Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR DAGUR B. Eggertsson, borgar- fulltrúi R-listans, lýsti því yfir á blaðamannafundi í Iðu í gær að hann gæfi kost á sér í efsta sætið á fram- boðslista Samfylkingarinnar í kom- andi prófkjöri vegna borgarstjórn- arkosninganna í vor. Hann kynnti á sama tíma sjö áhersluatriði sem hann vill ná fram í borgarstjórn. Steinunn V. Óskarsdóttir borgar- stjóri og Stefán Jón Hafstein borg- arfulltrúi sækjast einnig eftir efsta sætinu. Prófkjörið fer fram dagana 11. og 12. febrúar nk. Dagur tók sæti í borgarstjórn vorið 2002 eftir að hafa skipað átt- unda sætið á framboðslista R-list- ans. Hann var þá óflokksbundinn en fyrr í vetur gekk hann formlega til liðs við Samfylkinguna. Dagur sagði í viðtali við Morgunblaðið í ágúst sl. að hann gerði ekki ráð fyrir því að fara í framboð í næstu kosningum ef flokkarnir þrír, sem standa að R-listanum, biðu fram hver í sínu lagi. En hvað hefur breyst síðan þá? „Ég á mjög erfitt með að sitja þegj- andi, með hendur í skauti, og horfa upp á stöðuna eins og hún er núna, þ.e. Reykjavíkurlistinn hefur skilið eftir sig ákveðið tómarúm og Sjálf- stæðisflokkurinn hefur nýtt sér það til sóknar. Ég tel að það sé óverð- skuldað. Við erum búin að skapa hér nýja Reykjavík sem er kraftmikil og skemmtileg og það er meiri upp- bygging í borginni en nokkru sinni áður. Við þær aðstæður er ekki rétti tíminn til að hætta. Þess vegna hef ég endurskoðað hug minn og ákveð- ið að bjóða mig fram. En ég leyni því ekki að það þurfa allir að leggjast á þær árar. Við þurfum að efna til stórs og myndarlegs prófkjörs með mörgum góðum frambjóðendum.“ Hann bætir því við að hann telji að Samfylkingin geti náð um 35 til 40 prósenta fylgi í Reykjavík. Baráttan verði til sóma Dagur kveðst aðspurður ekki vera að lýsa neinu vantrausti á einn né neinn með framboði sínu. Þeir sem þegar hafi lýst yfir framboði í fyrsta sætið séu mjög öflugir frambjóðend- ur. „Ég held það sé margra mat að það geri prófkjörið öflugra, stærra og kraftmeira ef fleiri bætast í hóp- inn. Ég held að við munum öll bera gæfu til þess að heyja þessa baráttu þannig að hún verði til sóma og að Samfylkingin og framboð hennar eflist.“ Inntur eftir því hvort hann fari fram með stuðningi Ingibjargar Sól- rúnar Gísladóttur, formanns Sam- fylkingarinnar, og annarra í forystu flokksins segir hann: „Ingibjörg hefur upp- lýst í samtali við Fréttablaðið að hún hafi hvatt mig sannar- lega til að fara í fram- boð. Svo er vitanlega um marga fleiri sem teljast til forystu Sam- fylkingarinnar. Ég er auðvitað mjög ánægð- ur með þá hvatningu en ákvörðunin um að fara fram og að sækj- ast eftir forystu á list- anum er ákvörðun sem ég tek einn.“ Spurður hvort hann muni taka sæti neðar á listanum nái hann ekki fyrsta sætinu segir hann: „Að sjálfsögðu.“ Dagur kynnti áhersluatriði sín, til næstu fimm ára, á blaðamannafundinum í gær, undir heitinu: Nýja Reykjavík: kraftmikil, skemmtileg, örugg og heilbrigð. Þar segir hann m.a að sex þúsund íbúðir, af öllum stærðum og gerðum, geti risið í Reykjavík á næstu fimm ár- um. Einnig vill hann m.a. að unnið verði að andlitslyftingu svæðisins í kringum Hlemm og að fyrstu áfang- ar byggðar í Vatnsmýrinni verði að veruleika. Hann vill ennfremur að Öskjuhlíð- argöng og Sundabraut verði fyrstar á dagskrá til að fjölga stofnbrautum frá austri til vesturs og þá vill hann að svonefndar stokkalausnir á Miklubraut verði kannaðar í stað mislægra gatnamóta. Sömuleiðis vill hann að borgin taki yfir málefni aldraðra, fatlaðra og heilsugæslunn- ar og að löggæslan verði efld og gerð sýnilegri í hverfum borgarinn- ar. Einnig vill hann auka áhrif for- eldra í skólastarfi og opna dyr skól- anna fyrir íþróttafélögum og tónlistarskólum. Þá vill hann útrýma launamun kynjanna hjá Reykjavík- urborg. Stefnir á fyrsta sætið Dagur B. Eggertsson borgarfulltrúi kynnti fram- boð sitt á blaðamannafundi í Iðu í gær. Dagur B. Eggertsson gefur áfram kost á sér Eftir Örnu Schram arna@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn 1. