Tíminn - 14.01.1971, Síða 13
r
MMMTGDsMÍUR 14. Jaaúar 1971.
ÍÞRÓTTIR
TIMINN
ÍÞRÓTTIR
13
Gunnlaugur á gömlum slöðum
Eins og við sögðum fyrir skömmu, báðu ÍR-ingar Gunnlaug Hjálmarsson um að taka við þjálfun 1.
deiidarliðs þeirra, eftir að honum hafði verið sagt upp störfum hjá Fram. Gunnlaugur mun hafa gert
ákveðnar kröfur tll leikmarma ÍR, ef hann ætti að taka við þeim og gengu leikmennirnir fúslega
að þeim. Fyrsta æfing Gunnlaugs hjá sínu gamia félagi var sl. þriðjudag, og var þessi mynd þá tekin.
ÞRIÐJI ÍSLENDINGURINN
YFIR 2 METRA í HÁSTÖKKI
Hið árlega Jólamót ÍR í frjáls
nm íþróttum innanhúss var hald
ið í ÍR-húsinu við Túngötu dag
ana 27. og 29. desember s. 1.
Athyglisverður árangur náðist
í mörgum greinum, en lang hæst
ber afrek Elíasar Sveinssonar, 18
ára pilts, er tókst nú að stökkva
í fyrsta sinn yfir 2.00 mtr. í há-
stJöfcki, og er hann þriðji íslend
ingurinn er nær því marki. Þessi
árangur Elíasar er nýtt ísl.
drengjamet innanhúss og ennfrem
ur jöfnun á innanhúss unglinga-
meti Jóns Þ. Ólafssonar frá árinu
1961. Elías hefur æft mjög vel
í vetur og er líklegur til að þæta
afrek sín mjög verulega í hinum
ýmsu greinum í vetur og á kom
andi sumri, en hann er sem kunn
er mjög fjölhæfur og efnilegur
tugþrautarmaður.
Mjög skemtileg keppni var á
mótinu í öðrum greinum, má þar
m.a. nefna sigur Elíasar yfir Jóni
Þ. Ólafssyni í langstökki án
abrennu, en Jón hefur verið nær
ósigrandi í þeirri grein s. 1. ára
tug, en Elías náði þarna sínum
hezta árangri í skemmtilegri
keppni við Jón, en þess ber að
geta að sá síðarnefndi hefur ekk
ert æft í vetur.
Annars voru helztu úrslit móts
ins þessi:
Fyrri dagur:
Hástökk án atrennu:
Jón Þ. Ólafsson ÍR 1.66
Elías Sveinsson ÍR 1.57
Erlendur Valdemarsson _ÍR 1.57
Friðrik Þór Óskarsson ÍR 1.57
Guðmundur Jóhanness. HSH 1.53
Langstökk án atrennu:
Elías Sveinsson ÍR .320
Jón Þ. Ólafsson ÍR _ 3.15
Friðrik Þór Óskarss. ÍR 3.07
Erlendur Valdemadsson ÍR 3.00
Þrístöbk án atrennu:
Elías Sveinsson ÍR 9.49
Friðorik Þór Óskarsson ÍR 9.16
Ágúst Ásgeirsson ÍR 8.11
Einar Guðjohnsen ÍR 8.03
Hástökk með atrennu:
Elías Sveinsson ÍR 1.90
Erlendur Valdemarsson ÍR 1.68
Síðari dagur:
Hástökk með atrennu:
Elías Sveinsson ÍR 2.00
ísl. drengjam. innanhúss
Friðrik Þór Óskarsson ÍR 1.70
Guðm. Jóhannesson HSH 1.66
Ágúst Ásgeirsson ÍR 1.66
Einar Þorgríimsson ÍR 1.60
Magnús G. Einarsson ÍR 1.56
ísl. piltamet innanhúss
Langstökk án atrennu:
Friðrik Þór Óskarsson ÍR 3.18
Elías Sveinsson ÍR 3.14
Sigfús Jónsson ÍR 2.55
íbrox Park-slysið
Nú er 12 ára
gömlum, látnum
dreng kennt um
Á víðavangi
Framhaid ai öLs. 3
þegar þeir eru orðnir staðnað-
ir og þreyttir, eins og öllum er
að verða ljóst að eru helztu
einkenni þein-a eftir langa
valdasetu? Trúir nokitur því,
að við getum leyst með sóma
vandamál áttunda áratugsins,
ef við sýnimi ekki í verki meiri
ráðdeild og stjórnsemi í fjár-
festingarmálum og fjárstjórn.
armálum rikisins en gert hef-
ur verið á nýliðnum áratug?
