Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Áeigin vegumum jólin
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
H
ER
30
58
9
12
/2
00
5
Ekkert jafnast á við að aka um frjáls í bíl frá Hertz. Ef þú átt ekki
bílinn sem hentar hverju sinni þá getum við hjá Hertz bætt úr því
fyrir lægra verð en þig grunar. Það er óþarfi að eiga jeppa til að
komast allt sem þú vilt fara. Engar áhyggjur, bara gleðileg jól.
50 50 600 • www.hertz.is
Sölustaðir: Keflavíkurflugvöllur, Reykjavík, Ísafjörður, Akureyri, Höfn, Egilsstaðir
Jólatilboð
Toyota Corolla
frá 3.571 kr. á dag
Toyota Rav4
frá 4.471 kr. á dag
Toyota Land Cruiser
frá 5.071 kr. á dag
Innifalið: 100 km á dag og CDW (kaskótrygging).
Verð miðast við 7 daga leigu.
Tilboð gildir til 15.01.2006
Sjá nánar á hertz.is
FJÁRMÖGNUN menntaskóla í
Borgarfirði gengur vonum framar
og ef allt gengur að óskum getur
skólastarf hafist
haustið 2006, seg-
ir Runólfur
Ágústsson, rekt-
or Viðskiptahá-
skólans á Bifröst,
en bætir við að
næstu skref ráð-
ist af svari Þor-
gerðar Katrínar
Gunnarsdóttur
mennta-
málaráðherra við
formlegri umsókn sem send var
ráðuneytinu fyrir hátt í mánuði.
Runólfur segir hugmyndina að
skólanum hafa vaknað í ágúst sl. og
þá hafi verið settur á fót stýrihópur
en skólinn er samstarfsverkefni
Borgarbyggðar, Borgarfjarð-
arsveitar, Viðskiptaháskólans á Bif-
röst og Landbúnaðarháskóla Íslands
á Hvanneyri. Í stýrihópnum eru
Ágúst Sigurðsson frá Hvanneyri,
Helga Halldórsdóttir úr Borg-
arbyggð og Þórvör Embla Guð-
mundsdóttir úr Borgarfjarðarsveit
auk Runólfs.
Nú þegar hafa verið lögð fram
drög að námskrá skólans og liggja
fyrir hugmyndir að hönnun hús-
næðis og segir Runólfur að hægt
verði að hefja framkvæmdir fljót-
lega eftir áramót ef svar ráðherra
verður jákvætt. „Við sjáum það að
skortur á framhaldsskóla í héraðinu
er hindrun á frekari uppbyggingu
háskólanna tveggja. Við erum með
þrjá mjög öfluga grunnskóla og tvo
öfluga háskóla og því vantar í raun
framhaldsskóla til að klára þessa
heildarmynd.“
Veruleg lækkun kostnaðar
Uppi eru hugmyndir um að skóla-
húsnæðið rísi í nýja miðbænum í
Borgarnesi, á gamla fótboltavell-
inum svokallaða, og er það ætlað 100
til 120 nemendum. Runólfur bendir
á að kannaður hafi verið fjöldi ung-
menna í héraðinu og talið er að mjög
góður rekstrargrundvöllur sé fyrir
framhaldsskóla þar. Hann segir
stóran hluta nemenda í Borgarfirði
fara í bóknám við aðra menntaskóla,
bæði á Akureyri og í Reykjavík, og
því leggist talsverður kostnaður á
forelda, hvort sem leigð sé íbúð eða
börnin dvelji á heimavist. Í lang-
flestum tilvikum yrði því veruleg
lækkun á kostnaði foreldra við nám
barna sinna.
Menntaskóli Borgarfjarðar yrði
einkaskóli en Runólfur segir að
skólagjöldum yrði stillt í hóf og lítur
á gjöld Verzlunarskóla Íslands sem
dæmi – þau voru 66 þúsund krónur
fyrir núverandi skólaár. Námið
verður til þriggja ára og er styrkur
og forsenda fyrir því að reka svo lít-
inn skóla á háu gæðastigi samstarfið
við háskólana á svæðinu. Kennslan
miðast við bóknám og yrði víðtækt
samstarf við háskólana. „Gert er ráð
fyrir að skólinn verði í tveimur deild-
um, annars vegar félagsvísindadeild
þar sem áhersla yrði lögð á fé-
lagsvísindi og viðskipti en þar yrði
kennt í samstarfi við Bifröst. Hins
vegar yrði raunvísindadeild sem yrði
kennd í samstarfi við háskólann á
Hvanneyri.“
Skorað á ráðherra
Á fundi sínum í síðustu viku álykt-
aði Háskólaráð Borgarfjarðar um
stuðning við verkefnið en einnig hafa
Samband sveitarfélaga á Vestur-
landi og Samfylkingarfélag Borg-
arfjarðar gert hið sama. Runólfur
segist merkja mikinn stuðning við
verkefnið og væntir þess að fá já-
kvætt svar frá menntamálaráðu-
neytinu. Hann vísar til þess að málið
sé gríðarmikilvægt fyrir héraðið og
þarna sé verið að styrkja þekking-
arsamfélag í Borgarfirði sem fer
vaxandi. Spurður hvort gerlegt sé að
manna skólann og hefja kennslu
strax næsta haust ef umsóknin verð-
ur samþykkt segir Runólfur að
vandinn sé enginn. Hann gerir ráð
fyrir að mjög auðvelt verði að manna
kennarastöður en þar muni háskól-
arnir einnig koma við sögu að ein-
hverju leyti.
