Morgunblaðið - 20.12.2005, Side 35

Morgunblaðið - 20.12.2005, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 35 Kjarasamningar borgar-innar við Starfsmanna-félag Reykjavíkurborgar,Eflingu og Tæknifræð- ingafélag Íslands hafa verið til um- fjöllunar og vísaði borgarstjóri í tekjublað Frjálsrar verslunar til rök- stuðnings um kostnaðarauka samn- inganna. Var því haldið fram að samningarnir kostuðu 1.500 milljónir króna og það bæri að skoða þá fjár- hæð í ljósi þess að laun 100 tekju- hæstu forstjóranna hefðu hækkað um 500 milljónir króna í fyrra sam- kvæmt tekjublaðinu. Hér eru nokkur tíðindi á ferð þar sem ég hygg að það sé nýmæli hér á landi að niðurstaða kjarasamninga sé réttlætt með til- vísan í tekjublaðið og hlýtur að vekja sérstaka athygli að fulltrúi launa- greiðandans grípi til röksemdar af þessu tagi. Um tekjublað Frjálsrar verslunar Tekjublað Frjálsrar verslunar er ekki fagleg heimild um laun og launa- breytingar í tilteknum störfum og getur ekki verið það samkvæmt eðli máls. Tekjublaðið er ekki annað en upptalning á tekjuskattstofni þeirra einstaklinga sem blaðið kýs að birta, en heimild þess eru skattskýrslur einstaklinga. Tekjublaðið er ekki launakönnun þar sem úrtakið er valið af handahófi með töl- fræðilegum aðferðum í þeim tilgangi að gefa óbjagaða mynd af heildinni. Í tekju- blaðinu eru störf ekki skýrt afmörkuð og þær tegundir endurgjalds sem fyrir þau eru greiddar. Árstekjur þær sem birtar eru geta stafað af tekjum af fleiri en einu starfi, starfsskiptum á árinu sem leitt hafa til greiðslu fleiri en 12 mánaðarlauna, skattlagningu dag- peninga og bifreiðahlunninda og þær geta átt rætur sínar í fjármagns- tekjum, þ.e. kaupréttarsamningum sem nýttir eru. Þá rata ríflegar áætl- anir skattstjóra á óskilvísa framtelj- endur inn í tekjublaðið, eða er það kannski svo að fyrrverandi fram- kvæmdastjóri Samfylkingarinnar hafi haft 2,5 milljónir króna í mán- aðarlaun hjá flokknum árið 2004 eins og sagt er í tekjublaðinu? Í ljósi þess að tekjublaðið er ekki vísindaleg eða fagleg launakönnun er vitanlega ekki boðlegt að bera á borð að breytingar milli ára samkvæmt þessari heimild endurspegli raunverulega þróun. Hvaðan komu 500 milljónirnar? Ekki tekst mér að finna út hvernig þessi 500 milljóna króna hækkun, sem borgarstjóri gerði að umtalsefni, er fundin út. Ég gerði það sem mér skildist að heimildarmaður borg- arstjóra hefði gert og skráði 100 hæstu tekjuskattstofna árin 2003 og 2004 í flokknum forstjórar skv. tekju- blaðinu og fékk út að hækkunin hefði numið 350 m.kr. Við nánari skoðun kom í ljós að allmikil breyting hafði orðið á samsetningu einstaklinga í þessum hópi og voru 82 þeirra sem voru í síðasta tekjublaði einnig í því árið áður. Ef breytingar í þeim hópi eru skoðaðar (svokallaðar paraðar breytingar, sem jafnan er byggt á við gerð launavísitalna) kemur í ljós að sumir þeirra hækka um 100% eða meira og aðrir lækka um marga tugi prósenta. Slíkar breytingar ganga undir nafninu útlagar (outliers) í töl- fræðinni og er gjarnan sleppt í út- reikningum á meðaltölum. Í þeim hópi eru forstjórar nokkurra útrás- arfyrirtækja sem notið hafa fádæma velgengni og hafa tekið þátt í þeirri velgengi með því að nýta sér kaup- rétt á hlutabréfum í þessum fyr- irtækjum og greitt af því tekjuskatt. Ef þeim sem hækka og lækka meira en 50% er sleppt í samanburðinum, þá standa 64 einstaklingar eftir, og nam hækkun tekjuskattstofns þeirra 11% að meðaltali milli áranna og ef miðað er við hópinn sem hækkaði eða lækkaði minna en 30% þá nam hækk- un tekjuskattstofnsins 9%. Augljóst er