfaramál?.
Aðgangur er ókeypis.
Fyrirlestrar
Opni Listaháskólinn | Emiliano Monaco
kvikmyndafræðingur og listamaður flytur
fyrirlesturinn, Að vitna í kvikmyndir: kvik-
myndagerð Hal Hartleys sem púsluspil.
Hann kynnir hugmyndafræði Hartleys og
sýn hans á kvikmyndagerð sem sjálftilvís-
andi listform og sýnir nokkur myndskeið
úr myndum Hartleys. Fyrirlesturinn er kl.
12.30 í LHÍ, Laugarnesi, stofu 024.
Fundaröð um fyrstu frjálsu leikhópana
sem stofnaðir voru af atvinnuleikurum
hefst kl. 20, í leiklistardeild LHÍ, fyr-
irlestrasal á Sölvhólsgötu 13. Ragnheiður
Skúladóttir forseti leiklistardeildar LHÍ
verður spyrill og stjórnar umræðum.
Stofnendur Grímu hefja leikinn. Ragnheið-
ur ræðir við Erling Gíslason, Kristbjörgu
Kjeld og Brynju Benediktsdóttur.
Verkfræðideild HÍ | Jóhann Haukur Krist-
inn Líndal heldur fyrirlestur um verkefni
sitt til MS-prófs í iðnaðarverkfræði. Verk-
efnið ber heitið: Aðgerðagreining við
vinnslu á dilkakjöti. Verkefnið er tvískipt,
um kjötmat og kjötvinnslu. Fyrirlesturinn
fer fram á morgun kl. 14.30, í fundarsal
Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldna-
holti, 3. hæð.
Kynning
Lýðheilsustöð | Frítt til Evrópu fyrir reyk-
lausa er keppni ætluð ungu fólki á aldr-
inum 15–20 ára. Allir sem verða reyklausir
frá 10. nóvember til 10. desember eiga
þess kost að vinna utanlandsferð. Hægt er
að skrá sig til leikswww.lydheilsustod.is.
Námskeið
Áttun | Námskeið í streitustjórnun verður
15. október kl. 10.16, Suðurlandsbr. 10, 2 h.
Ágústína Ingvarsdóttir, sálfræðingur,
fjallar um hagnýtar aðferðir við höndlun
streitu og að ná jafnvægi undir álagi.
Skráning: info@life–navigation.com eða
gsm 663 8927. Upplýsingar: www.lifena-
vigation.com.
Zen á Íslandi | Zen-meistarinn Roshi held-
ur námskeið í zeniðkun, í Gerðubergi kl.
18–22.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
DANSKI leikhópurinn Scene 1 verður í Norræna hús-
inu í Reykjavík frá 11.–15. október. Heimsóknin er hluti
af ferð til Íslands og Færeyja og hópurinn ætlar að
kynna brúðu- og grímuleiksýninguna „Konan frá haf-
inu“ og grímunámskeiðið „Ferð töframannsins“.
Hugmyndin að leiksýningunni „Konan frá hafinu“ er
fengin úr gamalli norrænni þjóðsögu. Þar segir frá ein-
mana manni, sem verður ástfanginn af villtri selkonu og
heldur henni á landi í sjö ár með því að læsa selshaminn
hennar niður í kistu. Í leiksýningunni blandast saman
leiklist, tónlist, ljóð og brúðuleikhús – allt getur gerst
og hvað sem er getur lifnað við, t.d. gríma, skór, flaska
eða bindi. Meðan á leiksýningunni stendur spinnur
sögumaðurinn Sedna langa örlagaþræði í kringum
manninn og selkonuna í grátbroslegri ástarsögu um
krafta sem eru mun öflugri en vilji mannskepnunnar.
Leikendur eru Anna Katrin Egilstrod frá Færeyjum,
24 ára, Anne Louise Munch frá Danmörku, 32 ára, og
Annemarie Jeppesen frá Danmörku, 32 ára. Þær eiga
sameiginlegt að hafa gengið í leiklistarskólann Center
for Kreativitet og Teater, sem var stofnaður af leik-
stjóranum Barböru von Siebenthal.
