Morgunblaðið - 20.12.2005, Síða 34
34 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ
Hallgrímur B. Geirsson.
Styrmir Gunnarsson.
Framkvæmdastjóri:
Ritstjóri:
STOFNAÐ 1913
Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík.
Aðstoðarritstjórar:
Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen.
Fréttaritstjóri:
Björn Vignir Sigurpálsson.
Það sem af er þessu ári hef-ur lögregla og tollgæsla áÍslandi lagt hald á minnaaf fíkniefnum en á árinu
2004 en á hinn bóginn hefur skráð-
um fíkniefnabrotum fjölgað um
8,5%. Þá hefur á þessu ári verið lagt
hald á næstum jafnmargar
kannabisplöntur og lagt var hald á
síðustu fjögur ár þar á undan. Yf-
irmaður fíkniefnadeildar lögregl-
unnar í Reykjavík segir að skýr
merki séu um að neysla fíkniefna
aukist jafnt og þétt.
Samkvæmt upplýsingum frá rík-
islögreglustjóra höfðu 1.754 fíkni-
efnabrot verið skráð 13. desember
sl. en þau voru 1.617 árið 2004. Mál-
um sem varða innflutning, fram-
leiðslu, sölu og dreifingu fækkar úr
samtals 300 árið 2004 í 150 á árið
2005. Málum sem varða vörslu og
dreifingu fjölgar aftur á móti úr um
1.200 árið 2004 í 1.309. Í flokknum
„ýmis fíkniefnabrot“ fjölgaði brot-
um úr um 175 í um 300. Á þessu ári
hefur verið lagt hald á um 12,7 kíló
af amfetamíni og um 4 kíló af
metamfetamíni sem er töluvert
meira magn amfetamíns en lagt var
hald á í fyrra, sem þó var metár í
þessu tilliti. Þá hefur svipað náðst
af marijúana. Minna hefur hins
vegar náðst af öðrum efnum, s.s.
hassi, e-töflum og kókaíni en í
fyrra. Þannig hefur verið lagt hald
á um 11,7 kíló af hassi, 1 kíló af
kókaíni og 1.300 e-töflur en í fyrra
náðust um 37 kíló af hassi, 6,2 kíló
af kókaíni og 7.500 e-töflur.
Mun meira hefur verið lagt hald
á LSD á síðustu tveimur árum en
árin á undan. Yfir 4.000 stykki hafa
verið gerð upptæk í
ár og yfir 2.000 í
fyrra. Lögreglan og
tollgæslan fann nán-
ast ekkert af þessum
efnum á árunum
2002-2003.
Rétt er að ítreka að
upplýsingar fyrir árið
2005 ná til 13. desem-
ber og í þeim eru
t.a.m. ekki upplýsing-
ar um fíkniefni sem
lögreglan í Reykjavík
lagði hald á fyrir helgi
en vegna þess máls
sitja nú tveir menn í
gæsluvarðhaldi.
Innlend framleiðsla
Ásgeir Karlsson, yfirmaður
fíkniefnadeildar lögreglunnar í
Reykjavík, segir að magntölur um
haldlögð fíkniefni segi ekki alla sög-
una enda geti þær sveiflast mjög til
og eitt stórt mál skekkt myndina
verulega. Einnig verði að horfa til
þess að fíkniefnabrotum í heild
fjölgi töluvert en hann telur að
ástæðan fyrir fjölguninni sé tví-
þætt; annars vegar séu skýr merki
um aukna fíkniefnaneyslu og hins
vegar hafi lögregla aukið eftirlit sitt
með vörslu og neyslu fíkniefna.
Eins og fyrr segir hefur aldrei
verið lagt hald á jafnmargar
kannabisplöntur og á þessu ári eða
um 3.200. Ásgeir segir að innlend
kannabisræktun hafi færst í vöxt á
síðustu árum og nú sé svo komið að
nánast allt marijúana sem neytt sé
hér á landi sé innlend framleiðsla.
Lögreglu hafi jafnvel borist upplýs-
ingar um að íslenskt marijúana hafi
verið boðið til sölu í Kaupmanna-
höfn. Ásgeir segir hugsanlegt að
marijúanað haf
notað til að grei
ir önnur fík
fremur en að ræ
in hér á landi
blómleg að það
sig að að selja þ
lendis gegn gre
peningum, þó
geti ekki útilok
með fullu.
verði að hafa í h
erlend yfirvöl
væntanlega e
varðbergi ga
fíkniefnasmygli
Íslandi og smyg
áhættuminna e
Auðveldara að
framleiða amfetamín
Nýlega var maður dæmdu
framleiðslu á amfetamíni
sinni í Kópavogi og ekki er
síðan maður var handtek
Keflavíkurflugvelli með umt
magn af brennisteinssýru en
er nauðsynleg til fram
amfetamíns. Samkvæmt s
frá Europol um fíkniefn
leiðslu og -smygl á árunum
2004, kemur fram að fram
framleiðsluaðferðum hafi m.a
til þess að framleiðsla amfe
er auðveldari en áður og f
fram víða um álfuna. Ólögleg
un og smygl með efni sem na
leg eru til framleiðslu amfe
hafi ennfremur færst í vöxt.