Trúir því nokkur, að við getum
leyst vandamál áttunda ára-
tugsins með nýjum Osj nýjum
gengisfellingum? Jú, það gera
núverandi valdhafar, sem
halda óbreyttri stefnu, sem
leiddi til fjögurra gengisfell-
inga á síðasta áratug og safna
nú óðum í þá fyrstu á áttunda
áratugnum. Eru þcir ekki orðn
ir fáir, sem trúa því ekki. að
okkur er nauðsyn á nýrri for-
ystu og nýjum vinnuhriigðum til
að leysa hin miklu viðfan?sefni,
sem okkar bíða á áttunda ára-
tugnum?
Undir forystu Ólafs Jóhann-
essonar, formanns Framsóbnar-
flokksins, hafa Framsóknar-
menn reynt að horfa fram á
f leið og markað sér stefnu, sem
miðast við þau verkefni, sem
bíða okkar á áttunda áratugn-
um. Stefna Framsóknarflokks-
ins hefur vendilega verið út-
færð f einstökum atriðum í
flutningi mikils fjölda saman-
tengdra og samhæfðra frum-
varpa og þingsályktunartillaga.
Framsóknarflokkurinn hefur
nú skýrari og afdráttarlausari
stefnu í stærstu framtíðarmál-
um þjóðarinnar en nokkur ann-
ar stjórnmálaflokkur, og flokk-
urinn skorar á þjóðina að
kynna sér þes,si mál sem bezt,
því að flokkurinn treystir þvi
að þjóðin láti ekki blekkjast
enn einu sinni, og að þjóðin
muni vilja fylgja fram þeirri
alhiiða framfara- og umbóta-
stefnu, geri hún sér nægilega
Ijóst, hvað um verður að velja
í kosningunum að vori. — TK
Viðskipti
Kramhaid al eis 6
að. en út í það skal ekki farið,
vroi að miða allar framkvæmdir
við það, að þær hefðu almennt
gildi og yrðu ti; gagns og g-m-
ans fyrir landsmenn sjálfa.
Það er þegar orðið tímahært,
að verk verði látin koma í stað
endurtekinna orða og lauslegra
greinargerða. Þessi atvinnu-
grein okkar íslendinga er það
langt á veg komin, að verulegar
líkur eru á því, að t. d. alþjóð-
legar fjármálastofnanir, sem
hafa ferðamái'aþróun ofarlega á
stefnuskrá sinni, vilji veita okk
ur liðsinni, ef eftir því væri
leitað og skipulegar áætlanir
lagðar fram. í slíkum málum
er þess ekki að vænta að einka-
fyrirtæki gangi fram fyrir
skjöldu. Hér er komið að rík-
isvaldinu sjálfu, sem of lengi
hefir láti'ð stjórnast af atburða-
rásinni í stað þess ’að hafa áhrif
á hana. Atburðarásin er þegar
hafin á nýju ári og enn eitt
tækifæri komið ti’ stefnumót-
unar og verka. Vonandi verður
það ekki látið ganga úr greip-
um.
Heimir Hannesson
ÚR QG SKARTGRIPIR:
KORNELÍUS
JONSSON
SKÓLAVÖRDUSTiG 8
BANKASTRÆTie
£“»18588-18600
John Rankin þingmaður frá
Glasgow h,efur að sögn lagt mikla
vinnu í rannsókn á hinu hroða
lega slysi, sem varð á Ibrox park
er 66 manns, þar af flestir ungling
ar, létu lífið. Hann telur sig hafa
fundið út hveir ástæðan hafi ver
ið, eftir að hafa rætt við marga
sjónarvotta, og útskýrði það á
blaðamannafundi fyrir skömmu..
