Tíminn - 19.11.1970, Page 14
FIMMTUDAGUR 19. nóvember 1970.
TÍMINN
Á VÍÐAVANGI
Framhald af bls. 3.
ríkissjóðs á næsta ári, „eyma-
marka‘ðir“ skattar ern þegar
orðnir allt of margir, launa-
skattur er í mörgum tilfellum
óheppileg tekjuöflunarleið,
sem kemur mjög illa við þá,
sem hafa tekjur af útseldri
vinnu, og fleira má að honum
finna, t.d. það, sem L.Í.Ú. hef-
ur ritað , Alþingi um, þ.e.
greiðsln af aflalilut sjómanna."
Að falsa vísitölu
„Á sérstöku þingskjali leggj-
um við því til, að ákvæði 2.
gr. frumvarpsins verði felld.
Um b: Samkvæmt 4. gr.
frumvarpsins er ákveðið, að við
útreikning kaupgreiðsluvísitölu
skuli eigi taka tillit til verð-
hækkana á tveim li'ðum, sem
nú eru í vísitölugrundvellinum,
þ. e. iðgjaldi til almannatrygg-
inga og útsöluverði áfengis og
tóbaks.
Ennfroiur er í greininni
ráðgert að fresta útreikningi
kaupgjaldsvísitölu um einn
mánuð frá því, sem nú er ákveð
ið, og taka við útreikning tillit
til verðbreytinga sem verða eft-
ir á.
Undirritaðir telja hér um frá
leit ákvæ'ði að ræða, sem ekki
komi til mála að samþykkja.
Vísitölugrundvöllurinn er mæli
tæki, sem á að tryggja launþeg-
um það, að verðlagsuppbótin
samsvari framfærslukostnaðin-
um á hverjum tíma, og kjara-
samningarnir frá 19. júní s.l. og
síðar voru gerðir í trausti þess,
að fyrir hverja vcrðhækkun,
sem grundvöllurinn tók til,
kæmi full verðlagsuppbót.
Einhliða breyting þessa jafn-
gildir því breytingu þessara
samningsákvæða, enda hefur
komið fram, að stærstu lftuh-
þegasamtök landsins líta þessi
— PÓSTSENDUM —
ákvæði mjög alvarlegum aug-
um.
Leggjum við því til, að 4. gr.
frv. verði felld.
Um c: Þriðja nýmæli lag-
anna lýtur að því, að ekki skuli
koma til útborgunar 2 vísitölu-
stig, þ. e. að launþegar skuli
taka þeirrí kjaraskerðingu án
þess, að neitt komi í staðinn.
Þetta ákvæði frumvarpsins
hefur mestum deilum valdið,
og m.a. hefur miðstjórn A.S.Í
lýst þeirri skoðun, að grund-
velli kjarasamninganna sé
kippt brott og þeir úr gildi
fallnir hvað öll kaupgjalds-
ákvæði áhrærir, verði þessi
frumvarpsákvæði, svo og þau,
er um getur í b-lið lögfest.
Nú hefur ríkisstjórnin hopað
nokkuð í þessu máli á þann
hátt að lofast til að greiða nið-
ur liin umræddu vísitölustig á
tímabilinu frá 1. desember
til 1. marz 1971 og fresta á
þann liátt hinni beinu kjara-
skerðingu, sem hér um ræðir.
Engu að síður er til þess ætl.
azt, að ákvæði greinarinnar
verði lögfest óbreytt.
Við undirritaðir teljum, að
ckki komi til greina að lög-
festa ákvæði þau, er hér um
ræðir, gegn jafneindregnum
mótmælum launþegasamtak-
anna og fram hafa komið, enda
mundi af því leiða erfiðleika á
vinnumarkaði, sem fráleitt
væri að Alþingi ætti hlut að
því að skapa.“
Hætt komin
Framhalc af bls 3.
varnar áðurnefndri hættu af þeim
tækjum og búnaði sem nú er í
notkun, hvetja eindregið bæði al-
menning og útvarpsvirkja til þess
að leggjast á eitt með að útrýma
nefndri hættu af þessum hlutum
svo fljótt sem auðið er.