að eftir standa áhrif af starfs- skiptum á árinu, tekjum af fleiri en einu starfi og nýtingu sumra þessara einstaklinga á kauprétti á hlutabréf- um í þeim fyrirtækjum sem þeir veita forstöðu. Gróf afbökun í Kastljósi Starfsfólk þáttarins Kastljóss í Ríkissjónvarpinu bætti heldur um betur sl. þriðjudagskvöld þegar það birti súlurit byggt á tekjublaðinu þar sem gat að líta upplýsingar sem ekki hafa birst áð- ur. Í súluritinu kom fram að á árabilinu 2000–2004 hefðu tekjur forstjóra hækkað um 139%, starfsmenn á fjármálamarkaði um 182%, næstráðendur í fyrirtækjum um 75%, embættismenn og for- stjórar ríkisfyrirtækja um 35%, læknar um 24% og félagsmenn ASÍ um 36%. Til samanburðar kom fram á súluritinu að launavísitala Hagstof- unnar hefði hækkað um 29% á tíma- bilinu. Þessi gögn taldi annar þátta- stjórnandinn sýna þróun sem ekki væri hægt að efast um (þótt auðvitað kynni að vera hægt að „deila um ein- hver smáatriði“) og stjórnuðu þau umræðu á þeim grundvelli að þetta væru hinar bláköldu staðreyndir málsins. Eitt þeirra atriða sem ekki flokkast undir smáatriði er að það varpar engu ljósi á launaþróun for- stjóra á þessu tímabili að bera hópinn sem taldist til 100 hæstu árið 2000 við hóp þeirra 100 hæstu árið 2004 í ljósi þess að hópurinn gerbreytist á örfá- um árum, jafnt einstaklingarnir sem fyrirtækin sem þeir starfa hjá, þar sem árlega falla u.þ.b. 20 ein- staklingar brott og aðrir 20 bætast við. Staðreyndin er sú að eina talan á súluriti Kastljóssins sem var í ná- munda við raunverulega tekjuþróun á tímabilinu var hækkun launavísitöl- unnar. Aðrar tölur geta vart talist annað en gróf afbökun á því sem op- inber gögn um raunverulega þróun sýna og ámælisvert að slengja þess- um röngu tölum fram. Í fyrsta lagi þá er engar upplýsingar um tekjur fé- lagsmanna ASÍ að finna í tekju- blaðinu, en allir kunnáttumenn á sviði kjaramála vita það að laun á almenn- um vinnumarkaði hafa hækkað minna en launavísitalan og laun op- inberra starfsmanna meira, þvert á það sem súluritið gaf til kynna. Hækkanir skv. launavísitölu á þessu árabili, 2000–2004, voru þannig að al- mennur markaður hækkaði um 26%, opinberir starfsmenn og bankamenn um 33% og meðaltal þessara hópa var 29%. Tölurnar um tekjur læknanna eru dæmi um bjögun þessara upplýs- inga tekjublaðsins. Læknar eru með- al þeirra stétta sem notið hafa hvað jákvæðastrar tekjuþróunar á und- anförnum árum, en samkvæmt súlu- riti Kastljóss-fólksins hækkuðu með- allaun þeirra sem fyrr segir langminnst þeirra hópa sem þar birt- ust eða aðeins um 24%. Trausta heimild um tekjuþróun 500 sjúkra- húslækna er að finna í fréttabréfum Kjararannsóknarnefndar opinberra starfsmanna en í þeim kemur fram að tekjur þeirra hækkuðu um 54% á ár- unum 2000–2004. Á tölur tekjublaðs- ins um launaþróun hópanna næstráð- endur, embættismenn og forstjóra ríkisfyrirtækja er ekki ástæða til að eyða orðum í ljósi þeirra að- ferðafræðilegu galla sem hér hefur verið bent á. Sama gildir um hina gríðarlega háu prósentutölu um hækkun skattskyldra tekna starfs- manna á fjármálamarkaði sem koma fram í súluritinu en veruleikinn þar að baki er útrás bankanna á þessu tímabili, aukning fjárfestingarbanka- starfsemi og gríðarleg fjölgun há- launastarfa í bankakerfinu og jafn- framt fækkun lægri launaðra starfa. Launaþróun forstjóra og verkafólks Hagstofa Íslands, og áður Kjara- rannsóknarnefnd, hafa birt upplýs- ingar um launabreytingar stjórnenda frá árinu 2002. Þessar breytingar ásamt launabreytingum verkafólks á tímabilinu sjást á meðfylgjandi línu- riti. Þær sýna að verkafólk hefur