Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 04.12.2005, Qupperneq 34
34 | 4.12.2005 Brut Impérial er hið hefð- bundna kampavín Moët, unglegt og frískandi með eplum og lime-ávexti. Flaskan kostar 2.650 kr. Nuddstykki sem bráðna við líkamshita. Absolution-olían inniheldur meðal annars lav- ender, vanillu og ylang ylang. Eyðir sektarkennd (og því líka upplögð fyrir meyjuna) og ýtir undir fyrirgefningu. Lush Kringlunni og Lauga- vegi, 995 kr. Fever er annað kyssilegt nuddstykki sem minn- ir á vængjaða kád- iljáka og franskt ilmvatn frá 1950. 995 kr. Nautið kann vel að meta hálstau af ýmsu tagi, til dæmis hand- gerða festi úr gler- perlum. Beltið er í stíl. Noa Noa, Kringlunni, 2.890 kr. og 3.590. Handgert og heimalagað konfekt frá Mosfellsbakaríi. Minnsti kassinn er með fjórum molum og kostar 1.190 kr. Kassi með 16 molum er á 2.190 og með 36 molum á 3.900 kr. NAUT Gamaldags raksett fyrir herrann. Lyf og heilsa, 4.089 krónur. Munaður er lykilorðið þegar gjafainnkaup fyrir fólk í nautsmerkinu eru annars vegar. Nautið nýtur þess að lifa vel, bæði í veraldlegum og efnislegum skilningi. Nautið er merki hins áþreifanlega svo nudd og ýmiss konar dekur við líkamann fellur vel í geð. Önnur birtingarmynd á munúð nautsins er dálæti þess á menn- ingu og fegurð. Gefðu nautinu í lífi þínu ársmiða í leikhús, fallega list- muni, skartgripi eða blóm. Nautsmerkið tengist hálsi (og kverkum) og því upplagt að velja skartgripi til þess að prýða nærliggjandi líkamshluta, svo sem hálsmen, eyrnalokka, trefla og svo framvegis. Nautsmerkið stýrir líka húsi peninga og eigna í sólarkortinu og því eru gjafir á borð við peninga, hlutabréf, jafnvel veski upplagðar. Ein þumalputtaregla sem vert er að hafa í huga þegar nautið er annars vegar; ofdekur er ekki til í orðabók þess. HUGMYNDIR Rakspíri, ilmvatn, baðolía og sápur (kona), súkkulaði, nudd, hlutabréf, veski, raksett, silkislæða (kona), kampavín, grill, hálsmen (kona), planta, rósir (kona), ársmiðar í leikhús eða óperu, listmunur, gjafabréf á sælkera- veitingastað, kerti (kona), vínsmökkunarnámskeið, hágæðabindi, vönduð hljómflutningstæki, leðurjakki, eðalvín, garðáhöld. Perluskreytt hálstau úr flaueli og silki. Noa Noa, Kringlunni, 4.990 kr. GJAFAHANDBÓK DÝRAHRINGSINS MUNÚÐARFULLA, SKIPULAGÐA OG METNAÐARGJARNA Nú er komið að jarðarmerkjunum nauti, meyju og steingeit í gjafa- hugmyndum Tímaritsins. Hagsýni er eitt einkenni þeirra, svo þau eru hrifin af hlutum með notagildi. En það er ekki það eina. Fyrir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.