Tíminn - 19.11.1970, Síða 2
TÍMINN
Thorvaldsensfélagið 95 ára
- jólamerkið 1970 komið út
FB—Reykjavík, miðvikudag.
Thorvaldsensfélagið er 95 ára
í dag, fimmtudaginn 19. nóvem
ber. Á þeim degi kcmur út
jólamerki félagsins í ár, en
félagið gefur á hverjum jólum
út jólamerki, sem seld eru til
styrktar Barnauppeldissjóði
Thorvaldsensfélagsins.
Það er Stefán Jónsson arki
tekt, sem er höfundur merkis
ins. Hugmynd þess er krossinn
tákn kristninnar gegn um ald-
imar. Baksvið hans er upp-
hafið, fæðingarsagan, hin fyrsta
jólanótt. Á hinum fjórum flöt
um, sem álmur krossins mynda,
eru myndir af stjörnunni, engl
inum, vitringum og loks af
Maríu með Jesúbarnið í jötu.
Rammi lokar merkinu og í hon
um stendur, að hvaða málefni
er unnið með útgáfu jólamerkj
anna áratugum saman. í horn
um meikisins era 9 — 5 — Á
— R, einn stafur í hverju
horni. Litir merkisins eru litir
næturinnar — dökkbláir.
Jólamerkið
MÓTMÆLAYFIRLYSINGAR
FRÁ VERKALYÐSFELÖGUM
EJ—Reykjavík, miðvikudag.
Blaðinu hafa borizt yfirlýsing
ar frá Málm- og skipasmiðasam-
handi íslands, Verkalýðsfélaginu
Einingu á Akureyri, Hinu ísl.
prentarafélagi og Iðnnemasam-
bandi íslands, þar sem frumvarpi
ríkisstjórnarinnar um verðstöðvun
ina er mótmælt.
Þessar ályktanir fara hér á eftir:
Málm- og skipasmiðir
„4. þing Málm- og ski'pasmiða
sambands Íslands haldið í Reykja
vík 14. og 15. nóvember 1970 tel
ur, að frumvarp ríkisstjórnarinnar
„um ráðstafanir til stöðugs verð
lags og atvinnuöryggis" feli í sér
skerðingu á nýgerðum samning
um verfcalýðsfélaganna, þar sem
frumvarpið gerir ráð fyrir breyt
ingu á umsömduim vísitölugrand
velli þannig, að kaup skerðist úm
eitt vísitölustig auk þess sem þar
er gert ráð fyrir að fella niður
tvö vísitölustig.
Þing MSÍ lítur mjög alvarleg
um augum á það, ef frumvarpið
yrði að lögum, þar eð með því
væri frjáls samningsréttur verka
lýðsfélaganna þverbrotinn.
Fyrir því sfcorar 4. þing Málm-
og skipasmiðasambands íslands
á Alþingi, að breyta frumvarpinu
þannig að það raski ekfci áður
nefndum samningsákvæðum.“
Eining, Akureyri
Á fundi laugardaginn 14. nóv
ember samþykkti stjórn Verka
lýðsfélagsins Einingar einróma
eftirfarandi:
„Stjórn Verkalýðsfélagsins Ein-
ingar mótmælir eindregið kjara
skerðingarákvæðum frainkomins
stjórnarfrumvarps um verðstöðv
un og fleira.
Stjórnin lítur svo á, að verði
þessi ákvæði lögfest, séu öl kaup
gjaldsákvæði kjarasamninga úr
gildi fallin, og mun beita sér
fyrir því, að teknar verði upp
viðræður um nýja kjarasamn
inga.
Ennfiremur er það álit stjórnar
innar, að eðlilegt sé að taka til
athugunar að auglýsa lágmarks
kauptaxta fyrir meðlimi félagsins,
ef kjaraskerðingarákvæðin verða
samþykkt og samkomulag tekst
ekki um nýja kjarasamninga inn
an hæfilegs tíma.“
Iðnnemasambandið
Fundur stjórnar Iðnnemasam-
bands íslands ásamt formönnum
aðildarfélaganna á Reykjavikur-
svæðinu, haldinn 16. 11. 1970,
ályktar eftirfarandi um verðstöðv
unina:
,Fundurinn lýsir yfir sam-
stöðu sinni um ályktanir þær sem
ASÍ og hin ýmsu verkalýðsfélög
hafa gefið út um málið.
Telur fundurinn, að með þess
um ráðstöfunum sé verið að ráð
ast á kjör alþýðunnar, og fótum
troða rétt hennar til frjálsra samn
inga við atvinnurekendur.
Fundurinn fordæmir þau ólýð
ræðislegu vinnubrögð, sem höfð
voru í frammi af aðstandendum
frumvarpsins um verðstöðvun, þar
sem þeir tóku ekkert tillit til
afstöðu samtaka alþýðunnar í
máli þessu.
Fundurinn lítur alvarlegum aug
um á þá yfirlýsingu, sem gefin
var, um að til verðstöðvunar mundi
koma og hvenær. Telur fundur
inn yfirlýsinguna vera orsök allra
þeirra verðhækkana, sem dumdu
yfir varnarlausa alþýðuna fyrir
þann dag er verðstöðvunin kom
til framkvæmda.
Fundurinn skilur nauðsyn þess.
að hemill verði hafður á verð
bólgunni og skorar á ríkisstjórn
og Alþingi að ,gera ráðstafanir til
að hefta hana til framtíðar, en
Framh. á 14. síðu.