Leiksýningin verður sýnd þriðjudaginn 11. október,
fimmtudaginn 13. október og laugardaginn 15. október
kl. 20 í Norræna húsinu, Hún er leikin á ensku og er
fyrir alla 14 ára og eldri.
Ferð töframannsins
Grímunámskeiðið „Ferð töframannsins“ verður hald-
ið af leikendum sýningarinnar „Konan frá hafinu“, sem
ennfremur hafa búið til grímurnar. Skemmtilegar, hug-
myndaríkar, geggjaðar eða sorgmæddar – hver gríma
hefur sinn eigin persónuleika. Á námskeiðinu verður
notaður spuni, leikur og dans til að kanna tvær gerðir af
grímum: hlutlausu grímuna og erkitýpísku grímuna.
Unnið verður með líkama og tilfinningu fyrir rými og
spunnir stuttir leikþættir. Grímunámskeiðið „Ferð
töframannsins“ verður haldið föstudaginn 14. október
kl. 19– 21:30 og laugardaginn 15. október kl. 9– 16 í
Norræna húsinu. Námskeiðið er fyrir alla 15 ára og
eldri.
Brúðusýningin „Konan frá
hafinu“ í Norræna húsinu
Hugmyndin að brúðuleiksýningunni „Konan frá haf-
inu“ er fengin úr gamalli norrænni þjóðsögu.
EKKERT hljóðfæri finnst mér nálg-
ast fallegar söngraddir jafnmikið og
ómríkur tónn sellósins, þ.e.a.s. sé vel
á það leikið. Engir sem þekkja selló-
tóna Gunnars Kvaran efast um
næman og seiðandi söng hans á
hljóðfærið. Innlifun hans í leik á tón-
leikapalli er slík að maður svífur með
á vit hins óræða, hafinn yfir tíma og
rúm. Þegar maður er gripinn slíkum
tökum á örskoti tónleikaaugnabliks-
ins vaknar sú spurning hvort takist
að festa slíka augnabliksstemmingu
í upptöku, sem hlusta megi á aftur
og aftur. Fyrst nálgumst við diskinn
sjónrænt og mætum á umslaginu fal-
legri eftirmynd af Bleikdalsá Jó-
hannesar Kjarval, falleg mynd með
gulum litatónum, sem flytja eiga
okkur í tónlistarheim rómantískrar
tónlistar á miðri 19. öld. Útlitið
venjulegt, einfaldar umbúðir um
heitt tilfinningaverk. Sónata Chop-
ins er einstakt verk, eins konar
svanasöngur hans til aðdáenda sinna
og fluttur á einum hans síðustu op-
inberu tónleikum árið 1848, en 1849
dó Chopin, aðeins 39 ára gamall.
Svanasöngur er réttnefni, því þarna
teflir tónskáldið bestu leikjum í
stöðu rómantískra tónverka og
handbragð á bæði selló- og píanó-
hluta er snilldargott og svo hljómar
Largo-þátturinn eins og fegurst af
öllu fögru frá þessu skeiði, logandi af
heitum tilfinningum. Yfir verkinu er
þokuslæða depurðar, sem þó oft
þyrlast burt fyrir flæði ljósra tóna.
Verkið gæddu Gunnar og Selma
sinni næmu og ríku tilfinningu og
sungu bæði af hjartans lyst. Ég er
ekki sammála þeim með hraðaval í
fyrsta þætti og fyrir minn smekk var
hann of hægt fluttur. Næst léku þau
tvö verk eftir Dvorák, sem tón-
skáldið frumflutti með sellóleikar-
anum Hanus Wihan, á kveðju-
tónleikum fyrir landa sína í Bæheimi
og Mæri 1891, er hann í framhaldi
fluttist um skeið til Ameríku, Nýja
heimsins. Mikið lán að bæði Chopin
og Dvorák áttu frábæra sellóleikara
að vinum sem þeir sömdu fyrir þess-
ar sellóperlur. Vin Dvoráks hef ég
nefnt, sem síðar fékk það hlutverk
að frumflytja sellókonsertinn róm-
aða í a-moll og var það árið 1895.
