Morgunblaðið - 04.12.2005, Side 5
6 Flugan
fylgdist með bókatíðindum og skáldaspírum
í teiti hjá Eddu útgáfu, leitaði að jólunum í
Þjóðleikhúsinu og flögraði um á jólagleði.
8 Hrífst af einföldu lífi
Labbi er enn í Mánum og hleypur á fjöll og
tekur heljarstökk.
14 Að lifa af jólin
Jólahald í kjölfar skilnaðar reynist mörgum
erfitt enda felur það í sér breytingar á siðum
og venjum sem flestir reyna að hafa eins ár
eftir ár.
24 Tengsl
Rithöfundarnir og bræðurnir Jón Hallur og
Hermann Stefánssynir.
26 Músíkantinn sem Sigur Rós féll fyrir
Með fyrstu plötunni sinni varð Sigurður Ár-
mann tónlist-
armaður að nokkurs
konar „költ“.
28 Nælt í svarta
blúndu
Svört blúnda prýðir
flíkur jafnt sem fylgi-
hluti, skó og hús-
búnað.
30 Hýrir strákar á hestbaki
Kúrekamynd sem fjallar um sorglegt ást-
arsamband tveggja manna.
32 Ævintýri John De Loreans
Aðeins voru framleiddir tæplega 10
þúsund De Lorean DMC-12
tveggja sæta sportbílar.
34 Gjafahandbók dýrahringsins
Sígild veggklukka er tilvaldin gjöf handa
steingeitinni.
38 Allt á fullu hjá Aurelio Montes
Þekktasti víngerðarmaður S-Ameríku.
40 Stjörnuspá
Heildarmyndin í lífi bogmannsins er
að taka stakkaskiptum.
42 Kona eins og ég
Sigrúnu Aðalbjarnardóttur prófessor
þætti spennandi að vera unglingur núna.
44 Krossgátan
Hvað er að safna bókstaf í gleði?
46 Pistill
Auður Jónsdóttir var í Garði fólksins.
4.12.2005 | 5
Forsíðumyndina tók Golli í stúdíói Morgunblaðsins 30. nóv-
ember 2005.
Lucio nefnist þessi spegill sem Siggi Anton hannaði. Nafnið er ítalskt og merkir „Sá
sem færir þér ljósið“ og kemur nafngiftin til af því að á bak við spegilinn er ljósgjafi sem
varpar birtu á vegginn sem hann hangir á. Gripurinn er smíðaður úr krossviði eða pvc-
húðuðu efni með viðaráferð s.s. eik eða wenge. Hægt er að sjá mismunandi útgáfur hans
í versluninni Iðu við Lækjargötu.
Ýmislegt hafði áhrif á hönnun spegilsins að sögn Sigga. „Ég er alinn upp í „sixtís“ húsi sem hefur haft
heilmikil áhrif á mig sem hönnuð,“ segir hann og bætir því við að hönnun frá miðbiki síðustu aldar heilli
sig mjög, svo sem húsgögn Charles og Ray Eames. „Þegar ég fékk fyrst þessa hugmynd var ég enn í
hönnunarnámi og nýkominn frá London. Þar villtist ég inn á næturklúbb sem kallast Home þar sem ég
varð fyrir mjög sterkum áhrifum. Reyndar voru þeir ekki með neitt þessu líkt en þegar ég kom heim fékk
ég það verkefni að saga út spónaplötu og ákvað að nota tækifærið og búa til grip sem myndi skapa jafn
flotta stemningu heima hjá mér og var þar inni.“
Spegillinn | Siggi Anton
Ís
le
ns
k
hö
nn
un
Tímarit Morgunblaðsins Kringlunni 1, 103 Reykjavík, sími 5691100, netfang: timarit@mbl.is Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Valgerður Þ. Jóns-
dóttir, vjon@mbl.is Auglýsingar sími 5691111 netfang augl@mbl.is Bréfsími 5691110 Prentun Prentsmiðja Morgunblaðsins ISSN 1670-4428
Brosandi fjölskyldur að undirbúa jólin; baka saman, skreyta
saman, kaupa inn saman og gera eiginlega flest allt saman
sem ætla má að pabbi, mamma og börnin þeirra, jafnvel stór-
fjölskyldan eins og hún leggur sig, geta mögulega sameinast
um. Fölskvalaus gleðin og heiðríkjan alltumlykjandi. Nokkurn veginn svona er myndin í huga flestra af
undirbúningi jólanna og sjálfri jólahátíðinni; mestu fjölskylduhátíð ársins. Og svona finnst flestum að
hún ætti að vera – og kappkosta að hafa hana. Þó ekki væri nema fyrir blessuð börnin segir fólk gjarnan
þegar það reynir eftir bestu getu að púsla myndinni saman. Í nútímaþjóðfélagi þar sem skilnaðir eru
eins tíðir og raun ber vitni vantar oft einhver púsl og sum passa ekki í myndina. Í umfjöllun Bergþóru
Njálu Guðmundsdóttur í Tímaritinu um jólin hjá sundruðum fjölskyldum kemur fram að jólin geta ekki
síður verið þungbær tími fyrir fráskilda foreldra heldur en börnin, a.m.k. fyrst eftir að skilnaðinn. Börn-
in sakna þess foreldris, sem þau eru ekki hjá um jólin, með þeim geta bærst alls konar tilfinningar sem
þau ráða ekki við, svo sem reiði, vorkunnsemi og samviskubit, þótt þau hafi á engan hátt getað ráðið við
aðstæður. Eigi þau góðar minningar um jólin á undan vilja þau engu breyta. Þetta vita velflestir for-
eldrar. Þannig voru þeir líka sem börn og eru kannski á vissan hátt ennþá. Þrátt fyrir allt veraldarvafstrið
eru minningar um liðin jól býsna djúpt greyptar í huga flestra. Beri skugga á er allt eins víst að bara til-
hugsunin um jólin geri fólk dapurt. Áherslan á jólin sem fjölskylduhátíð minntu Erlu Sigurveigu Sigurð-
ardóttur, einn viðmælandann í þessari umfjöllun, t.d. lengi vel á að fjöl-
skylda hennar hafði sundrast. Það liðu fjórtán ár þar til hún tók jólagleði
sína á ný. „… þegar dóttir mín var fædd, skipti það mig ótrúlega miklu
máli að hafa allt pottþétt um jólin,“ segir hún og er nú í óðaönn að búa
til fallega jólamynd fyrir sig og fjölskyldu sína. | vjon@mbl.is
04.12.05
Bræðurnir og rithöfundarnir Jón Hallur og
Hermann Stefánssynir eru miklir vinir og
það er enginn rembingur á milli þeirra.
24
L
jó
sm
yn
d:
K
ri
st
in
n
In
gv
ar
ss
on