Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 42

Morgunblaðið - 10.10.2005, Side 42
42 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ Verðið á karlhórum hefur lækkað töluvert fyrir evrópskar konur! Sýnd kl. 4 ísl.tal RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN LEIKSTJÓRA SCREAM MYNDANNA. Topp5.is Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA.Sími 564 0000í i Miða sala opn ar kl. 15.15i l l. . kl. 5.20, 8 og 10.40 Sýnd kl. 5.20, 8 og 10.40 B.i. 14 ára Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum. FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXXF LEI F E F I Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum. Sýnd kl. 6, 8 og 10 B.i. 14 ára Göldrótt gamanmynd! Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15 Miðaverð 450 kr.  S.V. / MBL  S.V. / MBL RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY Sýnd kl. 4 og 6 Sprenghlægileg gamanmynd! Sýnd kl. 8 og 10 b.i. 14 ára Sýnd kl. 4 í þrívídd Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.20 B.i. 14 ára Sýnd kl. 8 og 10 B.i. 14 ára RACHEL McADAMS CILLIAN MURPHY Hrikalega hraður háloftatryllir með Jamie Foxx, Josh Lucas og Jessicu Biel í aðalhlutverkum. FRÁ LEIKSTJÓRA FAST AND THE FURIOUS & XXX HÖRKU SPENNUTRYLLIR FRÁ WES CRAVEN LEIK- STJÓRA SCREAM MYNDANNA. Í 36.000 FETUM VARÐ HENNAR VERSTA MARTRÖÐ AÐ VERULEIKA. Topp5.is  S.V. / MBL Sýnd kl. 6 Skemmtileg ævintýramynd með íslensku tali. Skemmtileg ævintýramynd með íslensku tali. ROBERT Altman uppgötvaði ekki samtengda söguformið en hleypti í það nýju blóði með Short Cuts (’93). Síðan hefur fjöldi leikstjóra fetað þessa vandrötuðu slóð, nú síðast Rússinn Serebrennikov með sínum meinfyndnu Rekkjusögum. Ramminn utan um flestar sög- urnar er svefnherbergið og tengi- liðurinn er að sjálfsögðu hjarta þess, rúmið – og múslí og döðlur, ekki má gleyma þeirra leynd- ardómsfullu tilveru. Það má segja að hann komi persónum sínum að óvörum, enda maðurinn sjálfsagt berskjaldaðastur á þessum stað í tilverunni. Serebrennikov hefur sínar und- arlegu sængursögur úti á lands- byggðinni, þar sem miðaldra mað- ur er að stjana við viðskotailla og aldurhnigna móður sína. Áfram fikrar myndin sig í sama herbergi í íbúð systur hans í borginni. Hún er með hálfum huga að fleka ung- an hermann á milli þess sem hún talar við manninn sinn í gemsann og soldátinn geltir í bakgrunn- inum. Næsta herbergi er á hóteli, tveir hommar eru að undirbúa sig undir átök næturinnar en ýmislegt verð- ur til þess að tefja leikinn. M.a. hringir eiginkona annars þeirra og hann heyrir ekki betur en hund- spott gelti í íbúðinni. Sem er graf- alvarlegt mál, hann er með slæmt ofnæmi fyrir dýrahárum. Rekkjusögur minnir örlítið á Tíu, aðra hátíðamynd eftir Ír- anann Kiarostami. Báðar end- urspegla þær þjóðfélagsástand en Serebrennikov er á mun léttari nótum, háðskur og ádeilinn. Það er mikil lausung og upplausn í Rekkjusögum sem geta hæglega verið að endurspegla rótleysið í landinu eftir fall kommúnismans. Spillingin er gömul saga og ný. Persónurnar rembast eins og rjúp- an við staurinn að fá einhverja ánægju út úr athöfnunum í rúm- unum, en það er alltaf einhver skrattinn í veginum. Í sumum til- fellum bregst getan en yfirleitt skortir væntumþykjuna og bröltið endar með ósköpum. Menn geta spáð í Rekkjusögur á ýmsa vegu en fyrst og síðast er hún kaldhæðin og óvenjuleg skemmtun. Múslí og döðlur KVIKMYNDIR Regnboginn: AKR 2005 Leikstjóri: Kirill Serebrennikov. Aðalleik- endur: Marina Golub, Olga Khokhlova, Natalya Kolyakanova, Iya Savvina. 70mín. Rússland. 2005. Rekkjusögur (Bed Stories /Postelnyye stseny)  Sæbjörn Valdimarsson „Menn geta spáð í Rekkjusögur á ýmsa vegu en fyrst og síðast er hún kald- hæðin og óvenjuleg skemmtun,“ segir m.a. í dómnum. ÆVINTÝRIÐ sjálft er hefðbundið en yfirbragð Strengja er því óvenjulegra og glæsilegra. Persón- urnar í myndinni eru hálfur annar tugur strengjabrúða og strengirnir sjálfir hafa mikilvægu hlutverki að gegna í útliti og skapa nánast ójarðneska stemningu. Brúðurnar sjálfar eru hjarta myndarinnar, sannkölluð völundarsmíði unnar af snillingnum Bernd Ogrodnik, sem býr í norðlenskum fjallasal. Brúður hafa verið sárasjaldgæfar í kvik- myndum undanfarna áratugi, það er aldrei að vita nema að nú verði breyting á, svo vel hefur tekist til