Vinur Chopins var hins vegar
Frakkinn Auguste-Joseph
Franchomme, mikill sellóvirtúós.
Fyrra verk Dvoráks, Waldesruh op.
68, syngur sig inn í innstu sálarkima.
Magnað hvernig stefin leita hærra
og hærra í „laufkrónur Bæheims-
skógar“, oft í nálægð við tónhugsun
Brahms. Mér fannst stillingin á pí-
anóinu ekki nógu hrein í þessu lagi.
Rondóið sem kom á eftir fannst
mér að nyti sín síður og þar vil ég
kenna of hægum flutningi um. Ljóð
án orða op. 109 samdi Mendelssohn
upphaflega fyrir píanó, eins og
píanólögin í sex bindum með sama
heiti. Þetta ljóð nýtur sín ein-
staklega vel í flutningi á selló, enda
laglínan „gullbarkalína“.
Rúsínan í pylsuendanum er svo
mögnuð túlkun á Fantasíustykkjum
op. 73, hraða- og styrkleikaval eins
og mér fyndist „svona á verkið að
vera, og engan veginn öðruvísi“. Ég
held að þarna hafi Selmu og Gunnari
tekist að festa augnablikið á plötu
þannig að mér finnst þau vera að
spila í stofunni hjá mér og engum
öðrum. Ég er viss um að vönduð
hljóðvinna og mátulegur endurómur
í upptökusal glæðir tilfinningu fyrir
nándinni. Nú er bara að vonast til að
tónelsk eyru veiti plötunni verðuga
viðtöku.
Morgunblaðið/Golli
„Ég held að þarna hafi Selmu og Gunnari tekist að festa augnablikið á
plötu þannig að mér finnst þau vera að spila í stofunni hjá mér og engum
öðrum,“ segir Jón Hlöðver Áskelsson í umsögn sinni um geislaplötuna.
Í tónaveislu Gunn-
ars og Selmu
TÓNLIST
Íslensk geislaplata
Tónverk: Chopin/ Sónata í fjórum þáttum
fyrir selló og píanó í g-moll op. 65; Dvor-
ák/ Waldesruh op. 68, nr. 5, og Rondo
op. 96; Mendelssohn/ Lied ohne Wörte
op. 109; Schumann/Fantasie-stücke í
þremur þáttum op. 73. Flytjendur: Gunn-
ar Kvaran á selló og Selma Guðmunds-
dóttir á píanó. Útgefandi: Smekkleysa
ehf. Hljóðritun: Í Hásölum í febrúar 2001.
Hljóðvinnsla: Tæknirekstrardeild RÚV.
Tónmeistari: Bjarni Rúnar Bjarnason.
Hljóðmeistari: Hreinn Valdimarsson.
Stafræn klipping: Páll Sveinn Guðmunds-
son. Útlit: Komdu á morgun.
Gunnar og Selma
Jón Hlöðver Áskelsson
DAGBÓK
Á SÍÐASTA þingi ELIA –
European League of Institutes of
the Arts – sem haldið var í Luzern í
Sviss var Örn Guðmundsson, skóla-
stjóri Listdansskóla Íslands, kjör-
inn í aðalstjórn samtakanna sem
fulltrúi fyrir dansmenntun. Hann
var einnig kosinn til að taka sæti í
stjórn vinnuhóps á vegum stjórnar
ELIA sem vinnur að samræmingu
listnáms á háskólastigi innan Evr-
ópu. Vinnuhópurinn mun hafa það
að leiðarljósi að menning og sér-
kenni hvers lands fyrir sig fái notið
sín.
Innan ELIA eru 350 listahá-
skólar frá 47 löndum.
Listdansskóli Íslands er aðili að
ELIA, því fram að þessu hefur List-
dansskólinn verið æðsta mennta-
stofnun í dansi hér á landi. Síðasta
ár nemenda við skólann skarast á
við háskólanám og hafa nemendur
Listdansskóla Íslands jafnan átt
greiðan aðgang að listaháskólum
víðsvegar um Evrópu.
Örn kjörinn í aðal-
stjórn ELIA