Morgunblaðið - 20.12.2005, Page 44

Morgunblaðið - 20.12.2005, Page 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ UMRÆÐAN Óskað er eftir tilboði. Sími 530 6500 Finnbogi Hilmarsson, Einar Guðmundsson og Bogi Pétursson löggiltir fasteignasalar Opið mán.- fös. frá kl. 9-17 Höfum til sölu sérlega vel staðsett húsnæði á jarðhæð. Húsnæðið er um 230 fm og er í dag innréttað fyrir sjúkraþjálfun. Leigusamningur er í gildi til 2010. Einnig er mögulegt að bæta við 105 fm á sömu hæð. Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu Heimilis. Háteigsvegur - Atvinnuhúsnæði á jarðhæð Bræðraborgarstígur Höfum fengið í sölu tvær íbúðir í fallegu fjölbýlishúsi með lyftu sem er teiknað af Þóri Sandholt. Íbúðinar eru á 2. hæð og eru hvor um sig um 140 fm. Önnur þeirra er laus strax. Verð 26 og 26,5 millj. Nánari uppl. á skrifstofu. 4873 MORGUNBLAÐIÐ gerir mér þann heiður í gær að nefna nafn mitt tvisvar í stuttum leiðara sín- um. Sjálfsagt er að þakka fyrir sig en fá í leiðinni að skjóta að örfáum ábendingum. Leiðarahöfundi mis- líkaði að tekið væri dæmi um verð á blaðinu í samanburði við erlend blöð og útlistaði mörg atriði sem hefðu áhrif á verðlag þess. Undir það má taka og allra síst dregið úr menningarhlutverki blaðsins sem það gegnir með miklum sóma. Einnig nefnir hann að finna megi dæmi um erlend dagblöð sem væru bæði dýrari og ódýrari. Þetta var einmitt það sem ég vildi fá blaðið til að taka upp, líka varðandi búvörur. Sem fjölmiðill hlýtur blaðið að hafa þeim skyldum að gegna að gefa lesendum sínum sem breiðasta sýn á mál hverju sinni. Fréttablaðið birti t.d. í sunnudagsblaði sínu (á bls. 2) mynd sem sýndi hlutfall út- gjalda til matvælakaupa í ýmsum löndum Vestur-Evrópu, sem við berum okkur saman við, auk þess að geta um mismunandi virð- isaukaskatt á matvæli. Laun vinnu- afls, gengi og margt fleira skiptir einnig máli þegar rætt er um hæð á verðlagi. Hvers vegna eru innfluttar búvörur ekki ódýrari? Korn, hveiti, ávextir, grænmeti o.fl. er flutt inn tollalaust hér. Raunar er yfir 50% af hitaeiningaþörf þjóð- arinnar uppfyllt með innfluttum búvörum. Samt var verðlag á brauði og kornvörum 67% hærra hér á landi en í ESB ríkjunum 15 (sem mynduðu banda- lagið fyrir aust- urstækkunina), árið 2003. Verð á sykri, súkkulaði og sælgæti var 61% hærra og verð á öðrum mat- vörum (áðurnefndum vörum, auk mjólkur, kjöts, fisks, olíum, feit- metis, ávaxta og grænmetis) 33% hærra. Þetta hlýtur að segja okkur að verð- munur á matvælum hér á landi sam- anborið við nágranna- löndin, á sér margar skýringar. Búvöruverð fer lækkandi Í grein minni vék ég að því að Íslendingar eyddu lægra hlutfalli af útgjöldum samkvæmt vísitölu neysluverðs til matvæla- kaupa en margar þjóðir Vestur- og Suður -Evrópu þar sem verðlag er lægra. Á síðustu árum hefur verið unnið að því í fullri alvöru að lækka verð á búvörum og verulegur ár- angur náðst. Samkvæmt vísitölu neysluverðs í desem- ber fara 5,6% útgjalda til kaupa á innlendum búvörum og 0,7% til kaupa á grænmeti (innlent og innflutt). Þetta hlutfall hefur og farið hratt lækkandi síðustu ár. Þó að tollar takmarki innflutning á mörgum þessara vara hef ég hvergi rekist á útreikninga á hvert vægi þeir hafa í verð- laginu í röksemda- færslu þeirra sem um þessi mál hafa skrifað síðustu daga. Að lokum Ráðherrar utanrík- ismála, landbúnaðar og fjármála hafa svarað til um þessi mál síð- ustu daga í ljós- vakamiðlum. Viðbrögð þeirra hafa verið á einn veg, yfir þessi mál þurfi að fara með mál- efnalegum hætti. Bændur með sínar góðu framleiðsluafurðir og jákvætt framlag til byggðamála og varð- veislu okkar menningararfs ganga með opnum huga til þeirrar um- ræðu. Enn um matvælaverð Erna Bjarnadóttir svarar leiðara Morgunblaðsins ’Sem fjölmiðillhlýtur blaðið að hafa þeim skyldum að gegna að gefa lesendum sínum sem breiðasta sýn á mál hverju sinni.