Ásgeir segir erfitt að segja
hversu mikið amfetamín sé
leitt hér á landi. Lögregla sé
bóginn fyllilega meðvituð u
framleiðslan sé einfaldari e
og að ekki sé nauðsynlegt
framleiðendur amfetamíns a
Fleiri fíkniefnab
minna tekið af fíkn
Aldrei lagt hald á fleiri kannabisplöntur og v
íslenskt marijúana hafi verið boðið til sölu í
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
) +* +*
,
*
- ' * ( "
& #
* #
* ! !.* ! !.*
#(" * /0
* /0
*
) (* 123*
123*/
" %&'"
(
)
)%(&
%'"
)))
$)
#
&%&**
('#
%#'(
)
%" *
#
*%)'
#
"
4
.M /-/-/B$
!
Ásgeir Karlsson
Fráleitt er að hægt sé að lækka mat-vælaverð hér á landi um 30% meðþví að afnema tolla á innfluttummatvælum eins og ákveðnir hag-
fræðingar hafa bent á, segir Haraldur Bene-
diktsson, formaður Bændasamtaka Íslands
(BÍ).
Haraldur bendir á að verð á brauði og
kornvöru hafi reynst um 67% hærra hér á
landi en í Evrópusambandinu árið 2003 þrátt
fyrir að kornvara sé flutt tollalaust hingað til
lands. Verð á sykri, súkkulaði og sælgæti
reyndist 61% hærra á sama tíma. Í skýrslu
samkeppnisyfirvalda á Norðurlöndunum, sem
gerð var opinber fyrir skömmu, kom fram að
verðlag á matvöru hér á landi væri að með-
altali um 42% hærra en í
löndum ESB.
Þetta dæmi og fleiri í
sama dúr benda eindregið
til þess að verð á íslenskum
búvörum sé ekki óeðlilega
hátt samanborið við aðra
matvöru, og að það séu
ekki bara verndartollar
sem haldi uppi háu verðlagi
hér á landi, segir Haraldur.
„Við viljum með þessu
draga það fram að það að verndartollar verði
felldir niður leiðir ekki endilega til þess að
búvara lækki, þótt hún væri flutt inn.“
Samþjöppun og ónóg samkeppni
Haraldur tekur undir orð Guðna Ágústs-
sonar landbúnaðarráðherra í Morgunblaðinu í
gæ
gja
kep
ma
ing
ma
eig
H
Ha
um
af
inn
len
á a
ma
spy
áh
30%
un
Fráleitt að niðurfell
lækki matarverð u
Eftir Brján Jónasson
brjann@mbl.is
Haraldur
Benediktsson
MÁLLÝSING
Íslensk tunga heitir verk, semkomið er út í þremur bindumhjá forlaginu Eddu. Þar er ís-
lensku máli lýst á 1.700 síðum og
hefur því verið haldið fram að þetta
sé viðamesta lýsing á tungunni, sem
skrifuð hafi verið. Bindin heita
Hljóð: Handbók um hljóðfræði og
hljóðkerfisfræði, Orð: Handbók um
beygingar- og orðmyndunarfræði
og Setningar: Handbók um setn-
ingafræði og eru aðalhöfundar
Kristján Árnason prófessor, Guðrún
Kvaran prófessor og Höskuldur
Þráinsson prófessor, en fjöldi ann-
arra lagði einnig hönd á plóg við rit-
un þeirra.
Mikill metnaður er á bak við bæk-
urnar þrjár eins og fram kom í
viðtali við Kristján, Guðrúnu og
Höskuld í Lesbók Morgunblaðsins á
laugardag. Tíu ár eru frá því að
ákveðið var að ráðast í verkið, sem
naut styrks Lýðveldissjóðs. Segja
höfundarnir að hugmynd verkefn-
isstjórnar hafi verið að skrifaðar
yrðu handbækur, sem gætu nýst
ólíkum hópum notenda, enda væri
brýn þörf á slíkum ritum um grunn-
þætti málsins. Segir Höskuldur að
rætt hafi verið að verja fénu til að
skrifa kennslubækur, en þess í stað
hafi verið afráðið að skrifa hand-
bækur, sem nýst gætu höfundum
kennslubóka.
Í bindunum þremur er fjallað um
íslenska tungu frá ýmsum hliðum og
áhersla lögð á að gera efnið að-
gengilegt.
