Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 48

Morgunblaðið - 20.12.2005, Qupperneq 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 20. DESEMBER 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR Í október 1988 hitt- ust mætir menn á skrifstofu verktakafyr- irtækisins Krafttaks í Reykjavík og börðu saman 13 síðna plagg á ensku þar sem því var slegið föstu að hvorki væru tæknilegar né fjármálalegar hindranir í vegi þess að grafa jarðgöng undir Hvalfjörð. Þetta var fyrsta agnið sem búið var til með í huga að lokka erlenda fjár- festa að Hvalfjarðargöngum. Tveir fundarmanna hafa nú fallið frá með skömmu millibili; norski jarðgangasérfræðingurinn Olav T. Blindheim í september síðastliðnum og nú Stefán Reynir Kristinsson. Blindheim skrifaði upp á að fullkom- lega væri framkvæmanlegt að gera göngin og í hlut Stefáns Reynis kom að draga upp mynd af nógu burðugu félagi til að standa undir fjárfesting- unni og rekstri ganganna. Þarna voru stigin skref á leið sem átti eftir að vera löng og grýtt og margur maðurinn hefði bara gefist upp. En Spalarmenn gerðu það ekki og náðu í febrúar 1996 að ljúka flókn- um og umfangsmiklum samningum um fjármögnun og framkvæmdir STEFÁN REYNIR KRISTINSSON ✝ Stefán ReynirKristinsson fæddist í Reykjavík 20. september 1945. Hann lést á Land- spítalanum 10. des- ember síðastliðinn og var útför hans gerð frá Dómkirkj- unni 16. desember. fyrsta einkamannvirk- is í samgöngumálum hérlendis. Mest mæddi á þremur mönnum af hálfu Spalar við að finna leiðir til að fjár- magna Hvalfjarðar- göng: Erlendi Magn- ússyni, þáverandi ráðgjafa í Nomura Bank í Lundúnum, Gylfa Þórðarsyni, framkvæmdastjóra Sementsverksmiðj- unnar, og Stefáni Reyni, þáverandi fjármálastjóra Járnblendifélagsins. Nöfn þeirra heyrast hvað eftir annað nefnd þegar rætt er við menn sem komu sjálfir að fjármögnun Hval- fjarðarganga eða þekktu til mála af öðrum ástæðum. Stefán Reynir var maður hógvær og ekki gefinn fyrir að gera mikið úr sínum hlut. Þáttur hans var engu að síður drjúgur og vonandi gefst færi á að varpa síðar ljósi á það og fleira í aðdraganda framkvæmda í Hvalfirði. Stefán Reynir var sögumaður góð- ur með brennandi þjóðmálaáhuga, húmoristi með þægilega nærveru. Það voru forréttindi að fá að kynnast honum og eiga við hann samskipti. Sárt er að kveðja en um leið léttir að vita af því að Stefán Reynir þarf ekki lengur að þjást. Ég votta fjölskyldu hans innilega hluttekningu. Atli Rúnar Halldórsson. Við vorum saman í vegamæling- um. Ungir að árum áttum við vist í eyðihúsi efst í Laxárdal. Hann, tveimur árum eldri, innprentaði mér þar á bak við hólana jafnrétti, bræðralag og mátt öreiganna. Þá sótti hann fundi í Æskulýðsfylking- unni. Löngu seinna kenndi hann mér að borga skattana mína. „Ég er glað- ur þegar ég borga skattana mína. Sjáðu Jón, hvernig til dæmis vegirnir hafa breyst! Og hefur þú þurft að borga fyrir námið þitt?