‘ Erna Bjarnadóttir Höfundur er hagfræðingur og starfar sem forstöðumaður félagssviðs Bændasamtaka Íslands. Í FRÉTTUM og umræðunni hef- ur farið nokkuð hátt að mannrétt- indastjóri Evrópuráðsins var á ferð um Ísland og hefur kynnt sér stöðu ýmissa málaflokka. Hann komst m.a. að þeirri niðurstöðu að nauð- synlegt sé að breyta fyrirkomulagi á vali á hæstarétt- ardómurum. Miklu minna fór fyr- ir umræðu um merka skýrslu umboðsmanns Alþingis en hann hefur það hlutverk m.a. að hafa eftirlit með stjórnsýslunni í land- inu. Í skýrslu umboðs- manns Alþingis fyrir árið 2004 er beinskeytt gagnrýni á það hvern- ig dómsmálaráðherra stóð að skipan hæsta- réttardómara. Ég er á því að skipan Ólafs Barkar Þor- valdssonar í stöðu hæstaréttardóm- ara á sínum tíma hafi verið vægast sagt vafasöm og alls ekki byggst á málefnalegum forsendum. Á bls. 137 í skýrslu umboðs- manns Alþingis fyrir árið 2004 seg- ir: „Ég tel að það sé ekki fallið til þess að viðhalda og styrkja traust manna á æðsta dóm- stól þjóðarinnar ef val á nýjum dómara leiðir til verulegra opin- berra deilna um hæfni viðkomandi til að gegna starfinu eða þá aðferð sem viðhöfð var við val á honum. Það að mér skuli ber- ast þrjár kvartanir vegna ákvörðunar dómsmálaráðherra um veitingu sama emb- ættis hæstaréttardóm- ara og ég telji tilefni til að taka þær til athugunar með þeim hætti sem gert er í áliti þessu auk þeirr- ar umræðu sem orðið hefur í þjóð- félaginu um umrædda embætt- isveitingu hæstaréttardómara og þær næstu þar á undan hefur leitt huga minn að því fyrirkomulagi sem nú er viðhaft við val á hæsta- réttardómurum.“ Björn Bjarnason hefur gefið í skyn að hann muni að einhverju leyti bregðast við gagnrýni mann- réttindastjórans en ég á nú frekar von á því að það verði í orði en á borði. Hingað til hefur Björn Bjarnason skellt skollaeyrum við allri gagnrýni á skipan hæstarétt- ardómara og verið í því tilliti for- hertari en sjálfur George W. Bush sem tók þó tillit til málefnalegrar gagnrýni á skipan hæstaréttardóm- ara í BNA. Fleiri útlendingar kallaðir til vitnis Það er lenska stjórnvalda að þegar þau eru lent í vandræðum á að kalla til svokallaða „óháða“ er- lenda sérfræðinga. Nú á að kalla einhvern sérfræðing frá útlöndum til þess að lesa í gegnum tvær skýrslur um stöðu öryrkja. Hafró kallar reglulega til „óháða“ erlenda sérfræðinga þegar spár þeirra hrynja mjög reglulega um svokall- aða uppbyggingu fiskstofna. Allir sem komnir eru til vits og ára ættu að vera farnir að sjá að ef raunverulegur vilji er til breytinga þarf ekki að teygja lopann með því að kalla á og ræða einhver álit er- lendra sérfræðinga sem sumir hverjir eru handvaldir af stjórn- völdum. Ef kjósendur vilja að vinir og frændur verði hæstaréttardómarar kjósa menn Sjálfstæðisflokkinn. Ef kjósendur vilja að kjör ör- yrkja og eldri borgara dragist aftur úr kjörum annarra kjósa þeir Framsókn. Ef menn vilja sjá breytingar á skipan hæstaréttardómara, hlut eldri borgara réttan og árangurs- ríka fiskveiðistjórn liggur beinast við að styðja Frjálslynda flokkinn. Er útlenskt merkilegra? Sigurjón Þórðarson fjallar um þjóðfélagsmál Sigurjón Þórðarson ’Það er lenska stjórn-valda að þegar þau eru lent í vandræðum á að kalla til svokallaða „óháða“ erlenda sér- fræðinga.