Leiðir til úrbóta: 1. Að setja
viðurkenndan viðtengiútbúnað
fyrir loftnet og viðtæki. 2: Að
setja viðurkennda öryggisþétta
'framan við málmstangir inni-
ðoftneta.
Að sjálfsögðu er aukinn skiln-
ingur og árvekni almennings
þyngst á metum í þessu efni sem
6ðru er slysavörnum viðkemur.
Maðurinn minn
Hálfdán Sveinsson,
kennari
lézt i gær á sjúkrahústnu á Akranesi.
Dóra Erlendsdéttir
börn og tengdabörn.
TamfflmwmmmmmæmmmmmnmmmmmmmmmmmKHm
JarSarför konunnar minnar
Þorbjargar Ásgeirsdóttur,
Merkigarði, Stokkseyri
fer fram frá Stokkseyrarkirkju, laugardaginn 21. nóvember kl. 2 e.h.
Bílferð verður frá Bifreiðarstöð íslands kl. 12 á hádegi.
Guðmundur Einarsson.
Við þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og útför föður ókkar
Þórarins Snorrasonar
frá Bjarnastöðum, Selvogi.
Börnin.
Systir okkar og fóstra mín,
Ólöf Guðný Jónsdóttir,
verður jarðsungin I Fossvogskirkju föstudaginn 20. nóvember kl.
1,30 e. h.
Sigurbjörg Jónsdóttir,
Ingveldur Jóna Jónsdóttir,
Jón Jónsson,
Gunnar H. Þórisson.
Seinagangur
Framhald af bls. 16.
á fjölbýlishúsi með 13 íbúðum.
íbúðirnar eru frá 75 — 84 ferm.
auk sameignar í kjallara. Það sýn
ir hve húsnæðisþörfin á Egilsstöð
um er brýn, að þegar er búið að
fala allair þessar íbúðir, þótt þær
hafi ekki verið auglýstar.
Af öðrum framkv. sem fyrirhug
aðar eru á næsta ári má nefna
að undirbygging verður hafin á
nýjum vegi þar sem þjóðvegur
inn liggur í gegn um Egilsstaði
frá vegamótunum við Egilsstaða
flugvöll og að vegamótum við
Fagradalsbraut. Er þetta eini veg
arkaflinn á Austurlandi, sem áætl
að er að verði hraðbraut og verð
ur undirbyggður samkvæmt þvl.
Iðnaðinum
Framhalu ai bls. 1
Þótt nær ár sé liðið síðan rætt
var um aðild íslands að EFTA á
Alþingi, hefur sáralítið verið gert
til að auka rekstrarlán iðnaðarieis.
Þó hafa á þessum tíma orðið mikl-
ar kauphækkanir, sem hafa auki®
verulega rekstrarlánaþörf iðnaðar-
ins. Nú vofir líka yfir mörgum iðn-
fyrirtækjum að stöðvast, ef þau fá
ekki aukin rekstrarlán. Morgun-
blaðið nefndi nýlega Slippstöðina
á Akureyri sem dæmi um þetta.
Haldi þessu áfram, er ekki ann-
að fyrirsjáanlegt en að samdráttur
verði í iðnaðinum og samkeppni
hans við EFTA-vörur verði mjög
erfið og jafnvel útilokuð, þar sem
erlendir keppinautar geta veitt ríf-
lega greiðslufresti.
Þessi tiilaga er flutt til a® stuðla
að því, að iðnaðinum sé a. m. k.
tryggt víst ,’ágmark rekstrarlána.
Efni hennar er að mestu samhljóða
tillijgum atvinnumálanefndar
Reykjavíkurborgar frá því í des-
érfiber 1968. Nefndiei taldi nauð-
synlegt fyrir atvinnuöryggið, að
iðnfyrirtækin hefðu tryggingu fyr-
ir ákveðnu lágmarki rekstrarlána.
í samræmi við þetta skal það
tekið fram af hálfu flutningsmanna
að litið er á þessar til/ögur sem
hreina bráðabirgðalausn og kc .a
þurfi þessum málum í miklu full-
komnara horf í framtíðinni."