hér, bæði hvað snertir skemmti- gildið og listræna tjáningu. Aðalpersóna Strengja er kon- ungssonurinn Hal sem erfir ríki eftir föður sinn sem féll fyrir eigin hendi. Bróðir konungs hyggst not- færa sér dauða hans sér til fram- dráttar og tekst að villa Hal sýn og senda hann í hefndarför til óvina- ríkisins. Hún verður ekki til ónýtis því í ferðinni kemst hann að sann- leikanum um dauða föður síns, kynnist ástinni og eykst að viti og þroska. Fantasían hljómar ekki ókunnuglega, frá landi ævintýr- anna og H.C. Andersen. Það sem mestu máli skiptir er frásagn- armátinn og töfrum líkur heimur brúðanna og leiktjöld við hæfi. Allt þetta ásamt blæbrigðaríkri tónlist, gera Strengi að sérstakri upplifun. Spurningin er hvort hún höfðar til barnanna, þeirra sem hún er fyrst og fremst ætluð. Brúðuleikarar eru framandi í þeim afþreyingarheimi sem þau eiga að venjast. Á hinn bóginn er Strengir heillandi og þakklátlega öðruvísi upplifun en hinn almenni bíógestur á að venj- ast. Leikið á strengi KVIKMYNDIR Háskólabíó: AKR 2005 Strengjabrúðumynd. Leikstjóri: Anders Rønnow Klarlund. Brúðusmiður: Bernd Ogrodnik. Talsett. 88mín. Danmörk. 2004. Strengir (Strings)  Sæbjörn Valdimarsson Í dómnum segir m.a.: „Persónurnar í myndinni eru hálfur annar tugur strengjabrúða og strengirnir sjálfir hafa mikilvægu hlutverki að gegna í útliti og skapa nánast ójarðneska stemningu.“ Í ENGUM aðskilnaði er ástandið í deilumálum Palestínumanna og Ísraela skoðað frá nýstárlegu sjónarhorni. Kanadíski heimild- argerðarmaðurinn Flanders ræðir við tvö, samkynhneigð pör. Ann- arsvegar Palestínumanninn Selim og Ísraelinn Ezra, hitt parið eru lesbíurnar Edit, sem er Ísraeli og palestínska stúlkan Samira. Inn í framvindu Enginn aðskilnaður, sem var tekin á árunum 2002– 2005, er skotið myndskeiðum sem foreldrar Flanders filmuðu á fimmta áratugnum. Það er fróð- legt að bera fólkið á myndunum saman. Á gömlu myndinni er létt og kátt yfir mannskapnum sem er nýkominn til landsins, sem bíður þeirra með öllum sínum fyr- irheitum. Hvað varð af draumnum, spyr maður sjálfan sig þegar skoðaður er glundroðinn og rang- lætið sem hvarvetna blasir við í Engum aðskilnaði. Í myndarbyrjun búa þeir Selim og Ezra saman en þeim er gert eins erfitt fyrir og hugsast getur. Fordómarnir eru aukaatriði, að- alvandinn liggur í að Salim er meinað að dveljast á ísraelsku yf- irráðasvæði, er landflótta maður í eigin landi. Staða hans er talandi dæmi um hvernig mannréttindi Palestínumanna eru fótum troðin af Ísraelsstjórn. Svipaða sögu er að segja af Edit og Samiru, en bæði pörin eru virkir mótmælendur gegn stefnu stjórnar Ísrael í málefnum Palest- ínumanna. Auðvelt er að skilja sárindin í brjóstum Palestínumanna sem voru, meðan á myndatökunni stóð, sífelltað missa meira land undir illa séð landnám ísraela. Á þau svæði fá þeir ekki að koma öðru vísi en til að taka þátt í uppbygg- ingunni eða þrífa skítinn undan landnámsmönnunum. Við Palest- ínumönnum blasir hvarvetna við hið síbreikkandi bil sem orðið er á milli þjóðanna. Ísraelsmenn búa við hagvöxt, gott vegakerfi, örugga atvinnu, yfirráð og bestu menntun á meðan Palestínumenn mega þola fátækt, atvinnuleysi, vont menntakerfi, húsnæði og undirokun, svo eitthvað sé nefnt. Ezra, Edit og Samira eru öll virk í friðsamlegum mótmælaað- gerðumgegn óréttlætinu sem birt- ist í óteljandi myndum hvert sem litið er og þó þau fái takmarkað að gert þá sannar myndin að þjóð- irnar geta, undir vissum kring- umstæðum a.m.k., búið saman í sátt og samlyndi. Tveir heimar KVIKMYNDIR Tjarnarbíó: AKR 2005 Heimildarmynd. Leikstjóri: Elle Flanders. 85 mín. Kanada. 2005. Enginn aðskilnaður (Zero Degrees of Separation)  Sæbjörn Valdimarsson Hin skemmtanaglaða Paris Hilton er ekki við eina fjölina felld í ástarmálunum. Nýverið sást til hennar kyssa Stavros Niarchos III sem er best þekktur fyrir að sjást með Mary-Kate Olsen, en þau hafa verið sundur og saman síðan í apríl. Paris og Stav sáust saman á næt- urklúbbi daginn áður en hún til- kynnti um sam- bandsslit sín og Paris Latsis. Samkvæmt sjón- arvottum voru þau ansi náin, sáust kyssast og hvísla í eyru hvort annars. Stav er kominn af ríkri grískri fjölskyldu rétt eins og fyrr- verandi kærasti Parisar, þannig sækjast sér um líkir. Fólk folk@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.