‘ Höfndur er þingmaður. ÞORKELL Helgason orku- málastjóri ritar grein í umvönd- unartóni (Er dyggð að spara orku? Mbl. 10.12.05.), m.a. um orkusparnað. Tilefnið er ráðstefna vegna „eflingar“ Orku- seturs á Akureyri til að sinna orkusparnaði þjóðarinnar. Má fagna góðgjörnum áformum, sem einum starfs- manni er ætlað að koma í verk með stuðn- ingi ESB og KEA, ásamt öðrum sem sinna á vistvænu elds- neyti. (Fyrir munu vera tveir starfsmenn; hefur annar umsjón með jarðhitaleit en hinn Orkusjóði.) Ekki minnist orkumálastjóri á fyrri og lærdómsrík orkusparn- aðarverkefni sem að mestu runnu út í sandinn. Ástæða þess að það gerðist var líklega sú að verkefnin hlutu ekki ómissandi stuðning en þau taka til margra þátta, sumra tæknilegra, annarra samfélagslegra og pólitískra þar sem m.a. löggjöf, skatta- og tolla- mál skipta máli. Einnig skipulagsmál og mannlegt atferli. Fyrir mörgum árum sat merkur maður við gluggann sinn og horfði út á Þingvallaveginn. Hann sá menn aka þar um í tilgangleysi að því er honum virtist. Hann drap niður penna því hann skildi ekki hví allur þessi fjöldi gæti haft skemmtun af því að aka Þingvalla- hringinn. Hann gerði sér ekki grein fyrir að þeir gætu hver og einn verið á leið milli áfanga- staða í bráðnauðsyn- legum tilgangi; stundum að sjálfsögðu í tómri vit- leysu. Eins má segja að orkumálastjóra sé farið er hann segir að í ýms- um greinum iðnaðar megi spara allt að 35% og í fiskeldi enn meira, án þess þó að það virðist gert. Vitnar hann í útlendinga, máli sínu til stuðn- ings, sem segja furðu gegna að menn hafi heitt í húsum sínum og noti fjalla- bíla í snatt. Öll mannanna hegðun á sér skýr- ingu, hvort sem um er að ræða sunnudagsbíltúra og snatt eða að láta ljós loga á ljósaseríum dag og nótt. Kannski má beita einföldum stjórn- valdslausnum, eins og einu sinni þeg- ar mönnum datt í hug að slökkva á öllum götuljósum í stóru bæjarfélagi til þess að hægt væri að spara álag á rafmagnskerfið meðan fólk sauð jóla- hangiketið. Ekki kaupir fjölskylda stóran al- drifsbíl fyrir snatt. Hann er ætlaður til mikilvægra nota vegna fjöl- skyldustærðar, öryggistilfinningar, útilegu, til að heimsækja ömmu á Húsavík, Ísafirði eða í Reykjavík; stundum fordildar vegna. Ekki má útiloka að hann sé hagkvæmari en aðrir bílar. Ég rökræði þetta mál ekki frekar. Orkumálastjóri bendir á heimasíðu um Akureyrarráðstefnuna: www.os.is/page/radstefna_orkunotk- un. Er það að mestu safn af Power- Point skjámyndum. Einn fyrirlesara, Ragnheiður I. Þórarinsdóttir, hefur mál sitt með spurningunni: Er hvati til orkusparn- aðar á Íslandi? Hún svarar að bragði með stórum stöfum: NEI. En bætir við: Hann gæti a.m.k. verið sýnilegri. Meginefnið eru ellefu vafamál sem flest eru raftækni- og fjárhagsleg nema: Væri hægt að fá far með ná- grannanum? Ekki svarar hún sér. Í allri vinsemd má benda á að tala við bíleigendur sem sameinast um akstur og geyma farartæki sín á daginn við Grindavíkurafleggjara og Geitháls. Svar við spurningunum verða væntanlega verkefni Orkuseturs á Akureyri. Má óska því góðrar fram- tíðar við að: Stuðla að aukinni vitund almennings og fyrirtækja um hag- kvæmari orkunotkun eins og stefna þess er. Má vænta hagkvæmisvitund- arvakningar í orkumálum. Heiti greinar orkumálastjóra Er dyggð að spara orku? skírskotar til siðgæðis. Hann kemst sjálfur að ýms- um niðurstöðum í greininni sem þó gefa síður en svo haldgóðar vísbend- ingar um hvert Orkustofnun vilji stefna. Orkustofnun er samkvæmt lögum ríkisstjórninni til ráðuneytis um orkumál og auðlindamál. Nú spyr ég orkumálastjóra í allri vinsemd: Hvaða tillögur hefur Orku- stofnun lagt fyrir ríkisstjórnina um orkusparnað? Hvaða markvissar áætlanir hefur stofnunin á prjónum aðrar en að ráða tvo starfsmenn til Orkuseturs á Akureyri? Orka og siðferði Eggert Ásgeirsson fjallar um orkumál Eggert Ásgeirsson ’Hvaða tillögur hefurOrkustofnun lagt fyrir ríkisstjórnina um orku- sparnað?‘ Höfundur er eftirlaunamaður. RAFSÓL Skipholti 33 • 105 Reykjavík Sími: 553 5600 ENDURNÝJUN OG VIÐHALD E i n n t v e i r o g þ r í r 2 6 6 .0 0 2 lögg i l tu r ra fverk tak i

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.