Morgunblaðið - 20.12.2005, Síða 46

Morgunblaðið - 20.12.2005, Síða 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ Sigurður ArnarRóbertsson fæddist í Reykjavík 20. maí 1967. Hann lést af slysförum mánudaginn 12. desember síðastlið- inn. Foreldrar hans eru Róbert Róberts- son, f. 27. maí 1943, og Bergþóra Sig- urðardóttir, f. 2. mars 1944, d. 19. desember 2002. Systur Sigurðar Arnars eru Hulda María, f. 30. apríl 1966, og Erna Bryndís, f. 27. janúar 1975. Synir Sigurðar Arnars eru Al- exander, f. 15. ágúst 1991, móðir Ester Erlingsdóttir, Róbert Orri, f. 13. nóvember 1998,og Victor Snær, f. 5. nóvem- ber 2000, móðir Sig- rún Garðarsdóttir. Sigurður lærði kjötiðn hjá Slátur- félagi Suðurlands og starfaði við það í nokkur ár að námi loknu. Samhliða því starfaði hann við þjónustu- og versl- unarstörf í gegnum árin. En síðastliðið ár rak hann og starfaði við veitingarekstur Cafe Amor á Akureyri þar til hann lést. Sigurður Arnar verður jarð- sunginn frá Fossvogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 15. Mig langar að minnast Sigga pabba eins og ég kallaði hann, hann kom inn í mitt líf þegar ég var eins og hálfs árs. Hann hugsaði um mig eins og ekta son, hann Siggi pabbi var einn besti maður sem ég hef kynnst. Við fórum á hestbak og hann gerði bestu núðlur og orkudrykki í heimi og Siggi var góður við mig, sýndi ást og umhyggju. Mér fannst líka gaman þegar ég fór norður og fékk að gista með strákunum og hafa kósýkvöld. Það var sko frábært. Ég sakna hans mikið og ætla að styðja við bakið á bræðrum mínum sem hafa nú misst pabba sinn. Guð geymir hann. Kveðja. Jóhann Sölvi. Elsku pabbi, mér þykir svo vænt um þig, þú ætlaðir að koma og heim- sækja okkur í Reykjavík en komst ekki, þú dóst. Pabbi, þú varst svo skemmtilegur. Ég sakna þín svo mikið. Þú varst svo góður og þú leyfðir okkur allt. Kveðja. Róbert Orri. Elsku pabbi. Ég elska þig svo mik- ið, ég veit að guð er að passa þig. Ég sakna þín svo mikið. Mig langar að sjá þig. Kveðja. Viktor Snær. Elsku pabbi sem við þráðum að faðma, umvefja, elska, vaxa með þér. Líf þitt var svo stutt, og hér erum við eftir hugsandi um það sem hefði getað orðið. Kannski í eilífðinni, fáum við að hlæja, gráta og faðmast. Margt er það, sem minningarnar vekur og þær eru það eina sem enginn frá okkur tekur. Ástarkveðjur. Strákarnir þínir. Elsku Siggi, ég á enn bágt með að trúa að þetta sé raunveruleikinn, að þú hafir verið tekinn frá okkur. Þetta er eins og slæm martröð sem ég er enn að vonast til að vakna upp frá. Mín eina huggun er sú að ég veit að mamma þín tekur á móti þér með op- inn faðminn. Þú átt eftir fylgjast með og hlúa að strákunum okkar og Alex- ander sem allir bera hver sín ein- kenni frá þér. Ég veit ekki hvernig við komumst af án þín en í minning- unni áttu alltaf eftir að vera yndis- legur faðir og kærleiksríkur maður sem allt vildir fyrir alla gera. Megi guð varðveita þig og geyma. Með kveðju. Sigrún. Elsku hjartans fallegi bróðir okk- ar, það er ekki hægt að lýsa með orð- um þeirri tilfinningu sem við upp- lifðum morguninn 12. desember síðastliðinn þegar okkur bárust þær skelfilegu fréttir að þú værir farinn frá okkur. Það er svo ótrúlegt að hugsa til þess að eiga ekki von á sím- tali frá þér eða að þú munir birtast einn daginn óvænt hjá okkur eins og þín var von og vísa. Við skiljum ekki tilganginn þegar svona ungur fallegur og ómetanleg- ur maður er tekinn þetta fljótt á svo sviplegan hátt, en vonum að hann sé einhver. Þín er svo sárt saknað, en þú veist að þú munt ávallt lifa í hjörtum okk- ar og hug. Við reynum að leita huggunar í því að nú sért þú í faðmi mömmu, afa og ömmu og líði vel. Elsku Siggi, við munum varðveita allar minningarnar um þig í hjörtum okkar og allar