“ Aðeins eldri lágum við í tjaldi í Kjálkafirði undir leiðsögn Sigurðar Hauks mælingamanns og í fé- lagsskap með Manga í Botni vega- verkstjóra. Reynir hrærði í súpunni á prímusnum og hafði Somerset Maug- ham í kjöltunni og las. Hann hrein- lega át bækur svo viðbrugðið var lestrarhraða hans. Fyrir mína kunn- áttu var enska þessa ágæta rithöf- undar of tyrfin. Þá var miklu betra að láta Reyni endursegja sér innihaldið. Ég sá frekar um eldamennskuna svo ekki kviknaði í tjaldinu í miðri flett- ingu. Og ekki voru eyrun síður opin þegar hann sagði mér frá skemmt- analífi skólafélaga sinna. Eftir upphafsár Íslenska járn- blendifélagsins á Grundartanga réðst Reynir þangað til starfa. Þá var ég þar. Það var gott að geta leitað aftur til hans í vanda. Árlega fórum við til Oslóar að berja á Norðmönnum í fjárhagslegu uppgjöri við Elkem. Og við unnum marga orustuna, glöddumst í hvert sinn og héldum upp á það saman. En þeir unnu stríðið og við vikum af velli, fyrst hann og svo ég nokkrum árum síðar. „Þú átt að vinna við háskól- ann,“ sagði Reynir og lagði sitt af mörkum til að svo yrði. Saman fórum við til Stavanger og nú til að læra af Norðmönnum. Þá sátum við í stjórn nýstofnaðs félags, Spalar hf. Þarna sóttum við ráðstefnu um rekstur og lagningu jarðganga. Og við skoðuðum sjávargöngin í sunnanverðum Boknafirði sem voru í smíðum. Eftir þessa ferð vissum við að verkefni okkar var viðráðanlegt og hvar við gátum fengið aðstoð og sótt þekkingu. Við tók skemmtilegur tími í góðum hópi. Reynir leiddi leitina að fjármagni. Þegar allt var klappað og klárt og hægt að bjóða út verkið þótti okkur grátbroslegt, en ef til vill eftir kenningu Karls Marx, að við vorum í undirbúningnum búnir að eyða meiru í fjármagnseigendur en þá sem lögðu til verkfræðiþekkinguna. Þó voru framkvæmdirnar nýmæli á Íslandi og tæknilega úrlausnin erfið. Þá töldu sumir fjölmiðlar að meira glap- ræði væri ekki til en að ætla sér undir Hvalfjörð. En Spölur hf. reyndist þjóðþrifafyrirtæki og Reynir leiddi það áfram þegar hann skildi við Ís- lenska járnblendifélagið. Þessa áratugi á Grundartanga gengu á skin og skúrir. Það var margur vandi við að glíma en líka margt til að gleðjast yfir. Þarna eyddum við okkar manndómsárum. Í erfiðum málum var gott að hafa einn í hópnum með hausinn örugglega rétt skrúfaðan á. Fyrir hönd gömlu vinnu- félaganna þakka ég Stefáni Reyni réttsýni og skarpan skilning. Í stuttu máli viljum við þakka honum fyrir góðan félagsskap. Frá því að Reynir var skorinn upp hef ég ferðast víða. Í búddahofum í Taílandi, Laos og Búrma hef ég reist reykelsi og lagt gullþynnur á lík- neski. Það gerði mér gott og vonandi honum líka sem gjörningurinn var ætlaður. Í kaþólskum kirkjum um sunnanverða Evrópu hef ég kveikt á kertum. Hafi ég rangt fyrir mér um lok þessa lífs veit ég að við munum glaðir taka upp þráðinn aftur og halda áfram að ræða um mannlífið og tilveruna. Með aldrinum áttuðum við okkur á því að við höfðum ekki alltaf á réttu að standa og nú vona ég að svo sé. Þá mun Reynir kenna mér bridds svo við náum að þreyja eilífðina. Það var íþrótt sem hann gat aldrei þokað inn í mig, en á móti kenndi hann mér svo ótal margt annað. Fjölskyldu Stefán Reynis færi ég innilegustu samúðarkveðjur og hug- hreystingarorð. Jón Hálfdanarson. Mig langar að minnast öðlingsins Stefáns Reynis Kristinssonar, afa dóttur minnar, með örfáum