„12 ára gamall drengur var
að klæða sig í frakkann“, sagói
hann, „þegar lið hans, Rangers,
jafnaði á síðustu sekúndu leiksins
1:1. — Það er mark hrópaði hann,
og lyfti báðum höndum til him-
ins.
En á einhvern hátt féll frakk
inn yfir höfuð hans, og hann hras
aði um eina tröppu en það varð
til þess að skriða af hrópandi
mannfjölda rann af stað ... og
66 biðu bana, og tugir slösuðust,
sumir það mikið að þeir verða
öryrkjar alla sína æfi, og margt
af þeim eru börn og unglingar."
Strax eftir slysið var stofnaður
sjóður til styrktar þeim, sem -um
sárt áttu að binda og gaf Glas
gow Rangers þegar í þann sjóÖ
sem svarar 13 milljónum ísl.
króna, og peningar hafa streymt
víða að í sjóðinn. Jim Baxter,
fyrrum „Rangers-stjarna“, á öl
krá rétt hjá vellinum, og sagði
hann að á einum tíma hefðu gest
ir hans safnað sem svaratr 120
í þús. ki'ónum.
Þetta mikla.^lys hefur orðið til
þess að á öílum völlum í Éng-
landi og víða annarsstaðar í heim
inum fara nú fram miklar rann
i sóknir á áhorfendastæðum. Meðal
Enska bikarkeppnin
Nokkrir leikir fóru fram í
3. umferð ensku bikarkeppn-
innar á mánudagskvöldið. Óvænt-
ustu úrslitin þar voru sigur Roeha-
dafe, sem er neðarlega í 3. deild,
yfir 1. deildarliðinu Coventry 2:1,
jafntefli Roterham úr 3. deild og
Leeds 0:0, sigur Oxford yfir Burn-
ley 3:0 og naumur sigur Notth.
Forest yfir Luton, 4:3, á útivelli.
Leik Newcastle og Ipswich lauk
með jafntefli 1:1. — 4. umferð
bikarkeppninnar fer fram annan
laugardag, 23. janúar.
þeinra valla sem hafa verið rann
sakaðir, er Idrætsparken í Kaup
mannahöfn, en þar fundust nokkr
ar ryðgaðar stoðir, og var þegar
skipt um þær.
Eins og síðastliðinn vetur munu
Golfklúbbur Reykjavikur og Golf
klúbburinn Keilir gangast fyrir
sýningum á golfkvikmyndum í vet
ur.
Fyrsta sýningin verður á morg
un, föstudag 15. janúar í Domus
Medica við Egilsgötu.
Sýnd verður mynd frá opnun
bandarísku keppninnar (U.S.
Open) frá síðasta ári. Einnig mun
Jóhann Eyjólfsson sýna myndir
sem hann tók á Eisenhower-keppn
inni á Spáni í sumar og segja í
stórum dráttum frá ferð þeinra
félaga þangað. Sitthvað fleira
verður á dagskrá.
Allir unnendur golfíþróttarinn
ar eru yelkomnir og skora&' er á
menn ao f jölmenna.
ísland ckki til
að miða við!
Danski knattspyrnumaðurinn,
Kresten Bjerre, sem leikur með
Racing White í Belgíu, vakti
mikla athygli á sér í leik gegn
Antwerpen í 1. deild s. 1. laug
ardag, er hann tók vítaspyrnu
síðast í leiknum . . . með þvf
að taka aðeins citt skref til
baka — og skjóta svo.
Þetta þótti „ógurlegur kuldi“
í 1. deildarleik, en hann afsak
aði sig með því að hann hefði
æfingu í þessu . . . hann hefði
skorað á nákvæmlega sama hátt
í landsleik gegn Íslandi á
Idrætsparken . . en það finnst
Belgíumönnum ekki neitt að
miða við.
Aðalfundur
ASalfundur Verzlunarmannafélags Reykjavíkur
verður haldinn að Hótel Sögu, Átthagasal,
fimmtudaginn 21. janúar n.k. kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.