hækkað meira en stjórnendur allan þennan tíma. Hagstofa Íslands og Kjararannsóknarnefnd hafa einnig birt upplýsingar um meðaltekjur stjórnenda á því tímabili sem súlurit Kastljóssins lagði til grundvallar. Þær upplýsingar byggjast á um 500– 600 stjórnendum og sýna þær að meðaltekjur þeirra hækkuðu um 29% á tímabilinu, eða nákvæmlega jafn mikið og launavísitalan. Þessir stjórnendur eru fjarri því að vera all- ir forstjórar eða framkvæmdastjórar, því auk þeirra teljast til hópsins fjár- málastjórar, markaðsstjórar, skrif- stofustjórar, sölustjórar, starfs- mannastjórar, framleiðslustjórar, verslunarstjórar o.fl. (sjá línurit). Launakönnun ParX Fyrirtækið ParX Viðskiptaráðgjöf IBM gerir einnig könnun á launum fjölmargra starfsgreina, m.a. for- stjóra. Könnunin á sér langa sögu og var upphaflega á vegum Hagvangs, síðan PWC og hefur rekjanleika til ársins 1979. Könnunin er ekki tilvilj- anakennd úrtakskönnun, (frekar en tekjublað Frjálsrar verslunar), held- ur óska fyrirtæki eftir þátttöku og greiða fyrir upplýsingarnar. Nið- urstöðurnar eru með öðrum orðum ekki opinberar. Könnunin er mjög fagmannlega unnin hvað varðar skil- greiningar, flokkun og framsetningu. Eigendur könnunarinnar hafa veitt leyfi til þess að í þessari grein birtist eftirfarandi niðurstöður fyrir tímabil- ið 2000–2005. Könnunin er gerð í september ár hvert og tóku 87 fyr- irtæki þátt í henni á þessu ári og hef- ur fjöldinn verið svipaður frá ári til árs. Hlutfallslegar breytingar í ein- stökum störfum eru reiknaðar út frá þeim fyrirtækjum sem þátt taka í könnuninni tvö samliggjandi ár. Nið- urstöður könnunar ParX eru þær að föst laun forstjóra (alls 41 í sept. 2005) hafi hækkað um 37% frá sept- ember 2000 til september 2005, en á sama tíma hækkaði launavísitala Hagstofunnar um 37%. Föst laun framkvæmdastjóra (alls 117) hækk- uðu um 38% á sama tíma. Á þessu ári, frá september 2004 til september 2005, hækkuðu föst laun forstjóra um 3,4%. Niðurstaðan er því sú að launa- tekjur forstjóra og stjórnenda al- mennt hafa á undanförnum árum þróast í takt við laun almennt sam- kvæmt fyrirliggjandi heimildum. Launakönnun Hagstofunnar sýnir að tekjur stjórnenda hafa hækkað í takt við launavísitölu og hækkað minna en tekjur verkafólks. Launakönnun PARX sýnir að föst laun forstjóra og framkvæmdastjóra hækkuðu ná- kvæmlega jafn mikið og launavísitala á tímabilinu september 2000 til sept- ember 2005. Loks sýnir úrvinnsla á upplýsingum úr tekjublaði Frjálsrar verslunar, þar sem verstu agnúar eru sniðnir af, að breyting á tekjuskatts- tofnum þeirra forstjóra sem valið er að birta í blaðinu var eins stafs pró- sentutala að meðaltali. Allar tiltækar og trúverðugar heimildir benda sem sagt til þess að föst laun forstjóra hafi hækkað í samræmi við almenna launaþróun, en ekki hækkað næstum því fimm sinnum meira eins og starfsfólk Kastljóssins bar á borð á þriðjudagskvöldið. Betri upplýsingar um laun og launabreytingar Tekjublað Frjálsrar verslunar selst grimmt á hverju ári og svalar forvitni fjölmargra um tekjur þekkts fólks. Tekjublaðið sem slíkt getur hins vegar ekki orðið grundvöllur staðtalna um laun og launabreyt- ingar. Til þeirra nota höfum við Hag- stofuna og kjararannsóknarnefndir og á þeim vettvangi er reynt að gefa sem skýrasta mynd af launakjörum og launabreytingum í einstökum störfum og atvinnugreinum. Þetta ætti bæði borgarstjóra og frétta- mönnum Ríkisútvarpsins að vera ljóst. Um þessar mundir er unnið að miklum endurbótum á launaupplýs- ingum Hagstofunnar og er fyr- irhugað að gefa út breyttar og bættar upplýsingar á næstu