• •
0r vöxtur
Framhald al bls. 1
Arkitektafélagi íslands skal
gefinn kostur á að tilnefna
einn nefndarmann, Verkfræð-
ingafélagi íslands einn ,en þrír
9kulu kosnir af borgarráði.
Er tillögur nefndarinnar
liggja fyrir skal fá umsögn
borgarverkfræðings og skipu-
lagsstjóra uen þær, svo og ann-
arra þeirra, er fengur verður
talinn í að fjalli um tillögurnar.
Síðan skal borgarráð ganga
frá reglugerð um starfssvið og
starfshætti skipulagsdcildar
og hefjast handa um uppbygg-
ingu hennar.“
Sporhundar
Framhald aí bls 16
ur hundurinn sýnt eftirtektarverð
an árangur eftir 9 vikna þjálfun.
Hjálparsveit skáta í Hafnar-
firði hefur um árabil haft spor
hunda til þjálfunar í tilraun.askyni,
og á grundvelli þeirrar reynslu
sem Hafnarfjarðarskátarnir hafa
öðlazt. hefur nú verið ráðizt í að
þjá.'fa tvo sporhunda. Góður árang-
ur náðist me® sporhundinn B: gsa,
en hann drapst af eitrun. Sem
dæmi um góðan árangur með
Bangsa má nefna eftirfarandi
dæmi:
Eftir klukkutíma leit fann
hann á Arnarholti á Kjalarnesi
mann, sem leitarflokkar höfðu leit-
að að í fimm klukkustundir ón
árangurs. Hann leitaði að manni
á Þingvöllum og rakti slóð hans
á ákveðinn stað, en síðar kom
í Ijós, að þar hafði maðurinn far
ið upp í bifreið. í Vestmannaeyj
um rakti hann slóð manns fram
á bjargbrún, en maðurinn hefur
aldrei fundizt svo að vitað sé.
Leitairstörf krefjast mikils og
leitir kosta oft of fjár. Góður
sporhundur er ómetanlegur öllu
leitarstarfi og getur oft sparað
tíma, fé og fyrirhöfn fjölda
manna, og stundum getur góður
sporhundur rifiið baggamuninn,
þegar um líf eða dauða einstakl
inga ea- að tefla.
Rétt er að hafa í huga, að
þó að þjálfun þessa hunds takist
vel, eins og full ástæða er til
að ætla, er hér engin endanleg
lausn fengin. Til þess að svo
verði er nauðsynlegt að fá fleiri
hunda til þjálfunar og það sem
allra fyrst. T. d. er ekki hægt
að fara með sporhund til leitar,
ef hann hefur verið þjálfaður
sama dag. Einnig er rétt að hafa
í huga, að skyndilega getur gerzt
óhapp, og er þá óverjandi, ef ekki
eru, þá þegar, til þjálfa'ðir spor-
hundar, sem tækju við. Samkvæmt
fyrri reynslu er betra að fá óþjálf
aða hvolpa af góðu kyni, heldur
en að fá hingað fullorðna, þjálf-
aða sporhunda.
Verðhækkanir
Framnald ai bls. 16.
í atvinnumálunum lagði þingið
megináherzlu á þessi atriði:
1. Tryggja þarf að skipasmíðar
verði hér öruggur atvinnuvegur
með því að smíða þau skip er
landsmenn þarfnast í íslenzkum
skipasmíðastöðvum.
Gerð verði og framkvæmd áætl
un um smíði fiskiskipa innanlands
miðað við endurnýjunar- og við-
bótarþörf fiskiskipa'stólsins og að
smíðaðar verði staðlaðar stærðir
og gerðir fiskiskipa.
2. Byggð verði þurrkví þar sem
mögulegt verði að framkværoa
viðgerðir og viðhald þeirra kaup
skipa sem til landsins sigla. Bygg
ing og rekstur þurrkvíar myndi
spara mikinn gjaldeyri árlega, auk
atvinnu og treysta rekstrarmögu
leika íslenzkra málmiðnaðarfyrir
tækja.
3. Takmarkaður verði eins og
kostur er innflutningur á fram-
leiðslu sem innlend málmiðnaðar
fyrirtæki framleiða og smíða.