stundirnar sem við áttum saman eru okkur ómetanleg- ar. Við vitum að enginn þekkti þig eins og við gerðum og það er okkar fjársjóður í minningunni um þig, elskulegi fallegi bróðir okkar, sem varst og ert okkur allt. Það voru aldrei nein takmörk fyrir því hvað þú vildir hjálpa og gera fyrir okkur. Við elskum þig svo mikið, besti bróðir í heimi, og með þessum orðum kveðjum við þig að sinni. Guð geymi þig. Þínar systur Hulda María og Erna Bryndís. Þegar ég settist niður til að skrifa nokkrar línur um hann frænda minn Sigurð Arnar Róbertsson, þá reikaði hugurinn til baka. Ég var 14 ára þegar stóra systir mín hún Bergþóra eignaðist þennan litla dreng, sem hafði svo fallegt bros að hann var fljótur að bræða hjartað í manni. Þá áttu þau Bergþóra og Róbert fyrir eina dóttur, hana Huldu Maríu. Þau systkinin urðu brátt óaðskilj- anleg, þar sem Sigurður var, þar var Hulda líka, ég held að henni hafi fundist hún bera ábyrgð á honum frá byrjun, þó að hún væri ekki nema tæpum 13 mánuðum eldri. Hulda var svo passasöm með litla bróður að einhverju sinni þegar þau voru fjög- urra og fimm ára og nýfarin út að leika, kom Hulda María fljótt inn aft- ur með Sigurð Arnar í eftirdragi. Mamma hennar spyr hana: „Af hverju eru þið strax komin inn aft- ur?“ ,,Æ, mamma,“ sagði Hulda þá, ,,strákarnir voru að fara á flakk“. Hún ætlaði sem sagt að vernda litla bróður frá því að lenda á flakki. En það er þannig með litla bræð- ur, þeir stækka og verða jafnvel „stóru bræður“ en litla systir Sig- urðar Arnars, Erna Bryndís, fædd- ist 1975. Hann fylgdist vel með litlu systur sinni þegar hún stækkaði, eins og t.d. hvaða stráka hún væri að um- gangast, hann lét þá jafnvel vita að hann væri stóri bróðir hennar, svona til að fyrirbyggja misskilning, ég held að honum hafi ekki þótt neinn nógu góður fyrir hana. En nú þarf stóra systir að sleppa hendinni af litla bróður sínum og treysta Guði fyrir honum, en ég er viss um að hann fylgist með ykkur báðum áfram. Eins er ég viss um að hann lítur til með fallegu drengjunum sínum Al- exander, Róbert Orra og Viktori Snæ, sem honum var svo annt um. Elsku Róbert minn, þetta er svo sárt og óskiljanlegt, það eina sem við getum huggað okkur við er að hann er kominn í faðminn á henni mömmu sinni sem hann saknaði svo sárt eftir að hún dó. Guð blessi okkur öll. Jórunn Hulda Sigurðardóttir. Elsku frændi, við söknum þín svo mikið og þökkum fyrir allar skemmtilegu stundirnar sem við átt- um með þér. Þú varst alltaf svo hlýr og góður við okkur og sá besti frændi sem hægt er að hugsa sér. Þú munt ávallt lifa í hjörtum okkar. Við elsk- um þig svo mikið.Knús og kossar. Diljá Hrund, Yvonne María og Camilla Hrund. Með örfáum orðum viljum við minnast elskulegs frænda okkar og vinar, Sigurðar Arnars Róbertsson- ar, sem svo snögglega var hrifinn burt frá okkur hinn 12. desember sl. Slysin gera ekki boð á undan sér – svo mikið er víst og einhvern veginn er maður alltaf óviðbúinn í slíkum til- vikum, einkum þegar ungt fólk á í hlut. Erfitt er að skilja hvað almætt- inu gengur til. Enn einu sinni erum við minnt á að hvað svo sem menn- irnir áforma er það á endanum víst Guð einn sem ræður för. Í minningunni er myndin af Sigga frænda einstaklega notaleg. Hann var ekki maður margra orða en hlý og þægileg nærvera einkenndi ætíð allt hans fas og viðmót. Það var alltaf gott að hitta hann. Einkum var eft- irtektarvert hvað börnin í fjölskyld- unni löðuðust að honum og hvað hann var þeim góður. Margir eiga um sárt að binda við fráfall þessa elskulega drengs og er með ólíkindum, hvað lagt hefur verið á fjölskylduna á fáum árum. Biðjum við góðan Guð að styðja og styrkja drengina hans, Róbert og fjölskyld- una alla á þessum erfiða tíma og létta þeim byrðar morgundagsins. Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Guð blessi minningu Sigurðar Arnars. Anna, Guðmundur, Gunnhildur Ásta, Erla Dögg og Aldís. Elsku Siggi minn. Ég get varla lýst því með orðum hvernig mér leið þegar ég fékk fréttirnar að þú værir dáinn, það var eins og fótunum hefði verið kippt undan mér, og heimurinn hrunið. Þegar ég skrifa þetta þá er ég enn í afneitun og er að vona að þetta sé bara draumur, að þú birtist hérna hjá mér eins og tveimur dög- um fyrir slysið og takir utan um mig aftur og segir hvað þér þyki vænt um mig. Ég man hvað mér brá að sjá þig standa fyrir framan mig, ég bjóst alls ekki við að sjá þig þegar ég opn- aði dyrnar, en þarna varstu svo fal- legur eins og þú varst alltaf og brost- ir til mín. Við töluðum saman um allt og ekkert, en þó sérstaklega hvað þú hlakkaðir til að breyta lífi þínu eftir nokkra daga, sem núna færðu aldrei gert. Við töluðum líka um mig og að ég mætti alveg fara að breyta ýmsu hjá mér. Þess vegna ætla ég núna að klára það sem þú náðir aldrei að byrja á, ég veit að þú munt fylgjast með mér í því, og ég lofa þér að þú munt verða hreykinn af mér. Það er svo margt sem ég gæti sagt þér, ég á svo margar minningar um þig, til dæmis þegar þú bauðst mér út að borða og ég hélt að við færum á Subway eða eitthvað, klæddi mig bara í gallabuxur og peysu, fékk svo sms um að ég ætti að mæta á La vita bella. Ég fékk alveg sjokk og neydd- ist til að mæta í þessum fötum, enda alveg á síðustu stundu eins og vana- lega, en ég held að þú hafir aldrei pælt neitt í því, enda sástu mig bara alltaf eins og ég er, þú lést mig alltaf finna að þú hefðir trú á mér, og varst alltaf góður við mig. Auðvitað komu tímar sem við vorum ekki sátt, enda bæði óhemju frek og vildum bæði alltaf ráða og þá urðu smá árekstrar, en alltaf drógumst við aftur saman og hlógum svo bara að vitleysunni í okkur. Ég sagði einu sinni þegar þú varst eitthvað að ybba þig við mig: Líkur sækir líkan heim, og þá brost- irðu bara. Það var einmitt það sem við elskuðum við hvort annað, hvað við vorum lík. En elskan mín, bara ef allar minn- ingarnar gætu fengið þig til baka þá væri þetta auðveldara. Þá myndi ég bara skrifa og skrifa alveg þar til þú stæðir hérna hjá mér. En þetta er víst það eina í lífinu sem við fáum engu um ráðið. Ég mun alltaf vera þakklát fyrir að hafa fengið að kynn- ast þér og ég mun geyma þig á góð- um stað í hjartanu um ókomna tíð. Það eina sem ég get gert er að vona að þér líði vel þar sem þú ert núna, fallegi engillinn minn. En bíddu bara, þú ert ekkert alveg laus við mig enn þá, því einhvern tímann mun ég koma til þín og við munum halda áfram frá því sem við skildum við núna, ég kveð þig því með þess- um orðum: Söknuðurinn er mikill og sorgin hjartað sker, sporin eru erfið því þú ert ekki hér. Ástarkveðja. Þín Aníta. Elsku Siggi minn, það er svo óraunverulegt að þú sért farinn. Ég á svo erfitt með að trúa því að ég eigi ekki eftir að hitta þig aftur, það er svo skrítið hvað lífið er fljótt að breytast. Það er ekki langt síðan við sátum yfir kaffibolla og þú segir allt í einu að þú sért farinn að hlakka dá- lítið til jólanna, því þú vissir að allt yrði orðið svo gott þá. Þú saknaðir mömmu þinnar mikið, þú sagðir mér frá því að hún hefði verið límið sem hélt ykkur fjölskyld- unni saman. Þú sagðir mér svo fallega sögu af mömmu þinni og pabba. Það var undir það síðasta í gegnum veikindi móður þinnar. Mamma þín lá á sjúkrahúsinu og pabbi þinn sat við hlið hennar og hélt í hönd hennar og þú sást hvernig tárin streymdu niður kinnar pabba þíns, þú sást ástar- neistann sem enn lifði á milli þeirra eftir allan þennan tíma. Þú sagðir mér að þetta væri það sem gæfi líf- inu gildi, að getað elskað svona. Og svona varst þú, Siggi