Slökkt á 40 afmæliskertum
FB—Reykjavík, þriðjudag.
f gær, mánudaginn 16. nóvem
ber, varð Lúðrasveitin Svanur
40 ára, og hélt hún blaðamanna
fund í því tilefni. Þar kom m. a.
fram, að Svanur hyggst halda
tónleika nú um mánaðamótin. Fyrr
á árinu fór Lúðrasveitin m. a. til
Húsavíkur og Akureyrar. og tók
ust hljómleikar sveitarinnar á
þeim stöðum mjög vel. Nú eru
starfandi um fjörutíu hljóðfæra-
leikarar í sveitinni, og margt ungt
fólk. Er félagsandi mjög góður.
Það er ósk forráðamartna Lúðra
sveitarinnar Svans, að gam'lir fé-
lagar úr sveitinni hafi samband
við hana fyrir hliómleika þá, sem
áður era nefndir.
Myndin er tekin af því er sex
fyrrverandi formenn sveitarinnar
slökkva ljósin á 40 kertum. Frá
hægri eru Eysteinn Guðmundsson,
Gísli Ferdínandsson, Hreiðar Ól-
afsson, Þórir Sigurbjörnsson,
Sveinn Sigurðsson og Snæbjörn
Jónsson.
FIMMTUDAGUR 19. nóvember 1970.
NÆSTIFUNDUR NORRÆNA
KENN ARASAM B ANDSINS
VERÐUR í REYKJAVÍK
Dagana 2. — 3. nóv. s. 1. var
haldinn í Osló ársfundur Norræna
kennarasambandsins. Er þetta
þriðji fundurinn, sem haldinn er,
frá þvi að samtökin voru form
lega stofnuð.
Ársfundinn sækja formenn, vara
formenn og ritarair aðildarland-
anna. Einnig halda ritstjórar kenn
arablaðanna fund um sama leyti.
Af fslands hálfu sóttu fundinn
Skúli Þorsteinsson, form. SÍB, Ól-
afur S. Ólafsson, form. LSFK, og
Svavar Helgason, starfsmaður
SIÍIB.
Helztu mál, sem rædd vora á
fundinum að þessu sinni, vora:
1. Launa- og kjaramál kennara
á Norðurlöndum.
2. Nýjungar í skóla- og fræðslu
máluim.
3. Gagnkvæm atvinmuréttindi
kennara á Norðurlöndum.
4. Samnorræn útgáfa og fram
leiðsla á kennslutækjum.
5. Samstarf Norræna kennara-
sambandsins við UíNESOO.
6. Samstarf og þátttaka Nor-
ræna kennarasambandsins í al-
þ j óðakennarasamtökum.
7. Framtíðarverkefni Norræna
kennarasambandsins.
Næsti fundur verður haldinn í
Reykjavík haustið 1971. Formað
ur næsta starfsár var kosinn Skúli
Þorsteinsson, ritari Ólafur S. ÓL
afsson og varaformaður Hans
Hellers, form. sænsku kennarasam
takanna.
Innan vébanda Norræna kenn-
arasámbandsins eru nú um það bil
140 þúsund kennarar frá öllum
Norðuiiöndunum.
(Tímamynd JK)
Slgurður ASalsteinsson við vélina,
STUNDA LEIGU- OG
SJÚKRAFLUG FRÁ
EGILSSTÖÐUM
JK—Egilsstöðum, þriðjudag.
í maí-mánuði s. 1. stofnuðu þeir
flugmennimir Gunnar Þorvalds
son, Sigurður Aðialsteinssoin og
Arngrímur Jóhannsson fyrirtækið
Austurflug. Festu þeir kaup á
flugvél af gerðinni Cessna 180 og
ákváðu að hafa aðsetur fyrir hana
á Egilsstaðaflugvélli. í sumar
stunduðu þeir leigu- og kennslu
flug hér, og einnig hafa þeir farið
allmörg sjúbraflug, en flugvélin
getur borið sjúkrakörfu ásamt
lækni.
f haust samdi svo Póstur og
simi við Austurflug um póstferð
ir frá Egilsstaðaflugvelli til
Raufarhafnar, með viðkomu á
Vopnafirði og Þórshöfn, og til
Breiðdalsvíkur. Einnig hafa þeir
félagar bætt Djúpavogi inn í
áætlunina, en þó er ekki flogið
með póst þangað. Til Raufarhafn
ar er farið á föstudögum og til
Breiðdalsvíkur á laugardögum.
Þetta mun vera í fyrsta sinn,
sem flogið er sérstakar áætlun
arferðir hér með póst. Sigurður
Aðalsteinsson tjáði mér. að vélin
tæki fimm farþega, og væri mönn
um gefinn kostur á að ferðast í
þessum ferðum á venjulegu sæta
gjaldi, milli áðurnefndra staða.
Vélin er eins og fyrr segir
Cessna 180, eins hreyfils, en Slg
urður taldi hana mjög hentuga til
lendingar á misjöfnum flugbraut-
um, eins og víða eru hér um slóð
ir.
Vélin er búin grandvallartækj
um til blindflugs, og eykur það
Öryggi, en þó er ekki flogið að
öllum jafnaði, nema í björtu
veðri. Nokkuð háir þessari starf
semi, að ekki er til skýli á Egils
staðaflugvelli fyrir vélina, en
Sigurður kvað vonir standa til, að
skýlið kæmist upp fyrir áramót, og
nyti Austurflug stuðnings opin-
berra aðiLa til þeirra fram-
kvæmda.
Framsóknarfélag
Kópavogs
Aðalfundur
Framsóknarfé-
lags Kópavogs
verður haldinn
að Neðstutröð 4
fimmtudaginn
19. nóvember
kl. 20.30. Venju
leg aðalfundar-
störf. Guttormur
Sigurbjörnssoo,
bæjörfulltrúi, talar um bæjarmál
in. — Stjórnin.