Morgunblaðið - 20.12.2005, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF
Jú, þeir hafa villst hérna innsíðla nætur sumir karlarnirmeð peninga á sér og haldið
að hér væri ákveðin þjónusta í
gangi,“ segir Jónas Lilliendahl um
jólaskreyttan svefngang hans og
Hákonar Erlendssonar í vinnubúð-
um þeirra inni í Fljótsdal, en nú á
aðventunni er svefngangurinn
myrkvaður utan nokkurra róm-
antískra rauðra ljósa.
Bannað að herma
„Við Hákon látum það ekkert á
okkur fá, en við höfum keppst um
það síðustu þrjú árin að skreyta
ganginn hjá okkur sem mest og
best fyrir jólin og drögum fram
það sem áður var en bætum líka
alltaf einhverju nýju við, svo þetta
er orðið þó nokkuð yfirdrifið. En
það er alveg bannað að herma eft-
ir hinum,“ segir Jónas sem er
nokkuð kappsamur í skreyting-
unum og segist hafa fengið mikil
og góð viðbrögð hjá vinnufélög-
unum.
Hefur ekki sama jólainnsæið
„Skreytingin mín ber af, það er
engin spurning, en við strákarnir
höfum reynt að peppa Hákon upp
og verið jákvæðir í hans garð.
Ég held hann hafi ekki sama
jólainnsæi og ég,“ segir Jónas
grafalvarlegur en félagar hans
reka upp hláturroku að baki hon-
um og hafa greinilega gaman af
því hvernig þeir félagarnir reyna
að ganga hvor fram af öðrum í
KEPPNI | Rautt jólaskraut á svefngangi í Fljótsdal hefur ruglað suma gesti í ríminu
Samkeppnin er grimm við jólaskreytingarnar en Hákon og Jónas segjast þó þokkalega sáttir.
Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteins
Karlar á fjöllum
skreyta
með rauðu