Morgunblaðið - 20.12.2005, Side 47

Morgunblaðið - 20.12.2005, Side 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 47 MINNINGAR maður, kurteis og dagfarsprúður enda af góðu heimili kominn. Varð ég þess heiðurs aðnjótandi að kynnast vel foreldrum og systrum Sigga enda tengsl hans við fjölskyldu sína alla tíð mjög sterk. Mikill er missir þeirra nú. Persónutöfrar Sigurðar voru miklir og var hann ævinlega vina- margur; kvenhylli hans virtist engin takmörk sett. En lífið lék ekki alltaf við Sigga og í honum sannaðist að öl er annar maður. Baráttan við Bakk- us tók sinn toll en á undanförnum ár- um hafði Sigurður þó lengst af betur í þeirri baráttu. Nú þegar jólin fara í hönd og flest okkar sjáum fram á notalegar stund- ir með okkar nánustu eru þrír ungir drengir að kveðja föður sinn í hinsta sinn. Mikil var eftirvænting þeirra að eyða jólunum með föður sínum og ekki hefur eftirvænting hans verið minni því ástríkari feðgum hef ég fáum kynnst. Missir þeirra er ólýs- anlegur og ábyrgð okkar sem eftir stöndum mikil. Elsku vinur, góðir vinir eru ómet- anlegir og alltaf gat ég leitað til þín þegar gangur lífsins virtist óskiljan- legur. Ég kveð þig, vinur minn, með þessum orðum Jónasar Hallgríms- sonar: Það svíður aldrei oftar, vinur kær! þú athvarf skalt í móðurskjóli finna; harmaðu þreyttan þig á nótt og degi, í þögn og kyrrð, svo hryggðin sigra megi. Arnar Þ. Sveinsson. Ég átti ekki von á því að þurfa að kveðja þig svona snemma, kæri vin- ur, en því miður er sú stund runnin upp, þó ég óskaði þess að við hefðum haft meiri tíma. Ég tel mig heppinn að hafa kynnst þér og er mjög þakk- látur fyrir þá vináttu sem við áttum öll þessi ár. Þú varst mér góður vin- ur og reyndist mér og mínum vel, á góðum sem og slæmum stundum. Ég sakna þín. Takk fyrir samfylgdina á þessu ferðalagi, vinur minn, og við sjáumst aftur fyrr eða síðar. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég ættingjum, vinum og öðru sam- ferðafólki Sigga. Minning þín mun alltaf lifa með mér. Þinn, Ásgeir Hrafnkelsson. Ég hef svo mikið að segja og ég gæti skrifað margar blaðsíður til þín. Þú varst tekinn svo snögglega í burtu og það er svo erfitt að átta sig á því. Ég á erfitt með að kyngja því að ég eigi aldrei aftur eftir að sitja með þér í staffahorninu, aldrei eftir að hlæja endalaust með þér, aldrei eftir að stríða þér eða hlæja að þér og Andra að fíflast. Ég er ánægð með seinasta kvöldið okkar í Sveinbjarn- argerði, ég er þakklát fyrir þann tíma með þér, að fá að knúsa þig og segja þér hversu vænt mér þykir um þig. Síðasta sumar var besta sumar lífs míns, ég kynntist ykkur öllum og þið tókuð á móti mér eins og litlu systur ykkar og þið pössuðuð mig, ég lærði mjög mikið og þroskaðist. Ég mun alltaf muna góðu stundirnar með þér, Siggi. Ég var að rifja upp í dag að við tvö höfum aldrei rifist, ég man að þegar ég gerði eitthvað vit- laust í vinnunni þá komstu alltaf með uppbyggilegar ábendingar og ég sá svo hvað þú vildir vel. Þetta er svo erfitt og mér er svo illt í hjartanu. Litla fjölskyldan okk- ar á Amor er æðisleg, við erum svo samrýnd og við erum svo góð hvert við annað, það verður alltaf skarð í fjölskyldunni því það vantar annan pabbann. Ég vona að þú passir okk- ur og verðir ætíð nálægt okkur, þú verður alltaf í hjörtum okkar. Ég mun sakna þín svo mikið, Siggi. Ég mun alltaf muna hversu hæfileika- ríkur þú varst og hversu vænt þér þótti um okkur öll. Guð geymi þig, Siggi minn, og sjáumst á endanum. Auður. Úff! Siggi minn, ég bara veit ekki hvar ég á að byrja að skrifa. Það er svo ólýsanlega sár tilfinning að missa einn af bestu vinum sínum. Því miður þekktumst við ekki eins lengi og ég hefði kosið en samt finnst mér ég hafa þekkt þig alla ævi miðað við hvernig samskipti okkar voru. Þú varst miklu meira en bara yfirmaður og starfsmaður, þú varst bara einn besti vinur minn sem ég gat sagt allt. Þegar