Tíminn - 14.01.1971, Blaðsíða 12

Tíminn - 14.01.1971, Blaðsíða 12
12 ÍÞRÓTTIR TÍMINN ÍÞRÓTTIR FíIYIMTUDAGUR 14. jamrar ISíl K]arfan Bergmann Guðjónsson: Flokkaglíma Reykjavíkur 1970 ÖviSunandi, að reykvískir glímumenn þurfi að halda mót sín utan Reykjavíkur Árið 1070 Iheíur verið gott glímu ár. Góð þátttaka hefur verið í öll- um helztu glímumótum og nýtt landsmót, Sveitaglíma íslands, var feáð í fyrsta sinni. Síðasta glímumóti ársins 1070 er nú lokið, og einu blaði enn í iglímu sögu íslendinga hefur verið flett um þessi áramót. Að þessu sinni var Flokkaglíma Reykjavikur háð í íþróttahúsinu á Seltjamarnesi hinn 13. desem- ber. Er nú svo komið, síðan fþróttahúsið á Hálogalandi var rifið, að ekkert nothæft húsnæði er fáanlegt í Reykjavík til að halda glímukeppni í, og er hér um mikla og óviðanandi; afturför #ð ræða varðandi glímukeppni. Ekki er hægt við það að r.na fyrir reykvíska glímumenn, að fara verði út fyrir Reykjavík til að hægt sé að heyja kappglímu, þar sem viðunandi aðstaða fyrir áhorfendur sé fyrir hendi. Er því afar nauðsynlegt, að unnið verði að bættri aðstöðu til glímukeppni og sýninga í Reykjavík os nú þegar verði leitað eftir aðstöðu í hepþilegu samkomuhúsi, sem hefur sýningarpall. Þátttaka í Flokkaglímu Reykja- víkur var góð að þessu sinni. Keppl var í öllum þyngdarflokk- u-m f'Ullorðinoa og einnig í drengjaflokkunum. Þátttakendur voru 21: Frá Glímufélaginu Ár- manni 3, Knattspyrnufél. Rvíkur 9, og frá Ungmennafélaginu Vík- verjar 9. Glímustjóri var Guð- mundur Ágústsson, en yfirdómari Garðar Erlendsson. Meðdómendur voru Ágúst Bjaranson oe Ólafur Guðlaugsson. I. þyngdarflokkur í I. þyngdarflokki voru þátttak- Laxveiðimenn Tilboð óskast í veiðirétt 1 Blöndu næsta sumar, og einnig í Seyðisá á Auðkúluheiði. Formaður veiðifélagsins, Pétur Pétursson, Höllu- stöðum, veitir allar nánari upplýsingar, og til- boðum sé skilað til hans fyrir 10. febrúar 1971. Sími um Bólstaðarhlíð. Stjórn „Veiðifél. Blanda". AUGLÝSING Sveitarstjórnirnar í Reykjavík, Hafnarfirði, Kópa- vogi, Garðahreppi, Kjalarneshreppi, Mosfellshreppi og Seltjarnarneshreppi hafa samþykkt að nota heimild í 2. málsl. síðustu málsgr. 31. gr. laga nr. 51. 10. júní 1964, um tekjustofna sveitarfélaga, sbr. breyting frá 10. apríl 1968. Samkvæmt þessu verða útsvör þessa árs því að- eins dregin frá hreinum tekjum við álagningu út- svara á árinu 1972 í áðurnefndum sveitarfélögum, að gerð hafi verið full skil á fyrirframgreiðslu eigi síðar en 31. júlí í ár og útsvör ársins einnig að fullu greidd fyrir n.k. áramót. Sé eigi staðið í skilum með fyrirframgreiðslur samkv. framan- sögðu, en full skil þó gerð á útsvörum fyrir ára- mót, á gjaldandi aðeins rétt á frádrætti á helming útsvarsins við álagningu á næsta ári. Þá skal vak- in athygli á því, að þar sem innheimta gjalda til ríkis og sveitarfélaga er sameiginleg (sbr. lög nr. 68 frá 1962) er það enn fremu*skilyrði þess, að útsvör verði dregin frá tekjum við álagningu, að öll gjaldfallin opinber gjöld, sem hin sameigin- lega innheimta tekur til, séu að fullu greidd fyrir ofangreind tímamörk. 