Tíminn - 19.11.1970, Síða 13
SÍMMTUDAGUK 19. növember 1970.
IÞRÓTTIR
- 4^,.
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Hefur Fram ekki áhuga á
Evrópukeppni bikarhafa?
Hugsanlegt, að Fram takí heldur þátt í keppni borgaliða. Fá þá Vestmannaeyingar þátttöku-
rétt í Evrópukeppni bikarhafa
Alf — Reykjavík. — Með sigri
sínum í Bikarkeppni KSÍ um sið
ustu helgi, tiyggði Fram sér rétt
til þátttöku í Evrópubikarkeppni
bikarhafa. En áður hafði félagið
tryggt sér rétt til þátttöku í Borga-
keppni Evrópu, þar sem Fram
varð bæði Reykjavíkurmeistari og
í 2. sæti í íslandsmótinu.
Velta Framarair því nú fyrir
sér, hvort þeir eigi heldur að
taka þátt í Borgakeppninni en
keppni bikarhafa, þar sem tryggt
er, að einungis fræg og þebkt lið
taka þátt í þeirri keppni. En aft-
ur á móti veltur á ýmsu með þátt
töbu liða í keppni biikarhafa. f
þeirri keppni taka þátt bikarmeist
arar hvers lands, og stundum vill
það bregða við, að óþekfct lið
sigri í þeim.
Vegna aðsóknar er mjög þýð
ingarmikið að dragast gegn
þekfctu liði, sbr. þegar Valur
dróst gegn Benfica og Keflavík
gegn Everton. í>að er þess vegna
ebki víst, að Fram treysti á það,
að félagið dragist gegn þekktu
liði í keppni bikarhafa, þegar
telja má nær öruggt, að í Borga
Harðsnúið lið á
námskeið í London
Klp.-Reykjavík.
Á föstudaginn kemur heldur 15
manna hópur íslenzkra knatt-
spyrnuþjálfara utan til Englands,
en þar munu þeir verða á viku
námskeiði, sem enska knattspymu
sambandið stendur fyrir.
Fer námskeiðið fram í Crystal
Palace Recreation Center í Lond
oa, en það er ein. fullkomnasta
íþróttamiðstöð í Evrópu.
Námskeiðið verður þæði verk-
legt og þóklegt, auk þess sem
þjálfararnir fá tækifæri til að
kynnast þjálfun 1. deildarliðanna
í London og sækja knattspyrnu-
leiki m.a. landsleik Englands og
Austur-Þýzkalands, sem frarn fer
á Weenbley.
Kennarar og íeiðbeinendur á
Babvörhurin.n rak
knattspyrnumenn út
Ekki var opnun nýja íþrótta-
hússins í Breiðholti öllum jafn-
ánægjuleg og ÍR-ingum. Knatt-
spyrnumenn úr Ármanni, sem
'eigja tvo síðustu tímana á
þriðjudagskvöldum, fengu ekki
inngöngu í húsið og voru hrein-
lega reknir í burtu af baðverði
hússins, sem var mjög í mun,
að tímarnir féllu niður, enda
virtist maíðurinn hafa ráðstaf-
að tímum sínum til annars en
að amnast baðgæzlu þetta kvöld
— fyrsta kvöldið, sem húsið var
opið — og bitnaði það á knatt-
spyrnumönnum Ármanns, eins
og fyrr segir. Eru þeir að von-
Framhald á bls. 14.
Karl Guðmundsson, fyrirliði þjálf-
arahópsins, sem fer til London.
námskeiðinu verða færustu menn
enska sambandsins í þjálfunar-
málum og verður yfirmaður þess
Mr. Allea Wade.
Fyrirliði íslenzka hópsins verð-
ur Karl Guðmundsson, en auk
hans og nokkurra þjálfara frá
hinum Norðurlöndunum verða
frá íslandi þessir menn: ,
Þórhallur Stígsson, Keílavík,
Sigurður Steindórsson, Kéfldvik,'
Öm Eyjólfson, ísafirði, Þröstur
Guðjónsson, ísafirði, Guttormur
Ólafsson, Akureyri, Viktor Helga-
son, Vestmannaeyjum, Gísli Magn
ússon, Vestmannaeyjum, Ríkarður
Jónsson, Akranesi, og Reykvíking
arnir Eggert Jóhannesson, Víking,
Jóhannes Eðvaldsson, Val, Jó-
hannes Atlason, Fram, Þorsteinn
Friðþjófsson, Val, Þórólfur Beck,
KR og Hreiðar Ársælson, KR
Framhald á bls !4.
keppninni muni Fram mæta
bekktu liði.
Verði það úr, að Fram velji
heldur Borgakeppnina, þýðir það,
að Vestmannaeyingar öðlast rétt
til þátttöku í Evrópubikarkeppni
bikarhafa næsta ár. En velji
Fram keppni hikarmeistara, munu
Keflavíkingar að öllum líkindum.
öðlast rétt til þáttöku í Borga
keppninni.
Landsliðið
tilkynnt
í dag
Sfcjórn HSÍ boðaði blaða-
menn ekki til fundar í gær tíl
,að tilkynna landsiiðið, sem
leRca á gegn Bandaríkjunum
um næstu helgi, eins og búizt
hafði verið við.
