Morgunblaðið - 20.12.2005, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 27
MINNSTAÐUR
Helguvík | Atvinnu- og hafnaráð
Reykjanesbæjar hefur ákveðið að
afturkalla úthlutun á lóð til IPT sem
ætluð var til byggingar stálröraverk-
smiðju. Lóðina mun höfnin nýta sem
geymslusvæði vegna inn- og útflutn-
ings, meðal annars vegna fyrirhug-
aðs álvers.
Fulltrúar Reykjanesbæjar og
bandaríska fyrirtækisins IPT undir-
rituðu samning um aðstöðu við
Helguvíkurhöfn fyrir rúmlega þrem-
ur og hálfu ári, að viðstöddum iðn-
aðarráðherra. Á vegum hafnarinnar
var gengið í það að sprengja lóðina
niður í hæð hafnarbakkans þótt IPT
gæti ekki lagt fram tryggingar fyrir
lóðagjöldum, og var grjótið notað í
sjóvarnir meðfram ströndinni í
Reykjanesbæ og í ýmis verkefni á
vegum bæjarins. Síðan hefur IPT
fengið fresti á fresti ofan án þess að
framkvæmdir hafi byrjað. Að und-
anförnu hefur strandað á því að fyr-
irtækið hefur ekki náð samningum
við lánastofnanir um fjármögnun
verksmiðjunnar.
Pétur Jóhannsson hafnarstjóri
segir að ekki hafi þótt fært að halda
þessari lóð lengur en ef eigendur
IPT ljúki málinu gagnvart höfninni
geti fyrirtækið fengið aðra lóð á
iðnaðarsvæðinu við Helguvík.
Í samþykkt atvinnu- og hafnaráðs
kemur fram að Century Aluminium
sem rekur Norðurál hafi sýnt áhuga
á umræddri lóð þar sem hún henti
vel fyrir hluta af starfsemi fyrirhug-
aðs álvers við Helguvík. Þá telur ráð-
ið mikilvægt að sköpuð sé aðstaða
fyrir birgða- og gámasvæði fyrir
starfsemi á iðnaðarsvæðinu.
Pétur segir unnið af fullum krafti
við afmörkun lóðar fyrir fyrirhugað
álver og frumskýrslu um umhverf-
ismat.
Lóð verksmiðju
IPT afturkölluð
vegna álversins
Morgunblaðið/Þorkell
Grjót Farnar voru margar ferðir
með grjót eftir sprengingar á lóð-
inni sem IPT átti að fá.
Keflavík | Ný viðbygging við hús
Fjölbrautaskóla Suðurnesja var
formlega afhent skólanum við skóla-
slit haustannar um helgina. Hjálmar
Árnason, formaður byggingar-
nefndar, afhenti Oddnýju Harð-
ardóttur skólameistara lykla að
byggingunni. Sveitarfélögin á Suð-
urnesjum og ríkið stóðu saman að
framkvæmdinni og tóku sveit-
arfélögin að sér að flýtifjármagna
hana gegn því að fá síðar fjárveit-
ingar á fjárlögum. Framkvæmdir
hófust sumarið 2003 og var bygg-
ingin tekin í notkun haustið 2004.
Það var þó ekki fyrr en nú að bygg-
ingarnefndin lauk formlega störfum
með því að afhenda lyklavöldin.
Lyklavöldin afhent
Fjarðabyggð | Fjárhagsáætlun
Fjarðabyggðar fyrir árið 2006 var
samþykkt í vikunni og ber hún þess
merki að uppbygging álvers á Reyð-
arfirði hefur aukið umsvif í sveitarfé-
laginu til muna.
Tekjur sveitarfélagsins aukast
mjög verulega á milli ára. Mest mun-
ar um auknar skatttekjur en tekjur
hafnarsjóðs hækka líka umtalsvert.
Stærstum hluta aukinna tekna er
varið til velferðarmála og aukinnar
þjónustu við íbúana, en metnaður er
lagður í uppbyggingu þjónustu.
Áætlað er að tekjur sveitarfé-
lagsins og stofnana nemi um 2.577
milljónum kr. en gjöld um 2.019
milljónum kr. Þar af eru tekjur að-
alsjóðs og A-hluta stofnana 1.975
milljónir kr. og gjöld 1.623 milljónir
kr. Rekstrarafgangur samstæðu er
áætlaður 384 milljónir kr. að teknu
tilliti til fjármagnsliða. Þá er áætlað
að tæplega 1.400 milljónir kr. fari til
framkvæmda.
5.000 íbúar í árslok 2006
Í forsendum áætlunar er gert ráð
fyrir því að íbúum Fjarðabyggðar
fjölgi verulega á árinu en þar munar
mest um íbúa í starfsmannaþorpi
Fjarðaáls. Í forsendum er gert ráð
fyrir því að íbúar Fjarðabyggðar
verði í lok ársins 2006 um 5.000
manns en þar af verða um 1.300 íbú-
ar í starfsmannaþorpinu. Þá eru
tekjur vegna fasteignagjalda mið-
aðar við áætlaða hækkun á fast-
eignamati og nýju húsnæði í Fjarða-
byggð. Að þessu samanteknu munu
skatttekjur hækka um 390 milljónir
kr. eða um 35% á milli ára. Miðað við
útgönguspá ársins 2005 er áætlað að
tekjur allrar samstæðunnar hækki
um 629 milljónir kr.