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarfulltrúi. 2. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi. 3. Gísli Marteinn Baldursson, dagskrárgerðarmaður og varaborgarfulltrúi. 4. Kjartan Magnússon borgarfulltrúi. 5. Júlíus Vífill Ingvarsson lögfræðingur. 6. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir, ráðgjafi mennt málaráðherra. 7. Jórunn Ósk Frímannsdóttir, júkrunarfræðingur og varaborgarfulltrúi. 8. Sif Sigfúsdóttir, MA í mannauðsstjórnun. 9. Bolli Skúlason Thoroddsen, formaður Heimdallar. 10. Marta Guðjónsdóttir, kennari við Tjarnarskóla. 11. Ragnar Sær Ragnarsson leikskólakennari. 12. Kristján Guðmundsson húsasmíðameistari. 13. Björn Gíslason slökkviliðsmaður. 14. Áslaug Friðriksdóttir framkvæmdastjóri. 15. Elínbjörg Magnúsdóttir, sérhæfður fiskvinnslumaður. 16. Helga Kristín Auðunsdóttir viðskiptalögfræðingur. 17. Rúnar Freyr Gíslason leikari. 18. Stefanía Katrín Karlsdóttir viðskiptafræðingur MBA. 19. Magnús Þór Gylfason viðskiptafræðingur. 20. Guðrún P. Ólafsdóttir viðskiptafræðingur. 21. Einar Eiríksson kaupmaður. 22. Kristinn Vilbergsson framkvæmdastjóri. 23. Ágústa Guðmundsdóttir prófessor. 24. Sveinn Scheving öryrki. 25. Helga Steffensen brúðuleikari. 26. Ellen Margrét Ingvadóttir, lögg. dómtúlkur og skjalaþýðandi. 27. Jóna Gróa Sigurðardóttir, húsmóðir og háskólanemi. 28. Magnús L. Sveinsson, fyrrverandi fomaður VR. 29. Inga Jóna Þórðardóttir viðskiptafræðingur. 30. Birgir Ísleifur Gunnarsson, fyrrverandi Seðlabankastjóri. „ÞETTA er í fyrsta sinn í sögu flokksins, er mér óhætt að fullyrða, sem algjört jafnræði er milli kynjanna,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson, oddviti Sjálfstæð- isflokksins í borgarstjórn Reykja- víkur, um framboðslista flokksins fyrir komandi borgarstjórnarkosn- ingar. Listinn var samþykktur á fundi Varðar, fulltrúaráðs sjálfstæð- isfélaganna í Reykjavík í gær. Efstu þrettán sætin eru óbreytt frá úrslit- um prófkjörsins í byrjun nóvember. Þrjátíu manns skipa listann; fimm- tán konur og fimmtán karlar. Í sex- tán efstu sætunum eru átta konur og átta karlar. „Þetta er samhentur og öflugur listi,“ segir Vilhjálmur, sem skipar efsta sætið. Vísar orðum Dags á bug Dagur B. Eggertsson borg- arfulltrúi sagði, er hann kynnti framboð sitt í efsta sæti Samfylking- arinnar í gær, að Sjálfstæðisflokk- urinn hefði nýtt sér til sóknar það tómarúm sem R-listinn hefði skilið eftir sig. Vilhjálmur kveðst að- spurður vísa þessum orðum Dags til föðurhúsanna. „Við höfum ekki verið að nýta okkur eitt eða neitt tóma- rúm, heldur höfum við verið að vinna okkar starf og okkar málefnavinnu,“ segir hann. Sjálfstæðismenn hafi verið að vinna vel allt kjörtímabilið. Jafnt hlutfall karla og kvenna Framboðslisti sjálfstæðismanna samþykktur í Reykjavík Morgunblaðið/Sverrir Framboðslisti sjálfstæðismanna STEFÁN J. Haf- stein borgar- fulltrúi kveðst fagna því að Dagur B. Egg- ertsson skuli vera genginn í Samfylkinguna. „Ég efast ekki um að hann nái góðum árangri og að hann verði í einu af efstu sætunum. En þetta breytir ekki neinu um þau áform mín að halda því sæti sem ég er í núna, þ.e. efsta sætinu,“ segir Stefán um framboð Dags í efsta sæti lista Samfylkingarinnar fyr- ir borgarstjórnarkosningarnar í vor. Stefán segir að hann hafi lengi talið að Dagur ætti heima í Sam- fylkingunni. „Við höfum verið miklir félagar og samherjar í borgarstjórn,“ segir