12. janúar 1971. Borgarstjórmn í Reykjavík Bæjarstjórinn í Hafnarfirði Bæjarstjórinn í Kópavogi Sveitarstjórinn í Garðahreppi Oddvitinn í Kjalarneshreppi Svei.tarstjórinn í Mosfellshreppi Sveitarstjórinn í Seltjarnarneshreppi. endar fjórir og varð Sigti-yggur Sigurðsson, KR, þar sigurvegari. Sigtryggur var í allgóðri æfingu, en ætti að glíma léttar og standa beinni að glímunni, og væri æski- legt, að dómarar væru betur vak- andi yfir sliku almennt en raun er ó. Sigtryggur er glöggskyggn á veilur andstæðingsins og notar réttu augnablikin til úrslita. Hann lagði á þessum brögðum: Sveia á 'klofbragði, Sigurð á sniðglímu niðri og Þorvald á klofbragði. Sigurður Jónsson, Víkverjum, var annar að vinningum. Hann glímdi vel og vaskmannlega, en byggir glímu sína ekki ennþá upp af nægileg'U öryggi, en klofbragð það, setn hann lagði Svein Guð- mundsson á, var fallega og vel tekið. Hann lagði Þorvald Þoi-- steinsson á sniðglímu niðri. Sveinn Guðmundsson, Ármanni, hafnaði nú í þriðja sæti með einn vinning, lagði Þorvald Þorsteins- son, á ‘hægri fótar klofbragði. — Sveinn virtist ekki vera í mikilli æfingu að þessu sinni. Hann glím ir alltaf vel og drengilega og sendur beinn og fallega að glímu. Úrslitabragð Sveins er hægra fót ar klofbragð, setn oft er mjög vel teiið. Þorvaldur Þorsteinsson, Ár- manni, hlaut engan vinning að þessu sinni. Hann stendur allvel að glímu og veitti Sigtryggi harða mótstöðu, sem entist næstum því út lotuna. II. þyngdarflokkur í II. þyngdarflokki voni þátt- takendur fjórir. f fyrsta og öðra sæti voru Víkverjarnir Gunnar R. Ingvarsson og Hjálmur Sigurðs- son jafnir að vinningum, felldu keppinauta sína, en skildu jafnir eftir lotuna, en í úrslitaglímunni lagði Gunnar Hjálm á fallegum mjaðmarhnykk. Þessir tveir glímu menn mega teljast í sérflokki hvað glímuhæfni snertir. Þeir glíma báðir létt, standa vel að giímu og eru fjöibrögðóttir. Gunnar hefur meira öryggi til að bera í glímu, en Hjálmur er meiri sóknarmaðar. Gunnar lagði Matthías á krækju, Ómar á hælkrók h.á.v., og eins og áður er sagt lagði hann Hjálm í únslitaglímunni á mjaðmar- hnykk. Hjálmur lagði Ómar og Matthías á Mofbragði. Ómar Úlfarsson, KR, varð 3. maður að vinningum. Hann lagði Matbhías Guðmundsson á hælkrók h.á.v. Ómar er mjög vel glíminn og reyndur glímumaður og glímdi vel að þessu sinni. Hann þarf að temja sér meiri mýkt í glím- unni 'til að geta náð þeim árangri, VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN Lagerstærðir miðað við múrop: Hæð: 210 sm x breidd: 240 sm 210 - x - 270sm Aðror stærðir. smíðaðar eftir beiðn’u GLUGGASMIÐJAN Sidumúla 12 - Sími 38220 AS loknu klofbragði í futlu jafnvaegi, þegar rétt er skitSS við mófherja. Myndin er af Hjálmi SigurSssyni, en bann var einn af loeppendum í flokka- glímunni. sem 'honum ætti með þvl móti að vera auðvelt að ná. Matthías M. Guðmundsson, ER, er byrjandi í glímu og tæplega búinn að fó þá æfingu eða kunn- áttu, að rétt sé að senda hann í kappglímu. Matthías virðist geta orðið góður og drengilegur glímumaður með réttri þjálfun. Hann þarf að temja sér miklu meiri mýkt og forðast að sleppa tökum of seint í fallinu, eins og nú kom fyrir. III. þyngdarflokkur f III. þyngdarflokki voru þátt- takendur þrír KR-ingar, og bar Rögnvaldur Ólafsson þar sigur af hólmi. Rögnvaldur er gott glímu- mannsefni, sem glímir létt, en þarf að temja sér fallegri glímu- stöðu. Rögnvaldur lagjþi Ólaf og Elías á hælkrók h.