Fundur mun þó verða hald;
inn í dag, og vexður því nánar /
sagt frá leikjunum og íslenzka
liðinu í blaðinu á morgun.
Það er heldur óvenjulegt að
HSÍ boði svona seint til fund-
ar fyriir landsleik, en hingað til(
hefur Jrað verið talið míkilvægt
| að bandknattleiksunnendur fái;
! að vita með nægilegum fyrir-
vara þegar slikir stórleikir:
fara fram á vegum sambands
ins. — iklp.
3. DEILDARLI
— sigraði í bikarkeppninni í handknattleik
í Danmörku
Þessa dagana er ekki um
annað talað í fiskimannabænum
Esbjerg í Danmörku, en hand-
bolta og aftur handbolta, þrátt
fyrir að fótbolti og íshokkey séu
þær greinar, sem hingað til hafa
verið hvað vinsælastar þar, enda
Esbjerg átt meistaralið í báðum
greinum.
Ástæðan fyrir því að handbolti
er a:’lt í einu orðinn svona vin-
sæll í Esbjerg er sú, að Esbjerg
liðið Kvik sigraði í úrslitaleik bik
arkeppninnar í Danmörku. Leik
urinn fór fram í Esbjerg og var
hann milli Kvik, sem leikur í 3.
deiíd og 1. deildarliðsins Skov-
bakken, sem er í 4. sæti í 1.
deild.
íþróttahúsið í Esbjerg var fullt
út úr dyrum og komust færri
inn en vildu. Leikurinn var ofsa
spennandi og skemmtilegur og
var enginn sjáanlegur munur á
liðunum þótt annað væri úr L
deild en hitt úr 3.
Að venjulegum leiktíma var
staðan jöfn 13:13 og var því fram
ilengt um 2x5 mín. Þegtaff 20
sekúndur voru eftir af framleng
ingunni skoraði Kvik sigurmark
leiksins 16:16 og ætlaði þá allt
um koll að keyra í húsinu. Voru
leikmenn Kvik hornir á gullstól
um aUt hús og að lokum alla leið
út á götu. Þetta er í fyrsta sinn,
sem Iið úr 3. deild vinnur bikar
keppnina í Danmörku.
DREGIÐ
í 8-liða úrslitum í
Evrópukeppni deildar
og bikarmeistara
f gærkvöldi var dregið um hvaða
lið eiga að mætast í 8 Iiða úrslit-
um í Evrópukeppnunum í knatt-
spyrnu, en leikirnir eiga að fara
fram 10. og 24. marz næsta ár.
Liðin, sem mætast, eru þessi:
Evrópukeppni deildanmeistara:
Carl Zeiss, A-Þýzkal. — Red Star,.
Júgósl.; Ajax, Holl. — Celtie, Skot-
Jandi; Everton, Engl. — Panathi-
naikos, Grikkl.; Atletico Madrid,,
Spáni — Legia, Póllandi.
Evrópukeppni bikarmeistara:
Psv Eisndhoven, Holl. — Vorwa-
erts, A-Þýzkal.; Comik, Póll. —
Man. City, Engl.; FC Brugge, Belg-
íu — Chelsea, Engl.; Real Madrid,
Spáni — Oardiff, Waíes.
VEGLEGT ÍÞRÓTTAHÚS TEKIÐ í NOTKUN í BREIÐHOLTI
í fyrrakvöld var tekið í gagnið fyrir æsku höfuðborgarinnar mikið og vandað iþróttahús í Breiðholti. Er húsið íþróttahús Barna- og ung
lingaskólans þar. Frá kl. 8 á morgnana til 6 að deginum verður húsið notað til kennslu við skólann, en á kvöldin og um helgar verður það ætl-
að íþróttafélögunum til æfinga og hefur ÍR þar mestan aðgang eða 38 tíma fyrir allar deildir sínar. Er það mikil breyting fyrir félagið, sem
undanfarin 40 ár hefur að mestu verið til húsa í ÍR-heimilinu við Túngötu, en það er löngu orðjð úrelt, og uppfyllir ekki kröfur nútímans.
Nýja húsið í Breiðholti er stórt og vistlegt. Gólfflötur þess er 34x18 m. og er hægt að skipta salnum í tvennt með skilrúmi. Húsið var opnað i
fyrrakvöld og skoðuðu þá gestir salinn. Tók Gunnar, Ijósm. Tímans, þessa mynd við það tækifæri, en þá fór einnlg fram æfing hjá IR-ingum.
Bók um HM í
Mexikó kemur
út fyrir jóiin
Meðal hinna mörgu bóka, sem
koma út um jólin, veffður ein bók,
sem gefin er út á Akureyri, sem
áreiSanlega á eftir að falla kuatfc
spyrnuunnendnm vel í geð.
Hún er um heimsmeistarakeppcj
ina í Mexíkó, seen fram fór í sum
ar og er hún prýdd mörgum mynd
um frá einstökum leikjum í keppD
inni og sagt frá öllum leikjum
hennar.
Bókin er þýdd úr þýzku, en þeii
sern séð hafa þá útgáfu, segja a?
hún sé frábær, og beri hún ai
öðrutn bókum um þessa mikl?
keppni.