Stefán og bætir við að Dagur komi til með að styrkja listann. Fagnar komu Dags STEINUNN V. Óskarsdóttir borgarstjóri seg- ir að framboð Dags B. Eggerts- sonar hafi legið í loftinu í nokkurn tíma og að hún fagni því að hann sé nú búinn að taka af skarið. Steinunn sækist einnig eftir fyrsta sætinu. „Ég fagna öllum nýjum sem ganga til liðs við Samfylkinguna. Það stefnir í að þetta verði spennandi og skemmtilegt prófkjör. Ég held það sé gott að fá sem flesta í þetta prófkjör því þá næst fram mæling á því hvar fólk stend- ur. Ég legg mín störf í dóm þeirra sem taka þátt í prófkjörinu og við sjáum til hver niðurstaðan verður.“ Stefnir í spenn- andi prófkjör Á HAUSTFUNDI Vísinda- og tækniráðs var m.a. samþykkt ályktun um að mikilvægt sé að efla doktorsnám hér á landi. Ráð- ið hvetur menntamálaráðherra til að vinna að stefnumótun á þessu sviði og eru háskólar hvattir til þess að móta sér skýra stefnu um rannsóknir og framhaldsnám með hliðsjón af breytingum á starfs- umhverfi þeirra. Sjötti fundur ráðsins var hald- inn í gær. Formaður ráðsins er Halldór Ásgrímsson, forsætisráð- herra, en auk hans sitja í ráðinu Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, Valgerður Sverrisdóttir, iðnaðar- og við- skiptaráðherra, Árni M. Mathie- sen, fjármálaráðherra, Einar Kr. Guðfinnsson, sjávarútvegs- ráðherra og Guðni Ágústsson, landbúnaðarráðherra. Auk þess eiga sæti í ráðinu 14 fulltrúar vísinda, tækni og atvinnulífs. Í tilkynningu segir, að hagstæð umgjörð atvinnulífsins, góð menntun, áræðni, rannsóknir og þróunarstarfsemi hafi orðið fyr- irtækjum hvatning til útrásar. Samkeppnisstaða Íslands sé sterkari nú en nokkru sinni fyrr og hæfu og vel menntuðu fólki hafi fjölgað í atvinnulífinu. Rann- sóknar- og þróunarstarfi hafi vaxið ásmegin og skilar það góð- um árangri á mörgum sviðum. Menntun, rannsóknir og öflugt frumkvöðlastarf skipti miklu fyr- ir áframhaldandi hagsæld í land- inu. „Þrátt fyrir að staðan sé góð er hún að vissu leyti viðkvæm. Halda þarf hátæknifyrirtækjum í landinu og því skiptir farsæl hag- stjórn miklu um framhaldið. Leggja þarf meiri áherslu á örugg fjarskipti og hagkvæma gagnaflutninga samtímis greiðum aðgangi að alþjóðlegum gagna- netum sem skipta miklu í al- þjóðlegri samkeppni. Hagnýting hátækniþekkingar getur haft mikil áhrif á efnahagsþróun hér á landi á næstu árum.“ Þarf að efla doktorsnám „ÞETTA hefur tekist afskaplega vel og ekki verið neitt vesen í kringum þetta,“ segir Svanhvít Júlíusdóttir, ritari Skólafélags Menntaskólans í Reykjavík, um þá ákvörðun félagsins í upphafi skóla- árs að allir viðburðir félagslífsins skyldu vera reyklausir. Þegar hafa verið haldin tvö reyklaus skólaböll og fór reyklaus árshátíð fram í gærkvöldi. Aðspurð segir Svanhvít að reglan um reykleysi sé alltaf virt. „Á fyrsta ballinu sem við héldum var eitthvað um það að fólk vissi ekki af þessari nýju reglu, en núna ættu allir að hafa orðið varir við auglýsingar okkar.“ Spurð hvort hún hefði fyr- irfram átt von á því að það gengi jafn snurðulaust að koma reykleys- inu á svarar Svanhvít því játandi. „Þar hjálpar vafalaust til að það eru yfirhöfuð mjög fáir nemendur í MR sem reykja, þannig að við bjugg- umst í rauninni ekki við því að þetta yrði eitthvert vesen. Þetta hefur þannig gengið vonum framar.“ Spurð hvort hún viti til þess að aðrir framhaldsskólar hafi farið að fordæmi MR segist Svanhvít vita til þess að Verslunarskóli Íslands hafi tekið upp reykleysið í félagslífinu. „Ég hugsa að hinir framhaldsskól- arnir hljóti að taka þetta upp, hvort sem það verður núna eða einhvern tímann í nálægri framtíð. Enda felst í því heilbrigð skynsemi.“ Reykleysið í MR mælist vel fyrir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.