Hækkun rekstrarútgjalda stafar
að mestu leyti af aukningu í manna-
haldi vegna stækkandi rekstrarein-
inga sem fjölgun íbúa og aukin starf-
semi í sveitarfélaginu kallar á.
Aukning rekstrargjalda allrar sam-
stæðunnar nemur 231 milljón kr. frá
árinu 2005. Gert er ráð fyrir al-
mennri hækkun launa um 3%.
Rekstrarniðurstaða er því áætluð
jákvæð eins og áður sagði sem nem-
ur 384 milljónum kr. en áætlun árs-
ins 2005 gerir ráð fyrir að rekstr-
arafgangur verði 17,2 milljónir kr. –
gangi áætlanir eftir. Er því um mik-
inn bata í rekstri að ræða á árinu
2006 líkt og milli áranna 2004 og
2005.
Fjárfestingar samstæðu eru áætl-
aðar eins og áður sagði um 1.400
milljónir kr. Sé sú tala sundurliðuð
frekar eru stærstu framkvæmdalið-
irnir vegna gatnagerðar, 279 millj-
ónir kr, framkvæmdir við skóla-
mannvirki Reyðarfirði, 300 milljónir
kr., og fjárfestingar í íþróttamann-
virkum uppá 163 milljónir kr. Þá
munu fjárfestingar hafnarsjóðs
nema 336 milljónum kr., félagslegra
íbúða 35 milljónum kr., fráveitu 78
milljónum kr. og vatnsveitu 30 millj-
ónum kr. Á móti koma fjárfesting-
artekjur alls að fjárhæð kr. 535 millj-
ónir kr., þannig að nettófjárfesting
er um 850 milljónir kr.
Tímabundinni fjárþörf verður
mætt með skammtímafjármögnun
sem áætluð er á árinu 2006 verði 405
milljónir kr.
Skóla- og íþróttahús klár
Reiknað er með því að á árinu
2006 verði framkvæmdum við ný-
byggingu Grunnskóla Reyðarfjarðar
lokið og þá verður blómlegt starf
skólanna í Fjarðabyggð komið í ný
og glæsileg húsakynni og starfsemi
grunnskóla, tónskóla og bókasafna
komið undir eitt þak í öllum hverfum
sveitarfélagsins. Ungmennahús
verður einnig komið í fullan rekstur.
Sveitarfélagið lætur ekki sitt eftir
liggja í að bæta aðstöðu til íþrótta-
iðkunar og á árinu verða tekin í
notkun 3 ný glæsileg íþróttamann-
virki en það eru Fjarðabyggð-
arhöllin á Reyðarfirði, útisundlaug á
Eskifirði og sundlaugarhús með
fullbúinni líkamsræktaraðstöðu við
sundlaugina í Neskaupstað. Þá verð-
ur byggður upp gervigrasvöllur í
Neskaupstað með dyggum stuðningi
Samvinnufélags útgerðarmanna.
Guðmundur Bjarnason er bæjar-
stjóri Fjarðabyggðar.
Gert ráð fyrir að skatttekjur sveitarfélagsins hækki um 35% á næsta ári
Fjarðabyggð ætlar 1.400 millj-
ónir til framkvæmda 2006
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Sýður og kraumar í Neskaupstað Það er líflegt framundan í Fjarðabyggð
og fjárhagsáætlun gerir ráð fyrir enn frekari uppbyggingu.
Djúpivogur | Það hefur verið snjó-
létt á undanförnum vikum á Djúpa-
vogi, en um leið og snjórinn fellur
fara börnin á stjá og eru þá sleð-
arnir oft teknir fram. Bjartur Elí
Egilsson sleðastjóri og Guðjón Rafn
Steinsson sjást hér á góðu bruni.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Brunað
í brekkum
Vatnskápa mjakast | Lokið er við
að steypa yfir 25.000 fermetra af
svokallaðri vatnskápu Kárahnjúka-
stíflu, sem svarar til ríflega 27% af
verkinu í heild. Töluvert hefur verið
hægt að steypa þrátt fyrir vetr-
arríkið á hálendinu. Áfangar eru
teknir í einni lotu sem getur varað
allt að 60 klukkustundum. Ætla má
að senn fari menn að fresta frekari
steypuvinnu af þessu tagi til vors en
hins vegar er gert ráð fyrir áfram-
haldandi vinnu í yfirfallsþrónni
norðan Kárahnjúkastíflu í allan vet-
ur. Frá þessu greinir á vefnum kara-
hnukar.is.
AUSTURLAND
Opel. fi‡ski gæ›ingurinn.
JÓLIN NÁLGAST!
NÁÐU FORSKOTI Á NÝJUM OPEL.
*Mi›a› vi› bílasamning Glitnis me› 10% útb. og eftirstö›var í 84 mánu›i.
Opel Astra Hatchback er fallegur og frábærlega smíðaður. Hann er líka
vel búinn með ABS, skynvirku fjöðrunarkerfi, aksturstölvu og fjölda
annarra skemmtilegra kosta. Hann er aflmikill en líka sparneytinn, lipur
og rúmgóður. Astra fær fimm stjörnur í árekstrarprófi Euro NCAP.
Hverjum Opel fylgir 100.000 kr. gjöf frá Bræðrunum Ormsson handa þeim
sem þér þykir vænt um.
Við hvetjum alla ökumenn til að aka varlega um hátíðarnar.
VER‹ FRÁ A‹EINS: 1.695.000 kr. 10% ÚTBORGUN 169.500 kr.
A‹EINS 22.810 kr. Á MÁNU‹I*