minn, þú gast elskað svona, að sjá þig með börn- unum þínum var alveg einstakt, þeir eru algjörir pabbastrákar og þú varst svo stoltur af þeim, og þeir vöfðu þér alveg um litlu puttana sína. Þegar ég lít til baka núna og hugsa um stundirnar sem við áttum saman þá situr ekkert eftir nema góðu stundirnar okkar. Við gátum setið saman langt fram á nótt og talað um allt milli himins og jarðar, hlegið saman og þagað saman, og jafnvel grátið saman. Þú komst mér svo oft til að hlæja. Ég man sérstaklega eftir einu atviki fyrir ekki svo löngu. Við vorum að horfa á mynd sem var ekkert alltof skemmtileg, þú varst alltaf að koma með einhver fyndin innskot og ég fór alltaf að hlæja. Svo leistu á mig og spurðir hvað væri svona fyndið og ég sagði bara að þú værir fyndinn. Þú tókst þér smá tíma til að hugsa og leist svo á mig mjög alvarlegur og sagðir: Kolla mín, ef það er eitthvað sem ég er ekki, þá er það að vera fyndinn, og þar með komstu mér til að hlæja aftur. Við áttum svo margar góðar stundir saman sem ég mun aldrei gleyma og munu ávallt lifa í minningunni um þig, Siggi minn. Þú hefur nú aldeilis lifað lífinu og gefið mörgum svo mikið af þér. Þau kvöld sem við áttum saman og rifjuðum upp, sögðum hvort öðru allt sem við höfðum gengið í gegnum, allir erf- iðleikar og allar góðu stundirnar eru mér svo mikils virði. Þú átt svo stór- an hlut í hjarta mínu og munt alltaf vera þar. Það er ekki hægt að segja annað en að þú hafir ávallt farið þín- ar eigin leiðir. Eins og þegar ég vaknaði ekki við símann eða bankið, þá gafstu ekki upp, heldur vaknaði ég við það að þú varst kominn hálfur innum gluggann. Þú varst einstakur og munt alltaf lifa í huga mínum, ég mun sakna þín ávallt. Mest af öllu þakka ég fyrir að hafa fengið að kynnast þér og eyða þeim tíma sem við áttum saman með þér. Ég bið góðan Guð að styrkja börnin þín, systkini og pabba þinn í sorginni og votta þeim mína dýpstu samúð. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibj. Sig.) Með söknuði kveð ég þig, elsku vinur. Þín Elísabet Kolbrún. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð, margs er að minnast, margs er að sakna. Guði þeirri tregatárin stríð. (V. Briem.) Ég vil votta fjölskyldu og vinum mína dýpstu samúð. Hvíl í friði, elsku Siggi. Þín vinkona Agnes B. Elfar, Egilsstöðum. Blessaður Siggi minn. Vá, þetta er það erfiðasta sem ég hef nokkurn tímann gert. Ég verð bara að þakka þér fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, sem var ekkert lítið. Ég er ekki enn búinn að fatta að við munum ekki hittast meir í þessu lífi. Þú varst sá sem ég gat alltaf talað við og feng- ið góð ráð hjá, sama hvað og hvenær, alltaf bjóstu til tíma til að tala við mig og leiðbeina mér á réttu braut- ina. Bara góðmennskan í þér var ómetanleg. Rosalega yfirvegaður alltaf og hress á því við mig. Þú getur rétt ímyndað þér hvað það er erfitt fyrir mig að skrifa þetta, þú veist hvernig ég er. Ég vona að þú sért samt nálægt og fylgist með hvernig mér gengur í lífinu. Hræðilegt að missa svona langflottasta töffarann á svæðinu eins og þú veist að þú varst, það er eitthvað sem verður aldrei tekið frá þér, Siggi minn. Þín er sárt saknað, vinur, og ég mun fylgja þér alla leið, þú veist það kallinn minn. Kveðja. Steindór Veigarsson. „Dáinn, horfinn“ harmafregn! hvílíkt orð mig dynur yfir! En ég veit að látinn lifir; það er huggun harmi gegn. (Jónas Hallgr.) Fallinn er frá í blóma lífsins vinur minn Sigurður Arnar Róbertsson. Við Siggi kynntumst 12 ára gamlir við knattspyrnuiðkun hjá Val og tókst fljótlega með okkur góður kunningsskapur og síðar sterk vin- átta. Aldrei bar þar skugga á. Sigurður var einkar glæsilegur SIGURÐUR ARNAR RÓBERTSSON

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.