mánuðum. Á grunni upplýsinga Hagstofunnar ber að ræða fjárhæðir sem greiddar eru í laun og breytingar þeirra. Umræða á grundvelli tekjublaðs Frjálsrar versl- unar er hins vegar villandi og mark- laus og það er fráleitt að tengja sam- an hækkun hlutabréfaverðs skráðra fyrirtækja í Kauphöll Íslands og kaupréttarákvæði í samningum stjórnenda þeirra við launabreyt- ingar í kjarasamningum. Launabreytingar forstjóra Eftir Hannes G. Sigurðsson ’Niðurstaðan er því súað launatekjur forstjóra og stjórnenda almennt hafa á undanförnum ár- um þróast í takt við laun almennt samkvæmt fyr- irliggjandi heimildum.‘ Hannes G. Sigurðsson Höfundur er aðstoðarframkvæmda- stjóri Samtaka atvinnulífsins. fi verið iða fyr- kniefni, æktun- sé svo ð borgi það er- eiðslu í hann kað það Einnig huga að ld séu ekki á agnvart i frá glið því n ella. n ur fyrir í íbúð r langt kinn á alsvert n sýran mleiðslu skýrslu nafram- m 2003– mfarir í a. orðið tamíns fari nú g versl- auðsyn- tamíns a til um é fram- é á hinn um að n áður t fyrir að eiga flókinn tækjabúnað eða kunna góð skil á efnafræði. Í dag fari fram- leiðslan þannig fram að þeim grunnefnum amfetamíns sem eru leyfisskyld er smyglað en síðan kaupi menn afganginn í iðnaðar- vöruverslunum. Síðan sé amfeta- mínið einfaldlega framleitt með því að blanda þessum efnum saman í ákveðnum hlutföllum. Sú blöndun geti farið fram hvar sem er og er- lendis sé algengt að menn leigi hót- elherbergi í þeim eina tilgangi að geta þar blandað efnunum saman og þannig framleitt amfetamín. Meira með skipum Í fyrrnefndri skýrslu Europol kemur einnig fram að fíkniefnum er í auknum mæli smyglað með skip- um en síður sé notast við burðar- dýr. Ásgeir segir alveg ljóst að stærstu fíkniefnasendingarnar ber- ist til landsins með skipum og þann- ig hafi það verið um langa hríð. Hann vill aðspurður ekki segja til um hvort auka þurfi viðbúnað við hafnir landsins en bendir á hinn bóginn á að samkvæmt upplýsing- um frá tollgæslunni nái hún að skoða um 1% af öllum vörusending- um með gámum til landsins. Þá hafi um helgina komið fram upplýsing- ar um að aðstaða til tollgæslu í Seyðisfjarðarhöfn og á Egilsstaða- flugvelli væri afleit. „En síðan verða menn að hafa í huga að lög- regla og tollgæsla geta ekki staðið ein í því að sporna við eftirpurn eft- ir fíkniefnum. Meðan eftirspurn er fyrir hendi verða fíkniefni flutt til landsins. Þetta er samfélagslegt vandamál sem allir verða standa saman um að berjast gegn,“ segir Ásgeir Karlsson, yfirmaður fíkni- efna. rot en niefnum ísbendingar um að Kaupmannahöfn      !"##$ "##* "##) "##" "## "###  456 54 6  484 4 8 5 57  874 8 55 8 4  4 657 56 7 8  445 4 78 4587 6 4  4 4  8 56  6  64   4 75 85  78 5 7 657 7  44   4     48 6 554 7 84  0 0  58 6 8  5  4 6 6 5  0 0  87 8  8687  447  1 )  ær, og segir augljóst að vöruverð hækki arnan í hafi. Fram komi í skýrslu sam- ppnisyfirvalda að samþjöppun á matvöru- arkaði og ónóg samkeppni sé hluti af skýr- gum á háu verðlagi, auk þess sem smæð arkaðarins og fjarlægð frá öðrum löndum gi þátt í því. Haraldur segir að samkvæmt tölum frá agstofunni fari samtals um 16% af útgjöld- m heimilanna í matarkaup. Um þriðjungur því, 5,6% útgjalda heimilana, fari í kaup á nlendum búvörum og 0,7% í kaup á inn- ndu og erlendu grænmeti. Haraldur bendir að þau 10% sem eftir standi fari í kaup á atvörum öðrum en íslenskum búvörum, og yrja megi hvort ekki megi líka leggja erslu á að lækka verð á þeim vörum um %, neytendum til hagsbóta, enda meira nið með því. ling tolla um 30%

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.