Morgunblaðið - 04.12.2005, Síða 36
36 | 4.12.2005
Riddaraklukka
(Amaryllis) blómstrar í
desember og fram eftir
nýju ári.
1.980 kr. í potti.
Ráðhúsblóm,
Bankastræti.
Meyjan hefur dálæti á einfaldleika og fágun, sem gott er
að hafa í huga við gjafainnkaupin. Meyjan er að jafnaði ið-
in, skilvirk, snyrtileg og skipulögð og kann því að meta allt
sem auðveldar henni við það, til dæmis innbundið dagatal,
rafræna dagbók, skjalatösku eða hvers konar skipulagstól.
Meyjan er líka hrifin af hlutabréfum, enda hefur hún tals-
vert viðskiptavit og þar af leiðandi gaman af því að fylgjast
með verðbréfamarkaðinum. Meyjan nýtur ennfremur lík-
amlegrar áreynslu enda stýrir hún húsi heilsu í sólarkort-
inu. Þess vegna yrði hún himinlifandi yfir líkams-
ræktarkorti, bók um erfiðan fjallaleiðangur eða
jafnvel gjafakorti í nudd. Síðast en ekki síst hefur
meyjan dálæti á gæludýrum svo hinir kjörkuðu
geta brugðið á það ráð að gefa henni fiskinn eða
hvolpinn sem hana hefur lengi langað til þess að
eignast. Ferð í dýragarð, gerir sama gagn, ef út í
það er farið.
HUGMYNDIR
Kort í líkamsrækt, rúlluskautar, nudd eða spa-með-
ferð, hlutabréf, veski, taska (kona) lyklakippa,
gæludýr, þrekhjól, hand- eða fótsnyrting (kona),
dagbók, innbundið dagatal, gjafakort í tennis, planta,
vínflaska, reiknivél, freyðibað (kona).
Fótsnyrting er ein leið til
þess að dekra við meyj-
una. Algengt verð fyrir
slíkan munað er 3.950 kr.
Nike Patini-
línuskautar.
8.690 kr.
Intersport,
Bíldshöfða, Smára-
lind og Selfossi.
MEYJA
Lyklakippa úr silfri
eftir Þorberg Hall-
dórsson gullsmið.
5.000 kr.
Brilliant,
Laugavegi, Kringl-
unni og Smáralind.
GJAFAHANDBÓK DÝRAHRINGSINS Gullfiskar fást
í mörgum
stærðum og
gerðum. Litlir
gullfiskar eru
á bilinu 350 til
950 kr., t.d. í
Dýralandi,
Kringlunni,
Spönginni og
Mjóddinni.
Meyjan nýtur sín í freyðibaði.
Ruby Red Slippers – glitrandi freyðibað – Rúbínrauður álagaseiður sem gerir
innstu óskum hjartans kleift að rætast. Lush, Kringlunni og Laugavegi, 495 krónur.
Ma Bar – súkkulaði- og appelsínu freyðibað með sykurmola. Ilmar eins og sælgæti,
fyrir uppáhaldsmanneskjuna ykkar; mömmu, 395 kr.
Fólk í steingeitarmerki er að jafnaði bæði agað og metnaðargjarnt og
einbeitt og staðfast í metnaði sínum. Steingeitur eru líka hagsýnar og
raunsæjar og því er gjöf sem nýtist á framabraut, í vinnu eða fjármálum
afar viðeigandi. Hvernig væri fágað nafnspjaldabox, fjársýsluforrit,
vönduð leðurtaska eða sígild veggklukka? Ef einhverjum þykir sín stein-
geit of alvarleg eða skipulögð væri ekki úr vegi að taka gagnstæða
stefnu og dekra við hana með lúxuskremi eða freyðibaði? Einstaklings-
keppni höfðar líka til steingeitarinnar, hvernig væri tennisbúnaður eða
golfsett?
HUGMYNDIR
Rakspíri, kölnarvatn, verðbréf, brún leðurskjalataska, kerti (kona),
vandað veski, ilmolíur eða sápur (kona), kampavín, veggklukka, krist-
alsvasi (kona) golfdót eða tennisspaði, fjársýsluforrit, flott vinnujakka-
föt eða bindi, gæðavín, leikhúsmiðar, félagsskírteini í skemmtiklúbb,
dansnámskeið.
STEINGEIT
Silkibindi.
3.900 kr. stykkið.
Herrahúsið
Adam,
Laugavegi.
Konuilmurinn euphoria
frá Calvin Klein. 30 ml.
Um 4.300 kr. Fæst í flestum
snyrtivöruverslunum.
Kventaska úr
leðri.
37.300 kr.
Max Mara,
Hverfisgötu.
Cityhall, veggklukka
eftir Arne Jacobsen.
20.940 kr.
Epal, Skeifunni.
Pro Staff Jr.
tennisspaði.
5.990 kr.
Intersport,
Bíldshöfða, Smára-
lind, Selfossi.
Kristalblómavasi, handunninn
með 24 karata gyllingu.
4.990 kr.
Tékk-Kristall,
Kringlunni.