Jafnframt verði viðgerðir og
viðhald íslenzkra skipa fram-
kvæmt innanlands, hamli því ekki
sérstakar aðstæður.
4. Komið verði upp fullkominni
birgðastöð sem eigi jafnan fyrir
liggjandi alge.ngustu tegundir
málma og önnur nauðsynlegustu
smíðaefni er íslenzkur málm- og
skipasmíðaiðnaður þarfnast. Birgða
stöðin leitist við að gera sem
hagkvæmust innkaup.
íþróttir
Framhald af bls. 13.
um óánægðir með þessa fram-
komu baðvarðarins, sem er fyr-
ir neðan allar hellur.
Yfirleitt hefur verið gott
samstarf milrf íþróttafélaga og
skóla, vegna afnota íþróttafé-
laga af íþróttahúsum skólanna.
Er vonandi, að svo verði einnig
um afnot af íþróttahúsinu í
Breiðholti. Gefst baðverðinum
tækifæri til að biðja Armenn-
inga afsökunar á framkomu
sinni nk. þriðjudagskvöld, en
ennþá er óútkljáð, hvort hann
verður látinn greiða fyrir tím-
ana, sem ekki voru notaðir sl.
þriðjudagskvöld — alla vega
greiðir Ármann þá ekki, af
skiljanlegum ástæðum.
— alf..
©lETnrtiD
Bræður tveir í baugakleif
bjuggu lengi saman,
hvor af öðrum hárið reif,
þeir höfiðu ei annað gaman.
Ráðning á síðustu gátu.
Steinn.
í sjöttu einvígisskák Kava.’ek
(hvítt) og Bent Larsen kom þessi
staða upp. Larsen á leik.
22. — DxR?. (auðvitað exd5!)
23. Rg4! — Dd8? 24. d5H — exd5
25. Dd4! — HxHt 26. HxH — Df8
27. Rf6f og Larsen gafst upp
nokkrum leikjum síðar.
Mótmælayfirlýsingar
Framhald af bls. 2 '
að þess verði jafnframt gætt, að
ekki verði gengið á hlut alþýð
unnar í þeim ráðstöfunum."
Prenfarafélagið
„Stjórn Hins íslenzka prentara-
félags mótmælir eindregið fram-
komnu frumvarpi um „verðstöðv-
un“ og fleira, sem fram hefur ver-
ið lagt á Alþingi. Sér í lagi mót-
mælir stjórnin harðlega því virð-
ingarleysi fyrir samningsfrelsi
verkalýðshreyfingarinnar, sem
meðal annars kemur fram í frest-
un á greiðslu verðlagsuppbótar á
laun til 1. september 1971.
Stjórnin lítur svo á, að með af-
námi verðlagsuppbótar á laun
hafi ríkisvaldið enn einu sinni
skent rétt verkalýðshreyfingarinn-
ar til aS gera samninga við við-
semjendur sína, oig um leið rofið
þann grundvöll, sem kjarasamning
amir á síðastliðnu sumri byggðust
á, en verðlagsuppbót á laun var
einn aðalávinningur þeirra samn-
inga.
Um leið og stjórn Hins íslenzka
prentarafélags skorar á Alþingi
að fella frumvarpið, vill hún
benda á, að verði frumvarpið sam-
þybkt, gæti svo farið, að verka-
lýðshreyfingin teldi nauðsynlegt
að taka upp aðrar aðferðir til
tryggingar launakjörum sínum en
tíðkazt hafa til þessa, aðferðir,
sem sízt munu til þess fallnar að
skapa vinnufrið í landinu og því
óhagstæðar þjóðfélaginu í heild.“
íbróttir
Framhald af bls. 13.
Úr þessum hóp væri hægt að
gera harðsnúið knattspyrnulið,
a.m.k. gott varnarlið því í hon-
um eru margir núverandi og fyrr
verandi landsliðsmenn, aðallega
þó varnarmenn. En það er áber-
andi hvað mikið fleiri varnar-
menn hafa gerzt þjálfarar í knatt-
spyrnu hér á landi um dagana,
en framlmumenn.