Kennsla gæti hafist við Menntaskóla Borgarfjarðar haustið 2006
Vantar framhaldsskóla
í heildarmyndina
Myndin sýnir tillögu að húsnæði Menntaskóla Borgarfjarðar en þar gæti kennsla hafist næsta haust samþykki
menntamálaráðuneytið umsókn heimamanna en hún er til skoðunar í ráðuneytinu.
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
Runólfur
Ágústsson
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð yfir manni
um tvítugt sem grunaður er um
kynferðisbrot gegn fimm stúlkum á
aldrinum 14-15 ára. Mun hann sitja
í varðhaldi til 22. desember nk.
Lögregla hefur rökstuddan grun
um að brotin kunni að vera fleiri en
þau sem hafa verið kærð.
Lögreglu hafa borist fimm kær-
ur á hendur manninum, og er hann
grunaður um að hafa nauðgað
stúlkunum, eða brotið lög með því
að tæla þær til samræðis eða ann-
arra kynferðismaka. Viðurlög við
þessum brotum eru fangelsisvistun
í allt að 16 ár.
Ætluð brot mannsins fóru fram á
tímabilinu 29. september til 12.
desember. Eins og fram kom í
Morgunblaðinu í gær yfirheyrði
lögregla manninn eftir að tvær
stúlkur lögðu fram kæru, en honum
var sleppt að loknum yfirheyrslum.
Þegar fleiri kærur bættust við var
maðurinn handtekinn á ný og kraf-
ist gæsluvarðhalds.
Þrír vinir mannsins
á staðnum?
Í úrskurði Héraðsdóms Reykja-
víkur, sem Hæstiréttur Íslands
staðfesti í gær, kemur fram að
rannsókn vegna brota sem talið er
að hafi verið framin í lok nóvember
og 12. desember sé á frumstigi.
Talið er að þrír vinir eða kunn-
ingjar mannsins hafi verið á staðn-
um þegar einhver brotana voru
framin, og á lögregla eftir að hafa
upp á þeim.
Rannsóknari benti á að ef mað-
urinn hefði gengið að halda frelsi
sínu hefði hann haft tök á því að
torvelda rannsókn, t.d. með því að
hafa áhrif á vitni og jafnvel skjóta
undan sönnunargögnum, og var
gæsluvarðhalds krafist á grund-
velli þessara rannsóknarhagsmuna.
Hæstiréttur staðfestir
gæsluvarðhaldsúrskurð
Grunaður
um kynferð-
isbrot gegn
fimm 14–15
ára stúlkum
MÁLEFNI Árna Magnússonar fé-
lagsmálaráðherra og Valgerðar H.
Bjarnadóttur, fyrrverandi stýru
Jafnréttisstofu, voru rædd á þing-
flokksfundi Framsóknarflokksins í
gær. Ríkislögmaður sat einnig fund-
inn, að sögn Hjálmars Árnasonar
þingflokksformanns. Hann segir að
þessi málefni hafi verið rædd á fund-
inum að frumkvæði Árna.
Eins og kunnugt er fékk Valgerður
dæmdar bætur í Hæstarétti vegna
starfsloka sinna hjá Jafnréttisstofu.
Dómurinn sagði að ráðherra hefði
bakað ríkinu skaðabótaábyrgð með
því að knýja Valgerði til að láta af
starfinu.
Inntur eftir því hvort Árni njóti
stuðnings þingflokksins segir Hjálm-
ar: „Það er allt óbreytt varðandi það.
Annars hefðu komið fram tillögur um
annað og þær komu ekki fram.“
Hjálmar segir að menn virði að sjálf-
sögðu niðurstöðu Hæstaréttar. „Og
menn virða Valgerði Bjarnadóttur.
En jafnframt virða menn þau góðu
störf sem Árni Magnússon hefur ver-
ið að vinna að í jafnréttismálum.“
Hjálmar segir að ríkislögmaður
hafi á fundinum farið yfir lagalegan
þátt málsins; þingflokkurinn hafi ekki
áður gefið sér tíma til að fara ofan í
málið, heldur aðeins rætt það laus-
lega. Um það
hvort málinu sé
lokið af hálfu
þingflokksins seg-
ir Hjálmar: „Ég
sé ekki betur.“
Hjálmar segir
að tvö önnur mál
hafi verið á dag-
skrá fundarins í
gær: Annars veg-
ar hafi undirbún-
ingur vinnustaðaheimsókna þing-
flokksins á höfuðborgarsvæðinu verið
ræddur og hins vegar málefnastarf
og ýmis skipulagsmál.
Siv gerði athugasemdir
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins gerði Siv Friðleifsdóttir al-
þingismaður athugasemdir á þing-
flokksfundinum við hvernig haldið
hefði verið á málinu af hálfu félags-
málaráðherra. Taldi hún sig ekki geta
stutt hann í þessu máli. Aðrir þing-
menn, sem voru á fundinum, lýstu yf-
ir stuðningi við Árna.
Dómur Hæstaréttar ræddur á
þingflokksfundi Framsóknar
„Staða málsins
er óbreytt“
Hjálmar Árnason