Morgunblaðið - 10.10.2005, Qupperneq 45
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 10. OKTÓBER 2005 45
Frábær rómantísk gamanmynd sem steinliggur
fyrir stefnumótið. Með þeim stórgóða
John Cusack og hinni fallegu Diane Lane.
Diane Lane John Cusack
Erfi ðasta brellan er að fá þá til að staldra við.
VARÚÐ: Þú gætir farið úr kjálkaliðum af hlátri
A.G. Blaðið
Kalli og
sælgætisgerðin
SÉRHVER DRAUMUR
Á SÉR UPPHAF
KRINGLANAKUREYRI KEFLAVÍK ÁLFABAKKI
CINDERELLA MAN kl. 5 - 8 - 10.50 B.i. 14 ára.
THE 40 YEAR .. kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
THE 40 YEAR ..VIP kl. 8 - 10.30
GOAL kl. 6 - 8.30 - 10.50
MUST LOVE DOGS kl. 6 - 8.15 - 10.30
VALIANT m/- Ísl tal. kl. 3.40
SKY HIGH kl. 6
CHARLIE AND THE ... kl. 3.45 - 6
STRÁKARNIR OKKAR kl.10.30 B.i. 14 ára.
RACING STRIPES m/ísl.tali. kl. 3.50
THE 40 YEAR OLD..kl. 5.30 - 8 - 10.30 B.i. 14 ára.
GOAL kl. 8 - 10.30
THE CAVE kl. 10.30 B.i. 16 ára.
VALIANT m/- Ísl tal. kl. - 6
VALIANT m/ensku.tali. kl. 8
CHARLIE AND THE ... kl. 5.45
GOAL! kl. 8
THE 40 YEAR ..kl. 10.15
CINDERELLA MAN kl. 8
GOAL! kl. 8
THE 40 YEAR.. kl. 8
FYRSTI HLUTI AF ÞRÍLEIK. DÚNDUR FÓTBOLTAMYND
SEM HITTIR Í MARK OG MIKLA MEIRA EN ÞAÐ.
Með Steve Carell úr “Anchorman”
og “Bruce Almighty”
V.J.V. TOPP5.IS
R.H.R. MÁLIÐ
D.V.
S.V. MBL
kvikmyndir.is
SÍÐASTLIÐINN laugardag voru
tvær ljósmyndasýningar opnaðar í
Þjóðminjasafni Íslands. Sýning-
arnar nefnast Konungsheimsóknin
1907 og Mannlíf á Eskifirði 1941–
1961.
Myndirnar frá konungs-
heimsókninni bregða upp fjölþættri
svipmynd af konungskomunni og
sýna hve mikill viðburður heimsókn
Friðriks VIII var fyrir þjóðina. Þær
sýna líka hversu konungur lagði sig
fram um að vera alþýðlegur í fram-
göngu, svo og skipan samgangna,
húsakost og klæðnað var á þessum
tíma. Á sýningunni er brugðið upp
myndum af Reykjavíkurdvöl kon-
ungsins og frá ferðinni um Suður-
land.
Mannlífsmyndirnar frá Eskifirði
voru teknar af Halldóru Guðmunds-
dóttur áhugaljósmyndara. Safn
Halldóru er mjög fjölbreytt að
myndefni og í því eru myndir frá
ýmsum stöðum á landinu.
Myndirnar frá Eskifirði end-
urspegla áhugamál hennar, börnin í
bænum, félagsstarf bæjarbúa og
viðburði í bæjarlífinu.
Margt var um manninn í Þjóð-
minjasafninu á opnunardaginn en
ljósmyndasýningarnar munu
standa til 27. nóvember.
Morgunblaðið/Sverrir
Soffía Markan, Ingrid Markan og Guðrún Guðmundsdóttir sýningarstjóri
voru mættar á opnunina í Þjóðminjasafninu.
Ólöf Stefanía Eyjólfsdóttir og Erla Guðlaug Eyjólfsdóttir frá Eskifirði voru
að skoða myndir af gamla skólanum sínum á Eskifirði og Skúla Þorsteinssyni
skólastjóra á ljósmyndasýningunni Mannlíf á Eskifirði á árunum 1941–1961.
Elsa Samúelsdóttir og Margrét Hannesdóttir frá Núpsstað ásamt Margréti
Hallgrímsdóttur þjóðminjaverði við opnun tveggja ljósmyndasýninga í
Þjóðminjasafni Íslands á laugardaginn.
Opnun | Tvær ljósmyndasýningar á gömlum myndum opnaðar í Þjóðminjasafninu um helgina
Konungsheimsókn og mann-
lífsmyndir frá Eskifirði
DAUÐI herra Lazarescus eftir Cristi Puiu var valin
besta myndin á lokahófi Alþjóðlegrar kvikmyndahátíðar
í Reykjavík sem haldið var í gærkvöldi.
Myndin fékk mjög góða umsögn hjá dómnefnd hátíð-
arinnar sem sagði hana tvinna saman þjóðfélagslega
ádeilu og vangaveltur um sammannleg yrkisefni og að í
henni færi harkaleg hreinskilni og tilfinning fyrir hinu
fáránlega en alltaf skini í gegn einstök samúð með við-
fangsefninu. Einnig sagði í umsögn dómnefndar að með
mögnuðu raunsæi og nákvæmni skapaði höfundur
ógleymanlega myndlíkingu á áreynslulausan hátt.
Formaður dómnefndar var breski leikstjórinn Pawel
Pawlikowski, hann vann fyrr í ár bresku BAFTA verð-
launin fyrir mynd sína My Summer of Love sem var
sýnd á hátíðinni. Aðrir í dómnefnd voru kvikmynda-
gagnrýnandinn Dag Södtholt sem kom á hátíðina á veg-
um alþjóðlegu gagnrýnendasamtakanna FIPRESCI og
Kristín Jóhannesdóttir leikstjóri og skólameistari Kvik-
myndaskóla Íslands.
Myndin segir frá hinum hrjáða eldri borgara Dante
Remus Lazarescu og vonlausri leitar hans að læknisað-
stoð um næturbil í Búkarest þar sem hann þvælist á milli
lækna og sjúkrahúsa þar til líf hans fjarar smám saman
út. Aukasýning verður á sigurmyndinni í Háskólabíói kl.
20 í kvöld.
Dómnefndin veitti líka myndinni Heilaga stúlkan eftir
Lucreciu Martel sérstaka heiðursviðurkenningu fyrir
einstaka persónulega sýn og sterka tilfinningu fyrir
formgerð. Óvissubíó hátíðarinnar var Íslandsfrumsýning
á mynd Ólafs Jóhannessonar, Afríka United.
Dauði herra
Lazarescus
besta myndin
Dauði herra Lazarescus er sigurmynd kvikmyndahátíðar.
Kvikmyndir | Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík lokið