Morgunblaðið - 10.10.2005, Page 44
44 MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær rómantísk gamanmynd sem steinliggur
fyrir stefnumótið. Með þeim stórgóða
John Cusack og hinni fallegu Diane Lane.
Erfi ðasta brellan er að fá þá til að staldra við.
Diane Lane John Cusack VARÚÐ: Þú gætir farið úr kjálkaliðum af hlátri
A.G. Blaðið
ROGER EBERT
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomu allra tíma.
Óskarsverðlaunahafarnir Russell
Crowe og Renée Zellweger fara á
kostum í sterkustu mynd ársins.
Óskarsverðlaunahafarnir Russell Crowe og Renée
Zellweger fara á kostum í sterkustu mynd ársins.
Upplifðu stórkostlegustu
endurkomu allra tíma.
Mynd eftir Ron Howard
(“A Beautiful Mind”).
Mynd eftir Ron Howard (“A Beautiful Mind”).
Cinderella Man kl. 5.30 - 8.30 - 10.10
Charlie and.. kl. 5,45 - 8
Must Love Dogs kl. 6 -8 - 10.10
Strákarnir Okkar kl. 6 - 8 - 10
KVIKMYNDAHÁTÍÐ
29. september til 9. október
Kings game / Kónga kapall -
Sýnd kl. 5.40 - 10.10
Vinningsmynd hátíðar
Sýnd kl. 7.40
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty” ROGER EBERT
Skelltu þér á
alvöru mynd.
Það er alltaf
hægt að þek-
kja myndir
sem eiga eftir
að keppa um
Óskarinn.
R.H.R / MÁLIÐ
Mándagur kl. 5.40 og 10.10
Þriðjudagur kl. 8
fi mmtudagur kl. 10
AUKASÝNING Á KEPPNISMYND
KVIKMYNDAHÁTÍÐARINNAR Í REYKJAVÍK
Vegna mikillar aðsóknar og eftirspurnar verður
þessi frábæra spennumynd sýnd í örfá skipti.
KONGEKABALE / KÓNGAKAPALL
STEMNINGIN var í einu
orði sagt, rafmögnuð, þeg-
ar hljómsveitin Sigur Rós
steig á svið í Hollywood
Bowl, síðastliðið mið-
vikudagskvöld, fyrir fram-
an hátt í tíuþúsund manns.
Á undan hafði strengja-
kvartettinn Amina séð um
að hita tónleikagesti upp,
eins og á öllum fyrri tón-
leikum sveitarinnar á þess-
ari hljómleikaferð.
Lögin sem Sigur Rós lék,
voru bæði af gömlum og
nýjum toga þó að bróðurparturinn
hafi verið af nýjustu plötu sveit-
arinnar Takk, sem slegið hefur í
gegn um allan heim. Líkt og fyrri
daginn var mikið lagt upp úr mynd-
rænum þætti tónleikanna og léku
myndbrot og ljósadýrð um hljóm-
sveitina meðan á tónleikunum stóð.
Eftir tvö uppklappslög steig
hljómsveitin svo aftur á svið ásamt
liðskonum í Aminu og ómaði tón-
leikastaðurinn, sem er undir beru
lofti, af lófaklappi í dágóða stund.
Fræga fólkið í Hollywood lét sig
ekki heldur vanta, Ron Jeremy, Eric
Szmanda (CSI: Las Vegas) og leik-
arinn Jason Schwartzman (Rush-
more) voru á meðal áhorfenda en
þarna voru einnig nafntogaðir Ís-
lendingar, svo sem Ragnheiður
Ragnarsdóttir sundkona úr KR, Sig-
urjón Sighvatsson athafnamaður og
Gottskálk Dagur Sigurðarson leik-
ari. Fjölskyldur og vinir Sigur Rósar
höfðu einnig gert sér ferð vestur til
að fylgjast með sveitinni og ekki var
laust við að andlit þeirra geisluðu af
stolti og hrifningu í lok kvöldsins.
Tónleikarnir voru þeir næstsíð-
ustu á Bandaríkjatúr sveitarinnar
Uppselt hefur verið á flesta tón-
leikana en að sögn Orra Páls Dýra-
sonar voru tónleikarnir á miðviku-
daginn þeir fjölmennustu sem Sigur
Rós hefur ein spilað á.
Framundan er svo stutt stopp á
Íslandi þar sem farið verður í hljóð-
ver og tekin upp smáskífa og mynd-
band við hana en þá eru fyrirhugaðir
tónleikar á Íslandi í nóvemberlok.
Það verða fyrstu tónleikar hljóm-
sveitarinnar hérlendis í rúm þrjú ár.
„Við erum allir mjög spenntir fyrir
tónleikunum heima, sérstaklega út
af því að við höfum ekki spilað þar í
langan tíma,“ sagði Orri Páll eftir
tónleikana. Takk-tónleikaferðalag-
inu lýkur svo næsta sumar og verður
þá næstum ár að baki síðan það
hófst.
Orri Páll Dýrason trommuleikari baðaður
bláleitri skímu og reyk.
Sigur Rós heillaði áhorfendur í Hollywood Bowl upp úr
skónum með tónlist sinni.
Morgunblaðið/MÁI
Hollywood-skálin er glæsilegur útileikvangur sem rúmar um 18 þúsund tónleikagesti.
Rafmögnuð
stemning
Meðlimir Sigur Rósar og Aminu þakka áhorfendum í lok tónleikanna.
Tónlist | Sigur Rós lék fyrir þúsundir í Hollywood Bowl við frábærar undirtektir
Matthías Árni Ingimarsson
skrifar frá Kaliforníu
Breski söngvarinn Boy Georgevar handtekinn á heimili sínu í
New York á laugardag, grunaður
um að hafa fíkniefni í fórum sínum,
auk þess sem talið er að hann hafi
gefið ósanna lögregluskýrslu.
Söngvarinn, sem heitir réttu nafni
George O’Dowd, hringdi í lögregl-
una úr íbúð sinni í Litlu-Ítalíu og
sagði að innbrot hefði verið framið.
Lögreglumenn sem komu á vett-
vang fundu kókaín við tölvu í íbúð-
inni, samkvæmt
upplýsingum frá
lögreglunni.
Kona sem var í
íbúðinni sagði að
meira kókaín
væri í henni og
vinnur lögregla
nú að rannsókn
málsins.
Boy George hefur oft komist í
kast við lögin vegna fíkniefnamis-
notkunar. Hann var eitt sinn söngv-
ari hljómsveitarinnar Culture Club
sem trúlega er þekktust fyrir lögin
Do You Really Want to Hurt Me og
Karma Chameleon.
Fólk folk@mbl.is