Í viðtalinu við höfundana er vikið
að stöðu íslenskunnar um þessar
mundir. Meðal annars er dregin í
efa staðhæfing úr leiðara Morgun-
blaðsins á Degi íslenskrar tungu um
að íslenskan standi traustum fótum
þrátt fyrir sókn enskunnar og spurt
hvort það sé rétt; hvort ekki sé
ástæða til að óttast áhrif enskunnar.
Guðrún tekur undir þessi orð,
Kristján segir að ekki megi sofna á
verðinum gagnvart áhrifum ensk-
unnar og Höskuldur ítrekar að
fylgjast verði með því að tungan sé
nothæf á öllum sviðum þjóðlífsins
vegna þess að henni sé hætta búin
um leið og hún verði ónothæf á ein-
hverju sviði.
Samhengisins vegna er rétt að
taka fram að í umræddum leiðara
sagði: „Það er hins vegar engin
ástæða til að slaka á þótt tungan
standi vel. Ýmis öfl sækja að henni
og ber þar ekki síst að nefna hina
alltumlykjandi ensku.“ Ef til vill
vantar þarna óttann, en hann verður
þó seint lykillinn að því að efla ís-
lenska tungu. Hvað sem öðru líður
er töluð íslenska á Íslandi, ekki
enska. Ýmis teikn kunna að vera á
lofti um það að málið sé að taka
breytingum um þessar mundir, en
þó er alls óvíst hvaða breytingar
munu taka sér bólfestu og hverjar
hverfa á ný. Og að hve miklu leyti
ber að rekja þessar breytingar til
ensku? Athyglisvert er að Kristján
nefnir að Íslendingar noti ensku
langmest af öllum Norðurlanda-
þjóðum, en hins vegar sletti þeir
ekki mest.
Það má velta því fyrir sér hver
niðurstaðan yrði ef íslensk tunga
færi í læknisskoðun. Er tungan heil-
brigð eða sjúklingur? Á hún framtíð
fyrir sér eða er hún dauðvona? Er
glasið hálffullt eða hálftómt?
Í verkinu Íslensk tunga er reynd-
ar að finna gagngera greiningu á ís-
lensku. Hér er á ferð þarft rit og
veglegt og ber að hrósa höfundum
þess. Með Íslenskri tungu leggja
höfundarnir sín lóð á vogarskálarn-
ar til að auka veg tungunnar og við-
halda henni.
BÖRNIN Í TÓGÓ
Hjónin Bera Þórisdóttir ogNjörður P. Njarðvík hafa unn-
ið stórmerkilegt starf í þágu mun-
aðarlausra barna í Afríkuríkinu
Tógó. Samtök, sem þau hafa stofnað
og nefnast SPES, reka barnaþorp í
höfuðborg landsins. Þau hafa skuld-
bundið sig til að hafa á sínum vegum
börn til átján ára aldurs, sem fá þar
heimili, mat, föt og lyf. Börnin ganga
í leik- og grunnskóla í því hverfi,
sem þau búa í. Í barnaþorpinu eru
nú 42 börn á aldrinum 2 til 9 ára og
mun þeim fjölga um 10 fyrir áramót-
in.
Framtak einstaklinga af þessu
tagi er líklegt til að skila sér jafnvel
og kannski betur en framlag opin-
berra aðila. Í starfi þeirra Beru og
Njarðar er engin yfirbygging. Engin
stjórnunarkostnaður. Allir peningar
sem safnast renna til barnanna.
Í samtali við Njörð P. Njarðvík,
sem birtist hér í Morgunblaðinu í
gær, kemur skýrt í ljós, hvernig
svona starfsemi þróast áfram. Nú
eru þau að byrja að gera meiri kröf-
ur til skólans, sem börnin ganga í og
velta því fyrir sér hvort það sé við-
unandi, að börnin séu í skóla, þar
sem hundrað börn eru í bekk með
einn kennara og fátækleg kennslu-
gögn.
Um allan heim eru miklar umræð-
ur um hvernig bezt sé að tryggja að
það fé, sem sett er til aðstoðar við
þróunarríkin skili sér til þeirra, sem
það á að ganga til. Um allan heim er
líka starfandi fólk eins og þau Bera
og Njörður, sem hafa af hugsjóna-
ástæðum hafizt handa um að hjálpa
munaðarlausum og fátækum börn-
um. Það er mikil spurning, hvort slík
starfsemi er ekki betri farvegur fyr-
ir þróunarhjálp en margt annað.
Augljóst er að starfsemi SPES er
að aukast. Fyrirhugaðar eru frekari
framkvæmdir í Tógó. Starfsemi í
öðrum Afríkuríkjum er til skoðunar
og umræður um að setja upp stofnun
í Brasilíu.
Það er ánægjulegt að fylgjast með
svo stórkostlegum árangri af starfi
þeirra Beru og Njarðar. Stuðningur
við það starf mun hjálpa nokkrum
hópi munaðarlausra barna að kom-
ast á legg, afla sér menntunar og
standa á eigin fótum í lífinu.