þeir félagar Guðjón og Sig- urður opnuðu nýjan skemmtistað á Akureyri, Café Amor, hringdi Siggi, eða maðurinn með síða hárið eins og ég heyrði hann fyrst nefndan, í mig og sagðist vilja fá mig til að spila hjá sér einhverja helgi. Ég hugsaði mig ekki tvisvar um og sló til. Strax eftir fyrsta kvöldið kom hann til mín með vindilinn og hrósaði mér í hástert og sagðist vilja fá mig til að vinna hjá sér. Ég var rosalega ánægður með hrósið og var ekki lengi að hugsa mig um. Eftir að þú fluttir í Laxagötuna sagðirðu mér að það væri laus íbúð til leigu í húsinu. Mér fannst það frá- bært, enda kominn tími á að koma undir sig fótunum, þannig að ég sló til og við vorum þar með orðnir ná- grannar, vinnufélagar og vinir. Þú varst alltaf til staðar, hvort sem það var þegar mér leið illa, vant- aði eitthvað eða bara einhvern að tala við, þá átti ég vin fyrir ofan sem gat hjálpað mér og nýtti ég mér það oft. Þú varst ávallt tilbúinn að hlusta á hvað ég hafði að segja. Þú hjálpaðir mér að skipuleggja mikilvægt stefnumót og komst til mín ef þú vissir að mér leið illa og hélst utan um mig, sagðir mér að þér þætti vænt um mig og allt yrði í lagi. Það var eldsnemma morguninn 12. desember sem ég var að keyra heim af árshátíð Café Amor sem haldin var í Sveinbjarnargerði að ég sá fullt af blikkandi bláum ljósum í fjarska. Ég fékk rosalegan hnút í magann en vildi ekki trúa því sem kom upp í huga mínum. Lögreglan stoppar mig og segir að það hafi orð- ið slys og vegurinn sé lokaður. Ég dofnaði allur og skalf, ég vissi strax hvað hafði komið fyrir, en vildi bara ekki trúa þessu. En síðustu samskipti okkar voru mjög góð, ég fékk að kveðja þig með klappi á bakið og segja þér að allt yrði í góðu, bara að ég hefði vitað, þá hefði ég aldrei sleppt þér. Söknuður- inn er ólýsanlegur en ég veit að núna ertu kominn á mun betri stað og þér líður vel, sjálfsagt með vindilinn og GT að stjórna Guðs bar og vonandi geymir þú starf handa mér þegar minn tími kemur. Þú varst frábær, Siggi, þú varst sá sem tók mér opnum örmum, alveg bláókunnugum strák. Ég á minning- ar um okkur talandi um allt milli himins og jarðar og ég minnist góðs og hjartahlýs manns sem vildi öllum vel. Þessar minningar eiga eftir að hjálpa mér í framtíðinni En núna er komið að kveðjustund og ólýsanlega sárt að sitja og finna kveðjuorð handa þér. Vil ég votta fjölskyldu Sigurðar mína dýpstu samúð. Megi Guð styrkja drengina hans í framtíð- inni. Þinn vinur Andri Rúnar Karlsson. Að setjast niður og skrifa minn- ingargrein um vin minn Sigurð er eitthvað svo óraunverulegt. Ungur maður í blóma lífsins, tekinn frá okk- ur. Sigurður var fjallmyndarlegur, lífsglaður og drengur góður. Kynni okkar hófust fyrir bráðum tuttugu árum. Sigurður bjó í Kópavogi og var að læra kjötiðn hjá SS og ég í þjónanámi. Þetta var tími kúreka- stígvéla og oftar en ekki var hrein- lega sofið í þeim. Núna tuttugu árum síðar eru þau aftur í tísku. Siggi var nýlega búin að fá sér ný og finnst mér það lýsa honum vel. Eitt sinn vorum við félagarnir að rúnta á laug- ardagskvöldi í Reykjavík og velta fyrir okkur hvar skyldi vera mesta djammið í kvöld. Ýmislegt var nefnt en Sjallinn á Akureyri varð fyrir val- inu. Brunað var norður og komum að Sjallanum um miðnættið. Komumst ekki inn vegna klæðnaðar og var þá farið á næsta stað. Átján árum síðar bjuggum við báðir í Reykjavík og var nú ákveðið að fara aftur norður en nú til að hefja veitingarekstur.Við brunuðum nú aftur norður og feng- um tveggja manna herbergi á gisti- húsi og unnum dag og nótt að því að gera reksturinn eins vel og við gát- um. Nú tíu mánuðum síðar hefur Sig- urður verið kallaður til annarra verka á himnum. