Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 8
8 | 4.12.2005 L abbi í Mánum heitir Ólafur Þórarinsson og er einn nokkurra Ólafa ímóðurætt sinni sem sjaldan eru kallaðir annað en Labbi, þeirra á meðaler Ólafur Ólafsson fyrrverandi landlæknir. Hann verður því nefndur Labbi í þessu spjalli. Labbi ætlaði að gefa út sólóplötu fyrir jólin en hætti við, þótt hún væri tilbúin, og veltir nú fyrir sér útgáfu sumarplötu, tvöfaldrar, sem á jafnvel að heita Sumarkveðja. Labbi segir að gaman væri að gera myndband við Sum- arkveðju þar sem hann hoppar og skoppar úti í náttúrunni og fer jafnvel svona eins og eitt heljarstökk fram af einhverri klettabrúninni, en hann byrjaði að æfa fimleika fyrir nokkrum árum og er með tvo leikfimihópa á sínum snærum, einn á Selfossi og annan í Reykjavík, auk fimleikahóps í Ármanni sem hann tilheyrir og æfir með tvisvar í viku. Ástæða þess að sólóplatan kom ekki út síðastliðið haust tengist reyndar ekki leikfimi heldur endurfundum Mánanna, eins stórvelda íslenskrar poppsögu, sem var stofnuð árið 1965, starfaði í tíu ár og gaf út þrjár plötur. Mánar eru Labbi (söngur, gítar og þverflauta) bróðir hans Björn „Bassi“ (orgel), Guðmundur Benediktsson (söngur og gítar), Smári Kristjánsson (bassi) og Ragnar Sigurjóns- son (trommur) og var þeim hóað saman í fyrra til þess að hita upp fyrir Deep Purple í Höllinni. Minna mátti það ekki vera. Í framhaldi af því hafa Mánar haldið þrenna tónleika, þar af eina á Broadway, þar sem prógrammið úr Höllinni var endurtekið, og nú er búið að gefa út dvd- disk sem er heimild um tónleikana í fyrra. „Rótari Mána í gamla daga, Gunnar Sigurgeirsson, elti okkur á æfingum með myndavél og tók síðan upp tónleikana. Það hefur nú verið sett saman í eina heild. Einnig er á diskinum nýtt lag, Móðir jörð, sem er ádeila eins og mörg okkar lög og myndskreytt með efni frá Ómari Ólafur Þórarinsson tón- listarmaður, best þekktur sem Labbi í Mánum. L jó sm yn d: K ri st in n In gv ar ss on HRÍFST AF EINFÖLDU LÍFI Labbi er enn í Mánum og hleypur á fjöll og tekur heljarstökk Eftir Helgu Kristínu Einarsdóttur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.