orðum. Þegar ég hitti Reyni fyrst, fyrir rúmum 17 árum, líkaði mér strax vel við hann og mjög fljótt var mér farið að þykja reglulega vænt um hann og á það reyndar við um þau bæði hjón- in; hann og eiginkonu hans og sálu- félaga, Guðríði Þorsteinsdóttur. Þannig hefur það verið æ síðan. Reynir var skemmtilegur maður. Hann hafði upplifað margt, var víð- lesinn og deildi því með öðrum af ríkri frásagnarlist og miklum húmor. Reynir hafði sterka réttlætiskennd og mikið jafnaðargeð sem gerði það að maður hlustaði á það sem hann sagði og tók mark á því. Ég lít á þennan mannvin sem vel- gerðarmann minn og barnanna minna, og mun alltaf minnast hans með þakklæti og hlýju. Ég votta aðstandendum mína dýpstu samúð. Sigurður K. Þórisson. Ég kynntist Stefáni Reyni árið 1989 þegar ég heimsótti Íslenska járnblendifélagið á Grundartanga í fyrsta sinn. Í störfum mínum fyrir fé- lagið vann ég oft náið með Stefáni Reyni, einkum þó í tengslum við stækkun verksmiðju félagsins þegar við unnum að arðsemiútreikningum, gerð fjárfestingaskýrslu og fjárhags- legum undirbúningi þess verkefnis. Ég áttaði mig fljótt á því að á þessum sviðum átti Stefán Reynir fáa jafnoka hér á landi enda naut hann mikillar virðingar, bæði innan fyrirtækisins og meðal allra þeirra fjölmörgu sem hann átti samskipti við. Eftir árin hjá Járnblendifélaginu átti ég regluleg samskipti við Stefán Reyni vegna stjórnarstarfa hans fyr- ir Al, álvinnslu hf., sprotafélag sem var stofnað 1998. Stefán Reynir var einn af stofnendum og sat í stjórn Als frá upphafi og á drjúgan þátt í því að félagið þróaðist í að verða starfandi verksmiðja í dag. Fjármálaleg leið- sögn Stefáns Reynis var félaginu ómetanleg og þátttaka hans í verk- efninu opnaði ýmsar dyr sem ella hefðu verið luktar. Nú er lokið hetjulegri baráttu Stef- áns Reynis við erfiðan sjúkdóm. Þótt hann sé horfinn sjónum mun minning hans lifa. Ég er þakklátur fyrir að hafa fengið að kynnast Stefáni Reyni og njóta leiðsagnar hans og fyrir hönd Als, álvinnslu hf. þakka ég störf hans í þágu félagsins. Eiginkonu hans, dóttur og fjölskyldunni allri sendi ég samúðarkveðjur. Helgi Þór Ingason. Elskuleg móðir mín, GUÐRÚN GUÐLAUGSDÓTTIR, Nóatúni 24, lést laugardaginn 17. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Guðlaugur Ingimundarson. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ÁSA GUÐLAUG GÍSLADÓTTIR, f. 11.12. 1917, Fannafold 125a, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítala, Landakoti, sunnudaginn 18. desember. Gunnar Sighvatsson, Sigrún Sighvatsdóttir, Jón Gústafsson, Ólöf Sighvatsdóttir, Þorvaldur Bragason, Gísli Á. Sighvatsson, Kristjana G. Jónsdóttir, Ástrós Sighvatsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir til allra er sýndu okkur samúð við andlát og jarðarför SVEINS GUÐMUNDSSONAR, Heiðargerði 51, Reykjavík. Ólína Jónsdóttir, Jón Sveinsson, Inessa Lebedeva, Ingibjörg Sveinsdóttir, Bárður Guðmundsson, Þrymur Sveinsson, Hrönn Þorsteinsdóttir, Guðmundur Sveinsson, Kolbrún Gunnarsdóttir, Auðun, Rut, Jón Daði, Kristín og Sveinn Óli. Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, dóttir og amma, INGIBJÖRG STEFÁNSDÓTTIR, Starengi 28, Reykjavík, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi að morgni sunnudagsins 18. desember, verður jarðsungin frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 28. desember kl. 13.00. Kristján Daníelsson, Ásta Sjöfn Kristjánsdóttir, Guðmundur Ólafsson, Dagný Kristjánsdóttir, Jónas B. Jónasson, Sylvía Kristjánsdóttir, Ólína Elínborg Kristleifsdóttir og barnabörn. Minningarkort 535 1825 www.hjarta.is 5351800 Elsku Maggi afi okkar er dáinn. Við trúum því varla enn þá. Fyrir svo stuttu var hann svo sprækur og var í okkar augum engan veginn tilbú- inn til að deyja. Hann vildi alltaf gera allt fyrir okkur og alla, hann fór með okkur barnabörnin í bíltúra og kenndi okk- ur örnefni og bæjarheitin í sveitinni. Á hverjum morgni, í hvaða veðri sem var, fór hann í göngutúr. Hon- um fannst svo gaman þegar við komum með honum og þá töluðum við um allt milli himins og jarðar. Líka þegar við hlupum yfir til hans á kvöldin, hann gaf okkur alltaf eitthvert nammi og ef maður af- þakkaði einu sinni, þá hélt hann að maður væri kominn í megrun. Við gátum alltaf leitað til afa ef við áttum í vanda. Hann hlustaði alltaf og sagði svo sínar skoðanir hreint út. MAGNÚS KOLBEINSSON ✝ Jón Magnús Kol-beinsson fæddist á Þorvaldsstöðum í Hvítársíðu 14. júlí 1921. Hann lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi 5. desember síðast- liðinn og var jarð- sunginn frá Reyk- holtskirkju 17. des- ember. Hann hélt upp á gamlar myndir, verk- færi og vélarnar sem voru hér áður fyrr í sveitinni og kom því á byggða- og búvélasöfn. Afi varði löngum stundum í að skrifa niður eitt og annað um sveitina okkar og ábú- endurna þegar hann var yngri. Okkur finnst frábært að hann gat komið þessu öllu út í bók áður en hann fór. Minning okkar um Magga afa er af einstakri manneskju sem við hefðum viljað þekkja miklu lengur. Það eru forréttindi að hafa fengið að alast upp í návist hans. Við kveðjum afa með fyrsta er- indinu úr ljóðinu „Fylgd“ eftir Guð- mund Böðvarsson sem hann reyndi að kenna okkur frá sex ára aldri: Komdur litli ljúfur, labbi, pabba stúfur, látum draumsins dúfur dvelja inn um sinn, – heiður er himinninn. Blærinn faðmar bæinn, býður út í daginn. Komdu, kalli minn. Takk fyrir þessar góðu samveru- stundir, Höskuldur, Anna Sólrún og Kristleifur Darri í Stóra-Ási. Minningargreinar sem birtast eiga þriðjudaginn 27. og miðviku- daginn 28. desember þurfa að ber- ast okkur fyrir hádegi á Þorláks- messu, föstudaginn 23. desember. Greinar sem eiga að birtast mánudaginn 2. og þriðjudaginn 3. janúar þurfa að berast fyrir hádegi föstudaginn 30. desember. Minningargreinar skulu ekki vera lengri en 400 orð eða 2.000 slög (með bilum). Greinarnar skal senda í gegnum vefsíðu Morgun- blaðsins: mbl.is – smella á reitinn Senda efni til Morgunblaðsins – þá birtist valkosturinn Minningar- greinar ásamt frekari upplýsing- um. Einnig er hægt að senda greinar á netfangið minning@mbl.is. Nafn og símanúmer þarf að fylgja, ef greinar eru sendar þannig. Sjálf- virkt svar er sent um hæl þar sem spurt er um nafn og símanúmer. Skil um hátíðarnar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.