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast hon- um og hugur minn er allur hjá drengjunum hans og fjölskyldu sem hefur misst svo mikið. Minningin um góðan dreng lifir með okkur um ókomna tíð og ég er þess fullviss að við munum hittast síðar. Ég bið al- góðan guð að styrkja drengina hans, föður hans, systur og aðra ástvini hans sem eiga nú um sárt að binda. Guðjón Örn Ingólfsson. Leiðir okkar Sigga lágu fyrst sam- an í Digranesskóla í Kópavogi, þá níu ára gamalla. Það var upphafið að vináttu sem hélst óslitið til þessa dags. Margar okkar bestu stundir áttum við með félögum okkar í ÍK, en í það félag gengu flestallir áhugasamir fótboltastrákar úr austurbæ Kópa- vogs þegar það var stofnað 1976. Siggi hafði mikinn áhuga á íþrótt- um og það var nánast sama hvort það var fótbolti, skíði eða borðtennis alltaf var Siggi fremstur meðal jafn- ingja. Ótal minningar geymi ég í huga mér tengdar öllu íþróttastússinu á þessum árum, flestar góðar. Ung- lingsárin í Kópavogi voru sérstakur kapítuli í lífi okkar allra þar sem Skiptistöðin, pönkið og allt sem því fylgdi spilaði stóra rullu, sem sjálf- sagt er efni í stóra bók. Siggi Róberts átti fallegt bros og stórt hjarta, þannig mun ég minnast hans. Hugur minn er hjá fjölskyldu Sigurðar á þessum erfiðu tíma. Blessuð sé minning Sigurðar Arn- ar Róbertssonar. Þar sem englarnir syngja sefur þú, sefur í djúpinu væra. Við hin sem lifum í trú á að ljósið bjarta skæra veki þig með sól að morgni, veki þig með sól að morgni. Farðu í friði, vinur minn kær, faðirinn mun þig geyma. Um aldur og ævi þú verður mér nær, aldrei ég skal þér gleyma. Svo vöknum við með sól að morgni. Svo vöknum við með sól að morgni. (Bubbi Morthens.) Bjarni Þorgeir Bjarnason. Systir okkar og mágkona, GUÐRÍÐUR SVALA KÁRADÓTTIR frá Presthúsum í Vestmannaeyjum, sem andaðist þriðjudaginn 13. desember, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju miðvikudaginn 21. desember kl. 13.00. Fyrir hönd aðstandenda, Jón T. Kárason, Bjarghildur Stefánsdóttir, Kári Þ. Kárason, Anna J. Eiríksdóttir. Faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJARNI ÞORSTEINSSON frá Hurðabaki, Reykholtsdal, er látinn. Útför hans fer fram frá Reykholtskirkju fimmtudaginn 22. desember kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Gunnar Bjarnason, Þóra Bjarnadóttir. Ástkær móðir okkar, systir og fósturdóttir, ÓLÖF GUÐJÓNSDÓTTIR, lést mánudaginn 12. desember. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju miðviku- daginn 21. desember kl. 11:00. F.h. annarra vandamanna, Marvin Ingólfsson, Þóra Björk Ingólfsdóttir, Ingi Guðjónsson, Margrét Ólafsdóttir. Elskuleg móðir okkar, fósturmóðir, tengdamóðir og amma, HULDA ÞORBJÖRNSDÓTTIR, lést á Hrafnistu Hafnarfirði sunnudaginn 18. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Börn, fósturbörn, tengdabörn og barnabörn. Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, SIGURPÁLL ÍSFJÖRÐ AÐALSTEINSSON áður til heimilis á Kópavogsbraut 1a, lést á Sólvangi, Hafnarfirði, að morgni laugar- dagsins 17. desember. Jarðarförin auglýst síðar. Ólafur Sigurpálsson, Arndís Þorsteinsdóttir, Aðalsteinn Ísfjörð, Unnur Sigfúsdóttir, Gylfi Þ. Sigurpálsson, Fríða Björk Pálsdóttir, Árni Arnar Sigurpálsson, Aðalheiður Inga Mikaelsdóttir, Hólmfríður Sigurpálsdóttir, Styrmir Gíslason, Símon Sigurpálsson, Karitas Pétursdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir minn, tengdafaðir, fósturfaðir, afi og bróðir, STEINGRÍMUR KRISTJÁNSSON, Árnatúni 3, Stykkishólmi, áður Öckerö, Svíþjóð, lést föstudaginn 16. desember. Útförin fer fram frá Stykkishólmskirkju fimmtu- daginn 29. desember kl. 14.00. Britta og Sune, Kristina og Kristian, Monica og Bertil, Helene, Anna-Karin og Svein-Olof og fjölskyldur. Jóhanna Kristjánsdóttir, Ólafur Kristjánsson, Bergþóra Magnúsdóttir, Hallveig Magnúsdóttir. Elskulegur eiginmaður minn, JÓNAS TRYGGVI GUNNARSSON frá Vík, Kristnibraut 25, Reykjavík, lést á Landspítalanum við Hringbraut mánudaginn 19. desember. Fyrir hönd fjölskyldunnar, Helga Árnadóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.