á.V. Ólafur Sigurgeirsson glímir aílt- of þungt og sterkt og ætti að venja sig á meiri léttl. í glímu. Hann hlaut einn vinning, lagði Elías Árnason á hælkrók h.á.h. Elías Árnason getur verið skemmtilegur glímumaður, en hættir til að glíma *f þungt. Sé hann í góðri æfingu oj temji sér meiri léttleika en hann hefur van- ið sig á, gctur hann náð ágætum árangri í glúnu. Unglingaflokkur í unglingaflokki voru aðeins 2 keppendur, þeir Ilörður Hilmars- son, KR, og Reynir Árnason, Vík- verjum. Þeir skildu jafnir eftir eina lotu, en í úrslitaglímun.ni sigraði Hörður, lagði Reyni í sniðglímu niðri. Drengjaflokkur í drengjaflokki voru fjórir þátt- takendur: Þrír Víkverjar og einn Ármenningur. Um drengina er óhætt að segja, að þeir hafi allir glímt vel og sýnt góða kunnáttu, og lofar glíma þeirra vissulega góðu um fallega glímu. Sigurvegari í drengjaflokki var Guðmundur Ingvason, Vík- verji. Hann lagði alla viðfangs- menn sína á hreinum og fallegum brögðum. Guðmundur lagði Helga Halldórsson á hælkrók h.á.v., en Guðmund Einarsson og Halldór á sniðg&ma á MIi. Næstur hoiiam að vinnÍTigum var HáHdór Kon- ráðsson, Vífcverji. Hatrn lagði Guð mucid Einarsson á hælkrók h.á.v. og Helga á sniðglimu niðri. Helgi Ilalldórsson, Ármauni, varð þriðji að vinningum. Hann fékfc viuning í giímitmdi við Guð- mund Einarsson, sem rann óvænt til í byrjun klofbragðs og hlaut af byltu. Sveinaflokknr _ # I sveinaflokki voru þátttakend- ur fjórir: Tveir KR-ingar, Ólafur Rósarsson og Hjörleifur Pálsson, og Víkverjarnir Ósfcar Valdimars- son og Jón Friðgeirsson. _ Sigurvegari í sveinaflokki varð Óskar Valdimarsson, Víkverji, og sýndi hann iang rnesta kunnáttu þeirra og ágæta glímuhæfni. Hin- ir sveinarnir eru allir byrjendur í glímu. Óskar lagði á þessum brögðum: Jón Friðgeirsson á hæl- krók h.á.h., Ólaf á leggjarbragði á lofti og Hjörleif á bælfcrók h.á.v. Jón Friðgeirsson, Víkverji, var annar að vinningum. Hann^ lagði Hjörleif á hnéhnykk og Ólaf á sniðglímu niðri. Ólafur Rósarsson, KR, hlaut 1 vinning, lagði HjörMf á snið- glímu niðri. Heildarsvipur þessarar Flokka- glímu Reykjavíkur, var yfirleitt góður og auðséð, að keppendur gengu til leiks með því hugarfari að glíma vel og drengilega og láta ekki óheft ofurkapp villa sér sýn í hita keppninuar og óvirða glímuíþróttina á þann hátt. Vonandi verður áframhald á jafn-góðri glímu og þessi flokka- glíma var og þessari fögru og góðu íþrótt, glímunai, verði ekki — síns og stundum hefur sézt — breytt í eins konar þursafang. Það er aldrei vandalaust að dætna glímu. Dómarar þurfa ætíð að gæta þess vel, að ekki sé þol- azt eða nítt í glímunni eða hangið í tökum í byltunni, -en í því eru fólgin ein hættulegustu og tíð- ustu brot á glímulögunum. Ég vona og ósk'a, að þetta ný- byrjaða ár verði gott og gæfuríkt ár fyrir glímuna og framgaug hennar.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.